Þjóðviljinn - 16.01.1980, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvjkudagur 16. janúar 1980.
Hverjir greida mest til Sameinudu þjödanna?
Svíar greida sexfalt
meira en íslendingar
miðað við íbúafjölda
Hver Svíi greiðir rúmar
hundrað sænskar krónur á
ári tii Sameinuðu þjóðanna
og ýmissa sérstofnana
þeirra, eða samsvarandi
9.600 ísl. krónum. Hver
íslendingur greiðir til SÞ
og stof nana þeirra 1.347 kr.
og er þá miðað við f járlög
1979. Framlag hvers Svía
jafngildir 20 dollurum á
ári, en framlag hvers
íslending jafngildir 3,4
dollurum. Svíinn greiðir
því nær 6 sinnum hærri
upphæð en fslendingurinn.
Norðmenn borga þó enn
meira en Svíar, eða 23 doll-
ara á mann.
Hins vegar leggja efnahags-
stórveldi eins og Bandarikin,
Vestur-Þýskaland, Japan og
Sov.étrikin aðeins fram upphæð
Stórveldin
eru miklu
naumari en
Norðurlönd
og nokkur
önnur
smærri ríki
sem nemur 192 til 960 ísl. krónum
á ibúa á ári til SÞ og stofnana
þeirra.
Bandaríkin
greiða mest
Sendiherra Svia hjá SÞ, Anders
Thunborg, kynnti ýmsar saman-
burðartölur um framlag rikja til
SÞ sl. haust sem innlegg i mikla
umræðu sem fram fór i banda-
riskum fjölmiðlum og barnariska
þinginu. 1 þessari umræðu var SÞ
lýst sem risastóru skrifstofuveldi
með 44.000 starfsmenn, sem að
mestum hluta lifði á raunarlegum
framlögum Bandarikjanna. Og
það er rétt, að Bandarikin greiða
mest til SÞ, sérstofnana þeirra
viða um heim og friðargæslu-
sveitanna.
A sl. ári nam framlag Banda-
rikjanna samtals 553 miljónum
dollara eða 221,2 miljörðum is-
lenskra króna. I öðru sæti er Svi-
þjóð með um 170 miljónir dollara
eða 68 miljarða isl kr.
Aðrir á topp-tiu listanum yfir
stærstu greiðendur til SÞ eru póli-
tísku og efnahagslegu stórveldin
Vestur-Þýskaland, Japan, Bret-
land og Sovétrikin, ásamt minni
rikjum, Hollandi, Danmörku og
Noregi.
Noregur nr. 1
á hvern ibúa
Ef tekið er tillit til ibúafjöida
þessara rikja, litur listinn nokkuð
öðruvisi út. Þá er Noregur efstur
á blaði, og siðan koma Sviþjóð og
Danmörk. Hver Norðmaður
greiðir 23 dollara og hver Svii 20
dollara. Næstá listanum ef miðað
er við framlag á hvern ibúa koma
Hoiland, Kanada og arabalöndin
fimm, Qatar, Saudi-Arabia,
Sameinuðu furstadæmin, Kuwait
og Libýa.
island með 3,4 dollara á
mann
Island greiðir 3,4 dollara á
hvern ibúa til SÞ og sérstofnana
og er þvi ofar á þessum lista en
Vestur-Þýskaland, sem er i 14.
og 15. sæti með aðeins 2,5 dollara
á ibúa. Mun aftar á merinni eru
svo Japan og Sovétrikin.
Ef tekið er tillit til brúttóþjóð-
arframleiðslu þessara landa
kemur það einnig i ljós, að Norð-
urlöndin og ýmis arabariki eru
ofarlega á listanum, en stóru og
auðugu rikin eru neðarlega á
blaði.
Brú11óframleiðs 1 a ts-
lendinga er áætluð 1979 samtals
827 miljónir kr., en nam árið 1978
576 miljónum, hvort tveggja
reiknað á verðlagi þessara ára.
Ekki höfum við hér nákvæman
samanburð við önnur riki, þannig
að ekki verður um það sagt hvar
við erum i röðinni ef miðað er við
þjóðarframleiðsluna.
Islendingar greiddu samkvæmt
fjárlögum 1979 til SÞ, ýmissa sér-
stofnana þeirra og alþjóðastofn-
ana misjafnlega mikið tengdra
SÞ alls kr. 302.995.000,- kr. Heild-
artillag tslands til allra alþjóða-
stofnana skv. fjárlögum 1979 var
hinsvegar mun hærra, eða kr.
2.188.285.000,-. Helstu alþjóð-
legar stofnanir eða samþjóðlegar
sem tsland á aðild að fyrir utan
SÞ eru Evrópuráðið, OECD,
NATO, EFTA og Norðurlanda-
ráð.
Aðeins 1/7 til SÞ
Athygli vekur hve framlagið til
Sameinuðu þjóðanna og hinna
fjölmörgu sérstofnana þeirra er
litið brot af heildarframlagi okk-
ar til alþjóöastofnana eða aðeins
tæplega sjöundi hluti þess.
Til Sameinuðu þjóðanna sjálfra
greiða tslendingar aðeins kr.
29.465.000 samkv. fjárlögum 1979
og það er aftur á móti aðeins
tæpur tiundi hluti heildarfram-
lagsins til SÞ og sérstofnana
ýmissa.
Auk Sameinuðu þjóðanna
sjálfra greiðum við tillag til
hvorki fleiri né færri en 39 sér-
stofnana og sjóða samtals. Þar af
greiðum við langmest til Alþjóða
framfarastofnunarinnar, IDA,
eða 114 miljónir. Næst kemur
framlag til Háskóla SÞ i Tokýó,
33.2 miljónir króna. Bæði þessi
framlög eru hærri en til aðalskrif-
stofu SÞ. Þriðja hæsta framlag
tslands rennur til Þróunaraðstoð-
ar SÞ„ UNDP. Nemur það kr.
27.966.000.
Haagdómstóllinn
tær minnst
Lægstu framlögin af okkar
hSlfu renna til Gerðardómins i
Haag, sem komið hefur við sögu
okkar á siðustu árum eins og
menn muna. Hann fær litlar 41
þúsund krónur. Til Alþjóða landa-
fræðisambandsins fara 53 þúsund
kr. og 71 þúsund til Alþjóða jarð-
fræðisambandsins.
Þess má geta, að til Kvenna-
áratugssjóðs SÞ lögðu tslending-
ar á siðasta ári 614 þúsund kr.
samkv. fjárlögum og tillag til al-
þjóðaárs barnsins nam 767 þús-
und krónum.
Norræn nefnd samstarfs
á sviði tónlistar (NOMUS)
auglýsir:
Úthlutað verður i ár styrkjum til tónsmiða
og tónleikahalds likt og undanfarin ár.
1. Stofnanir, félög eða einstakir tönlistarmenn geta sótt
um styrk til að fá norrænt tónskáld frá ööru landi en
heimalandi slnu til að semja verk fyrir sig. Umsókn skal
gerð meö samþykki viðkomandi tónskálds. Allar tegundir
verka koma til greina, jafnt verk fyrir atvinnumenn sem
áhuga- eða skólafólk.
2. Styrkir til tónleikahalds eru bæöi fyrir tónleikaferðir og
einstaka tónleika, jafnt til atvinnufólks sem áhugamanna,
einstaklinga eða flokka flytjenda. Umsókn um fyrir-
hugaða tónleika skal fylgja samþykki þeirra, sem heim-
sóttir verða. Æskilegt er, að norrænt verkefnaval sé I
fyrirrúmi.
Umsóknarfrestur er til 1, mars n.k.
NOMUS c/o Norræna húsið, Reykjavik.
Nánari upplýsingar veitir Árni Kristjánsson
sima 13229.
Tilkynnfng til kaupmanna
frá Verðlagsstofnun
Verðlagsstofnun vekur athygli kaup-
manna á 36. gr. hinna nýju laga um verð-
lag, samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti, sem hljóðar þannig:
,,Útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á
lækkuðu verði, má þvi aðeins auglýsa eða
tilkynna, að um raunverulega lækkun sé
að ræða.
Þess skal gætt, að greinilegt sé með
verðmerkingum, hvert hið upprunalega
verð vörunnar var.” , ,
Verðlagsstofnun.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast I smlði á plpuundirstöðum fyrir Hitaveitu
Reykjavlkur.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri Frlkirkjuvegi 3
Reykjavik,
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 31. jan.
1980. kl. 11. f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVIKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Sími 25800
• •
Þorsteinn O.
Stephensen
75 ára afmæliskveðja
Þú vígslu hlaust í helgum þjóðarreit,
þá hetjur fornar voru á sviðið kvaddar.
Og sama ár sú stofnun Ijósið leit,
er löngum hefur notið þinnar raddar.
Ég man það glöggt hve greipstu huga minn,
er grálynd öfl um veröld myrkri stráðu,
og Ebbesen fékk líf við leikinn þinn,
svo lýsti af von til bjargar hinum þjáðu.
En stundum hafa stormar kaldir nætt
og starfið verið harla lítils metið,
en helst af þeim, sem hafa engu bætt
við heimsins list og aldrei komist fetið.
Og eitt er víst: ef vinum þínum f annst
sem vora tæki seint í listabyggðum,
þú sóttir fram og sigra stærri vannst
i sölum þeirrar gyðju'er héstu tryggðum.
Þú enn til leiksins gengur fús sem fyr,
þó farið sé á ævihimni' að rökkva,
í brjósti þínu brennur æskuhyr,
sem breyttir tímar megna ei að slökkva.
Af skini hjartans enn þú lætur Ijóma
hvert lítið strá á meðal sandsins blóma.
Óskar Ingimarsson.