Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 28. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 Adalfundir Norrænu félaganna í Húnaþingi Laugardaginn 30. ágúst halda Norrænu félögin i Húnaþingi aöalfundi sina. Kl. 14. hefst fundur Norræna félags Vestur—Húnvetninga i Félags- heimilinu á Hvammstanga, en Aðalfundur Norræna félags Austur—Húnvetninga veröur á Blönduósi kl. 17. Formaöur Norræna félagsins á Islandi Hjálmar Ölafsson mætir á fundunum og talar um vinabæja- samskipti og sýnir litskyggnur frá Grænlandi. Þá verður opnuð sýning á teikn- ingum 10 og 11 ára barna á Blönduósi i tengslum viö fundinn þar. Teikningarnar eru geröar af börnum i vinabæjakeðjunni, sem Blönduós er i, en þeir eru Karlstad i Sviþjóð, Horsens i Danmörku, Vokia i Finnlandi og Moss i Noregi. Hefur þessi sýning þegar veriö haldin i hinum vina- bæjunum viö mikla aðsókn. Um 25 þús. manns sóttu sýninguna i Moss i Noregi. Hún verður opin yfir helgina á Blönduósi. Vestfirsk náttúru- verndar- samtök þinga Um næstu helgi munu Vestfirsk náttúruverndarsamtök halda aöalfund sinn i Héraösskólanum i Reykjanesi og er hann opinn öll- um áhugamönnum. Fundurinn hefst laugardaginn 30. ágúst kl. 14 og auk venjulegra aöalfundarstarfa flytur Páll Her- steinsson dýrafræöingur erindi um islenska refinn og sýnir jafn- framt myndir. Þá mun Yngvi Þorsteinsson magister flytja er- indi um gróöur og landgæði á fs- landi og sýna litskyggnur. A sunnudag kl. 10 veröur efnt til feröar um innanvert fsafjaröar- djúp og gengiö um Kaldalón. Kunnugir heimamenn veröa til leiösagnar. Gisting og matur i héraösskól- anum veröur á boöstólnum viö sanngjörnu veröi og þar er úti- sundlaug til afnota og þess vegna tilvaliö aö taka alla fjölskylduna meö. Rútuferö veröur kl. 18 frá Isafiröi og hvetja Vestfirsk náttúruverndarsamtök alla félagsmenn og aöra áhugamenn aö fjölmenna. Nánari upplýs- ingar veittar i simum 3580, 3236 og 3398 á Isafiröi. Carter Framhald af bls. 5 bendir til þess aö hann muni ekki sist leitast viö aö ná fylgismönn- um Kennedys meöal demókrata á sitt band.Hér er að sjálfsögöu um hættulega atlögu að ræöa fyrir Carter. Hann er nú meö á prjónunum áætlun um „efnahagslega endur- reisn” sem hann segir aö veita muni „miljónum og aftur miljón- um manna atvinnu.” A flokks- þingi demókrata i New York sagöi Kennedy, aö þvi aöéins myndi hann veita Carter teljandi stuöning, aö efnahagsáætlun for- setans lofaöi góöu. Kreppa og japönsk samkeppni heröa nú tals- vert aö efnahagsllfi Bandarikj- anna og segir þaö til sin i vaxandi atvinnuleysi, ekki sist i bilaiönaö- inum. Þaö getur þvi munaö miklu fyrir Carter, ef tillögur hans i efnahagsmálum reynast álitlegar i augum almennings. Afstaöa Kennedys sjálfs getur og ráöiö miklu um þaö, hvort stuönings- menn hans halla sér aö Carter eöa Anderson. En þaö gæti lika oröiö viösjár- vert fyrir Carter aö sýna á sér mjög frjálslyndislegt og félags- hyggjukennt andlit. Þaö bæti orö- iö til þess aö fæla tiltölulega i- haldssama miðjukjósendur frá honum yfir til Reagans. dþ. Erlendar bækur Framhald af bls. 9. skáldskap hans 1948 og eftir það var hann kunnur og dáður sem meiriháttar lyriker vitt um Evrópu. Fragmente 1951, Destillationen 1953 og Apreslude 1955. Auk kvæöa setti hann sam- an leikrit, einkum eftir fyrri styrjöldina og skáldsöguna Der Ptolemaer eftir þá siöari, en þar er eftirstriös timabiliö bak- grunnurinn. Probleme der Lyrik er snilld- arleg ritgerö, sem hann setti saman 1951 og haföi mikil áhrif bæði i Þýskalandi og Frakk- landi. T.S. Eliot ræöir kenning- ar hans i ritgerö sinni The Three Voices of Poetry, sem kom út 1953. Benn varö aö þola heipt og hatur þeirra aöila, sem bárust á banaspjótum i siðari heims- styrjöldinni, hann var ekki öfundsveröur af þeirri stööu sem hann var i eftir siðari heimsstyrjöld, hin og önnur menningarseiöi, sem sum hver höföu slysast til aö sýnast hlut- laus á striösárunum, þóttust skyldug aö hrakyröa skáldiö, þeirrar iöju sér nú litinn staö, en ljóö Benns lifa. TOMMI OG BOMMI Er sjónvarpió \ bilaó? o u Skjárinn Sjón'/arpsverbfeSi Bergsía5astr®ti 38 simi 2-19-4C FOLDA í Hvað hefur uxahalinn gert af sér. ( Ekkert. Hvaða verknað hefur uxahalinn framið. Engan. Mamma, hendur þínar eru flekkaðar blóði saklauss uxahala.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.