Þjóðviljinn - 09.09.1980, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.09.1980, Blaðsíða 11
Þriöjudagur 9. september 1980 ÞJODVILJINN — SÍÐA 11 íþróttir g) íþróttir g) íþróttir (2 FH-ingar berjast enn Breiöabliksmenn skora fyrra mark sitt. A stærri mvndinni skallar Ólafur Björnsson knöttinn fyrir mark 1A. A minni myndinni sést hvar Hákon rennir knettinum I tnarkiö, algjörlega óvaldaöur. Myndir:-eik- Breiðablik sigraði ÍA í Kópavogi 2:0 Hinir nýjju framlínu- menn Blikanna sýndu vígtennurnar Hreint furöulegt áhugaleysi var yfir ölium leik Skagamanna gegn Breiöabliki i Kópavogi á sunnu- daginn, sérstaklega þegar þess er gætt aö meö sigri heföu Akurnes- ingarnir getaö tryggt stööu sfna verulega f kapphlaupinu viö Vik- inga um 3 sæti 1. deildar. Þaö liö sem þar hafnar aö lokurn, öölast þátttökurétt í UEFA-keppninni næsta ár þannig aö mikiö er f húfi. Til leiks á sunnudaginn mættu al- gjörlega kraftlausir Skagamenn og þeir lágu f valnum aö leikslok- um, 0-2. Eftir rólega byrjun tóku Breiöabliksmenn forystuna á 24. min. Vignir gaf langa sendingu inn i teig IA, ólafur Björnsson skallaði knöttinn fyrir fætur Hákons og hann renndi boltanum i netið af stuttu færi (Sjá mynd), 1-0. Þetta var ansi laglega gert hjá Blikunum, en spurningin er hvað vörn Skagamanna hafi verið að hugsa þegar þeir Breiðabliks- menn skoruðu i rólegheitum. Vignir var enn á ferðinni undir lok fyrri hálfleiks þegar hann brunaði stystu leiö i gegnum IA- vörnina og renndi knettinum framhjá Bjarna, 2-0. Skagamenn áttu ekki eitt einasta gott mark- tækifæri i fyrri hálfleiknum og virðist sem leikskipulag og mórall i þeim herbúðum sé i mol- um. Þaö er engin afsökun fyrir IA að þeirra skæðasti sóknarmaður, Sigþór Ómarsson, hafi ekki leikið með. 1 seinni hálfleiknum dofnaöi enn fyrir leikmönnum beggja liða og aldrei brá fyrir verulega góð- um rispum. Kristján Olgeirsson komst i gott færi, en skaut fram- hjá og það sama henti Hákon hin- um megin á vellinum. Eins og áður var minnst á voru Skagamenn furðudaufir i þessum leik miðað viö mikilvægi hans fyrir þá. Einhversstaðar er pottur brotinn hjá þeim Akurnesingun- um og til vitnis um það er óþarfa nagg og tuð i leikmönnum, sem skeyta skapi sinu á samherjun- um. Þetta er alls ekki nógu gott... Frábært hjá Guðmundi Um helgina fór fram Unglinga- keppni Frjálsíþróttasambandsins á Laugardalsvellinum. Þar báru hæst afrek FH-ingsins Guö- mundar Karlssonar i kastgrein- um og hann setti sveinamet i spjótkasti og kringlukasti. Spjót- inu kastaöi hann 56.86 m. og bætti tveggja ára gamalt met Siguröar Einarssonar um 2 cm. Kringlunni þcytti Guömundur 49.65 m, rúm- um metra lengra en fyrra met. Reynir í 2. deild Reynismenn frá Sandgeröi tryggöu sér um helgina sæti i 2. deild knattspyrnunnar aö ári. Þeir léku á heimavelli gegn HSÞ og varö jafntefli, 1-1. Norðanmenn sóttu undan vindi [ fyrri hálfleik og tóku þá foryst- una meö marki Jónasar Hall- grimssonar. Gylfi Ingvason gerði siðan sjálfsmark og staðan var þvi jöfn i hálfleik, 1-1. Þrátt fyrir linnulitla sókn i seinni hálfleiknum tókst Reynis- mönnum ekki að skora, en þaö breytti engu, þeir eru komnir i 2. deild. 1 Borgarnesi léku Skallagrimur og Tindastóll og nokkuð óvænt sigruöu Borgnesingarnir 4-2, eftir að staðan i hálfleik var jöfn, 2-2. Garöar Jónsson skoraði 3 marka Skallagrims og Björn Jónsson hiö fjóröa. Fyrir Tindastól skoruöu Arni Geirsson, fyrrum FH-ingur, og Björn Sverrisson. — IngH sem Þráinn Hafstcinsson átti. Loks kastaöi hann kúlunni 14.96 m. Þaö er greinilegt aö þarna er mikiö efni á feröinni. Af öðrum metum i keppninni má nefna að Helga Guðmunds- dóttir, UMSB setti stelpnamet i 1500 m hlaupi á 5:17.0 min. Svava Grönfeldt setti meyjamet i lang- stökki þegar hún stökk 5.55 m og Sigrún Markúsdóttir UMFA jafnaði stelpnametiö i hástökki, 1.45 m. I hverjum flokki voru veitt verölaun þeim einstaklingi, sem fékk flest stig. I telpnaflokki sigraði Jóna B. Grétarsdóttir, Ar- manni og i stúlknafiokki sigraði Helga Halldórsdóttir, KR. Hjalti Reynisson, UMSB varö hlut- skarpastur i sveinaflokki, Kristján Harðarson HSH varð stigahæstur I sveinaflokki og IR- ingurinn Stefán Þ. Stefánsson bar sigur úr býtum i drengjaflokki. — IngH Fyrir tilverurétti sínum í 1. deild Strákarnir i Skagaliðinu verða að gera sér grein fyrir þvi að til þeirra eru gerðar meiri kröfur en til flestra leikmanna hérlendis. Þaðererfitt aö standa undir sliku þegar illa gengur, en þeir mega alls ekki fórna höndum i uppgjöf. Jón miðvöröur Gunnlaugsson stóð uppúr i liði IA aö þessu sinni, hann lék einn af „eðlilegri getu”. Blikarnir komu mjög á óvart i þessum leik. 1 lið þeirra vantaði að þessu sinni máttarstólpana Sigurö Grétarsson, Helga Bengts- son og Benedikts Guðmundsson og sömuleiðis var Sigurjón Kristjánsson ekki með. Með þá Ingólf Ingólfsson, ólaf Björnsson og Hákon Gunnarsson i fremstu viglinu yfirspiluðu þeir Skaga- mennina og unnu verðskuldaðan sigur. Vignir var mjög duglegur á miöjunni, Einar öryggiö sjálft i vörninni og alla bolta sem nálægt markinu komu hirti Guðmundur Asgeirsson. /IngH Allt útlit er nú fyrir aö FH-ing- um takist aö foröast fall i 2. deild. Þeir eiga eftir aö leika gegn Þrótti og er óliklcgt annaö en Hafnarfjaröarliöinu takist aö hreppa bæöi stigin úr þeirri viöureign. Helsti keppinautur FH i fallbaráttunni er ÍBK og þeir sunnanmenn eiga eftir aö leika á Akranesi, sem áreiöanlega verö- ur þungur róöur fyrir þá. Þó er ómögulegt aö bóka úrslit i þess- um leikjum fyrirfram og viö veröum aö blöa og sjá hvaö setur. A laugardaginn léku FH-ing- arnir gegn fyrrum Islands- meisturum IBV i Hafnarfirði. Mikill kraftur var i leikmönnum beggja liða frá þvi blásiö var til leiks, einkum voru heimamenn baráttuglaðir. Valur komst i gott færi, en spyrnti i hliðarnetiö. A 18 min skoruðu Eyjamenn og kom mark þeirra eins og reiðarslag á FH-ingana. Friörik missti frá sér fast skot Tómasar og boltinn barst til Sveins Sveinssonar, sem skoraði örugglega af stuttu færi, 1-0. Vestmannaeyingarnir tvi- efldust við markið, en tókst illa að skapa sér góö færi. Undir lok hálfleiksins voru FH-ingarnir loks búnir að jafna sig eftir áfallið og leikurinn komst i jafnvægi. Undirtökin urðu FH-inga i seinni hálfleiknum og t.a.m. fékk Magnús Teitsson sannkallað dauöafæri, sem honum tókst ekki að nýta. Afram hélt leikurinn og allt útlit var fyrir að ÍBV færi með bæði stigin út i Eyjar. Undir lok leiksins var vitaspyrna dæmd á Vestmannaeyinga og úr spyrn- unni skoraði Viðar Halldórsson af öryggi, 1-1. Sanngjörn úrslit i fjörlegum baráttuleik. Ómar og Tómas voru mjög friskir i framlinu IBV og i mark- inu varði Páll af stakri snilld. Viöar Halldórsson átti mjög góð- Fallbaráttan í algleymingi Töluverö harka er nú komin í fallbaráttuna í 2. deild knatt- spyrnunnar. Þegar er Ijóst hvaöa lið fara upp í 1. dcild og eins er ljóst að Austri fellur niöur i 3. deild. Hins vegar eru þaö 5 liö scm eiga þaö á hættu aö fylgja Austra niöur. Þór sigraði Hauka fyrir norðan, 1-0, Selfoss og Þróttur gerðu jafntefli, l-l.Völsungur vann Fylki 2-1 og Armann og IBI gerðu jafntefli 3-3. t staðan Staöan i 1. deild knattspyrnunnar er nú þannig: Valur ...17 12 2 3 38:15 26 Fra m ... 17 10 3 4 21:19 23 Vikingur . ... ... 17 7 6 4 23:20 20 Akranes .... ... 17 7 4 6 26:20 18 Breiöablik . ... 17 8 1 8 25:20 17 iBV . .. 17 5 6 6 25:27 16 KR .. . 17 6 3 8 15:24 15 Keflavik .... ...17 3 7 7 16:23 13 FH ..17 4 5 8 21:32 13 Þróttur .... ..17 2 5 10 11:22 9 Staðan i 2. deild er nu þessi: KA 16 13 1 2 55-11 27 Þór 16 10 3 3 30-13 23 Þróttur N. 16 6 6 4 22-22 18 IBI 16 4 8 4 31-33 16 Haukar 16 5 5 6 27-32 15 Selfoss 17 5 5 7 24-36 15 Fylkir 16 5 4 7 26-22 14 Armann 16 3 7 6 24-31 13 Völsungur 16 5 4 7 19-28 13 Austri 17 1 5 11 16-46 7 an leik i liði FH að þessu sinni og eins kom Guöjón Gúömundsson á óvart i 2 hlutverkum, bæði sem miðvörður og miðherji. /IngH Ipswich trónar á toppnum Frank Thvssen, hollenski lcikmaöurinn hjá Ipswich, tryggði liði sinu sigur á læugardaginn gegn Aston Villa, 1-0, og einnig sæti á toppi 1. deildar ensku knatt- spyrnunnar. Úrslit leikja 1. og 2. deildar á laugardaginn urðu þessi: 1. deild: Birmingham-Liverpool .1:1 Coventry-Crystal Palace .3:1 Everton-Wolves ... 2:0 Ipswich-Aston Villa 1:0 Leicester-Sunderland .... 0:1 Manch. City-Arsenal 1:1 Middlesbrough-Nottm. For 0:0 Southampton-Brighton... 3:1 Stoke-Leeds Utd. .. 3:0 Tottenham -M anch. Utd. .0:0 WBA-Norwich 3:0 2. deild: Bolton-Bristol Rovers ... .2:0 BristolCity-Swansea ....0:1 Chelsea-West Ham . 0-1 Derby-Blackburn .. 2:2 Luton-Wrexham . .. 1:1 Newcastle-Cardiff . 2:1 NottsCo.-QPR 2:1 Oldham-Sheffield Wed. ..2:0 Orient-Grimsby ... 2:0 Preston-Cambridge 2:0 Shrewsbury-Watford ....2:1 Staöan er nú þannig: 1. deild: Ipswich 5 10:2 9 Southampton 5 11:4 9 Sunderland 5 10:4 7 Aston Villa 5 6:4 7 Liverpool 5 8:4 6 Nott. Forest 5 7:3 6 WBA 5 6:3 6 Tottenham 5 8:7 6 Arsenal 5 6:5 6 Man.Utd. 5 4:2 5 Coventry 5 7:6 5 Wolves 5 4:5 5 Everton 5 4:7 5 Leicester 5 4:4 4 Birmingham 5 6:7 4 Middlesb. 5 7:10 4 StokeCity 5 6:12 4 Brighton 5 6:9 3 Man.City 5 5:11 3 Norwich 5 8:12 2 Crystal Pal. 5 9:14 2 Leeds Utd. 5 5:12 2 2. deild: Blackburn 5 8:4 8 Derby 5 8:8 7 Notts Co. 5 7:7 7 West Ham 5 7:3 6 Orient 5 9:6 6 Oldham 5 7:4 6 Swansea 5 5:4 6 Bolton 5 7:3 5 Sheffield W. 5 5:4 5 Cambridge 5 7:7 5 Luton 5 6:6 5 Grimsby 5 4:5 5 Preston 5 3:4 5 Newcastle 5 5:9 5 QPR 5 6:4 4 Cardiff 5 7:8 4 Wrexham 5 6:7 4 Shrewsbury 5 6:8 4 Watford 5 5:7 4 Chelsea 5 7:9 3 BristoIC. 5 2:4 3 Bristol R. 5 3:9 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.