Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 28. ágdst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Bólivía:
Kókaín, arðvænlegasta útflutningsvaran
Hinir hægrisinnuðu herfor-
ingjar, sem rændu völdum i
Bóliviu 17. júli s.l. til þess aft
hindra að vinstrimenn, sem ný-
búnir voru að vinna kosningar
þarlendis, tækju við stjórnar-
taumum, hafa mætt áberandi
mikium kulda_ á alþjóðavett-
vangi. Sérstaklega vekur at-
hygli hve mótsnúin Bandarikin
eru herforingjadólgum þessum,
sem vissulega eru glæpamenn,
en þó varla verri en margir sllk-
ir, sem iöngum hafa verið eftir-
iætisbandamenn Bandarikj-
anna i Rómönsku-Ameríku.
Ein ástæðan til þessa er að
Carter-stjórnin hefur, þótt i tak-
mörkuðum mæli, sé, vikið frá
þeirri reglu bandariskra vald-
hafa að velja sér framar öðrum
fyrir bandamenn þá, sem
lengst eru til hægri, á þeim for-
sendum að þeir séu allraólikleg-
astir til þess að beita sér gegn
hagsmunum Bandarikjanna og
'bandariskra auðhringa. Hjá
Carter-stjórninni hefur að
minnsta kosti einhver áhrif sú
skoðun, að það komi of miklu
óorði á Bandarikin að hlaða
stöðugt undir slika aðila auk
þess sem aðrir og ivið geðslegri
valdhafar geti reynst Banda-
rikjunum ekkert siður þjálir i
meðförum, sé klókindalega að
þeim farið. En önnur veigamikii
ástæða er fyrir andúð Banda-
rikjastjórnar á bólivisku valda-
ránsklikunni. Hún er sú að Bóli-
via er stórframleiðandi á
kókaini, sem selt er ólöglega er-
lendis, fyrst og fremst i Banda-
rikjunum. Og hershöfðingjarn-
ir,sem rændu völdunum 17. júli,
eru stórir hluthafar i fram-
leiðslunni og sölunni á þessu
hættulega eiturlyfi.
Kókainsalar fjármögn-
uðu valdaránið
Bandariskur öldungadeildar-
þingmaður að nafni Deconcini,
sem hefur verið framarlega i
baráttu gegn sölu og neyslu á
eiturlyfjum i vesturhluta
Bandarikjanna, hefur það frá
„mjög ábyggilegum” aðilum —
að likindum bandariska utan-
rikisráðuneytinu og lögreglu-
stofnun þeirri, er hefur með eit-
urlyfjamál að gera — að eitur-
lyf jasalar I borginni Santa Cruz
i austurhluta Bóliviu hafi átt
þátt i að f jármagna valdaránið i
júli. Ennfremur hefur þingmað-
urinn eftir sömu heimildum, að
eiturlyfjasalarnir hafi, slðan
valdaránið var framið, veitt
herforingjastjórninni mikilvæg-
an fjárhagsstuöning. Ofan á það
hafi alræmdur eiturlyfjasali,
José Abraham Baptista, per-
sónulega stungið miklum fjár-
fúlgum að Garcia Meza hers-
Garcia Meza .
höfðingja, forsprakka valda-
ræningjanna, og yfirmanni
setuliðsins i Santa Cruz, sem er
næststærsta borg landsins. t
staðinn hafa m.a. tveir ættingj-
ar Baptista þessa fengið háar
stöður i tollgæsluliði Bóliviu. Þá
kvað núverandi innanrikisráð-
herra landsins, Luis Arce Gom-
ez ofursti, sem hefur yfir lög-
reglu og tollgæslu að segja,
lengi hafa haft náin og góð sam-
bönd við eiturlyfjasalana.
Einn i stjórn herforingjanna, of-
ursti að nafni Ariel Coca, var
flæktur i kókainsmyglmál, sem
uppvist varð i Panama 1979.
Arðvænlegra en tinið
Embættismaður nálægt
Bandarikjastjórn komst lika
svo að orði fyrir skömmu, að
bandariskar lögreglustofnanir
þekktu til manna i stjórn Garcia
Meza sem mikilvirkra athafna-
manna I eiturlyfjasmyglinu.
„Það nýja i málinu er að nú eru
þeir komnir til valda,” sagði
embættismaðurinn.
Undarlegt er það ekki, að i
Bóliviu skuli vera svo náið sam-
Carter og Edward Kennedy takast i hendur, en innileikinn
handtakið er ekki sagður mikill.
á
bakvið
Carter á mikid
undir Kennedy
Repúblikaninn John Anderson,
sem býður sig fram til embættis
forseta Bandarlkjanna sem óháð-
ur. hefur valið sér sem varafor-
setaefni Patrick Lucey, fyrrver-
andi ríkisstjóra i Wisconsin. Cart-
er forseti gerði Lucey þennan aö
ambassador Bandarikjanna I
Mexikó, en hann snerist engu aö
siður á móti forsetanum i for-
kosningunum og studdi Edward
Kennedy.
Anderson hefur frá upphafi
kosningabaráttu sinnar lagt
áherslu á að höföa til frjálslynd-
ari manna i báðum flokkum, og
útnefning varaforsetaefnisins
Framhald á bls. 13
band milli eiturlyfjasmyglara
og valdhafa. Það er nefnilega
svo, að útflutningurinn á eitur-
lyfjum, sem unnin eru úr kóka-
laufi, færir meira af erlendum
gjaldeyri inn I landið en nokkur
önnur útflutningsvara þess.
Tinið, sem lengi var mikilvæg-
asta útflutningsvaran, er hvað
útflutningsverðmæti snertir
komið niður fyrir eiturlyfin.
Ein ástæðan til þessa upp-
gangs i eiturlyfjaviðskiptunum
er að siðustu tiu árin eða svo
hefur framleiðsla á kókaindeigi
úr kókalaufum stóraukist i Bóli-
viu. Og helsta iðnaðarborgin á
þessum vettvangi er Santa
Cruz, sem einnig hefur jafnan
verið talin háborg öfgafyllstu
hægri aflanna i landinu. Sú borg
varð miðstöð siðasta valdaráns-
ins — eins og raunar nokkurra
annarra fyrr i óróasamri sögu
landsins.
Einkum á Bandarikja-
markað
Frá Santa Cruz er kókaindeg-
ið sent viða um lönd, einkum þó
til Bandarikjanna, þar sem
markaöurinn er stærstur og
arðvænlegastur. Þangað kemur
það oft gegnum milliliði i
Kólombiu — það land hefur
einnig komið við sögu fram-
leiðslu og smygls á eiturlyfjum
— og á eyjunum við Karibahaf.
Einn starfsmanna bandarisku
eiturlyfjavarnarstofnunarinnar
álitur, að Bólivía framleiði um
27.000 smálestir kókalaufa á ári
umfram það, sem landsmenn
neyti löglega (kókalaufin hafa
frá aldaöðli verið helsta nautna-
lyf fátækra Indiána i Andes-
löndum). Or þvi magni má
vinna um 100 smálestir af
hreinu kókaini, sem má fá fyrir
um einn miljarð dollara á ólög-
legum, erlendum markaði.
Trúlegt er að ein af ástæðun-
um til valdaránsins hafi verið
að hershöfðingjar og aðrir stór-
laxar i eiturlyfjabissnissnum
hafi óttast, að vinstrimenn
myndu, ef þeir kæmust til
valda, þrengja eitthvað að þess-
ari auðlind þeirra.
Aðstoö hætt
Bandarikjastjórn er að loka
eiturlyfjavarnarskrifstofu sinni
i Bóliviu, á þeim forsendum, að
vonlaust sé að koma nokkru til
leiðar til að hindra eiturlyfja-
smyglið út úr landi undir núver-
andi kringumstæðum. Eðlilegt
er að alvarlegum augum sé litið
á þetta mál. Bölið af völdum eit-
urlyfja er nógu mikið, þótt rikis-
stjórnir gerist ekki sjálfar eitur-
lyfjasmyglarar.
Séð i þessu samhengi er skilj-
anlegt að viðbrögð Bandarikj-
anna og annarra vesturlanda-
rikja gagnvart bólivisku herfor-
ingjastjórninni séu kuldaleg,
þótt ekki kæmi annað til.
Bandarikin hafa stórfækkað i
sendiráði sinu I La Paz og hætt
allri hernaðarlegri og efnahags-
legri hjálp við Bóliviu. Bretland
hefur hætt við að veita hinu
rikisrekna bóliviska námufyrir-
tæki Comibol 20 miljón sterl-
ingspunda aðstoö, og var þar
um að ræða umfangsmestu að-
stoðaráætlun Breta i
Rómönsku-Ameriku. Belgia
hefur stöðvað lán til Bóliviu og
Efnahagsbandalag Evrópu hef-
ur slitiö viðræðum um samstarf
i efnahagsmálum við Suður-
Amerikuland þetta.
dþ.
Tjöld og Viðlegubúnaður
Hvemig vœri að gera klárt
fyrir nœsta sumar?
Kaupið á hagstœðu verði það
ykkur vantaði í síðustu útilegu!
TÓmSTUnDfiHLISID HF
Lougauegi 164-Roykiouib $=21901