Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Fimmtudagur 28. ágúst 1980 1 Aðalsíp.i Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga. 1 tan þess tima er hægt að ná f blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum slmum : Ritstjórn 81382. 81482 og 81527. umbrot 81285. Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná f afgreiöslu blaðsins isfma 81663. Blaðaprent hefur sfma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öii kvöld. Aðalsími 81333 kvöldsími 81348 Afgreiðsla 81663 MENGUN Mengun og ekki mengun. Þessi mynd sem tekin var yfir athafnasvæOi Alverksmi&junnar f Straumsvik 1 bliOviðrinu f gær sýnir giögglega hversu andrúmsioftið i nágrenni verksmiöjunnar er mettaö flúorgufum og öðrum óþverra, enda sést varla stingandi strá í Hafnarfjarðar- hrauninu norðan og austan megin við verksmiðjusvæðið. Mynd — gei. Franska sjónvarpiö gerir mynd um ísland og forsetann Á bekk með Veil, Gandhi og Carter Mikið af pósti erlendis frá til forsetaembœttisins Vigdis Finnbogadóttir, Forseti islands Franska sjónvarpið — Antenne 2 — hefur síð- ustu tvær vikur unnið að gerð 45 minútna langrar kvikmyndar um island og forsetann, og verður hún á dagskrá sjón- varpsins um jólaleytið. Kjör Vigdisar Finn- bogadóttur sem forseta íslands og framganga hennar i frönskum fjöl- miðlum fyrir og eftir kjörið vakti mikla athygli i Frakklandi, og var það kveikjan að gerð þessarar íslands- myndar. Stjórnandi sjónvarpsmyndar- innar er Anne Sabouret, kunnur dagskrárgerðarmaður i Frakk- landi, en hún hefur einkum getið sér orð fyrir myndir sem sýna veröldina I kringum þekktustu konur heims. Hún hefur m.a. gerl myndir um Indhiru Gandhi Simone Veil, fyrrum ráðherra og nú oddvita Frakka i Evrópuþing inu, og Rosalynne Carter, for- setafrú i Bandarikjunum, svo nokkrar séu nefndar. Forseti Is- lands er nú komin á bekk meö þessum konum að mati franska sjónvarpsins. Hópurinn frá franska sjónvarp- inu hefur feröast um allt land, fylgst með embættisstörfum for- setans og daglegri önn. M.a. fór hópurinn i réttirnar meö forset- anum og að Geldingaholti i Gnúp- verjahreppi. 1 kvikmyndinni skiptast á svipmyndir úr þessum ferðum ogviðtöl viö forsetann. Er ekki að efa að þessi kvikmynd verður hin mesta landkynning i Frakklandi. Miklar annir hafa verið hjá for- seta Islands siðustu vikur að sinna erlendum fjölmiðlum og hefur hún viöa komið fram i sjón- varpi og i beinum útsendingum morgunþátta útvarpsstöðva i Fra''klandi, Bretlandi, Banda- rikjif. um og viðar. Ekki hefur staöið á viðbrögðum áhorfenda og hlustenda, þvi Þjóöviljinn hefur fregnað að forsetinn hafi fengið þrisvar sinnum vigt sina i pósti erlendis frá þann tíma sem hún hefur verið í embætti. — ekh Flugleiðir tilkynna uppsagnirnar ÖLLUM SAGT UPP 1 gærkvöldi barst Þjóðviljanum fréttatiikynning frá Flugleiðum þar sem tilkynnt var aö stjórn félagsins hefði ákveðið að segja upp starfi öllum flugmönnum, flugfreyjum og flugþjónum félagsins frá 1. desember n.k. Segir ennfremur að jafnframt ver'i sem fyrst stefnt að ákvörð- ir um cndurráðningu þessa starfsliðs i samræmi við áætlaöar þarfir félagsins og verði i þvi sambandi leitað til hlutaðeigandi stjórnvalda um aðstoð við sann- giarna lansn bessara mála. Að ósk stjórnar Flugleiða hf. gengu þeir Orn ó. Johnsson stjórnarformaður félagsins og Leifur Magnússon framkvæmda- stjóri i gær á fund þeirra Arn- mundar og Hallgrims Dalberg ráðuneytisstjóra i fjarveru Svavars Gestssonar ráðherra. Arnmundur Bachmann; „Þetta var nánast kynningar- fundur sem stóð mjög stutt. Flug- leiöamenn kynntu fyrir okkur þann vanda sem félagið á við að glima og þær ráðstafanir sem það hyggst gripa til. Fundurinn var haldinn i samræmi við það ákvæði ólafslaga að fyrirtækjum beri að tilkynna félagsmálaráðu- neytinu með fyrirvara um fyrir- hugaðan samdrátt þar sem fjórir eða fleiri starfsmenn missa at- vmnuna. Hjá Flugleiöum og Air Bahama eru nú starfandi samtals 108 is- lenskir flugmenn og segir i fyrr- nefndri fréttatilkynningu að vegna djúpstæðs ágreinings um sameiningu starfsaldurslista FIA og Félags Loftleiöaflugmanna hafi oröið að gripa til þessarar aðferðar við uppsagnimar og verði hið sama að ganga yfir flug- freyjur og flugþjóna. Luxemborgarmenn segja uppsagnir Flugleiða þar ólöglegar „Klár della hjá þeim” segir Sveinn Sæmundsson blaðafiilltrúi Flugleiða ,,Ég kannast ekki við að það hafi veriö staðið ólöglega að upp- sögnum starfsmanna Flugleiða i Luxemborg”, sagði Sveinn Sæ- mundsson blaðafulltrúi félagsins i samtali við Þjóðviljann i gær. Félag afgreiðslu- og skrifstofu- fólks i Luxemborg hefur tilkynnt að uppsagnir 18 starfs- manna Flugleiöa i Luxemborg frá i siðustu viku, séu ólöglegar. A fundi sem stjórn stéttarfélagsins átti með atvinnumálaráðherra Luxemborgar i fyrradag voru lagðar fram niðurstööur rann- sóknar á lögmæti uppsagnanna og kom þá i ljós að þær voru ólög- legar, þar sem samkvæmt gild- andi lögum verður að tilkynna viðkomandi stéttarfélögum fyrir- fram ef segja á upp fleiri en 10 starfsmönnum. Flugléiðir hafi ekki haft neitt samráö viö stéttar- félagið áður en til uppsagnanna kom. „Uppsagnir þessa starfsfólks voru bæði tilkynntar til atvinnu- málaráðuneytisins og viðkom- andi stéttarfélags, svo þetta er bara klár della hjá þeim”, sagði Sveinn Sæmundsson. Aðspurður sagðist hann ekki hafa neinar áhyggjur af þessu máli. „Ég veitaö þetta er della og við höfum vist nægar áhyggjur af öðru i bili”. Yfirmaður Flugleiða i Luxem- borg Einar Okran var i gær boð- aöur á fund atvinnumálaráðherra Lúxemborgar, og sagði Sveinn, að sá fundur væri örugglega ekki vegna þessa uppsagnamáls heldur vildu stjórnvöld i Luxem- borg halda áfram lauslegum við- ræðum við Flugleiðamenn um sameiginlegt flugfélag á Atlants- hafsleiðinni, en þær samninga- viðræöur runnu út i sandinn fyrir skemmstu, og kenna Flugleiða- menn óbiígirni Luxair-manna um. „Það er alveg ljóst aö stjórn- völd I Luxemborg bundu miklar vonir við aö samstarf kæmist á, þetta er stórt atvinnuspursmál fyrir þá ekki slöur en okkur, og þvi er þeim mjög um að reyna að halda einhverjum viöræðum gangandi við okkur”, sagði Sveinn að lokum. —lg. „Höfuðdagur íslenskra flugmála runninn upp” Eftirfarandi fréttatilkynning barst frá stjórn FIA i gærkveldi: „Flugleiðir hafa sagt upp fluglið- um sinum öllum. Uppsagnarbréf- in berast þeim 29. ágúst. Eins- dæmi Islenskrar atvinnusögu er staðreynd. Höfuðdagur Islenskra flugmála er runninn upp. Stjórn- endur Flugleiða færa fyrirtækið skrefi nær hruni sinu. Fréttatil- kynning Flugleiða lýsir best hæfnis- og getuleysi stjórnenda þess hvað varðar stjórnun, ákvarðanatöku, og samskipti við allt sitt starfsfólk. Fyrirtækið er fjárhagslega I rúst. Og stjórnendurnir rúnir trausti starfsfólks sins. Stjórn FIA mótmælir harðlega uppsögn- um meðlima sinna á starfs- aldurslista FI (Flugfélags tslands) og áskilur sér allan rétt til harðra gagnaðgerða til að hnekkja ákvörðun Flugleiða. FIA skorar á öll stéttarfélög sem málið varðar að sina samstöðu i þessu máli. Stjórn FIA”. Staöa dagsskrár- gerðarmanns við LSD Tíu sóttu Eins og kunnugt er sagði Egill Eðvarðsson starfi sinu sem dag- skrárgerðarmaöur við Lista- og skemmtideild sjónvarps lausu fyrir nokkru. Starfið var auglýst og reyndust umsækjendur tiu. Út- varpsráð mun væntanlega fjalla um umsóknirnar i næstu viku. Umsækjendur eru: Edda Andrésdóttir, Björn Emilsson, Geir Rögnvaldsson, Ingveldur Sveinbjörnsdóttir, Kristin Páls- dóttir, Rúnar Gunnarsson, Sig- urður Vilberg Dagbjartsson og Viðar Vikingsson. —ekh. Holocaust á skjáinn Akveðið hefur verið að sjón- varpið taki bandarisku kvik- myndaseriuna Holocaust til sýn- inga 3., 5., 8. og 10. september næstkomandi. Fyrsti þáttur verður á dagskrá næstkomandi miðvikudag. Holocaust hefur hvarvetna vakiödeilurog umtal en þættirnir fjalla um nasistatimann i Þýska- landi. Þegar Holocaust var sýnt i V-Þýskalandi þótti ekki annað fært en 2 tima umræöuþættir fylgdu i kjölfar hvers sýningar- kvölds á seriunni. Vart var um annað skrifað i v-þýsk blöð á þeim tima. 1 öðrum löndum hefur myndin einnig hrært mjög upp I hugum manna og umræður spunnist um trúverðugheit Holo- caust og nasistatimann sjálfan. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.