Þjóðviljinn - 05.07.1980, Síða 9
Helgin 5. — 6. júll. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 9
Heiðarleg mynd um Víetnamstríðið
Tónabíó:
Heimkoman
(Coming Home)
Bandaríkin 1978
Leikstjóri: Hal Ashby
Kvikmyndun:
Haskell Wexler
Aðalhlutverk: Jane Fonda/
Jon Voight/ Bruce Dern.
Tvœr myndir hlutu meiri viöur-
kenningu en aörar viö úthlutun
Óskarsverölauna 1979: Hjartar-
baninn og Heimkoman. Báöar
fjalla um áhrif Vletnamstriösins
á bandarísku þjóðina. Þó er varla
hægtaö hugsa sér ólikari myndir.
Hjartarbaninn er á yfirboröinu
tæknilegt stórvirki og listrænt
afrek, en i raun og veru útsmogin
og viðurstyggileg áróðursmynd,
þar sem staðreyndum er snúið við
á svo lúmskan hátt að manni
detta dauðar lýs úr höfði.
Heimkomaner hinsvegar kvik-
mynd sem ekki lætur mikiö yfir
sér, en er margfalt heiðarlegri út-
tekt á þvi sem geröist i banda-
risku þjóðfélagi meðan á Viet-
namstriöinu stóð.
Tónabió sýndi I vor aöra mynd
eftir leikstjóra Heimkomunnar,
Hal Ashby. Þaö var myndin um
Woody Guthrie, „Bound for
Glory”.Fleiri myndir eftir Ashby
hafa verið sýndar hérlendis,
a.m.k. Shampoo og The Last
Detail.Hann er nú I hópi athyglis-
verðustu kvikmyndastjóra
Bandarikjanna. Fyrstu mynd
sina, The Landlord, gerði hann
1970, en þá hafði hann unniö ýmis
störf I kvikmyndabransanum allt
frá þvihannvar 17 ára, 1947. M.a.
vann hann við klippingu mynda I
20 ár og fékk Oskarsverðlaun
fyrir klippingu á myndinni In the
Heat of the Night eftir Norman
Jewison. Hann var þvi enginn
nýliði þegar hann hófst handa við
kvikmyndastjórnina.
Þríhyrningur
1 Heimkomunni, sem byggð er
á sögu eftir Nancy Dowd, segir
Jon Voight I hlutverki Luke, hermannsins sem kom heim I hjólastól.
Jane Fonda leikur Sally. Vletnamstrföiö gjörbreytti llfi hennar.
Ingibjörg
Haralds-
) dóttir
skrifar um
kvikmyndir
frá Sally (Jane Fonda), eigin-
manni hennar Bob (Bruce Dern),
sem er kapteinn I bandarlska
hernum, og Luke (Jon Voight)
sem er fatlaður af völdum
strlðsins, einn af mörgum sem
komu heim I hjólastól. Þetta er
þrihyrningssaga, sem nær þó
langt út fyrir mörk ástar-
sögunnar og setur einkallf
persónanna I vltt, þjóöfélagslegt
samhengi.
Myndin gerist á nokkrum árum
á sjöunda áratugnum. Andrúms-
loft þessara ára kemst mjög vel
til skila, og sérstaklega sú hraða
þróun sem varð þá á afstöðu og
viöhorfum manna til þess sem
var að gerast. Kannski kemur
þetta hvergi skýrar fram en I
túlkun Jane Fonda á Sally. Þegar
myndin hefst er hún dæmigerö
eiginkona atvinnuhermanns, lifir
og hrærist i umhverfi sem ein-
kennist annars vegar af milli-
stéttarviðhorfum og hins vegar af
hermennsku. Bob er uppfullur af.
„föðurlandsást” og hún er litið
annað en bergmál af honum. Svo
fer Bob I striðið og hún fer að
sinna góðgerðarstarfsemi til að
drepa timann á meðan hann er I
burtu.
Þetta starf hennar og kynnin af
heimkomnu mönnunum,
bækluðum á sál og llkama, gjör-
breyta Sally. Smám saman
opnast augu hennar fyrir þvl sem
er að gerast I Vietnam. Hún
verður ástfangin af Luke. Sam-
band þeirra er gjörólikt sam-
bandi hennar viö Bob. Samt sem
áður er ekki hlaupið að þvi að
brjótast út úr hjónabandinu.
Þegar Bob kemur heim úr
striðinu er hann niðurbrotinn
andlega, og gjörsamlega ófær um
að aölagast aftur þvl samfélagi
sem hann yfirgaf til þess að
gerast strlðshetja.
Fórnarlömb
Bob og Luke eru báðir fórnar-
lömb Vietnamstrlösins, hvor á
sinn hátt. Luke er likamlega
bæklaöur, en andlega sterkur og
finnur tilgang I lifinu með þvi að
reka áróður gegn strlðinu og vara
unga landa sina við þvl að láta
senda sig á vigvöllinn. Bob er
hinsvegar fflhraustur og orðum
prýddur, en stórskaddaður á sál-
inni.
Striöið sjálft er ekki sýnt I
myndinni, en það er allsstaöar
nálægt, allt snýst um það og þaö
er helsti örlagavaldur I llfi per-
sónanna. Heimkoman gefur inn-
sýn I andófsbylgjuna miklu, sem
átti sinn þátt I ósigri Bandarikj-
anna I þessu viðurstyggilegasta
og ranglátasta strlði veraldar-
sögunnar.
Heimkoman er mynd, sem
menn ættu helst ekki að láta
framhjá sér fara. Hún flytur
þarfan boðskap og er þar aö auki
mjög vel gerö, og álveg sérstak-
lega vel leikin. Jane Fonda og Jon
Voight fengu bæði Oskarsverð-
laun fyrir leik sinn og voru mjög
vel að þeim komin, og einnig er
leikur Bruce Dern góður. Kvik-
myndataka Haskell Wexler er
llka frábær, ekki slöur en I
„Bound for Glory”, sem hann á
einnig heiðurinn af.
það munar um
minna
Einingahús úr timbri . Arkitekt: Hróbjartur Hróbjartsson
Einingahúsin frá Ösp hafa á margan hátt óumdeilanlega sérstöðu. Við
nefnum t.d. einstaka einangrun þeirra, með 6” og 8” glerull í útveggjum
og þaki.
Með þessu móti tryggjum við fullkomna einangrunareiginleika. Upp-
hitunarkostnaður verður í algjöru lágmarki. Það munar um minna á
þessum síðustu tímum orkukreppunnar.
Asparhúsin eru í sérflokki
Aðlaðandi útlit - einbýlishús á einni hæð
Fullkomin einangrun - upphitunarkostnaður í lágmarki
Góð nýting á gólffleti
Hallandi loft
Afhending á ýmsum byggingarstigum
Einstakt verð og greiðsluskilmálar. Leitið nánari
upplýsinga á skrifstofunni
Stykkishólmi Símar: 93-8225 og 93-8307