Þjóðviljinn - 05.07.1980, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 05.07.1980, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN" Helgin 5. — 6. Júll. STARF OG KJOR Ingvar Kristjánsson geðlæknir ENDURHÆFING ER BESTA LÆKNINGESF Geðrænir kvillar hrjá 25-30% íslendinga — Samkvæmt könnun Tómasar Helgasonar prófessors eru það um 25—30% íslendinga sem einhvern tima ævinnar fá geðrænan kvilla eða sjúkdóm sem þeir þurfa að leita aðstoðar með. Þessir kvillar eru mis- alvarlegir en stærsti hópur öryrkja á íslandi eru geðsjúkir. Þetta segir Ingvar Kristjánsson geölæknir á Landspitalar.um og hann heldur áfram. — Hins vegar er þaö ekki nema litill hluti af þessu fólki sem leitar sér lækninga og enn minni er hóp- urinn sem unnt er aö veita viöun- andi meöferö. Sjúkrarými og aöstaöa til lækningar geösjúkum er af alltof skornum skammti en i meöferö þessara sjúklinga veltur ákaflega mikiö á aö læknirinn hafi nægan tima til aö sinna þeim. Sé timinn of naumur getur allt veriö unniö fyrir gig. Spáin stóðst ekki Nú hefur mikiö veriö talað um aö hafa geösjúkrahús opin, hvað segir þú um þá stefnu? — Fyrir um 15 árum var uppi sú stefna viöa um lönd m.a. I Bretlandi þar sem ég læröi aö breyta allri lækningameöferö geösjúkra, þaö átti aö fækka legu- rýmum og færa allar geödeildir inn á almenn sjúkrahús. Mestöll þjónusta viö geösjúka átti samkv.þessari stefnu aö fara þar fram og á dag- og göngudeildum. Þetta mistókst gjörsamlega, spáin stóöst ekki og afleiöingin Broadmoor sem er öryggisgæslu- stofnun yfirfylltist eftir aö búiö var aö leggja niöur mikiö af gömlu geöveikráspitölunum, vegna þess aö geödeildir á almennum sjúkrahúsum og dag- stofnanir gátu ekki ráöiö viö erfiöari sjúkratileflli. — Ég er samt þeirrar skoöunar aöbest sé aö hafa sem allra flestar geödeildir opnar en þaö sýnir sig aö lika er þörf á lokuöum deildum. Sumir eru það mikiö veikir, hafa t.d. mjög brenglaö veruleikaskyn, aö þeir þurfa aö vera a lokaöri deild þar sem hald- iö er utan um þá.' Hver er veikastur? Hvaða geðsjúkdómar hrjá menn aðallega? — Þunglyndi , geðklofi og taugaveiklun af ýmsum gráöum eru algengustu sjúkdómarnir sem viöerum aöfást viö. Geöklofi er alvarlegur andlegur sjúkdómur og hann fá 0.8—1.2% fólks en þar með er ekki sagt aö fólk sem er haldið öörum geöræn- um kvillum sé minna veikt i sjálfú sér. Þaö er svo erfitt aö leggja dóm á þaö. Maöur sem er taugaveiklaöur sem svo er kallaö gegnir kannski starfi sinu og fé- lagslegum skyldum meö sóma en fæstir vita aö hann er veikur, þar eö einkennin fara oft leynt. Hann þjáist en i leynum. Annar veröur e.t.v. skyndilega mikiö veikur og einkennin eru mjög áberandi. Hann er lagöur inn á spltala, fær þar meöferö og fer svo út I lifiö aftur. Ég tel ekki sjálfgefiö aö hinn siöamefndi hafi orðið meira veikur en sá tauga- veiklaöi. Oftrú á lyf Er það rétt sem oft er sagt aö I taugaveiklaö fólk og fleiri sem eru illa á sig komnir andlega sé dælt lyfjum endalaust? — Margir héldu þvi fram aö geölyfin sem komu á markaöinn milli 1950 og 60 myndu valda bylt- ingu I meöferö geösjúkra. Nú þyrfti ekki annaö en gefa lyf og máliö væri leyst. Þetta er mikill misskilningur, aö visu er hægt aö halda niöri einkennum margra geösjúkdóma með lyfjum og sumir sjúkdómar eru þess eölis aö lyfja er þörf lengi. En sem varanleg lækning koma lyfin várt aö haldi. Þessi oftrú á lyfjameö- ferö stafar m.a. af misskilningi. Þegar lyfin komu á markaðinn var fyrir nokkru fariö aö breyta um lækningaaöferöir viö geö- sjúka. Þaö var fariö aö endur- hæfa sjúklinga en sú lækninga- aöferö er nú I hvaö mestu áliti meöal geölækna á geösjúkrahús- um. Þetta féll aftur á móti I skuggann fyrir lyfjum og þeim var þakkaöur bati geösjúkra. — pvl er samt ekki aö neita aö umræöan um lyf ýmiss konar og hætturnar sem stafa af notkun þeirra hefur stundum veriö ansi 'óábyrg. Oft fara blaöamenn aö skrifa um einhver tiltekin lyf og rægja þau niöur úr öllu valdi á tiltölulega þröngum forsendum. Margir hafa ekki aöstæöur til að kynna sér málin nógu vel sjálfir og veröa hræddir viö þessi lyf og neita aö taka þau jafnvel þó aö um bráönauösynleg lyf sé aö ræöa, eins og lyf sem geöklofa- sjúklingar þurfa aö fá. Skortir tima og aðstöðu Hvaða lækingaaðferð telur þú árangursrlkasta? — Fyrir þá veikustu endur hæfingu fyrst og seinast, auk psykoterapln I ýmsum myndum. Ef endurhæfing er ekki fyrir hendi er nánast sama hvaö viö geruin. Þá er alltaf hætta á aö sæki 1 sama horf. Geðsjúklingum getur hnignaö gifurlega á skömmum tlma en þvi fyrr sem þeir leita sér lækningar og komast I meöferö þvl betra. teningnum og aö þvl er varöar sjúkrarými bæöi háir okkur tlma- leysi og eins skortir aöstæöur til endurhæfingar. Ef vel ætti aö vera þyrftum viö aö geta boöiö upp á heila meöfe^öarröö ef svo má segja. Segjum aö maöur veröi mikiö veikur og þurfi aö leggjast inn á lokaöa deild. Þar fær hann hjúkrun og læknisþjónustu viö hæfi. Siöan á þessi maður aö eiga kost á aö færast á aöra deild þar sem kerfiö er opnara og aö lokum á hann aö komast heim til sln og fara aö vinna og lifa sjálfstæöu llfi. Til aö þetta geti oröiö þarf aö taka vinnustaöina meö I mynd- ina. Margir útskrifaöir geösjúklingar treysta sér ekki út á almennan vinnumarkaö en geta sem best unnið á vernduðum vinnustöðum. Þeir vinnustaöir eru varla til hér á landi. Ég vil þó taka fram aö margir atvinnurek- endur eru sérstaklega skilnings- góöir og eru stööugt meö I vinnu menn sem oröiö hafa fyrir and- legum skakkaföllum. I Bretlandi er um þaö löggjöf aö vinnustaöir sem ná vissri stærö eru skyldaöir til aö taka ákveöiö hlutfall öryrkja I vinnu. Ungt fólk áttar sig fyrr Er einhver sérstakur hópur fólks sem leitar til geðlækna öðrum fremur? — Mér finnst ungt fólk bæöi átta sig fyrr á aö eitthvaö sé aö og tilbúnara aö koma til okkar en eldra fólk og þaö er llka yngra fólkiö sem neitar fremur lyfja- meöferö. Hrjá geðsjúkdómar jafnt konur og karla? — Geöklofi er jafnalgengur hjá báöum kynnum samkv. könnun Tómasar Helgasonar en þunglyndi kvenna er helmingi algengara en karla. Drykkja er algengari meðal karla en kvenna ennþá en sennilega hverfur sá munur og lyfjamisnotkun beggja viröist jafnmikil. Konur og lyf? Er það rétt sem ég hef frétt að læknar hillist til að gefa konum fremur en körlum róandi lyf? — Þaö held ég ekki. Hins vegar veit ég þaö aö margir heimilis- læknar hafa af þvi áhyggjur hvaö lltill tlmi er til aö sinna sjúkling- um. Eru geðsjúkdómar banvænir? — Ekki kannski I sjálfu sér en þaö er staöreynd aö geösjúkir falla gjarnan fyrir eigin hendi. Svo ég vitni enn I könnun Tómas- ar þá gera þaö 16% þunglyndis- sjúklinga og 3% geöklofa. tslenskar tölur um drykkju- sjúklinga hef ég ekki en meðaltal nokkurra erlendra kannana sýna aö 1 af hverjum 10 drykkju- sjúklingum sem hefur verið I meöferö fargar sér og 1 af hverj- um 20 sem vitað er aö hafi veriö drykkjusjúkur án þess aö hann hafi komiö til læknis. Svo við snúum okkur að launun- um, eru ekki læknar hátekju- menn? — Svoer sagt aö minnsta kosti. Læknafélag lslands semur viö sjúkrastofnanir, almannatrygg- ingarog sjúkrasamlög. Ég er sér- fræöingur meö fjögurra ára starfsreynslu og föst mánaöar- laun fyrir 40 stunda vinnuviku er 910.030. Sérfræöingslaun eftir 15 ára starfsreynslu eru 1.023.662. 1 fyrra var sett á okkur eftirvinnu- þak þannig aö viö megum ekki vinna nema 20 stundir á mánuöi I eftirvinnu. Þetta finnst okkur vont, þaö er ekki gott aö þurfa aö neita sjúklingi um þjónustu vegna þess aö y firvinnutlminn er búinn. — hs

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.