Þjóðviljinn - 20.08.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. ágúst 1980
Fegrunar-
verðlaun
borgarinnar:
Eins og skýrt var frá i Þjóðvilj-
anum i gær voru á mánudag
veittar viðurkenningar Um-
hv erf is m álaráðs Reykjavikur-
borgar fyrir fegrun og snyrtingu
borgarinnar. Hefur það veriö
venja á afmælisdegi Reykjavikur
18. ágúst frá 1947. Ekki hafa það
alltaf veriö sömu hlutirnir sem
veitt er viðurkenning fyrir, nema
hvað á hverju ári hefur verið val-
in fegursta gata borgarinnar og
var svo einnig nú, þegar Teiga-
geröið hlaut þann titil.
Mun þetta vera i' fyrsta sinn
sem gata i Smáibúöarhverfinu
hlýtur slika viðurkenningu og
veitti Bryndis Bjarnadóttir, einn
ibúa við Teigagerðið henni mót-
töku. Götuna völdu Gunnar
Helgason fórstjóri, Pétur
Hannesson forstöðumaöur
hreinsunardeildar og Hafliöi
Jónsson garðyrkjustjóri og segir i
áliti þeirra að gatan beri þess
glöggt vitni að ibúarnir biöa þess
ekki að hreinsunarmenn gatna
komi með sin tól til að sópa gang-
stéttir og malbik. Allt sé sópaö og
prýtt og séu ibúarnir samtaka um
1
Leikur og öryggi er allsráðandi við raðhúsin viö Bakkasel i Breiöholti en þar hefur frágangur leiksvæöa verið tekinn fram yfir ýmislegt
annað f frágangi lóða og húsa. Ljósm.-ella.
Hvatning til borgarbúa um aukna
snyrtimennsku og betri umgengni
kenning fyrir góðan aðbúnað
barna á ibúðarhúsalóðum og þótti
rétt að endurtaka það á þessu ári
ef það mætti verða borgarbúum
hvatning til þess að huga betur að
frágangi á leiksvæðum bama. I
álitidómnefndar sem Anna Krist-
björnsdóttir, fóstra, Auður
Sveinsdóttir#landslagsarkitekt og
Einar E. Sæmundsson.landslags-
arkitekt, skipuöu, kom fram að
verk þeirra var erfitt. Liktu þau
leit sinni að góðum aðbúnaöi
barna i þessari 90 þúsund manna
borg við leit að nál i heystakki og
hlýtur það að vera þörf ábending
til húsbyggjenda. Allt of viða er
frágangur á bilastæðum og ööru
sliku látiö sitja i fyrirrúmieftir að
sjálfri húsbyggingunni er lokið og
leiksvæði fyrir börn eru kannski
ekki tilbúin fyrr en börnin eru
orðnir unglingar. Þá skortir viða
á aö við skipulag sé gert ráð fyrir
svæðum, þar sem leikþörf barna
getur fengiö útrás og öryggi
þeirra verði tryggt. Benti dóm-
nefndin m.a. á hversu illa hefur
verið á þeim málum haldið við
blokkir, sem Framkvæmdanefnd
byggingaáætlana byggöi i Selja-
hverfi i Breiöholti.
Einn staður fannst þó i borginni
sem dómendurnir voru sammála
um aö ætti viöurkenningu skilið.
Það eru raðhúsalóöirnar viö
Bakkasel i Seljahverfi. Þar hafa
fjórar raðhúsaeiningar með alls
36 ibúðum, gengið frá sameigin-
legu leiksvæöi fyrir börnin og er
leikur og öryggi þar allsráöandi.
A tiltölulega litlu svæöi i nánum
tengslum viö húsin geta börnin
hjólað og leikiö sér en auk þess
hefur hvert hús sinn blóma- og
trjágarö sem tengist leiksvæöun-
um og sýnir aö börn og gróður
eiga vel samleið. Fimm börn úr
Bakkaselinu veittu viðurkenning-
unni móttöku
1 tilefni af Ari trésins þótti
ástæða til að vekja athygli á þeim
trjágarði sem stórfenglegastur er
I Reykjavik, en þaö er garöur
Sveinbjarnar heitins Jónssonar,
hæstaréttarlögmanns i Artúns-
brekku. Ræktunarstarf Svein-
bjarnar hófst 1934 og eru þar nú
hávaxin tré og garöurinn sann-
kallaöur unaösreitur segir i áliti
dómnefndar. Hana skipuðu
Sigriöur H. Bragadóttair, starfs-
maður garöyrkjustjóra, Vil-
hjálmur Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Islands og Hafliði Jónsson garð-
yrkjustjóri. Garðurinn er um þrir
hektarar að flatarmáli og er þar
að finna allflestar trjátegundir
sem geröar hafa verið tiiraunir
með ræktun á,hér á landi. Varval
Framhald á bls. 13
að fága umhverfi sitt. Hvert ein-
stakt hús hefur fallegan garö og
er þaö lóöunum sameiginlegt að
þær eru svo vel hirtar að vart
verðurá betrakosið. Mættu ibúar
við aðrar götur I borginni vissu-
lega taka samborgara sina við
Teigagerði sér til fyrirmyndar.
Merki fegrunarnefndar um-
hverfismálaráðs hefur veriö sett
upp við götuna og verður þaö þar
næstu 10 árin nema umgengni og
hiröing götunnar versni frá þvi
sem nú er.
I tilefni af barnaári var i
fyrra i fyrsta skipti veitt viður-
tbúar við Teigageröi blða þess greiniiega ekki að hreinsunarmenn gatna komi með tól sln og sópi gangstéttir og malbik. Fegursta gata
Reykjavíkur 1980. Ljósm.-ella.
Nýbygging Osta- og smjörsölunnar viö Bitruháis hlaut viöurkenningu fyrir gott ytra og innra umhverfi.
Ljósm.-ella.