Þjóðviljinn - 09.09.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.09.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 9. september 1980 Ýmsar nýjungar í vetrar- starfi Alþýðubandalagsins í Reykjavík Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hefur á síðustu vikum undirbúið starf félagsins í vetur. Fram að ára- mótum hefur verið ákveðið að leggja einkum áherslu á undirbúning félagsins undir landsfund flokksins, sem haldinn verður um miðjan nóvember og vinna að því að auka með ýmsu móti samskipti félaga i ABR. Margrét B j ö r n s d ó 11 i r , formaður félagsins, sagði i samtali við blaðið að i sumar heföi þrisvar sinnum verið gerð tilraun með gönguferðir i nágrenni Reykjavikur. Þessar gönguferðir þóttu takast vel og vera vel til þess fallnar að stuðla að auknum kynnum félags- manna, og hefur verið ákveðið að það sérstaklega auglýst hverju sinni i Þjóðviljanum. Hún lagði áherslu á að fundir starfshópanna væru öllum opnir, ekki siður áhugamönnum um þessa mála- flokka utan flokksins en félögum i Alþýðubandalaginu, og hún vildi sérstaklega hvetja fólk til þess að koma á fræðslufundi jafnvel þótt það gæfi sér ekki tima til vinnu i Fjórir starfshópar fyrir landsfundinn halda þeim áfram, að sögn Margrétar. Verða ferðirnar aug- lýstar hverju sinni hér i Þjóðvilj- anum. Til nýmæla heyrir það einnig að ákveðið hefur verið að deildir félagsins sjái til skiptis um opin hús að Grettisgötu 3 einu sinni i mánuði. Verður fyrsta opna húsið fimmtudaginn 11. þessa mánaðar kl. 20.30. Þaö er Erlingur Viggós- son, formaður 3. deildar, sem hef- ur veg og vanda af fyrsta opna húsinu. „Hugmyndin er að á þessum kvöldum verði ýmist umræður um ákveðin mál og þá fengnir til sérfróðir menn, — eða reynt að brydda upp á einhverjum skemmtilegheitum. Þessi kvöld verða einnig auglýst sérstaklega i Þjóðviljanum,” sagði Margrét Björnsdóttir. t þriðja lagi er. þaö nýtt i starfinu að efnt verður til meiriháttar haustfagnaðar á vegum félagsins þann 4. október næstkomandi, og verður hann haldinn i húsi Rafveitunnar við Artúnsblett. Þessir þættir i starf- inu lúta sérstaklega að auknum samskiptum félagsmanna, en eins og áður sagöi hyggst félagið beita sér i auknum mæli fyrir stefnumarkandi starfi, bæði i tengslum við ráðstefnu miðstjórnar um þjóöfrelsismálin, sem halda á i Reykjavik 25. október, og i sambandi við lands- fund flokksins 21. til 23. nóvember. Öllum opnir Margrét sagði að á stjórnar- fundi i ágúst heföi veriö ákveðið að koma á laggirnar fjórum starfshópum til undirbúnings félagsins fyrir landsfund. Þeir munu starfa að kjördæmamálinu, kjaramálum, utanrikismálum og fjölskyidupólitik og leggja niður- stöður sinar fyrir fulltrúaráös- fund Alþýöubandalagsins i Reykjavik, sem haldinn verður um miðjan október. Starfshóparnir eru þessa dagana að hefja starfsemi sina og sagði Margrét að auk stefnumót- unar fyrir félagið i Reykjavik i þessum málaflokki væri ætlunin að fundir þeirra væru til fróöleiks og fræðslu. I þvi skyni væri ætlun- in að fá sérfrótt fólk til þess að ílytja erindi og innleiða umræöur á fundum starfshópanna og yrði Umræður, fræðsla og stefnumótun í kjaramálum, kjördæmamálum, þjóðfrelsismálum og fjölskyldupólitík Guöný Guðbjörnsdóttir prófessor flytur erindi um fjölskyldupólitlk. Hrafn Magnússon flutti erindi um lifeyrismál I sl. viku i starfshópi um kjaramál. Erlingur Viggósson sér um fyrsta opna húsið fimmtudaginn 11. sept. starfshópunum, sem sjálfir munu ákveða starfshætti sina. Allar nánari upplýsingar er að fá hjá Kristjáni Valdimarssyni á skrif- stofu félagsins að Grettisgötu 3, en þar er siminn 17500. Kjördæmamálið Fulltrúi stjórnar i starfshópi um kjördæmamálið er Skúli Thoroddsen. Hann sagöi I samtali að fyrsti fundur yröi næst- komandi föstudag kl. 8 að Grettis- götu 3. Til grundvallar umræðum i hópunum væri lögð ályktun ráð- stefnu Alþýöubandalagsins i Reykjavik og kjördæmisráös AB á Reykjanesi um kjördæmamál, en hún var haldin i október á sl. ári. Einnig væri áætlunin að fara i gegnum álit stjórnarskrár- nefndar. A fyrsta fundinum yrði áöurnefnd ályktun kynnt og fjall- að um hana. Markmiö starfs- hópsins væri að ieggja fyrir hug- myndir sinar á fulltrúaráðsfundi félagsins og kynna þær flokks- félögum um land allt fyrir lands- fund. Kjaramálin I kjaramálahópnum eru full- trúar stjórnar Kristin Guðbjörns- dóttir, Asmundur S. Hilmarsson og Þórarinn Magnússon. Þau Asmundur og Kristin tjáðu blaðinu að fyrsti fundur starfs- hópsins hefði veriö haldinn i sl. viku, þar sem Hrafn Magnússon hefði flutt fróðlegt erindi um lif- eyrissjóöamálin. Meöal umræðu- efna sem ætlunin væri að taka fyrir mætti nefna visitölumálin, launaflokkaröðun, einföldun launatexta, álagsgreiðslur og félagslegar umbætur. Þau sögðu að gert væri ráð fyrir vikulegum fundum og aö reynt yrði aö fá sér- fróða menn til þess að innleiöa umræður á hverjum fundi. Þau kváöust ekki ætla sér þá dul að starfshópurinn byggi til nýja launamálastefnu, en kjaramálin væru orðin svo flókinn vefur að nauðsynlegt væri aö kynna sér þau vel. Hvöttu þau sérstaklega til þess að virkir féllagar i Alþýðubandalaginu innan verka- lýðsfélaganna létu sig ekki vanta á fundi kjaramálahópsins. Þjóðfrelsismálin 1 utanrikismálahópnum verður einkum rætt um herstöðva- og þjóðfrelsismálin, með sérstöku tilliti til þess að miöstjórn flokks- ins hefur boðað til ráðstefnu um þjóðfrelsismál 25. október nk. Arthur Morthens sem er fulltrúi stjórnar i þessum hópi sagði að ætlunin væri aö taka fyrir helstu leiðir sem uppi heföu verið i her- stöðvamálinu að undanförnu, svo sem einangrun hersins, friðlýs- ingu, stefnuna um brottför i áföngum og hugmyndina um þjóðaratkvæði. Einnig væri ætl- unin að ræða málefni eins og Samtök herstöðvaandstæðinga og tengsl þeirra við Alþýöubanda- lagið, svo og um verkalýðshreyf- inguna og þjóðfrelsismálin. Loks Kulltrúar stjórnar ABR I starfs- hópunum fjórum ásamt formanni. Frá v. Margrét Björns- dóttir, Kristin Guðbjörnsdóttir, Skúli Thoroddsen, Astnundur Hilmarsson og Kristján Valdi- marsson, starfsmaður félagsins. A myndina vantar Arthur Morthens úr utanríkismálahópi og Þórunni Klemensdóttur úr starfshópi um fjölskyldupólitik. Ljósm. eik. myndi hópurinn huga að breytt- um viðhorfum i vigbúnaði á Norður-Atlantshafi og stöðu Keflavikurherstöðvarinnar i þvi ljósi. Fyrsti fundur i starfshópi um utanrikismál verður i kvöld að Grettisgötu 3 ki. 20.30. Niður- stöður starfshópsins verða kynnt- ar á fulltrúaráðsfundi félagsins i október. Fjölskyldupólitík Kl. 20.30 nk. fimmtudag kemur starfshópur um fjölskyldupólitik saman i fyrsta sinn að Grettis- götu 3. Þórunn Klemensdóttir sem ásamt Eddu óskarsdóttur er fulltrúi stjórnar i þessum starfs- hópi, sagði i gær að á þessum fyrsta fundi myndi Guðný Guðbjörnsdóttir prófessor flytja stutt erindi um skilgreiningu á hugtakinu fjölskyldupólitik og þróun og stöðu slikra mála i nálægum löndum. Þórunn sagði að markmið þessa starfshóps væri að fá upp umræöu um þær aðgerðir stjórnvalda sem á einn eða annan hátt snerta fjölskylduna. Undir þetta kæmu margir málaflokkar, svo sem húsnæðismál, skólamál, dagvistunarmal, heilsugæslumál, skattamál, kjaramál, vinnutimi og vinnutilhögun o.fl. Venjulega væri fjallað um þessi mál hvert i sinu lagi innan flokksins, en starfshópurinn myndi ræða þau sem eina heild út frá sjónarhóli fjölskyldunnar. Þórunn benti á að hjá öðrum þjóðum væri viða til fjölskylduráðuneyti og nokkuð heilsteypt fjölskyldupólitik, en hér heyröu þessi mál undir ýmis ráðuneyti og stofnanir, og þörf væri á umræöu um samræmdari stefnu en hér hefur rikt. Margir hópar I þjóðfélaginu heföu látiö sig skipta einstaka þætti þessa sviðs, og vildi Þórunn sérstaklega beina þvi til áhugasamra utan flokks, að taka þátt I starfi hóps- ins um fjölskyldupólitik, sem væri öllum opin þvi mikilvægt væri að sem flest og ólikust sjónarmið heyrðust, er reynt væri að móta heildarstefnu um þessi mál. Þátttaka i starfshópnum væri kjörið tækifæri til þess að hafa áhrif á stefnumótun stjórn- málaflokks á mikilvægu sviði strax á frumstigi. Þess skal að lokum getið að fréttabréf er nýlega útgengið til félagsmanna i ABR, og eru þar nánari upplýsingar um starfshóp- ana og starfsemi félagsins fram aö áramótum. — ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.