Þjóðviljinn - 16.01.1980, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.01.1980, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN MiOvikudagur 16. janúar 1980. Geir Hallgrimsson hefur lagt lvkkju á leift sina til þess aft drepa hugmvndina um minnihlutastjórn Framsóknarflokks og Alþýöuflokks Enginn vill kosningar Fræöslunefnd BSRB efnir til þriggja daga efnahagsráöstefnu Hag- spekingar landsins láta ljós sitt skina A siöasta þingi BSRB var á- kveöiö að halda efnahagsráö- stefnu. Fræðslunefnd BSRB hefur nú ákveöið að ráöstefna þessi verði haldin dagana 31. jan. — 2. febr. næstk. A ráöstefnunni verður fjallaö um öll svið efnahagsmála og munu sérfræðingar á hverju sviöi flytja erindi. Umræður og fyrir- spurnir verða að loknum öllum erindunum svo og hringborösum- ræður sem þeir taka þátt i. i lok ráðstefnunnar inunu forustu- menn frá stjórnmálaflokkunum þeir Geir Hallgrimsson, Kjartan Jóhannsson, Steingrfmur Her- mannsson og Svavar Gestsson taka þátt í hringborðsumræðum undir stjórn Kristjáns Thor- laciusar form. BSRB. Dagskrá ráðsteinunnar verður á þessa leið: Fimmtudagur 31. janúar: Kl. 17.00 Erindi: Þjóðhagsreikningar, gengis- skráning. Jón Sigurðsson, for- stöðum. Þjóðhagsstofnunar. Kl. 20.30. Erindi: Fjárlagagerð, lánsfjáráætlun. Brynjólfur Sigurðsson, hagsýslu- stjóri. Föstudagur 1. febrúar Kl. 09.00 Erindi: Opinber gjöld. Hallgrimur Snorrason, hagfræöingur Þjóð- hagsstofnun. Erindi: F járfestingar, lánastofnanir, vextir, Jóhannes Siggeirsson, hagfræðingur ASÍ. Kl. 13.30. Erindi: Ahrif opinberra aðgeröa á at- vinnuli'fið. Asmundur Stefánsson, framkv. stj. ASt og Björn Arnórs- son, hagfræðingur BSRB. Hringborðsumræöur: Þátttakendur veröa framsögu- mennirnir. Stjórnandi: Haraldur Steinþórsson, framkv.stj. BSRB. Laugardagur 2. febrúar. Kl. 09.00 Land búnaður: Framsögumenn: Guðmundur Sigþórsson, deildarstjóri i land- búnaðarráðuneyti og Björn Björnsson, hagfræðingur. Iönaður: Framsögumenn: Þóröur Frið- bjarnarson, Félagi Isl. iðnrek- enda, og Asmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri ASl. Kl. 13.00. Verstun og viðskipti: Framsögumenn: Bjarni Jónsson, hagfræðingur, Verslunarráði Is- lands og Björn Arnórsson, hag- fræðingur BSRB. Sjávarútvegur, fiskvinnsla: Framsögumaður: Gamaliel Sveinsson, Þjóöhagsstofnun. Kl. 16.30. Hringborösumræður: Þátttakendur verða fulltriiar stjórnmálaflokkanna: Geir Hall- grimsson, Kjartan Jóhannsson, Steingrimur Hermannsson og Svavar Gestsson. Kristján Thorlacius formaður BSRB stjórnar. Þátttaka tilkynnist fræðslufull- trúa BSRB — simi 26688 — fyrir 25. janúar. ,,Þetta var svona al- mennt eldhús" eru ettir- mæli Benedikts Gröndals um þær sérkennilegu við- ræður sem Geir Hall- grímsson hefur staðið fyrir í nærri þrjár vikur milli stjórnmálaf lokk- anna. Helsta niðurstaðan úr þessum viðræðum kom hinsvegar fram í immæl- umGeir-5 Hallgrimssonar á fundi með fréttc-mönn- um: ,,Þessar viðræður hafa leitt í Ijós að allir flokkar eiga að geta rætt saman; hvort samstarf í r íkisst jórn verður árangurinn er svo annað mál." Litlu verður Vöggur feginn og langt um liðið siðan Sjálfstæðis- flokkurinn hefur gengið svo hógværlega fram i islenskum stjórnmálum sem nú. En Geir Hallgrimsson hafði harla litið fram að færa i upphafi áþreif- inga sinna við aðra flokka. Það var enda ekki nema von, þvi Sjálfstæðisflokkurinn glataði stefnu sinni i kosningunum þótt hann bætti við sig örlitlu at- kvæðamagni. Leiftursóknin rann út i sandinn og Geir Hall- grimsson gekk stefnurúinn til viðræöna. Einangrunin Sjálfstæðisflokkurinn taldi sig hinsvegar vera hættulega einangraðan. Kosningaúrslitin komu i veg fyrir viðreisnar- stjórn með Alþýðuflokki, auk þess sem kratar óttast atkvæða- tap með opnu samstarfi við ihaldið. A sama hátt verkuðu eindregnar yfirlýsingar Stein- grims Hermannssonar um að ekki kæmi til greina annað en vinstri stjórn og samstarf • Framsóknarflokks og Sjálf- stæöisflokks væri útlokað. En Geir Hallgrimsson getur verið tiltölulega ánægður með þjóðstjórnarviðræðurnar engu að siöur. Með þvi að þvæla Framsóknarflokknum inn I við- ræður undir forystu ihaldsins og láta um leið skina i sáttavilja við Alþýðubandalagiö hefur for- manni Siálfstæðisflokksins tek- ist að lækka verulega þröskuld- inn milli ihalds og Framsóknar. Það kann að reynast mikilvæg- ara skref en margan grunar i dag. Enginn vill kosningar Að þvi er Þjóðviljinn kemst næst mun það hafa komið skýrt fram i þjóðstjórnarviðræðunum að enginn af forystumönnum stjórnmálaflokkanna fjögurra er sérstaklega ginnkeyptur fyrir kosningum á þessu ári. Sjálfstæðisflokkurinn telur sig enga stöðu hafa i kosningum i náinni framtið, og veit sem er að forystumenn hans eru i litlu ■ áliti meðal landsmanna I dag. allra stjórnmálaflokkanna munu vera sammála um að utanþingsstjórn sé afar slæmur kostur. 1 fyrsta lagi muni stjórnmálamenn setja mjög niður og sé ekki dýrt i þeim pundið hjá þjóðinni nú þegar. t öðru lagi leysi hún ekki þing- vandann, og eftir sem áður muni reynast harla erfitt að fá nokkurn meirihluta fyrir mál- um á þingi. Það sem talar hinsvegar á móti þjóöstjórn er sú staðreynd að ástandiö i þjóðarbúskapnum er ekki það bágborið að það kalli á kreppustjórn eða stjórnar- fyrirkomulag sem einkum er tengt striðsárum eða hamförum sem snerta lifsafkomu þjóöar- innar. Flestir þættir þjóðar- búskaparins eru i sæmilegu jafnvægi og útreikningar um samdrátt þjóðartekna eru við það miðaðir að stór hluti fiski- flotans verði bundinn með valdi i höfn hluta af árinu og afli minnki frá þvi sem var i ár. Margir stjórnmálamenn draga i efa þau fiskifræðilegu rök sem að baki slikri stefnumótun standa, og telja ástand fiski- stofnananna til muna betra en haldið sé fram af Hafrann- sóknastofnun. Geir tilbúinn með minnihlutastjórn En það er mikil pressa á stjórnmálaflokkunum að mynda starfhæfa rikisstjórn, enda einn og hálfur mánuður liðinn frá kosningunum. Þrátt fyrir að þvi sé opinberlega mót- mælt hafa átt sér stað viöræöur milli áhrifamikilla leiðtoga Al- þýðuflokks og Framsóknar- flokks um myndun minnihluta- stjórnar þessara flokka. Þing- menn úr bændakjördæmum inn- an Framsóknarflokksins eru þessum hugmyndum mjög and- vigir, en meirihluti þingmanna Alþýðuflokksins rær fast á þessi mið. Steingrimur Hermannsson mun hinsvegar hafa lýst þvi yfir i þjóðstjórnarviðræðunum að hann teldi ekki rétt að ljá máls á minnihlutastjórnarviðræðum meðan annað stæði yfir. Bene- dikt Gröndal er talinn andvigur minnihlutastjórn, en ræður eins og fyrr litið við Vilmund og Sig- hvat. En á þessu er ljóst að þjóð- stjórnarhugmyndin var næsta vonlaus frá upphafi ,,og menn með hugann við annað” eins og Geir Hallgrimsson orðar það. Sama er upp á teningnum hjá Alþýðuflokknum sem hrósar happi vegna þess að á hans veg- um ultu þrir þingmenn inn á þing sem örugglega hefðu legið úti ef kosningataktik Sjálf- stæðisflokksins hefði ekki mis- heppnast gjörsamlega. Steingrimur Hermannsson hefur beðið guð að gefa sér að það verði ekki kosningar á árinu og vill halda I þann kosninga- árangur sem náðist,og innan Al- þýðubandalagsins er heldur ekki áhugi á kosningum. Það er einnig mat flokksformanna að töluvert hafi verið lagt á þjóðina með undanfarandi tvennum kosningum svo ekki sé farið að demba þingkosningahríð yfir landslýð ofaná forsetakosningar á þessu ári. Lagasetning? Það var einkum formaður Framsóknarflokksins sem i þjóðstjórnarviðræðunum leitað- ist við að toga ákveðna tillögu- gerð út úr Sjálfstæðisflokknum og fékkst það fram þó án þess að þingflokkurinn skrifaði uppá þær. Einkum mun Jónas Haralz bankastjóri hafa lagt á efna- hagsráð Geirs auk þess sem Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins var I áþreifing- um á Geirs-vegum i þessum við- ræðum. Meginhugmynd Geirs Hall- grimssonar var að töfra burt 10 til 15 visitölustig á næstu mánuöum til þess að lækka veröbólgu, en bláþráðarkenndar þóttu aöferðirnar sem stungið var uppá. I stjórnarmyndunar- viðræðum Geirs mun hafa kom- iðfram aö Sjálfstæöisflokkurinn erekki meö hugmyndir uppi um lögfestingu til þess að lækka kaupið, heldur ætti aö stefna að samkomulagi um aðgerðir i kjaramálum við aðila vinnu- markaöarins. Framsóknar- flokkurinn mun hafa lýst sig andvigan lagasetningu án þess að verkalýðshreyfingin féllist i megindráttum á hana. Af hálfu Alþýðuflokks var þá spurt hvað gera ætti ef verkalýöshreyfingin féllist ekki á úrræði hugsanlegr- ar þjóðstjórnar. Litil svör feng- ust við þvi. Meö og móti þjóðstjórn Þótt það sé almennt álitið að Geir Hallgrimsson hafi juðað við þjóðstjórnarhugmyndina i miklu verkleysi er hún þó ekki fráleitur kostur. Forystumenn Það er á hinn bóginn athyglis- J vert að formaður Sjálfstæðis- ■ flokksins leggur lykkju á leið I siná er hann skilar umboði sinu J til forseta til þess að mótmæla | minnihlutastjórnarhugmyndum. ■ Hann segir óhikað að Sjálf- I stæðisflokkurinn muni ekki a verja slika stjórn Framsóknar ■ og Alþýðuflokks falli og fái hún J engan stuðning hjá ihaldinu. • Sagt er að Geir Hallgrimsson fti hafi gengið lengra en þetta og ■ tjáð forseta að þegar meiri- hlutamöguleikar hafi verið ■ reyndir til þrautar, þá skuii I menn vita að Sjálfstæðis- J flokkurinn sé þegar tilbúinn ■ með ráðherralista minnihluta- I stjórnar á eigin vegum. Þetta J mun vera sett fram meðfram til | þess að setja kratana á pláss og ■ lika til þess að halda lifi i hug- I myndinni um þjóðstjórn, sem m geti komið upp aftur sem kost- ■ ur, þegar Svavar Gestsson og ■ siðan Benedikt Gröndal hafa . steytt á steini i sinum tilraun- I um. Öðruvísi „vinstri" stjórn | A allra siðustu dögum hafa J svo verið settar fram hugmynd- | ir um að Alþýðubandalagið ■ leiddi saman Ihaldið og Fram- I sókn yfir Steingrims þröskuld m inn i „vinstri stjórn” sem þá ■ bæri það virðingarheiti ein- ■ göngu vegna aðildar Alþýðu- Z bandalagsins. Hún gæti þá eins I kallast þjóðstjórn án Alþýðu- ■ flokksins, eins og þjóöstjórnin á | striðsárunum sem var án ■ Sósialistaflokksins. Yfirlýs- I ingar kratanna um að þeir muni m sprengja hvaða rikisstjórn sem ■ er uns þeir fái sitt fram á sinn ■ þátt i að þessi hugmynd hefur i fæðst. Enn sem komið er hafa | Alþýðubandalagsmenn sagt fátt ? um þennan möguleika, enda má | vist flokkurinn hvorki hafa for- ■ sætisráðherra né ýja að hermál- I inu i slikri stjórn, þótt hann m hugsanlega fengi leyfi til þess ■ að mynda hana fyrir Geir og ■ Steingrím. Kratar og kreppan En það er vert að leiða hug- | ann að þvi i lok þessa spjalls að ■ það var Alþýðuflokkurinn sem I rauf rikisstjórn i haust, knúöi ■ fram kosningar meö tilstyrk ■ Sjálfstæöisflokksins og kallaði I með þvi fram þá stjórnarkreppu ■ sem hér rlkir. Eins og fram hef- I ur verið að koma á siðustu vik- a um voru engin efnahagsleg til- | efni til slikra örþrifaráða og þvi ■ bara Sjálfstæðisflokkurinn og I þó fyrst og fremst Alþýðu- a flokkurinn höfuðábyrgðina á þvi ■ að landið er að heita má stjórn- ■ laust. Einmitt það stjórnleysi Z getur haft alvarlegar afleið- I ingar, þvi óvissan i stjórn- ■ málunum og bið á verðbólguað- I gerðum getur vissulega teflt ■ málum I algjört öngþveiti, sem ■ er þá af pólitiskum rótum runn- J ið en ekki efnahagslegum. Einar Karl. FRÉTTASKÝRING °Enginn vill heldur utanþingsstjórn, en samt er langt í stjórnarmyndun

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.