Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 28. ágúst 1980 Grunnskólar Hafnarfjarðar Skólastarf hefst mánudaginn 1. september kl. 14.00 með kennarafundum. 2. og 3. september fer fram skipulagning námsefnis og skólastarfs. 5. september verður fundur kennara með námsstjórum. Fundurinn verður i Viði- staðaskóla. Nemendur mætið sem hér segir, 4. sept- ember 8. bekkur kl. 9.00. 7. bekkur kl. 10.00. 5. og 6. bekkur kl. 11.00. 3. og 4 bekkurkl. 13.00.1. og 2. bekkur kl. 14.00. 8. september 9. bekkur kl. 13.00. 15. sept- ember 6 ára börn kl. 15.00. Áriðandi er að nýir nemendur innriti sig i skólunum frá og með 27. ágúst kl. 9—12. Einnig skal tilkynntur flutningur skóla i Hafnarfirði. Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar. Nýinnfluttur SAAB station Fjölskyldufólk - Ferðalangar! Til sölu SAAB árgerð 1972. Litur mjög vel út. Nýupptekinn girkassi og kúppling. Skoðaður 1980. Toppbill til sölu af sérstök- um ástæðum. Til sýnis að Siðumúla 6 á daginn en Furugrund 76, Kópavogi á kvöldin. Uppl. á afgreiðslu Þjóðviljans, simi 81333. Fóstrur athugið! Fóstrur óskast á dagheimilið Sunnuborg, 15. september og 1. október. Nánari upplýsingar hjá forstöðumanni i sima 36385. Bréf frá Pétri Kæri Kjartan. Þakka þér fyrir spjallið I gær- morgun. Ég saknaöi þess aö sjá ekki niöurstööu hagfræöings BSRB er ég haföi fært ykkur til birtingar á mánudag, nægilega timanlega til þess aö þaö kæmi i þriðjudags- blaöi. Upp rann miövikudagur- inn, sólfagur og hlýr, en þótt allar hlööur væru fullar á Útirauðs- mýri, þá áraöi nú ekki vel og fjár- málaráöherrann og Jón á Mýri löngu búnir aö draga sparlökin fyrir svigrúmiö og áttu ekki annað en flatsæng handa vinnu- hjúum plús skáldskap Rauös- mýrarmaddömunnar, sem nú rit- aöi forystugreinar i Þjóöviljann og lofsöng frelsiö i heiöinni i brúö- kaupi Bjarts og Rósu. Þaö getur vel veriö aö þiö Þjóö- viljamenn teljiö ykkur trú um að Bjartur eigi barniö sem Kristján hefir gengist viö f.h. BSRB. Ýms- ir telja þó aö Ingi litli (Ingólfur Arnarson Jónsson) sé hinn rétti faöir og skirnarvottar séu Garöa- strætismenn Vinnuveitendasam- bandsins. Vist er aö þeir fylgjast vel meö þvi hvort Kristjáni tekst aö færa rikisstjórninni hálfa miljón i tannfé frá hverjum launamanni i neöri flokkum. Annars finnst mér aö réttast væri aö leggja niöur öll verkalýössamtök, ef marka má skrif Þjóöviljans um afkomu at- vinnuvega. Fer ekki best á þvi aö ganga i Mæörastyrksnefnd, Vetrarhjálpina, Jólapott Hjálp- ræöishersins, Matgjafir Samverj- ans o.s.frv. ef svo fer fram sem horfir? Er sósialistum þaö nokkur nýjung þótt kreppa sæki aö kapí- talisku þjóöfélagi? Er þaö ekki einmitt staöfesting á þvi er viö höfum haldiö fram, þeir sem enn játa þær kenningar, og telja hvern dag flytja staöfestingu þeirra? Þarf okkur aö koma þaö á óvart þótt auöstéttin reyni aö leysa vanda sinn með þvl aö velta byröunum yfir á heröar vinnandi alþýöu? Þaö hryggir mig að sjá dag hvern hugmyndaflótta þeirra er áöur hlýddu kalli sósialisma og stéttabaráttu. Ef ráðherrasósial- ismi og stéttasamvinnudekur á ekki eftir aö kalla yfir okkur fasisma þá veit ég ekki hvert stefnir. pétur Pétursson þulur. Og lítið andsvar Kæri Pétur. Viö þökkum bréf þitt birt hér aö ofan. Ekki er meiningin að etja viö þig kappi á akri bókmennt- anna. Þar leika þér á tungu hinar margvislegustu tilvitnanir svo unun er á aö hlýöa, og ekki dignar þinn glaöi bardagahugur. Liklega gæti Þorleifur okkar Repp einna helst glaðst yfir þér nú um stnndir mætti hann lita yfir lærisveinahópinn. En hvernig var þab i sjálfstæöisbaráttunni i gamla daga, — var ekki hvort tveggja nauösynlegt, kappiö sem Repp átti manna mest af og sú forsjá sem forseti lagði til? Aöeins ein athugasemd. Þú segist hafa fært okkur hér á Þjóö- viljanum niöurstööur hagfræö- ings BSRB i fyrradag en viö ekki birt þær. Má ég benda þér á að þessi sami hagfræöingur segir i Dagblaöinu i gær að þær upplýs- ingar sem þú hefur afhent dag- blööunum og sagt vera frá honum séu „vægastsagt villandi og hrein rangfærsla”. Ætli þarna sé ekki komin skýr- ingin á þvi hvers vegna Þjóðvilj- inn sá ekki ástæðu til aö flytja talnaþulu þina sem upplýsingar frá hagfræöingi BSRB. Ég vona að þú eigir enn heima i Vestur- bænum og eigir þess þar með kost aö leggja leiö þina um gamla kirkjugaröinn þegar þú skálmar niður á Skúlagötu árla morguns meöan hinir værukæru sofa. Sé svo þá bið ég að heilsa gamla Repp. Meöbróöurlegri kveðju Kjartan ólafsson Yfirlýsing frá stjórn Skáksambands íslands Stjórn Skáksambands tslands hefur þegar samþykkt sam- hljóöa, aö dr. Ingimar Jónsson, forseti S.l. og Þorsteinn Þor- steinsson, varaforseti S.t. verði fulltrúar tslands i Norræna Skák- sambandinu. Þetta er gert i sam- ræmi viö lög Norræna Skáksam- bandsins, en þar segir I 1. lið 3. gr.: „Stjórn Norræna Skáksam- bandsins fer meö málefni sam- bandsins, og skipa stjórnina tveir fulltrúar frá hverju aöildarland- anna. Skáksambönd þeirra til- nefna fulltrúana.” t 3. liö 3. gr. segir svo: „Stjórnarformaöur (sæ. ordför- ande) er annar fulltrúa þess lands, er næst heldur Norður- landamót i skák. Viökomandi aö- i ldarskáksamband velur stjórnarformanninn. (Ieturbr. S.I.) Tilfærsla á embætti stjórnarformanns á sér staö aö loknu Noröurlandaskákmótinu, þegar fyrir liggur ákvörðun um, hvaöa skáksamband heldur næsta mót.” Þaö er föst venja hjá Skáksambandi tslands aö til- kynna skáksamböndum hinna Noröurlandanna fljótlega eftir hvern aöalfund S.I., hverjir séu fulltrúar S.t. i Norræna Skáksam- bandinu, og hefur það nú þegar veriö gert, eins og áöur sagöi. Dr. Ingimar Jónsson og Þor- steinn Þorsteinsson eru þvi einu fulltrúar tslands I Norræna Skák- sambandinu. Jafnframt þessu hefur stjórn Skáksambands tslands tilkynnt, að hún hafi valiö dr. Ingimar Jónsson stjórnarformann Norræna Skáksambandsins, þar sem tsland mun halda næsta Norðurlandaskákmót, og er þetta gert i samræmi viö 3. liö, 3. gr. laganna. Þessu skal aö lokum getiö, aö oröið forseti (president) er hvergi notaö i lögum Norræna Skáksam- bandsins heldur stjórnarfor- maður (sæ. ordförande), og ekki er um neinar forsetakosningar aö ræða hjá Norræna Skáksamband- inu, eins og fólki hefur veriö talin trú um I fjölmiðlum. Stjórn Skáksambands tslands. I Blaðbera vantar í I eftirtalin hverfi: Austurborg: ■ Borgartún-Skúlagata (1. sept) Njörvasund-Sigluvog (1. sept.) Barðavog-Efri Langholtsveg (1. sept.) Bergstaðastræti-Skólav.stigur (1. sept.-l. okt.) Miðborg: Svæðið umhverfis Austurvöll. Sérstök kjör i boði fyrir góðan starfskraft! B Laust 1. september n.k. Ath. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar! Y etrarálag 1 Þjóöviljinn mun i vetur greida 10% vetrarálag á 1 föst laun bladbera fyrir mánuðina október—mars. 1 Er þetta hugsað sem ofurlitil umbun til þeirra, 1 sem bera blaðið út reglulega og timanlega i I misjöfnum veðrum. I Þeir sem hafa byrjað blaðburð 1. september eða 1 fyrr fá álag þetta greitt á októberlaun. I uoanuiNN \ Auðvitað fer Þjóðviljinn að landslögum og greiðir 8.33% orlof á ÖLL LAUN blaðbera

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.