Þjóðviljinn - 05.07.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.07.1980, Blaðsíða 5
Helgin 5. — 6. júlí. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Múrarasambandið skorar á vinnuvcitendur að fara að ræða samningamálín í ályktun fjórða þings Múrarasambands ís- lands, sem haldið var i byrjun júni, er þess krafist að rikisstjórnin beiti nú þegar áhrifum sinum til lausnar vinnu- deilunum auk þess sem skorað er á vinnuveit- endur að fara nú að ræða samningamálin af sann- girni og alvöru. Rikisstjtírninni er bent á aö lækka skatta launþega, halda niðri verBi á brýnustu lifsnauð- synjum með'lækkun skatta og hertu verðlagseftírliti og endur- skoða verðlagsgrundvöllinn. Þá er gerö krafa til greiðslu fullra visitölubóta á öll laun og þess krafist að þrep launastigans verði ákveðin i samningum. Þingið mótmælir harðlega þeim áróðri sem uppi hefur verið gegn upp- mælingartöxtum iðnaðarmanna og krefst þess að tilraunum til skerðingar á verðbótum til þeirra og annarra sem vinna eftir launa- hvetjandi kerfi veröi hætt. Þá mótmælir þingið ásælni rikis- valdsins f hina almennu sjóði verkalýðsfélaganna. Bent er á að til þess að halda jafnri og góðri atvinnu i bvee- ingariðnaði þurfi sveitarfélögin að kappkosta aö hafa nóg af byggingarhæfum lóðum á boð- stólum og að efla beri félagslegar ibiíðabyggingar, þar sem húsnæðiskostur sé snar þáttur i kjörum launafólks. Formaöur MUrarasambands tslands til næstu tveggja ára var kjörinn Helgi Steinar Karlsson, Reykjavik, en fráfarandi for- maður, Kristján Halldórsson, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þess má geta að Múrarasamband tslands hefur þá sérstöðu að vera ekki i heildarsamtökum launa- fólks, hvorki i Sambandi bygg- ingarmanna né i Alþýðusam- bandi tslands... — AI tlr leik öster og Malmö FF á miövikudaginn. Teitur bestur á vellinum: Kjörinn í landsUðið segir sœnska blaöiö Dagens Nyheter Yfirlýsing Flugleiða: Flug- freyjum var sagt upp ádur Þær flugfreyjur starfandi hjá Flugleiöum, sem fengu tilkynn- ingu um starfslok um siöustu mánaðamót voru allar 1 sumar- starfi, og ráðningarbréf þeirra hljóðaði eingöngu upp á þafj, segir i frétt frá Kynningardeild Flug- leiöa, sem vill gera athugasemd viö bréf frá stjórn og trúnaðar- mannaráði Flugfreyjufélagsins, sem birt var I blöðum 1 gær. Enn- fremur segir í fréttinni: „Flugfreyjurnar 31, sem fengu tilkynningu um starfslok nú i haust höfðu allar áður fengið upp- sagnarbréf, en veriö boðið sumarstarf hjá félaginu. Þeim var jafnframt þvi boði sagt aö þeim yrði tilkynnt starfslok með góðum fyrirvara. Með þeirri til- kynningu, sem send var 31 flug- freyju s.l. mánaöamót var svo gert. Það er þvi misskilningur að með þeirri tilkynningu, sem aö ofan er getiö hafi verið um raun- verulegar uppsagnir aö ræða þar sem uppsagnir höfðu áður fariö fram”. Lækka Spánverjar verölag um helming? Það er mikil kreppa i spænsk- um feröamannaiönaði og ráöu- neyti þaö á Spáni sem fer meö ferðamál er nú aö ræöa mögu- leika á aö lækka um helming verölag á hótelum og veitinga- húsum. Fiugfélög sem hafa lifaö á Spánarferöum eru einnig mjög illa stödd. Spánverjar vilja leggja mikiö á sig til aö endurheimta þann straum feröamanna sem hefur veriö þeirra drýgsta gjald- eyrislind. Spánn hefur til aö mynda misst þriöja hvern feröa- mann frá Norðurlöndum, miöaö viö aöstreymi fyrri ára. Skagamaðurinn Teitur Þórðarson lætur að sér kveða í Svíþjóð. Meistara- taktar eru nú sagðir yfir liði hans öster sem sl. mið- vikudag yfirspilaði Malmö-FF 4—0. Þetta eru nú efstu liðin f Allsvenskan ásamt Gautaborgarliðinu. Fyrir tveimur árum var öster sænskur meistari og blandar sér áreiðanlega í þá baráttu í sumar með sama spili segir Dagens Nyheter. 1 leiknum á miövikudaginn út- nefndi. Dagens Nyheter Teit sem „mann leiksins”. Hann gerði eitt þriggja marka i fyrri hálfleik og bakverðir Malmö-FF réðu ekkert við hann. Oster-liöið er mjög jafn- sterkt og sérstaklega þykja mið- vallarspilarar þess góðir. Sagt er að eigi liðiö góðan dag standist ekkert fyrir þvi. I framlinunni segir DN að allt hafi veriö á hreyfingu kringum Teit Þóröarson hinn marksækna. Leikinn 1 leiknum hafi hann unnið I baráttu sinni við bakverði Malmö-FF. DN segir að ötvfrætt myndi Teitur sóma sér vel I sænska landsliðinu og styrkja það. Um það þýði hinsvegar ekki að ræða og hann verði að láta sér nægja að vera sjálfkjörinn i is lenska landsliðiö úr þvi að hann er ekki sænskur rfkisborgari.- ekh Neil Grant, einn úr hópnum sem hingaö kemur. Hann er 18 ára gamall og stundar enskunám viö York-háskóla. Ætla að kenna kajak-róður hér Fimm manna hópur frá Kajak klúbb I Watford I Englandi er væntantegur til tslands á þriöju- daginn kemur og ætla ma. aö kenna og leiöbeina islenskum áhugamönnum um þessa iþrótt. Fyrirliöi hópsins er Neil Shave, þekktur kajak-ræöari I Englandi, en með honum koma þrir ungir ræöarar, sá yngsti 14 ára. Hópurinn mun skipta sér i tvennt og kenna annarsvegar kajakiþrótt á sjó og hins vegar á ám og vötnum. Þeir koma til Seyöisf jaröar, Akureyrar, Reykjavikur og Hafnar i Horna- firði og dveljast hér alls i þrjár vikur. Það er Samband kajak- og kanó ræöara, British Canoe Union, sem stendur fyrir ferðinni i samstarfi við iþrótta- og æskulýðsmáladeild menntamálaráðuneytisins hér með stuöningi ýmissa fyrirtækja og stofnana i Bretlandi, sem ma. lána eða leggja til mestallan út- búnaöinn. Klúbburinn sem hópur- inn tilheyrir heitir St. Friendship KayakKlub. —vh Vildi draga fram helstu meginatriði — segir Haukur Helgason í samninganefnd BSRB I upphafi samninga- nef ndarf undar BSRB sem haldinn var á fimmtu dag og skýrt er frá annars staðar í blaðinu bar Hauk- ur Helgason skólastjóri fram tillögu þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við ríkisvaldið að fullnægðum nokkrum meginatriðum sem flutn- ingsmaður taldi líklegt að fengjust fram. I samtali viö Þjóöviljann daginn eftir fundinn sagöi Haukur að I rauninni hefði hann ekki reiknað meö að tillagan yrði samþykkt á fundinum. heldur hefði hann flutt hana fyrst og fremst til aö draga fram megin- atriöi kjaradeilunnar og til aö skýra stöðuna nú. Siðar á fundin- um dró Haukur tillögu sina til baka. Þau atriöi sem Haukur taldi i tillögu sinniskilyrði f.yrirað gengiö yrði til samninga um eru I stuttu máliþessi: Að grunnkaupstilboð- iö verði tvöfaldað, tlminn til að fá persónuuppbót styttist, yfir- vinnustuðull hækki, ekkert þak komi á visitölu, tryggt verði að félagar f BSRB sem flokkast 1 sambærilega launaflokka og félagar I BHM verði ekki lægra launaöir en þeir, tryggt veröi aö reglan um möguleika á starfslok- um við sextugt nái fram að ganga og að samningurinn gildi I eitt ár, frá 1. júli 1980 til jafnlengdar að ári. Jafnhliða þessu verði samiö um önnur atriði á grundvelli þeirra viðræöna sem farið hafa fram við fulltrúa rikisvaldsins á undanförnum vikum. — hs Vöndum val á barnabókum Kennarar á námskeiði sem haldið var I Æfingaskóla Kennaraháskóla lslands nýlega tóku til umræðu stöðu barnabóka, innihald þeirra og gildi. Kennar- arnir komust aö þeirri niðurstöðu aö mjög þyrfti að vara við aukn- um hlut fjölþjóöaprents, sem hefur streymt á markaðinn, má þar nefna Tinnabækurnar og Strumpabækurnar. Þeir segja þessar sögur fátækar að orðum og óaðgengilegar börnum sem eru aö læra að lesa og skrifa. Þá segja kennararnir aö þessar bækur séu fullar af fordómum og samfélags- myndin sem þar birtist er gjörólik þvi sem börnin þekkja og hjálpar þeim ekki að skilja umhverfi sitt. Kennararnir itreka þá beiðni til bókaútgefenda að þeir dragi úr útgáfu þessara bóka en geri sitt til að efla útgáfu islenskra barna- bóka. Að lokum skora kennararn- ir á alla að vanda val bóka sem börnum eru gefnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.