Þjóðviljinn - 20.08.1980, Side 5
Miövikudagur 20. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Demirel — beitir hryöjuverkamönnum Vinstrisinnaöir námsmenn I átökum viö lögregliMitestum all-
gegn pólitiskum andstæöingum. «r, sem lögreglan handtekur, eru pyndaöir.
SKÁLMÖLD í
TYRKLANDI
Ofbeldiö hefur aldrei veriö
langt undan i tyrkneskum stjórn-
málum og þjóölifi, en ekki fer
milli mála aö siöasta áratuginn
hefur þaö óöum færst f vöxt, svo
aö nú jaörar viö borgarastriö og
upplausn. Siöan um áramót hafa
hryöjuverkamenn og borg-
arskæruliöir ýmisskonar drepiö
yfir 2500 manns þar i landi, og
veröa hryöjuverkamennirnir á
italiu allt aö þvi meinleysingjar
viö samanburöinn. Um 20 af 67
fylkjum landsins, þar sem meira
en heimingur 45 miljóna lands-
manna býr, eru undir herlögum
og rikisstjórnin viöurkennir aö
pólitiskir fangar séu um 10.000 I
landinu. Eins og sakir standa eru
10-15 menn drepnir daglega I
þessum pólitisku hjaöninga-
vigum. Tyrkland hefur i blööum
stundum veriö kallaö „hornsteinn
vestræns lýðræöis” vegna meints
hernaöarlegs mikilvægis þess
fyrir Nató.
Eins og oft vill veröa eigast
þarna viö vinstri og hægri, en ill-
indi milli triiflokka og þjóöerna
blandast inn i. Helsti hægri-
flokkur Tyrklands er svokallaöur
Réttlætisflokkur, sem nú er i
stjórn meö stuöningi fasista-
flokks, er kallast Þjóöernislegi
athafnaflokkurinn eöa eitthvaö I
þá áttina, og islamska frelsunar-
flokksins, sem berst fyrir strang-
ari Múhameöstrú. Fasista-
flokkurinn hefur á sinum snærum
vopnaöar og herþjálfaöar liös-
sveitir glæpalýös, sem kallar sig
Gráúlfana, og standa þeir öörum
fremur fyrir manndrápunum.
hægra megin frá. Þeir hafa góö
sambönd i hernum og þó einkum I
lögreglúnni sem gerir aö verkum
aö þeir eiga tiltölulega auövelt
meö aö sleppa vö refsingar eöa
flýja úr fangelsum, séu þeir settir
inn. Þá er og engum vafa bundiö
aö rikisstjórn Demirels, núver-
andi forsætisráöherra og foringja
Réttlætisflokksins, tekur vægt á
hægriöfgamönnum og styöur þá
meira aö segja oft, beint og
óbeint, til árása á róttæka vinstri-
menn og jafnvel annan helsta
stjórnmálaflokk landsins, Lýö-
veldissinnaöa alþýöuflokkinn,
sem stundum er talinn sósial-
demókratískur.
Margklofinn vinstri-
kantur
Vinstrisvipurinn á þeim flokki,
er lýtur forustu Bulents Ecevit,
fyrrverandi forsætisráöherra, er
næsta daufur, enda væri fyrir
löngu búiöaö banna hann annars.
Vinstri kanturinn er margklofinn,
svo aö þar gera fáir betur en
Tyrkir, samkvæmt einni heimild
eru hóparnir ekki færri en 50, og
mætti þá ætla aö róttækir vinstri
menn þarlendir heföu eitthvaö
annaö viö kraftana aö gera en aö
sóa þeim i innbyröis erjur.
Róttækir vinstrimenn hafa siö-
ustu árin fengiö talsvert fylgi
meöal ofsóttra þjóöerna og trú-
flokka, nánar tiltekiö Kúrda og
Alevi, sértrúarflokks innan
Múhameöstrúar er kvaö hafa
innanborös eitthvaö frá Sjitum og
öörum trúarbrögöum en Islam.
Þorri Kúrda og Alevi er meöal
kúgaöasta og fátækasta fólks i
landinu.
Vígamenn af hægri og vinstri
kanti vegast auðvitaö sin á milli,
ef svo ber undir, en hitt virðist
ekki siöur algengt aö drepnir séu
menn, sem ef til vill hafa ekki
unniö annaö til saka en aö vera
grunaöir um annaöhvort vinstri-
eöa hægrimennsku. Einna flestir
hafa falliö úr hópi námsmanna,
verkamanna, kennara, prófess-
ora, lögreglumanna og blaöa-
manna. Háttsettir stjórn-
málamenn hafa einnig falliö i
valinn, einkum upp á siökastiö.
Þá hafa komið fyrir fjöldamorö,
þar sem menn hafa veriö drepnir
unnvörpum fyrir þaö eitt aö vera
grunaöir um ákveönar stjórn-
mála- og trúarskoöanir, og hafa
hægrimenn veriö aö verki i þeim
tilfellum
Sýndarþingræði
Versnandi ástand i efnahags-
málum er án efa mikilvæg orsök
til hinnar vaxandi óaldar. 1
sveitum er glfurlegur skortur á
jarönæöi, I borgum gifurlegt at-
vinnuleysiö, aö minnsta kosti um
20%, ef til vill talsvert meira.
Kjarabiliö milli rikra og fátækra
er sagt meö meira móti, jafnvel
miöaö viö þaö, sem gerist i
Vestur-Asiu.
Þingræöiö, sem Tyrkir hafa um
skeið haft hjá sér aö vestrænni
fyrirmynd, hefur aldrei verið
beysið, stundum hefur herinn
tekiö þaö úr sambandi og þess á
milli hefur þaö oft ekki veriö
mikiö meira en nafniö tómt. Allir
„kommúniskir” (les: vinstri
sinnaöir) flokkar eru bannaöir,
hinsvegar eru engar hömlur á
starfsemi hægriflokka, hversu
öfgafullir sem þeir kunna aö
vera. Ekki einungis herinn,
heldur og lögreglan hefur sllkt
vald, aö stjórnmálamenn mega
sin oft litils gegn þessum aöilum,
hversu voldugir sem þeir teljast.
Flestir fangar pyndaðir
Auk óánægju og örvæntingar
vegna eymdarkjara mikils hluta
almennings er gefiö mál aö
banniö viö allri stjómmálastarf-
semi vinstrimanna hefur átt
rikan þátt i aö knýja róttæka
vinstrimenn til vopnaörar upp-
reisnar. Margir þeirra hafa leiöst
út á þá braut. einfaldlega vegna
þess, aö þeim var meö öllu fyrir
munaö aö láta skoöanir sinar i
ljós meö öörum hætti. En þeir
draga ekki af sér viö mann-
drápin, sumir þeirra kváöu hafa
lært sitthvaö af Baader-Meinhof-
fólkinu i Þýskalandi.
En manndráp og hryöjuverk
vinstrisinnaöra borgarskæruliöa
eru þá ekkert á móti þeirra sjúk-
legugrimmd og kvalsýki, er lýsir
sér i athöfnum pakksins á hægri
kantinum og lögreglunnar. Pynd-
ingar þykja svó sjálfsagöar I
tyrkneskum fangelsum aö þær
eru fyrir löngu orönar hluti af
kerfinu þar. En ljóst er aö pynd-
ingarnar hafa mjög færst i auk-
ana meö vaxandi óöld og
Amnesty International skýröi frá
þvi fyrir skömmu aö flest fólk,
sem handtekið væri i landinu,
væri pyndaö meö einu eöa ööru
móti. Þar er um aö ræöa meöal
annars rafmagnspyndingar, fal-
anga (iljastroku, sérgrein Tyrkja
og margra rikja i Vestur-Asiu),
kynferöislegar misþyrmingar á
konum — stundum raunar lika á
körlum.
Afstaða hersins
Herinn er frá gamalli tiö ekki
úrhófi hægrisinnaöur á tyrknesk-
an mælikvaröa, þar telja menn
sigeiga aö standa vörö um fram-
faraandann frá Atatúrk og vin-
striskoöanir kváðu talsvert al-
gengar meöal yngri liösforingja.
Af hálfu yfirstjórnar hersins
hefur stundum veriö látin I ljós
óánægja meö samstarfs stjórnar
Demirels og lögreglunnar viö
hægriöfgamenn. En ýmislegt
bendir til þessaö herinn, sem allt
frá tiö Atatilrks hefur verib vold-
ugasti aöilinn I stjórnmálum
landsins, þegar til kasta hans
hefur komiö, sé aö snúast til
hægri. Þaö kann mebal annars aö
stafa af þvi, aö herinn á orðiö
mikil itök i efnahagslifi landsins i
gegnum stóran eftirlaunasjóö
sinn, og óttast aö hann missi þau
Itök ef vinstribylting yrði niöur-
staba yfirstandandi ólgu.
Friedmanismi
Félagslegar andstæöur og þar
meö harka i stéttabaráttunni
virðist hafa aukist vegna þess, aö
stjórn Demirels hefur haft ein-
hverja tilburöi til aö tileinka sér
nýkapitalisma Friedmans i efna-
hagsmálastefnu sinni. Umdeilt
mun, hvort kenningar Friedmans
þessa geti undir vissum kringum-
stæöum komiö ab einhverju
gagni, en hitt dregur enginn i efa
aðlitlireða engir möguleikar séu
á aö framkvæma þær þar, sem
lýöræöislegt stjórnarfar rikir.
Argentlna og Chile eru þau lönd,
sem hvaö frægust eru fyrir aö
hafa tileinkaö sér kreddur hag-
fræöings þessa, og fá lönd ef
nokkur hafa viöurstyggilegri
glæpamenn á stjórnarstólum. 1
Tyrklandi þróast ástandiö I sömu
átt. Athyglisvert er, að upp á
siðkastiö hafa hægrisinnaöir
hryöjuverkamenn ekki sist beint
skeytum sinum aö forustu-
mönnum verkalýössamtaka. Þaö
er einmitt viöurkennt, aö eitt
helsta skilyröiö til aö geta fram-
kvæmt friedmanismann sé aö
taka verkalýösfélögin úr sam-
bandi.
dþ.
Saúdi-Arabia vill
Heilagt
stríd
Fad, krónprins Saúdi-Arabfu og
voldugasti maöur þess ollustór-
veldis sagöur, hvatti Araba I slö-
ustu viku til „heilags striös” gegn
tsrael. Telja sumir fréttaskýr-
endur aö þetta þýöi breytingu til
herskárri stefnu af hálfu Saúdi-
Arabiu i deilumálum tsraels og
Araba.
Fadsagöiviöþetta tækifæri, aö
ekki væri hægt aö sjá aö Arabar
heföu neitt upp úr þvi aö sýna af
sérhófsemigagnvart lsrael. Gæti
hugsast aö sú ákvöröun Israels-
þings, aö innlima formlega
Austur-Jerúsalem i lsraelsriki og
gera alla borgina aö höfuöborg
Israels, hafi oröiö til þess aö ýta
undir herskáan þankagang hjá
Saúdi-Aröbum. Hingaö til hefur
Saúdi-Arabla aö visu verib andvig
Camp David-samkomulaginu, en
ekki beitt sér gegn þvi af mikilli
hörku.
Þar sem saúdiarabiska kon-
ungsfjölskyldan rikir yfir fööur-
landi Múhameös spámanns og
þar meö helgustu borgum
Múhameöstrúarmanna, sem eru
Mekka og Medina, vill hún
framar öllum öörum þjóöhöfö-
ingjum telja sig verndara Islams.
Þaö má þvi vera aö furstarnir i
Riad telji sig ekki eiga annars
kost en aö bregöast hart viö, er
lsraelar innlima þannig alla
Jerúsalem, sem einnig er aö mati
Múhameöstrúarmanna mjög
heilög borg. Vaxandi ókyrrö sam-
fara trúarvakningu i Saúdi-Ara-
biu, sem viöar i löndum Islams,
kann aö reka á eftir valdhöfum
Saúdi-Arabiutilað taka uppher-
skárri stefnu gegn Israel. Þessi
höröu viöbrögö Fads geta likiö
veriö vottur um, hvernig Saúdi-
Arabia og írak, tvö oliurikustu
Arabarlkin, muni beita sér á al-
þjóðavettvangi eftir aö þau af-
lögöu gamlan fjandskap og gerö-
ust bandamenn.
dþ.
Örfá atriði úr hryðju-
yerkaannál Tyrklands
L
Manndrápin i bænum Kara-
manmaras I suöurhluta Tyrk-
lands i desember 1978 eru af
mörgum talin tákn um vaxandi
grimmd I óöldinni i landinu. Þar
réöust fasistar og súnnar
(„rétttrúaöir” Múhameðstrú-
armenn) á fólk af Alevi-trú-
flokknum, sem mun hafa veriö
grunaö um samúö meö vinstri-
mönnum. 111 manns voru myrt-
ir. Svipuð hryöjuverk voru siöar
framin i öörum bæ, Corum.
Ung stúlka, Gulden Gulkan,
var flutt i Sagmalciiar-fangelsiö
i Istanbúl 21. janúar 1980. Aö
sögn samfanga hennar haföi
hún þá verib tvo og hálfan mán-
uö I fangelsum i borgunum Van,
Tatvan, Bitlis, Diyarbakir og
Ankara, og veriö pynduö i þeim
öllum.
1 Van haföi hún verið rist i
iljarnarmeörakvélarblööum og
siöan neydd tilaö hafa fæturna á
kafi I saltvatni i hálfan annan
dag. Siöar var hún neydd til aö
standa á salti i heila nótt og
halda höndum upp yfir höfuö
sér. Hvaö eftir annaö var drepiö
i sigarettum á likama hennar.
Henni var nauögaö og rist var i
kynfæri hennar meö rakblöðum.
1 Diyarbakir var hún sett á
geöveikradeild meö geösjúkum
hermönnum. Þar var hún lamin
neöan I iljarnar til þess aö hún
skrifaöi undir ákveöna yfirlýs-
ingu. Þetta endurtók sig nokkr-
um sinnum. Henni var um slðir
ógnab meö byssum og henni
sagt aö hún yrbi drepin ef hún
Turkler á Iikbörunum — aöferft
til aö taka verkalýösfélögin úr
sambandi.
skrifaöi ekki undir, og geröi hún
þaö þá. ^
I byrjun mai s.l. var Mustafa
Mulgunoglu, leiötogi lýðvelsis-
sinnaöra alþýöuflokksins i
Kayseri i Austur-Tyrklandi,
myrtur af hægrimönnum.
•
Um svipað leyti hvarf 23 ára
gamall kennari, Mehmet Ali
Yolagelmez, frá heimili sinu i
þorpi nálægt Cankiri, noröur af
Ankara. Viku slðar fannst hann,
likaminn óskaddaöur, en holdið
aö mestu leyti eitt af höföi og
hálsliöum. Tungan haföi verið
skorin úr honum, eyrun af og
augun stungin út, allt aö honum
lifandi. Siöan haföi sýru verið
hellt yfir höfuö honum til aö
tryggja aö hann dæi hægum og
sem kvalafyllstum dauöa. Yola-
gelmez haföi veriö vinstrisinn-
aöur, og lék ekki vafi á aö
hryðjuverkamenn fasista-
flokksins höföu veriö hér aö
verki, enda höföu þeir aö mestu
yfirtekiö völdin á þvi svæöi, er
Yolagelmez starfaði á. Aö sögn
fjölskyldu og vina hans geröu
yfirvöldin ekkert til aö bjarga
honum úr höndum mannræn-
ingjanna og ekki heldur til aö
draga þá fyrir lög og dóm.
Tyrkneska lögreglan þykir
nógu svæsin viö pyndingar, en
út yfir tekur þó þegar hiö
„frjálsa framtak” stundar þær,
eins og þaö er orðaö I breska
blaðinu, New Statesman.
27. mai var skotinn til bana
Gun Sazak, fyrrverandi ráö-
herra og einn af foringjum fas-
ista, sagöur andlegur faöir Grá-
úlfanna. Ekki þarf aö efa aö
vinstrisinnaðir borgaskæruliöar
hafi veriö þar aö verki.
Meöal þeirra siöustu, sem
drepnir hafa veriö af flugu-
mönnum frá vinstri og hægri
eru Nihat Erim, hægrisinnaöur
stjórnmálamaöur, sem var for-
sætisráðherra er herlög rlktu I
landinu 1971-1972, og Kemal
Tflrkler, formaöur tyrkneska
málmiönaöarmannasambands-
ins og einn þekktasti verkalýös-
leiötogi landsins. Varla þarf aö
taka fram aö vinstrimenn bönn-'
uöu Erim, en hægrimenn
Turkler.
dþ.
Ll