Þjóðviljinn - 20.08.1980, Page 16
MÚÐVIUINN
Miðvikudagur 20. ágúst 1980
Aöalsirii Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga. 1 tan þess tima er hægt aö ná 1 blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins il þessum sfmum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285. Ijósravndir 81257. 1-augardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná f afgreiöslu blaösins I sfma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvölclsími 81348 Afgreiðsla '81663
Aðalsammnganefnd BSRB
samþykkti samkomulagið
49 greiddu atkvœöi með samkomulaginu við rikið en 2 voru á móti
Aðalsamninganefnd BSRB
samþykkti um miðnætti I gær
samkomulag það sem 8 manna
viðræðunefnd BSRB og fulltrúar
rikisins náðu i síðustu viku. Að
sögn Kristjáns Thorlaciusar for-
manns bandalagsins var sam-
komulagið samþykkt með 49 at-
kvæðum gegn 2. Kristján sagðist
búast við þvi að samkomulagið
yrði undirritað í dag, og stjúrn
BSRB myndi væntanlega jafn-
framt taka i dag ákvörðun um
það hvenær samkomulagið yrði
borið undir allsherjaratvkæða-
greiðslu meðal féiagsmanna
BSRB, en samkomulagið er ekki
endanlega afgreitt fyrr en að lok-
inni siikri atkvæðagreiðslu.
Sáttanefnd hóf fund með við-
ræðunefnd BSRB og samninga-
nefnd rikisins kl. 13.00 i gær um
þau atriði sem ólokið var aö
ganga frá i viðræðum þessara að-
ila. Var hér fyrst og fremst um að
ræöa atriði er snertu atvinnuleys-
istryggingar starfsmanna við
sjálfseignarstofnanir og hálf-op-
inberar stofnanir. Sá fundur stóð i
allan gærdag og þvi gat fundur
aðalsamninganefndar BSRB ekki
hafist fyrr en eftir kvöldmat, en
fyrirhugað hafði verið að sá fund-
ur hæfist kl. 13.30 i gær. Varð þvi
aöalsamninganefndin að biða I
allan gærdag meðan verið var að
ganga frá lokaþáttum samkomu-
lagsins.
—þm
Aðalsamninganefnd BSRB samþykkti á fundi sinum I gær aðgangaað
þvi samkomulagi er náðst hafði við rfkið um nýjan kjarasamning.
Myndin var tekin nokkru áður en fundur samninganefndar BSRB hófst.
Gosið og hraunstraumarnir voru tilkomumiklir i myrkrinu fyrstu nóttina, en litadýrðin skilar sérekki f
svarthvitu. Nú veröa ferðamenn aö láta sér nægja að skoða gosið i návfgi meðan bjart er þvf umferö
gangandi fólks um eldstöövarnar hefur verið bönnuð eftir aö myrkt er orðið. Ljósm. AI
Hekluhraunin torfarin i myrkri:
Tugir manna í vandræöum
Öll umferð gangandi manna bönnuð eftir að dimma tekur
Almannavarnaráð og
almannavarnanefnd
Rangársýslu hafa bann-
aðalla umferð gangandi
fólks næst eldstöðvun-
um i Heklu og nýja
hrauninu eftir að myrk-
ur er skollið á. Var þessi
ákvörðun tekin i gær-
65 á reknet
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að reknetaveiðar megi
hefjast 25. ágúst n.k. A komandi
vertiö hafa 62 bátar fengið heim-
ild til veiðanna og er það svipaöur
fjöidi og á s.l. ári. Heildarkvóti
reknetabátanna er 18 þúsund lest-
ir af sild.
morgun eftir reynslu
næturinnar þegar tugir
manna ráfuðu hálfvilltir
um hraunin og fundu
ekki bilana aftur. Engar
takmarkanir hafa verið
settar á bílaumferð næst
gosstöðvunum og
hraunjöðrunum.
Þeim Guðjóni Petersen, fram-
kvæmdastjóra almannavarna-
ráðs og Böðvari Bragasynisýslu-
manni Rangæinga bar saman um
að mesta mildi væri að ekki hefði
hlotist slys af aðfararnótt þriðju-
dagsins. Fólk var villt og hrakið i
hrauninu, misjafnlega vel klætt
og jafnvel með smábörn. Böðvar
sagði að fólki hefði t.d. verið
hleypt úr langferðabilum inni við
Selsund og ætlaði það að ganga að
hraunkantinum sem er þar um 5
km frá bænum. Þar er yfir gam-
alt og grýtt hraun að fara og kom-
ust menn fljótlega að þvl að það
var torsótt leið I dimmunni. Villt-
ust margir af leið, náðu ekki nýja
hraunkantinum eða fundu ekki
leiðina að bilunum aftur. Þarna
er stystur gangur að nýja hraun-
inu og hefur ágangurinn heima á
Selsundi verið svo mikill að nauð-
synlegt þótti að hafa lögreglu-
menn á staðnum. Gátu þeir með
kastljósum beint fólki aftur rétta
leiö til bilanna og var ekki kunn-
ugt um nein óhöpp.
Rétt er að taka fram að hóp-
ferðastjórar hafa verið áminntir
um þá ábyrgð sem þeir bera á
hópum sem þeir stjórna og eiga
þeir að gæta vel að UtbUnaði fólks
svo og þvi að allir séu komnir aft-
ur til bilanna fyrir myrkur. NU
eru um 10 lögreglumenn við eld-
stöðvarnar flestir frá Hvolsvelli
en einnig frá Reykjavik. —AI
Afréttir Skagafjarðar
Fé rennur til byggða
„Það er ljóst að ösku-
fallið hefur verið lang-
samlega mest norðan-
lands á afréttum Skag-
firðinga, og það eru
nokkuð margir bæir
inná aðalöskusvæðinuV
sagði Egill Bjarnason,
ráðunautur á Sauðár-
króki i samtali við Þjóð-
viljann i gær.
„Skepnur eru þegar farnar aö
renna niður afréttina og það var
réttað i gær og veröur sjálfsagt i
dag, en ennþá er ekki farið að
smala á afréttum, þar sem viö er-
um að biöa eftir niöurstöðum
efnagreiningar á öskusýnum sem
tekin voru á afréttinni i fyrra-
dag.”
Egill sagöi að þaö væri svart
yfir að lita á afréttunum og vel
sporrækt og virtist askan vera
nokkuð jafnfallin. öskuþykktin
mældist 0,5 cm á bil sem stóö á
hlaðinu I Bjarnastaðahliö.
Afréttarlönd Skagfirðinga eru
Eyvindarstaðaheiöi, Silfrastaöa-
afrétt og Hofsárrétt og sagöi Egill
að öskulagið lægi niöur fyrir Goð-
Sveinn Runólfsson landgrœðslustjóri:
Gróðurinn nær sér
á nokkrum árum
Skemmdirnar þó varanlegar á veikari gróðri
á ofanverðum Landmannaafrétti
,,Ég geri mér von um
að gróður nái sér uppúr
vikurlaginu sem liggur
neðantil á afréttunum, á
3-4 árum, en það er ljóst
að hér er um verulegar
gróðurskemmdir að
ræða, sérstaklega á
ofanverðum afréttum
þar sem gróður er veik-
ari” sagði Sveinn Run-
ólfsson landgræðslu-
stjóri i samtali við Þjóð-
viljann, siðdegis i gær.
Sveinn var þá nýkominn að
Gunnarsholtiúrkönnunarferð um
Landmannaafrétt á bifreið, en
ekki gaf til flugs I gær vegna lé-
legs skyggnis.
„Mesta vikurfallið er f framan-
verðum Landmannaafrétti. Þar
sem við mældum var vikulagið
milli 5-10 cm, eða þó nokkru
minna en áður hefur verið nefnt,
en það geta sjálfsagt verið þykk-
ari vikurlög annars staöar en þar
sem við fórum um l dag.”
Sveinn sagði aö á neðanveröum
afréttinum væri mjög sterkur
Réttaö á
Smölun I Holta- og Landmanna-
afrétti gekk vel i gær og sagði
Sigurjón Pálsson, bóndi á Galta-
læk, þar sem réttað var, að hátt á
annað þúsund fjár hefðu náðst tii
byggða þann daginn.
Afrétturinn er stór og tekur
fulla viku að smala hann að sögn
Sigurjóns. 1 gær og i fyrradag var
lögð áhersla á að ná þvi fé sem
var á vikrinum og er nú á þriðja
svartar
dali.i Svartárdal, niður á Kjálka
og þaðan alveg suður i gegn um
öll afréttarlöndin.
„Þaö fé sem þegar var komið
niöur I sveitina var réttað f Silfra-
staða-og Hofsrétt I gær og eins
verður fé réttað i Mælifellsrétt i
dag, en það má segja að mikill
hluti fjár á þessum afréttum sé
þegar farinn af stað niður i byggð.
-lg.
gróður undir vikrinum og hann
mundi ná sér á nokkrum árum, en
varanlegar skemmdir væru á
gróöri ofar á afréttinum.
„Þaö veröur erfitt að ná aftur
upp gróðri á þeim slóðum. Við
verðum aö bföa til næsta vors
með allt landgræðslustarf á þessu
svæði, það verður ekkert hægt að
gera i haust, enda óvist hvenær
þessu gosi lýkur. Það liggur alveg
ljóst fyrir að áfall bænda er mjög
mikiö, þar sem þeir hafa ekkert
afréttarland næstu árin”.
Það kom einnig fram hjá Sveini
að Landgræðslan hefur undan-
farin ár lagt mikla áherslu á upp-
græðslu lands á neðanveröum
Landmannaafrétti, en hann er
mjög i þjóðbraut vegna virkj-
ananna á svæðinu, og hefur fjár-
magn til þeirrar uppgræöslu
komið með tilstyrk Þjóðargjafar-
innar frá 1974 og styrkjum frá
Landsvirkjun og sveitarfélögum
á svæðinu.
„Þetta svæði ætti að ná sér á
nokkrum árum, ef vel verður hlUð
að þvi, og sem betur fer virðist
mér Þjórsárdalurinn hafa, enn
sem komið er, alveg sloppið við
ösku- og vikurfall, en Land-
græðslan hefur unniö á þvi svæði
mikið starf undanfarin ár” sagði
Sveinn.
-lg-
Galtalæk
smalaður næstu daga
þUsund fjár komið til byggða.
Réttað var á Galtalæk og fluttu
bændur fé i heimahaga og á tUn
siðdegis I gær. Féö leit betur Ut en
búist hafði verið við en var halt
eftir gönguna. Fingerö aska hefur
nú þakið vikurslétturnar og þurfti
ekki að aka nema litlum hluta
fjárins til byggða.
Næstu daga verður smölun
haldið áfram og farið innar á af-
réttinn, þar sem öskufall var
minna en þar er nU mikil hætta
talin á flúoreitrun. Sigurjón sagði
að sér væri kunnugt um að ein
kind á Asahreppi hefði fengið
doöa. HUn lifnaði við eftir að
henni var gefin kalksprauta en
mikilvægt er að fljótt náist til
kindanna ef lækning á að takast
vel.
Að lokum var Sigurjón spurður
að þvi hvort aska hefði fallið i
byggð þar eystra i gær. Hann
sagði ekki orð á þvi gerandi en
aöeins hefði þó orðið vart við
ösku, enda vindur austanstæður.
„Það sést ekkert til Heklu nUna,
en hún er eitthvað að pUa þetta
áfram”, sagði hann. Hey er viða
flatt eða i görðum þar eystra og
getur öskufall i byggð þvi sett
stórt strik i reikninginn. —AX
Innri hluti afréttarins