Þjóðviljinn - 30.01.1980, Blaðsíða 1
UOBVIUINN
Miðvikudagur 30. janúar 1980 24. tbl. 45. árg.
saman
Arið 1979 var fluttur til
landsins alls 8.181 bíll en
árið áður var innflutningur-
inn 8.862 bilar og hefur hann
þvi dregist saman um 681
bfl. Telst það ekki óeðlilegt i
orkukreppunni sem yfir
gekk.
Eins og áður var mest
flutt inn af bilum af gerðinni
AE-Lada frá Sovétrikjunum
eða alls 1007 bilar.Næstmest
var flutt inn af Mazda-bilum
frá Japan eða alls 935 og
næstir i röðinni koma
Daihatsu-bilar lika frá
Japan. Þeir voru 916.
— Gfr.
Kvenna-
ríki i
Fiskmarkaðurinn í Bandarikjunum:
Úr vinnslusal hjá Coldwater
vestra
Bilainnflutningur:
Dróst
heldur
• Erfiðir tímar í vœndum sagði
Guðmundur H Garðarsson hjá SR
— Jú/ það er rétt að
nokkur verðlækkun hefur
orðið á nokkrum fisk-
tegundum á Bandaríkja-
markaði að undanförnu#
sagði Guðmundur H.
Garðarsson blaðafulltrúi
Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Guðmundur sagði að
samkeppnin á bandariska mark-
aðnum væri að harðna, nú væri
þar mikið framboð af fiski á
lægra verði en íslendingar hafa
selt sinn fisk á.
— Það er erfitt að spá um
framvindu mála á þessum
markaði, en margt bendir til
þess að framundan séu erfiðari
timar en verið hefur, sagði
Guðmundur.
Lækkanir þær sem orðið hafa
á Bandarikjamarkaðnum eru á
þorskblokk úr 108 sentum i 103
sent, á ýsublokk úr 130 sentum i
125 sent, á karfablokk úr 96 sent-
um i 90 sent og einnig hefur orðið
nokkur lækkun á karfaflökum.
Aftur á móti hefur ekki orðið
lækkun á þorskflökum sem er
um það bil 70% af þeim þorski
sem fluttur er til Bandarikjanna
en þorskblokkin er aftur á móti
ekki nema um 30%.
Fyrir utan það að mikið
framboð er nú á ódýrum fiski á
Bandar ikjamarkaði, sagði
Guðmundur að orkukreppan
hefði sitt að segja i þessu máli.
Mikið af fiski er selt á „drive
inn” matsölustöðum, þar kaupir
fólk hann djúpsteiktan. Vegna
hækkandi bensfn *verðs hefur
jdregið mjög úr viðskiptum þess-
ara veitingastaða og það er fljótt
að segja til sin i minni eftirspurn
eftir fiski.
Enn liggja ekki fyrir tölur um
hvað mikið þessi verðlækkun
þýðir fyrir islenska þjóðarbúið.
— S.dór
Reykjavík
Nú mun vera rétti timinn til að klippa runna og trjágróður. Þessa mynd tók —
Reykjavikurborgar I gær þar sem þeir voru aö snyrta trjágróður.
eik af starfsmönnum
N okkrar tegundir
lækkuðu í verði
þó að karlmenn
séu mun fleiri á
öllu landinu
Loðnukvótiim aukinn
um 80 þúsund lestir
Aflamagnið til hrognatöku minnkað að sama skapi
Karlmenn á tslandi eru um
2000 fleiri en kvenmenn og I nær
öllum s veitar félögum landsins
er fjöldi karla meiri en kvenna.
Þarna sker þó Reykjavik sig úr
þvi að þar eru konur 2445 fleiri en
karlmenn. Þetta kemur fram i
b r á ð a b i r g ð a t ö I u m um
mannfjölda á islandi 1.
desember 1979.
Eftir þessu aö dæma ætti
Reykjavik að vera góssenland
kvenna eða öllu heldur karla —
eftir þvi hvernig á það er litið.
Strax i næstu kaupstöðum svo
sem Kópavogi, Seltjarnarnesi og
Garðabæ eru karlmenn fleiri en
konur.
1 sumum sveitahreppum eru
karlmenn i yfirgnæfandi
.meirihluta. 1 Helgustaðahreppi i
S.Múlasýslu eru t.d. 27 karlmenn
en aðeins 8 konur. 1 nálægum
hreppi, Mjóafjarðarhreppi, eru
þó 20 konur a móti 14 körlum.
— GFr
Sú frétt Þ jóðviljans i gær
að loðnukvótinn til bræðslu
nú yrði aukinn úr 100 þús-
und í um 180 þúsund lestir
en minnköíour að sama
skapi til hrognatöku hefur
verið staðfest, þvi i gær
gaf sjávarútvegsráðuneyt-
ið út fréttatilkynningu þess
ef nis að vegna þess hve illa
lítur út með sölu á loðnu-
hrognum, verði kvótinn til
bræðslu hækkaður úr 100
þúsund lestum i 180 þúsund
lestir. Og einnig að kvótinn
til hrognatöku verði 100
þúsund lestir.
1 gær hélt sjávarútvegsráö-
herra fund með hagsmunaaðil-
um i loðnuveiðum og bræöslu og
fulltrúum frá Hafrannsóknar-
stofnuninni og kynnti þeim málið.
Ástæðan fyrir þessari breyt-
inguer, eftir þvi sem Þjóðviljinn
kemst nær ekki eingöngu þetta
breytta viðhorf i hrognasölunni,
heldur og ekki siður sá mikli
þrýstingur sem útgerðarmenn
og bræðslurnar hafa lagt á
sjávarútvegsráðherra um að
hækka loðnukvótann almennt, frá
þvi sem ákveöið hafði verið.
Þeir sem gerst þekkja til i
þessum málum segja að ekki
þurfi að koma á óvart, þótt leyft
verði að veiða allt að 250 þúsund
lestir til bræðslu og 150 til 200
þúsund lestir til hrognatöku eins
og það verður þá látið heita. Skitt
með alla skynsemi, loðna er gull.
— S.dór.
Allt
getur
gerst
Þjóðstjórn aftur !
á dagskrá?
Formenn stjórnmála- ■
flokkanna fjögurra munu I
sitja sameiginiegan fund I
með forseta islands dr. |
Kristjáni Eldjárn I dag. ■
Forseti hefur nú snúið við I
stundaglasinu og sandurinn I
er farinn að renna i neðra |
hólfið. Talið er að hann •
Imuni veita formönnum 5—7 I
daga frest til þess að koma |
sér niður á starfhæfa ríkis-
stjórn án þess að nokkru
þeirra verði veitt formlegt
umboð til stjórnarmynd-
unar.
1 flokkunum öllum er nú
mikill viðbúnaður og eru all-
ir möguleikar á stjórnar-
mynstri tii umræðu. Allt
getur þvi gerst á næstu dög-
um og litlu hægt að spá. Það
sem helst er talið hafa vald-
ið breytingu á afstöðu flokk-
anna til stjórnarmyndunar,
er sú frétt sem spurðist út
fyrir skemmstu, að forseti
hefði setiö fund með dr.
Jóhannesi Nordal. Var þvi
fleygt að umræðuefnið hefði
verið utanþingsstjórn undir
hans forsæti, þó ekki fengist
það staðfest.
Það sem einkum er til
umræðu i flokkunum núna
er „Stefaniu” stjórn, við-
reisnarstjórn eöa minni-
hlutastjórn Sjálfstæðis-
flokks með stuðningi Al-
þýðuflokksins en Alþýöu-
bandalagið mun vera þvi
hlynnt að skoðaður verði
möguleiki á þjóðstjórn. Aðr-
ir flokkar munu hins vegar
til þessa hafa sýnt þjóð-
stjórn heldur litinn áhuga
nema helst Framsóknar-
flokkurinn.
Loðnuveiðin:
Sigurður
hefur tekið
forustuna
Eins og skýrt var fú i Þjóð-
viljanum i gær, er heildar afiinn á
loðnuvertiðinni orðinn um 115
þúsund lestir. Sigurður RE hef-
ur tekið forystuna i hópi þess 51
skips, setn fengið hefur afla á
þessari vertið.
Um siðustu helgi var Sigurður
RE kominn með 4493 lestir, næst-
ur honum var Pétur Jónsson RE
3309 lestir og i 3ja sæti var
Júpiter RE með 3253
lestir, Bjarni Ölafsson AK
með 3247 lestir, Grindvíkingur
GK með 3204 lestir, Guðmundur
RE með 2930 lestir, Hákon ÞH
með 2809 lestir og Börkur NK
með 2506 lestir.
Loðnu hefur verið landað á 14
stöðum á landinu.mestu á Siglu-
firði, 36,831 lestum, næst kemur
svo Krossanesverksmiöjan með
7.336 lestir, Reykjavik með 7297
lestir, Bolungarvik 6527 lestir og
Raufarhöfn með 5210 lestir.
— S.dór.
Munið
Munið fundinn með
borgarfulltrúum Alþýðubanda-
lagsins á Hótel Sögu i kvöld kl.
20.30. Fundurinn er öllum opinn.
Almennar umræður og fyrir-
spurnum svarað.