Þjóðviljinn - 05.07.1980, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 05.07.1980, Blaðsíða 17
Helgin 5. — 6. júll. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Meöalbill vegur um 800 kg. og maður um 70 kg. 98% af þeirri orku sem eyðir fer til að knýja farartækið en aðeins 2% til að flytja manninn. Hvað finnst fólki um réttindi vegfarenda þeirra sem ganga, hjóla, ferðast með strætisvögnum eða einkabíl- um? Njóta allir þessir aðilar þokkalegs jafnréttis í um- ferðinni? Guðrún Agústsdóttir stjórnarformaður SVR: Vegfarendur hafa um fátt aö velja „Nei, mér finnst ekki hægt aö tala um jafnan rétt allra vegfar- enda meöan menn hafa um svo fátt aö velja til aö komast leiöar sinnar og raun ber vitni. Hvort sem okkur likar betur eöa verr veröur aö horfast i augu viö þá staöreynd aö meöan strætis- vagnaþjónustan er ekki full- komnari en nú eiga menn varla um annaö aö velja en einkabil- inn”. Svo fórust orö Guörúnu Agústs- dóttur stjórnarformanni SVR um jafnrétti vegfarenda. „Mér sýnist aö þaö þurfi aö vera virkilegt hugsjónafólk sem stendur gegn þvi að fá sér bfl. Og jafnvel þó aö hugsjónin sé fyrir hendi og viljinn lika,er þaö oft á tiöum ekki nóg. Fólk sem á lltil börn sem þarf aö koma i gæslu daglega á ekki hægt um vik billaust. Sama er aö segja um marga aöra sem búa I hverf- um þar sem þjónusta strætis- vagnanna þyrfti aö vera betri og alla sem eru háöir strætisvögnum um kvöld og helgar. Allir þessir eru illa settir billausir. Svo er llka á þaö aö lita aö þaö eru hreint ekki allir sem hafa efni á aö eign- ast bll og eins eru margir sem ekki hafa bilpróf, bæöi þeir sem hafa ekki til þess aldur og aörir sem af einhverjum ástæöum annaðhvort vilja eöa geta ekki ekiö bll. Þetta fólk er illa sett I umferöinni.” „Mér finnst lika vafasamt aö hvetja fólk mjög til aö hjóla, hér i Rvk er bókstaflega ekkert gert fyrir hjólreiöamenn og ég held hvergi á landinu öllu. Meöan svo er getur beinlinis veriö lifshættu- legt aö hjóla þar sem umferöin er mest. Margir vagnstjórar hafa sagt mér aö þeir séu yfirleitt meö lifiö i lúkunum vegna hjólreiöa- manna. Samt er ég viss um aö þaö er fjöldi fólks sem gjarnan vildi hjóla”. Helduröu þá aö margir sem nú eiga bfl myndu losa sig viö hann væri fleiri kosta vöi I umferöinni en nú er? „Ég er sannfærö um aö þaö er til fullt af fólki sem vildi nota pen- ingana sina til annars en kaupa og reka bil ef umferöarskipanin Guörún Agústsdóttir væri önnur en þá þarf lika aö bæta strætisvagnaþjónustuna”. Hvaö er þaö aöaliega sem stendur bættri strætisvagnaþjón- ustu fyrir þrifum hér I Rvk? „Þaö er fjárskortur fyrst og fremst. Meöan Strætisvagnar Reykjavikur eru reknir meö 1240 milj. króna halla er ég hrædd um aö erfiölega gangi vel aö fá aukiö fé til rekstrarins”. En er nauðsynlegt aö þessi þjónusta beri sig fremur en önnur þjónusta viö almenning, er þetta ekki hluti af samneyslunni? „Þaö hefur alltaf veriö stefna Alþýöubandalagsins aö sjálfsagt væri aö greiöa niöur fargjöld meö vögnunum. Lengi vel stóöu þau undir 2/3 af rekstrinum, en sl. tvö ár hefur þetta fariö niöur I 50%. Þannig greiöir borgin alltaf meira og meira meö þessum rekstri og ætti aö gera stórátak I strætisvagnamálum kæmi þaö niöur á öörum málum, sem lika eru nauösynleg. Þetta er spurn- ing um skiptingu þess fjár sem fyrir hendi er.”. „Fargjöld meö strætisvögnun- um hér eru mjög lág, ein hin lægstu I Evrópu og viö fáum ekki aö hækka þau vegna þess aö þau vega svo þungt I vísitölunni. Ef fargjöldin hækkuöu sem ein- hverju nemur þýddi þaö allveru- lega kauphækkun hjá launa- fólki”. Villandi orkuspá Anna Magnúsdóttir. Anna Magnúsdóttir bókasafnsfræðingur Hjólreiða- brautir „Mér finnst áberandi hvað hjól- reiöamenn hafa litinn rétt i um- feröinni. Ég bjó um nokkurt skeið I Danmörku og þar eru hjólreiða- brautir mjög vlöa. Samt eru Danir ekki ánægðir og vilja aö brautunum veröi fjöigaö. Hérna aftur á móti eru þær ekki til og ég sé ekki nein merki þess ,aö þær séu væntanlegar. Ef svona heldur áfram er ég hrædd um aö sá áhugi sem nú er vaknaöur á hjól- reiðum detti niöur og menn gefist udp á ööru en aö fara allt I bilnum slnum”. Þetta segir Anna Magnúsdóttir bókasafnsfræöingur á verkfræöi- stofu Siguröar Thoroddsen,en hún býr viö Nýbýlaveg I Kópavogi. „Ég er llka viss um þaö”, held- ur Anna áfram, „aö fólk notaöi strætisvagnana miklu meira en þaö gerir ef feröirnar væru tiðari. Ég vinn inni 1 Armúla,og þurfi ég aö skreppa I bæinn tek ég alltaf strætó. Mér finnst þaö alveg glap- ræöi aö vera aö fara þaö i einkabil um miöjan daginn, umferöin er svo mikil aöþú ert alveg eins fljót aö fara meö strætó. Það er svo annaö mál aö stundum er alltof seinlegt aö fara meö strætis- vagni, sérstaklega um helgar og á kvöldin, þá eru feröirnar svo strjálar, ekki nema á hálftima fresti”. Þar sem ég bý er aöstaöa fyrir gangandi og hjólandi vegfar- endur ákaflega slæm. Gangstétt er engin og svo á aö fara aö breikka götuna—Nýbýlaveginn. Umferðin um hann er nú þegar alltof hröð. og ekki batnar ástandiö eftir aö gatan hefur veriö breikkuö. Mér fyndist aö heldur heföi átt aö gera ráöstaf- anir sem hægöu á umferðinni, svo sem aö fjölga gangbrautar- og umferöarljósum”. Islenskar umferðar- og orku- spár gera yfirleitt ráö fyrir óbreyttri stefnu i umferöarmál- um og þar meö fjölgun einkablla. Þannig er þvi fariö meö spá Orkustofnunar frá i fyrra þar sem spáö er um fjölda einkabila til ársins 2000. (Morgunbl. I mars 1979). Samkv. henni veröa rétt rúmlega tveir um hvern bll áriö 2000, nú eru þaö 2.8 á bll. Um miöjan níunda áratuginn veröa um 1000 manns um hverja 400 bila. Væri spá sem þessi unnin með almannaþarfir i huga hlytu aörir kostir aö vera athugaöir um leiö og spáö um þróunina út frá mis- munandi forsendum. Þaö er ekki gert og þvl er spáin villandi, ef ekki óheiöarleg. Hvernig myndi hún t.d. lita út ef stefnubreyting yröi I umferöar- málum á þann veg aö strætis- vagnaþjónusta batnaöi almennt um helming eöa meira ásamt öörum ráöstöfunum sem minnkuöu þörfina fyrir einkabll? Slík spá gæti sýnt aö einkabllum muni fækka fram til aldamóta I staö þess aö fjölga. Litum á þrenns konar spár: — Spá Orkustofnunar gerir ráö fyrir óbreyttri stefnu i um- feröarmálum og hlutfallslegri f jölgun bilaflotans og veröur þá bilaeignin um aldamót 141 þús. — Hófleg spá um fjölgun bifreiöa I takt viö fólksfjölgun miöar á 86 þús. bilum. — Breytt stefna i umferöarmál- um getur komiö bilafjöidanum niöur I 50—58 þús. bila. Þetta sýnir aö spá Orkustofn- unar er háö stefnumörkun þjóö- félagsins I umferöar- og orkumál- um en hún er einnig vel fallin til aö venja menn viö þensiuhug- takiö og telja mönnum trú um aö þaö hljóti aö vera nánast náttúru- lögmál aö bilum fjölgi hlutfalls- lega, þannig aö bráölega um aidamót veröi allir Islendingar „komnir á fjögur hjól” eins og dagblaöið Vlsir oröaöi þaö ný- lega. Spá um fólksbifreiöafjölda Ár Ibúafjöldi þús. Folksbifreiöar á 1000 íbúa Bifreiöafjöldi þús. Eyösla Ml/ári 1976 220,9 294 65,0 100,0 1977 223,9 309 69,1 1978 227,0 322 73,2 1979 230,0 336 77,2 1980 233,1 349 <r> H co 116,1 (112,4) 1981 236,1 361 85,2 1982 239,2 373 89,1 1983 242,2 384 92,9 1984 245,3 394 96,6 1985 248,3 404 100,2 129,4 (123,6) 1986 251,4 413 103,7 1987 254,4 421 107,1 1988 257,5 428 110,3' 1989 260,6 435- 113,5 1990 263,6 442 116,5 136,1 (128,2) 1991 266,6 448 119,4 . 1992 269,7 453 122,2 1993 272,7 458 124,9 1994 275,7 462 127,5 1995 278,7 466 130,0 137,5 ( 127,6) 1996 281,7 470 132,4 1997 284,7 473 134,7 1998 287,7 476 136,9 1999 290,7 478 139,1 2000 293,6 481 141,2 135,1 (123,6) Þessi spá Orkustofnunar um þróun umferöar og fólksbllaf jölda til aida- móta er varla réttlætanieg þar sem ekki eru jafnhliöa geröar umferöar spár sem byggja á öörum forsendum. Svona vinnubrögö þykja ekki góö latina lengur og spár sem þannig eru unnar teljast ekkl áreiöanlegar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.