Þjóðviljinn - 30.07.1980, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 30.07.1980, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 30. júli 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 13 r Askorun frá umferðarnefnd: Virðið lög og reglur í umferðinni Umferðarnefnd Reykja- víkurborgar hefur lýst á- hyggjum sínum vegna hinna tíðu og alvarlegu umferðarslysa sem orðið hafa undanfarið og beint þeirri áskorun til almenn- ings að virða lög og reglur í umferðinni. I samþykkt umferöarnefndar- innar vegna slysaöldunnar segir ennfremur: „Ljóst er, aö fræösla um um- feröarmál, ein út af fyrir sig, nægir ekki til aö stemma stigu viö umferöarslysum. Fleira veröur að koma til, t.a.m. aukin lög- gæsla. Beinir umferöarnefnd þeim eindregnu tilmælum til lög- regluyfirvalda i Reykjavik, aö þau auki enn hraöamælingar frá þvi sem nú er, i þvi skyni aö veita ökumönnum aðhald. Þá beinir umferðarnefnd Reykjavikur þvi til dómsmála- ráöherra, aö i þeirri endurskoöun umferðarlaga, sem fyrirhuguö er, veröi gerö tillaga um, aö notk- un bilbelta verði lögleidd.” Rammalög- gjöf um lifeyrissjóði Skipaöur hefur veriö 7 manna starfshópur til aö vinna aö samn- ingu draga aö frumvarpi til laga um lifeyrissjóöi. Gert er ráö fyrir aö fyrstu drög aö sllku frumvarpi liggi fyrir i haust og á þaö aö fela i sér almenna rammalöggjöf um lifeyrissjóöi. Þaö er hin svo- kallaða 17 manna lifeyrisnefnd sem skipaöi þennan starfshóp og mun þvi hópurinn skila áliti sinu til nefndarinnar er svo fjallar nánar um drögin. Eftirtaldir voru skipaöir i áöur- greindan starfshóp: Guöjón Hansen, tryggingafræðingur, sem jafnframt er formaöur starfshópsins, Árni Kolbeinsson lögfræöingur i fjármálaráöuneyt- inu, Arnljótur Björnsson prófess- or og formaöur Lifeyrissjóös starfsmanna rikisins, Bjarni Þórðarson formaöur stjórnar Landssamband lifeyrissjóða, Björn Arnórsson hagfræðingur BSRB, Hrafn Magnússon fram- kvæmdastjóri Sambands al- mennra lifeyrissjóða og Stein- grimur Pálsson ritari 17 manna nefndarinnar. Símínn er 81333 a/oonum FERÐAHÓPAR Eyjaflug' vekur athygli feröahópa, á sérlega hag- kvæmum fargjöldum milli lands og Eyja. Leitiö upplýsinga i simuni 98-1534 eöa 1464 • EYJAFLUG w SKÁPHURÐ FRÁ 18. öt lc; Jf ÚTSKORIN OG MÁLU D * Ð í > > ► > 1 > > > i « < < « « < < i :í SLAND 15( )i Norræn nytjalist á frímerkjum 9. september n.k. koma út ný Norðurlandafrimerki meö nytja- list fyrri alda aö myndefni. Myndefni islensku frimerkjanna sem veröa tvö eru fengin úr Þjóö- minjasafni Islands. Á ööru (180 kr) er mynd af blómstursaumuöu sessuborði, sem merkt er ár- tatinu 1856 og á hinu (150 kr) er mynd af útskorinni og málaöri skáphurö frá 18. öld. Blómstursaumur fór að tiökast á 17. öld og naut mikilla vinsælda fram eftir þeirri 19. Var hann i fyrstu saumaður meö ýmsum sporum, en er á leiö nær eingöngu með blómstursaumsspori, sem hann dregur nafn sitt af. Blómst- ursaum er aö finna á ýmsum ábreiöum, altarisklæöum og fleiru. Skáphuröin sem höfö er til fyrirmyndar aö hinu frimerkinu er talin vera smiöuð af Hallgrimi Jónssyni bónda á Halldórsstööum i Laxárdal,en hann var á sinum tima einn kunnasti bildhöggvari og málari landsins. Veggskápur- inn er meö tveimur huröum og skúffum fyrir innan. Hvorri hurö er skipt niöur i þrjá reiti, skreytt- um i barokstil og sýnir merkið einn þessara reita. Þetta er i fimmta sinn sem Noröurlandafrimerki eru gefin út. Aður hafa þau komið út áriö 1956, 1969, 1973 og 1977. Frimerkin teiknaöi Þröstur Magnússon og eru þau prentuð I Sviss. Ásgerður Ingimarsdóttir Mér varö leiöinlega á i mess- unni i gær i fréttinni um húsnæöismál öryrkja. Ég fór ranglega meö nafn deildarstjóra öryrkjabandalagsins, nefndi hann Ástriöi Ingimundardóttur, en hennar rétta nafn er Asgeröur Ingimarsdóttir. Biö ég hana vel- viröingar á þessum mistökum. — hs r I eina sœng Mjölnir Taflfélagiö hans Nóa og Skákfélagiö Mjölnir viröast á góöri leiö meö aö ganga I eina sæng. t kvöld halda þessi félög sameiginlega æfingu I Garösbúö þ.e. Féiagsstofnun stúdenta og og Nói eru þeir skákþyrstu aö sjálfsögöu beönir um aö mæta. Athylgi er vakin á þvi aö i Félagsstofnun er hægt aö fá kaffi og meöþvi, jafn- vel léttvinsglas er ieyfilegt. Dagskrá Framhald af bls. 9 ekki fækkaö i ár i fyrsta sinn i áratug — o.s.fr. o.s.fr. Skipulagsmál Reykjavikur eru viöfeömur og margþættur mála- flokkur, sem full á§tæöa er til aö gera góö skil I útvarpi — ekki sist nú þegar ýmis ný viöhorf eru uppi sem geta boöið uppá nýjar leiöir I þróun borgarinnar, jafnt innáviö sem útávið. En umfjöllun af þvi tagi sem umræddur útvarpsþátt- ur bauö uppá er lélegra framlag en ekkert. Siguröur Haröarson júli 1980 r Asökun Framhald af bls. 10 ast i málinu, þvi leitar hann þang- aö sem svör ættu aö vera til — en þaö er Læknadeild Háskólans og æöstu menn læknamála og vill leggja fyrir þá nokkrar spurning- ar. Þær eru þessar: 1. Hvaö vitiö þiö sannast i þess- ari ásökun? 2. Hafiö þiö kynnt ykkur rann- sóknir dr. Ernsts T. Krebs á krabbameini? 3. Hafiö þiö gert tilraunir til aö lækna krabbamein meö aprikósu- steinum eöa meö B 17? 4. Ef ekki: hvaöa ástæöa er þá til þess, er ekki skylda Háskólans aö gera tilraunir á Læknadeild- inni meö allt sem einhverjar likur eru á aö geti oröiö til bóta i bar- daga viö skæöa sjúkdóma, en dæma þaö ekki fyrirfram einskis nýtt, ef þaö kemur ekki frá lyfja- hringunum? Þess er vænst aö svör fáist viö þessum spurningum, þvi varla mun önnur spurning vera meir brennandi en þessi: Er búið aö leysa gátuna um krabbamein og lækningu á þvi eöa ekki? Þaö skal tekiö fram, að ein- hverjar upplýsingar frá lyfja- hringunum eöa handbendum þeirra veröa ekki teknar sem gild svör. Aöeins þaö sem læknar sjálfir hafa komist aö meö rann- sóknum. Glúmur Hólmgeirsson. Barnaheimilið Os Starfsfólk, helst með fóstrumenntun óskast á Barnaheimilið Ós. Upplýsingar i sima 23277. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, Kristjánssina Sigurást Kristjánsdóttir frá Naustum og Vindási Eyrarsveit, lést á Landspitalanum 27. júli. Hugi Hraunfjörö Hulda Pétursdóttir Pétur Hraunfjörö Unnur Pétursdóttir Guölaug Hraunfjörö Ólöf Hraunfjörö Alfreö Hólm Björnsson Sigfús Tryggvason Kari Arnason Guörún Pétursdóttir FOLDA TOMMI OG BOMMI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.