Þjóðviljinn - 09.05.1980, Page 2
2 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 9. mai 1980
AÐALFUNDUR
Hlns
íslenzka
prentarafélags
1980
verður haldinn laugardaginn 10. mai 1980 i
félagsheimilinu, Hverfisgötu 21, og hefst
kl. 13.15.
Dagskrá:
1. Lagðir fram til úrskurðar endurskoð-
aðir reikningar félagsins.
2. Skýrsla stjórnar og nefnda um liðið
starfsár.
3. Stjórnarskipti.
4. Kosning tveggja endurskoðenda og
tveggja til vara.
5. Kosning ritnefndar Prentarans.
6. Nefndakosningar.
7. Kjör heiðursfélaga.
8. Tillaga um aukningu hlutafjár i
Alþýðubankanum hf..
9. Tillaga um aukningu hlutafjár i Lista-
skála alþýðu hf..
10. Tillaga um félagsslit.
11. Tillaga um að skrifuð verði saga
félagsins.
12. önnur mál, ef fram koma.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á
fundinn og taka þannig virkan þátt i af-
greiðslu og umræðum um sin eigin
málefni.
Stjórnin
Utboð I
Vestmannaeyjabær óskar hér með eftir
tilboðum i byggingu 6 ibúða sambýlishúss
fyrir aldraða við Hraunbúðir Vestmanna-
eyjum.
Verkinu er skipt i eftirfarandi 7 verk-
hluta:
1. Fokhelt hús frágengið að utan.
2. Múrverk.
3. Pipulagnir.
4. Tréverk.
5. Raflagnir.
6. Málning.
7. Lóðarfrágangur.
Heimilt er að bjóða I verkið i heild eða ;
hvern einstakan verkhluta. Húsið skal
fullgert 1. júni 1981. Panta skal útboðs- j
gögn hjá tæknideild Vestmannaeyjabæj- J
ar, simi 98-1088, eða Teiknistofu Gylfa
Guðjónssonar, simi 91-28740, i siðasta lagi 1
12. maí. útboðsgögn verða afhent 14. maí
gegn 30 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð i Ráðhúsinu Vest-
mannaeyjum 30. mai kl. 14.00 að viðstödd-
um þeim bjóðendum sem þess óska.
Bæjarstjórinn I Vestmannaeyjum.
íbúð óskast
Óskum eftir 4ra herb. ibúð til leigu.
Helst i Þingholtunúm eða Vesturbæ.
Góð umgengni. Fyrirframgreiðsla eða
öruggar mánaðargreiðslur. Möguleiki á
skiptum á 4ra herb. einbýlishúsi á Akur-
eyri. Upplýsingar i sima 26352.
Litli leikklúbburinn á ísafirði:
Frumsýnir „I Iart í bak”
Litli leikklúbburinn á ísafirði
frumsýnir n.k. sunnudag leikritið
„Hart i bak” eftir Jökul Jakobs-
son. Leikritið er fært upp I tilefni
15 ára afmælis klúbbsins sem var
24. april sl.
Þetta er 32. verkefni LL til
þessa. Æfingar hófust upp úr
miðjum mars og hefur verið
unniö af fullum krafti siðan, en
frumsýning verður sunnd. 11. maf
i Alþýðuhúsinu á Isafirði. Með
fjögur helstu hlutverk leiksins
fara: Guðrún Eyþórsdóttir,
Kristján Finnbogason, Elisabet
Þorgeirsdóttir og Reynir Sigurðs-
son. Leikstjóri er Margrét
óskarsdóttir.
Starfsemi Litla leikklúbbsins
hefur verið mjög blómleg þessi 15
ár frá þvi hann var stofnaður. Af
32 verkefnum klúbbsins frá upp-
hafi eru 11 Islensk verk og fjögur
leikrit hafa verið frumflutningur
hér á landi,
Kristján Finnbogason og Elisabet Þorgeirsdóttir i hlutverkum sinum f
„Hart f bak” eftir Jökul Jakobsson, sem Litli leikkiúbburinn á isafirði
frumsýnir nk. sunnudag ki. 21.00 f Alþýðuhúsinu á isafirði.
Húsakynni Hjálpræðishersins við Kirkjustræti
Kosningaskrifstofa
fyrir Guðlaug flutt
Stuðningsmenn Guðlaugs Þor-
valdssonar hafa nú flutt kosn-
ingaskrifstofu sina I Reykjavik i
rúmgott húsnæði að Brautarholti
2, þar sem áður var Húsgagna-
verslun Reykjavikur.
Sjálfboðaliðar skipta með sér
störfum á skrifstofunni en for
stööumaður er Hrafnkell B. Guð-
jónsson. Skrifstofan er opin dag-
lega til kl. 22, símar 39830 og
39831.1 tengslum við skrifstofuna
starfa ýmsar nefndir með af-
mörkuð verkefni og formenn
helstu starfsnefnda mynda fram-
kvæmdaráð. 1 þvi eru m.a.
Grétar Snær Hjartarson, Guð-
Skákskóiinn á Kirkjubæjar-
klaustri mun starfa vikuna 24.
maf til 1. júnl nk. og veröur kennt
i þrem flokkum, byrjenda, 1. stigs
og 2. stigs.
1. stigs námskeiðið er fyrir þá
sem ætla að ljúka prófum þess
stigs frá skólanum i vor og er
miðað við nemendur sem þegar
eru farnir að tefla svolitið, kunna
undirstööuatriðin og eru farnir að
glugga i byrjanir og endatöfl. 2.
stigiö er fyrir nemendur sem luku
1. stiginu sl. vor og ennfremur
fyrir nemendur með skákstig og
aðra sem einstök skáksambönd
og taflfélög mæla meö. A
byrjendanámskeiöinu er farið i
grundvallaratriðin, skákreglur
og einfaldar byrjanir og endatöfl.
Kennarar Skákskólans eru Jón
Hjartarson skólastjóri, Jóhann
örn Sigurjónsson og Birgir
bjartur Gunnarsson, Hrafnkell B.
Guöjónsson, Steinar Berg Björns-
son og Þóröur Sverrisson.
Héraðsnefndir hafa veriö settar
á stofn um allt land og hafa þær
reglulegt samband við aðalskrif *-
stofuna Undirbúningsfundir hafa
verið haldnir allviða, en þau Guö-
laugur og Kristin hafa aðeins
komiö á einn opinn fund, sem
haldinn var að Borg i Grimsnesi
s.l. mánudagskvöld og sóttu hann
um 100 manns.
í fréttatilkynningu frá
kosningaskrifstofunni eru stuðn-
ingsmenn hvattir til að hafa sam-
band, þiggja kaffi og ræöa málin.
Einarsson, sem kennir sund og
Iþróttir og sér um útivist og
kynningu á staðnum og nágrenni
hans.
Þátttökugjald fyrir timabilið er
50 þúsund krónur og er þá innifal-
inn fæðiskostnaður, kennsla,
sundiaug og húsnæði. Umsóknir
þarf að staðfesta 10. mai og
greiöa þá helming námskeiðs-
gjalds.
Kennslufýrirkomulag Skák-
skólans er með þeim hætti, að þar
skiptist á skákkennsla I tveggja
klukkutima lotum, útivist, Iþrðtt-
ir og kynningarferðir. Fara amk.
4-6 klst. á dag I beina skák-
kennslu, en einnig verða skák-
mót, gestir koma I heimsókn og
taka fjöltefli og fl. Námskeiðinu
lýkur með lokaskákmóti og próf-
um.
„Herinn”
85 ára
Deildarþing
i Reykjavik
i gær hófst deildarþing hjá
Hjálpræðisher islands og Fær-
eyja, þar sem m.a. er minnst, að
85 ár eru nú liðin slðan „HER-
INN” byrjaöi starf sitt I
Reykjavik.
85 ár eru liðin slðan „HERINN”
byrjaöi starf sitt I Reykjavlk.
Fyrsta samkoman var haldin I
Góðtemplarahúsinu þann 12. mai
aö viðstöddu miklu fjölmenni.
Voru þaö þeir Christian Eriksen,
adjutant frá Danmörku og
Þorsteinn Davíðsson, kafteinn
sem hófu starfiö hér. Þótti
mörgum þetta vera undarlegt
fólk sem klæddist einkennisbún-
ingum, sungu fjöruga söngva og
hvöttu fólk til aö láta frelsast. En
samkomurnar voru vel sóttar,
hermenn voru vigðir og I dag hef-
ur herinn starfað I þjónustu Guðs
og manna I 85 ár.
Hjálpræöisherinn, sem starfar I
fyrir 80 löndum er reyndar miklu
eldri, þvi hann hóf feril sinn I
austurhluta Lundúnaborgar 1865.
Stofnendur „hersins” voru þau
Catherine og William Booth. Þótt
boðun fagnaöarerindisins um
hjálpræöisverk Jesú Krists sé
aðalmarkmið hersins, þá hefur
samt þjóðfélags- og liknarstarf
fylgst meö jöfnum höndum, segir
I frétt frá honum. William sá, að
ekki stoðaöi aö prédika yfir sár-
soltnu fólki. Fyrst varð aö gefa
þvi að boröa, klæöa, hjálpa og
llkna.
Komin eru heim til íslands til
að stjórna móti hjálpræðis-
hermanna brigader Ingibjörg
Jónsdóttir og Óskar Jónsson og
verða þau aðalræðumenn. Þá
munu foringjar og hermenn frá
Islandi og Færeyjum syngja og
vitna, æskulýðssönghópur frá
Akureyri skemmtir.
A morgun laugardag, mun
biskupinn yfir íslandi hr. Sigur-
björn Einarsson flytja ávarp, og
Hanna Bjarnadóttir syngja ein-
söng. SIBar um kvöldiB er miB-
nætursamkoma meB ungu fólki I
fararbroddi.
Skákskólinn á Klaustri
Tafl, útivist
og íþróttir