Þjóðviljinn - 28.08.1980, Síða 7

Þjóðviljinn - 28.08.1980, Síða 7
Fimmtudagur 28. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 EUsabet Ingvarsdóttir Ljósm. Eik. Rifflar fyrir refaveiöi Rætt vid Elísabet Ingvarsdóttur í sýningardeild Hummels umboðsins Blm hittu að máli Elisabetu Ingvars- dóttur. Hún var gestum til leiðsagnar í sýn- ingardeild heildversl- unar Ólafs H. Jóns- sonar. Hann starfrækir Hummelbúðina i Ár- múla 38. Hummel er nafn á velþekktum þýskum sportvörum og er nýlega hafinn inn- flutningur á þeim til ís- lands. 1 sýningardeildinni voru vörur af ýmsum gerðum, s.s. skiðavör- ur, frá Kneissl, Remington byss- ur og skotfæri, Guylem leðurvör- ur fyrir veiðimenn, að sjálfsögðu Hummel sportvörur o.fl. Allar vörurnar voru verðmerktar og sýningardeildin til fyrirmyndar hvað útlit snerti. Elisabet sem nemur innanhúss- arkitektúr i London sagði Hummeldeildina frekar kynningarsýningu en sölu og þær væru tvær sem skiptust á að veita sýningargestum upplýsingar. Mikið væri um spurningar og margir hefðu auðsjáanlega mik- inn áhuga á innflutningsvörum Ólafs H. Jónssonar. Vörumerkin væru svo sem ekki óþekkt með öllu og benti Elisabet á Reming- tonrifflana sem er eitt þekktasta vörumerki skotvopna i heimi. Elisabet greip tvihleypu, handlék af leikni, sýndi blm. hvernig átti að hlaða og kvað refaveiðar sina eftirlætisiþrótt. Blm kvöddu kurt- eislega. —gb. socavec m Gunnar og Ragnheiöur ásamt börnum Ljósm. Eik TívoUið setur svip á bæinn Blm. komu við á skrifstofú Bjarna Ólafssonar og hittu hann að máli. Bjarni var hlaöinn verk- efnum, siminn hringdi og fólk æddi út og inn. Bjarni tók öllu þessu umstangi með stökustu ró en sagðist þó varla hafa tima til að skoða sýninguna sjálfur vegna anna. Það ætti eftir að ganga endanlega frá uppgjöri vegna undirbúningsvinnu og alltaf bætt- ust ný verkefni við. Bjarni sagði að aðsókn hefði verið betri en á fyrri sýningum, og hefðu rúmleea 20000 manns séð sýninguna. Aðsóknin væri mest siðdegis en minnkaði eftir þvi sem liði á kvöldið. Bjarni sagði að það væri stór þáttur i tilgangi sýningarinnar að bæta bæjarbraginn, veita borgar- búum tilbreytingu. Tivoliið setti nú heldur en ekki svip á bæinn og nyti vinsælda. Blm. benti B jarna á aö mörgum þætti heimsókn á sýninguna dýr. bæði aðgangseyrir og Tivolíið. Bjarni svaraði þvi að sýningin væri sniðin eftir erlendum fyrir- myndum, aðallega skandinavisk- um. A neytendasýningum erlendis tiðkaðist það að fólk borgaði sig inn og mætti ekki bera þær saman við lokaðar sýningar fyrir framleiðendur, innflytj- endur, smásala o.s.frv. Þeir borguðu fyrir sig á annan hátt. Þvi mætti einnig ekki gleyma að fólk fær ýmislegt fyrir sinn snúð. Ókeypis happadrættismiða, hljómleika, tiskusýningar, glens og gaman. Þar að auki er heimsókn á sýn- inguna til ýmissa hagsbóta fyrir neytandann, hélt Bjarni áfram, sérstaklega þá sem eru i inn- kaupahugleiðingum. Hér fyndu þeir allt á einum stað, gætu skoð- að vörur, gert samanburð og fengiö nýjar hugmyndir. —gb. Dýr var heimsóknín 1 kjallara sýningar- innar hittu blm. hjónin Ragnheiði Eiriksdóttur og Gunnar Haraldsson og börn þeirra. Þau sögðust hafa farið á fyrri Heimilissýningar og haft af mikið gaman og gagn. Að þessu sinni hefði sýningin ekki freistað þeirra og þau ekki ætlað að fara en Tivolfið setti strik i reikninginn og breytt ákvörðun þeirra. Þetta væri einstakt tækifæri fyrir börnin og i raun alla fjölskylduna. Þeirra krakkar hefðu ekki verið i rónni þannig að öll fjölskyldan ákvað að gera sér dagamun. Hitt væri svo annað mál að þessi heimsókn kæmi við pyngju þeirra ef gera ætti öllum til hæfis. Aðgangseyrir kostaði fyrir þau 9000kr. og salibunur og annað þvi likt i Tivoliinu kostaði frá 700 upp i 2000 kr. Heimsókn á sýninguna væri þvi dýr fyrir barnafjölskyld- ur, sérstaklega ef reiknað væri með snarli. Litill pizzugeiri kost- aði 1000 kr. Þau hjón voru sem sagt ekki i innkaupaleiðangri en höfðu samt litið á vöruverð, einkum hús- gagnaverð og þótti innlendar vör- ur dýrari en erlendar. Gæðin væru eflaust meiri en þeim fannst pottur brotinn i þessum efnum. —gb. Litið inn á heimilissýninguna

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.