Þjóðviljinn - 20.08.1980, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Mibvikudagur 20. ágúst 1980
Ég þakka af alhug alla vinsemd mér
sýnda með heillaóskaskeytum, heimsókn-
um og gjöfum i tilefni af sjötiu ára afmæli
minu 17. júli, s.l. Sérstakar þakkir færi ég
börnum og tengdabörnum minum fyrir að
gera mér þessi timamót svo ógleymanleg.
Guð blessi ykkur öll.
Guðriður Sigurðardóttir
fyrrv. simstöðvarstjóri
■ *1 Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
Í | ^ DAGVISTUN BARNA, FORNHAGA 8 StMI 27277
Dagvistun barna óskar að ráða starfs-
mann, helst fóstru eða þroskaþjálfa til
þess að annast blind börn á dagvistar-
heimili.
Upplýsingar veitir umsjónarfóstra i sima
21584 eða 27277.
PÓST- OG
SlMAMÁLÁSTOFNUNIN
óskar að ráða TALSíMAVERÐI um sex
mánaða skeið til starfa hjá TALSAM-
BANDI VIÐ ÚTLÖND
Gerðar eru kröfur til all nokkurrar tungu-
málakunnáttu.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá
starfsmannadeild.
Lyfsöluleyfi
er forseti Islands veitir
Lyfsöluleyfi Holts apóteks, Reykjavik, er
auglýst laust til umsóknar.
Umsóknir sendist landlækni, Arnarhvoli,
fyrir 1. október 1980.
Lyfsöluleyfið veitist frá 1. janúar 1981.
Samkvæmt heimild i 32. gr. lyfsölulaga nr.
30/1963 er verðandi lyfsala gert að kaupa
húsnæði, áhöld og innréttingar, þar með
talinn tölvubúnað, sem er i uppsetningu,
og vörubirgðir apóteksins.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
19. ágúst 1980.
Heilsugæslustöð á Ólafsfirði
Tilboð óskast í innanhússfrágang á
Heilsugæslustöð o.fl. á Ólafsfirði. Húsið er
2 hæðir og kjallari að hluta, alls um 2100
ferm. gólfflatar og er nú tilbúið undir tré-
verk.
Verkinu skal að fullu lokið 1. júni 1982, en
1. áfanga 1. júli 1981.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri og skrifstofu bæjarstjóra á ólafsfirði
gegn 100.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
þriðjudaginn 9. sept. 1980, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Guftrún Gisladóttir og Viftar Eggertsson
Sakleysi og grimmd
ALÞÝÐULEIKHUSIÐ
SÝNIR
ÞRIHJÓLIÐ
EFTIR Fernando Arrabal. Leik-
stjúri: Pétur Einarsson Leik-
mynd: Grétar Reynisson Þýfting:
Ólafur Haukur Simonarson
Leikhúsvertiftin hófst aft þessu
sinni með sýningu Alþýðuleik-
hússins á þessu verki Arrabals,
sem samið var 1961, á blóma-
skeiði fáránleikastefnunnar og
má reyndar finna i þvi merki
skyldleika við Ionesco, einkum i
fáránlegum rökræðum persón-
anna. Arrabal, sem er spánskur
en búsettur i Frakklandi, hefur
nokkrum sinnum áður birst i is-
lenskum leikhúsum, LR sýndi
Skemmtiferð á vigvöllinn, Herra-
nótt sýndi Bilakirkjugarðinn,
Leiksmiðjan setti upp Fandó og
Lis, og svo var LR meft Steldu
bara miljarði. Um skeiö var
Þjóðleikhúsið með áform um að
sýna Og þeir handjárnuftu blóm-
in, en þvi miður datt sú fyrirætlan
upp fyrir.
Reyndar sýnist manni i fljótu
bragði að Og þeir handjárnuðu
blómin hefði verið upplagðara
verkefni fyrir Alþýðuleikhúsift en
þetta, miklu magnaðra verk og
mun pólitiskara, en um leift viða-
meira og erfiðara. Þrihjólið fjall-
ar eins og mörg fleiri verk Arra-
bals um utangarðsfólk og lýsir
þvi sem einkennilegri blöndu
barnslegs sakleysis og skilnings-
vana grimmdar. Umrenningarnir
i Þrihjólinu standa gersamlega
utanvið skipulegt borgaralegt
samfélag. Þeir skilja hvorki siða-
lögmál þess né röksemdir. Þegar
fulltrúi samfélagsins birtist að
lokum til að taka þá fasta fyrir
morð talar hann annarlegt tungu-
mál sem enginn þeirra skilur.
Vönduð uppfærsla Péturs
Einarssonar kemur hinni barns-
legu hlið verksins til skila af mik-
illi natni, og sömuleiðis fáránlegri
kimni þess. Hins vegar skorti
nokkuð á þá spennu og ógnun sem
þarf aft koma þar á móti. Þetta
var kannski greinilegast i leik
Gunnars Rafns Gunnarssonar
sem var mjög einlægur og barns-
legur, en vantaði blæbrigði og
varð of einhæfur, aldrei verulega
ógnandi. Mun meiri spenna var i
ágætum leik Guörúnar Gisladótt-
ur og Eggert Þorleifsson skilaði
sinum hlut mjög snoturlega. Við-
ar Eggertsson lék gamla flautu-
leikarann og lagði hart aö sér að
sýna okkur elli hans og hrumleik,
en leikur hans varð nokkuð þving-
aöur.
Sverrir Hólmarsson.
Utangarftsmenn með þrthjól: Viftar Eggertsson, Gunnar Rafn Gunnarsson, Eggert Þorleifsson og Guð-
rún Gisladóttir.
HaHi hjá Dráttarvélum
Aftalfundur Dráttarvéla hf. var
haldinn i slftasta mánuöi. Halli
varft á rekstri fyrirtækisins á ár-
inu. Réfti þar mestu um að ekki
varft umtalsverð aukning á lager-
sölu þess, en veruleg hækkun á
fjármagnskostnafti.
A árinu 1979 varft heildarsalan
972.1 milj. kr á móti 805.6 milj.
árið áður. Söluaukning varð að-
allega i umboðssöiu en óveruleg i
lagersölu. Veruieg v.erðhækkun
varð á flestum þeim vörum, sem
fyrirtækið selur og torveldaði það
samkeppnisaðstöðu þess gagn-
vart ýmsum keppinautum.
Astæðan var einkum óhagstæð
þróun Vestur-Evrópu-gjaldmiðla
ásamt gengissigi krónunnar okk-
ar.
Af framangreindum orsökum
varð m.a. veruiegur samdráttur i
sölu á Massey-Ferguson dráttar-
vélum. Hafði það mikil áhrif á
heildarsölu fyrirtækisins svo rik-
ur þáttur sem þessar dráttarvél-
ar hafa verið I sölu þess undan-
farin ár. Sala vinnuvéla dróst
einnig saman á árinu.
Stjórn Dráttarvéla hf. var
endurkjörin. Hana skipa þeir
Hjalti Pálsson, formaður, Hjörtur
Hjartar og Agnar Tryggvason.
Endurskoðendur voru einnig
endurkjörnir: Óskar Jónatansson
og Geir Gerisson. Framkvæmda-
stjóri Dráttarvéla hf. er Arnór
Valgeirsson.
—mhg