Þjóðviljinn - 09.09.1980, Síða 5
Þriðjudagur 9. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Fjórmenningaklíkan í Kína:
Réttarhöld yfir henni
byrja bráölega
Fyrir síðustu helgi var ekkja Maós formanns,
Jiang Qing, og þrír aðrir fyrrverandi áhrifamenn í
Kina, sem hafa gengið undir nafninu „fjórmenn-
ingaklíkan" flutt frá fangelsi þar sem þau hafa
verið í haldi til miðstöðvar lögreglunnar í Peking.
Þykir þetta benda til þess að senn verði f jórmenn-
ingarnir dregnir fyrir rétt/ en þeir hafa um skeið
verið látnir gegna þvi hlutverki að bera ábyrgð á
flestur því sem illa fór á árum svonefndrar menn-
ingarbyltingar.
Fyrr i sumar hafði Hu
Yaobang, ritari Kommúnista-
flokks Kina, látið það uppi við
fréttastofu Júgóslavlu, að i lok
september mundu fjórmenn-
ingarnir koma fyrir hæstarétt
þar sem þeir sættu ákæru fyrir
samsæri gegn rikinu.
Fyrr hafði gengið orðrómur
um að réttarhöldum þessum
yrði frestað, en nú er talið vist
að.þau hefjist innan skamms.
Fjórmenningarnir, Jiang
Qing, Wang Hung-Wen, Zhang
Chungquiao og Yao Wenyan,
höfðu gifurleg áhrif á stjórn
Kina á hinum miklu umbrota-
timum menningarbyltingar-
innar frá 1966 og næstum þvi
fram til dauða Maós formanns
árið 1976. Mánuði eftir að hinn
aldni oddviti Kinverja lést
voru þau handtekin og voru
þau ákærð fyrir að hafa reynt
að grafa undan öryggi floldcs-
ins og rikisins.
Akærurnar eru svo alvar-
legs eðlis, að fyllilega er
mögulegt að þau verði dæmd
til dauða. Það væri i sjálfu sér
nokkur nýjung. Forysta kin-
verskra kommúnista hefur til
þessa reynt að forðast pólitisk
réttarhöld yfir háttsettum
mönnum, þeir sem hafa orðið
undir I átökum hafa til þessa
hlotið aðra meðferð, sem i
raun var ef til vill ekki skárri
en harðir dómar en gat aö
minnsta kosti ýtt undir það
álit út á við, aö Kinverjar
vildu leysa sin ágreiningsmál
og valdastreitur með öörum
hætti en til að mynda Stalin
gerði.
Deng Xiaoping, fráfarandí
varaforsætisráðherra og
drýgstur valdamaður i Kina
um þessar mundir, hefur látið
það uppi við fyrrgreinda
fréttastofu Júgóslava, að út-
lendingum verði ekki leyft að
vera við réttarhöldin.
Ýmsir hafa á það bent, að
réttarhöld yfir fjórmenning-
Framhald á bls. 13
Ný skáldsaga eftir
Kjartan Flögstad
Kjartan Flögstad er sá norskur
rithöfundur sem menn sýna einna
mesta forvitni nú um stundir —
ekki sist eftir að hann fékk
Norðurlandaráðsverðlaun fyrir
skáldsögu sina „Dalen Portland”
sem út kom 1977. Hann hefur nú
sent frá sér nýja skáldsögu sem
nefnist „Fyr og flamme”og fara
af henni þær sögur, að aldrei hafi
höfundurinn leitað viðar til fanga,
kafað dýpra eða sveipað refsi-
vendi á jafn skemmtilegan hátt.
Skáldsagan nýja fjallar um iðn-
væðingu á okkar öld og hefst á
fyrstu árum stórvirkjana við
Rjukan. Umhverfið eru verk-
smiðjur og stórfyrirtæki, en að
öðru leyti gerir höfundur mjög
víðreist milli himins og jarðar og
dregur inn i verk sitt með góðri
hugkvæmni allan okkar heim
gærdags og nútlöar. Lesandinn
er einkum á höttum eftir ævin-
týramanni sem Hertingen er
kallaður, verkamaður trotskisti
og uppreisnarmaður sem allt sitt
lif er „fyr og flamme”,eins og i
bókarheiti stendur.
Frönsk fiskiskip sem lagt hefur verið fyrir höfn eina á Bretagne.
Kreppa ífiskveiöum EBE-landanna:
Bölva mjög íslending-
um og Kanadamönnum
Undanfarna daga og vik-
ur hafa borist fregnir af
því, að franskir sjómenn
hafi lokað höfnum landsins
til þess að leggja áherslu á
kröfur um að ríkisvaldið
komi atvinnuvegi þeirra
til bjargar. Ekki eru nema
fáir dagar síðan franski
flotinn var kvaddur á vett-
vang til að opna hafnirnar
og skaut táragagsi eða
dældi sjó úr háþrýstislöng-
um á togarana, sem lagt
hafði verið fyrir hafnar-
mynni, og áhafnir þeirra.
Um 25.000 franskra úthafsfiski-
manna hafa tekið þátt I þessum
aðgerðum. En franskir sjómenn
hafa ekki sérstöðu, þeir eru að-
eins háværari en fiskimenn ann-
arra Vestur-Evrópurikja i við-
leitni til að vekja athygli á sér.
Vandinn er tvlþættur: annars
vegar fer gifurleg hækkun á elds-
neyti, sem menn þekkja mætavel
hér heima. Hinn hluti vandans er
nýskipan hafréttarmála. Annars
vegar hafa Kanadamenn og
Islendingar fært út fiskveiðilög-
sögu sina i 200 milur og þar með
lokað fiskimenn Efnahagsbanda-
lagsins úti frá miðum sem þeir
áður stunduðu i stórum stil.
Hinsvegar hefur 200 milna lög-
saga EBE verið gerð að sameig-
inlegu veiðisvæði fiskimanna að-
ildarrikja, með þeim afleiðing-
um, að hver stelur frá öðrum eins
og best hann getur — fyrir nú utan
það, að of mörg skip eltast við of
fáa titti.
Töpum á hverju pundi
Breskir útgerðarmenn segja,
að hluti eldsneytis I tilkostnaði
hafi hækkað úr 10% upp i 25—30%.
Þeir segjast tapa á hverju pundi
af fiski sem á land kemur — rétt
eins og flugfélögin tapa á hverj-
um farþega sem fer yfir Atlants-
haf. Alltént er það einmitt oliu-
verð sem var meginástæöa til
verkfalls franskra og reyndar
þýskra sjómanna lika: þeir
krefjast niðurgreiðslna á oliu til
fiskiskipa.
Bretar hafa orðið sérstaklega
illa úti. 400 af 500 togurum og öðr-
um meiriháttar fiskiskipum sem
áður voru gerð út frá Hull eru nú
bundin við bryggju. Vestur-þýsk-
ir sjómenn eru litlu betur settir,
en þeir hafa þó þá huggun i
harmi, að stjórnvöld þeirra hafa
krækt sér i samning um að veiða
við strendur Brasiliu.
Þriðjungur sjómanna at-
vinnulaus
Um það bil þriðjungur vestur-
evrópskra togarasjómanna —
sem voru alls um 200.000 — er nú
atvinnulaus . Afli breskra tog-
ara minnkaði i fyrra um 12% og
búast má við að hann minnki aft-
ur um 12% á þessu ári. Kvótar
þeir sem vestur-þýskir sjómenn
hafa getað notað sér hafa skropp-
ið saman úr 300 þús. smálestum
1977 i 151 þús. smál. á þessu ári.
Frönskum sjómönnum hefur
fækkað um helming á siðastliðn-
um aldarfjórðungi og þeim mun
að likindum enn fækka um
þriðjung fyrir 1985.
Newsweek, bandariska vikurit-
ið, tekur það fram, að vestur-
evrópskir fiskimenn séu sérstak-
lega gramir Kanadamönnum og
tslendingum sem geti nú með
góðum árangri aflað sér markaða
i Evrópu. Þeir fiski svo vel að
verð þeirra verði mjög vel sam-
Framhald á bls. 13
Formaöur Alþýðusambandsins danska:
Stefnt aö 20% skerðingu
raunteknanna í Danmörku
Á þingi danska sósíal-
demókrataflokksins, sem
hófst fyrir helgina, koma
fram allskarpar andstæð-
ur milli ráðherra flokksins
og forystu danska Alþýðu-
sambandsins, LO. For-
maður LO, Thomas
Nielsen, afhjúpaði áform
stjórnarinnar um að færa
rauntekjur niður um 20
o/o.
Anker Jörgensen var mjög I
varnarstöðu i framsöguræðu
sinni á þinginu, sem var haldin
undir þeim formerkjum að það
værihlutverk sósialdemókrata að
„milda kreppuna”. Hann talaði
um niðurskurð og sparnað sem
væri nauðsynlegur vegna si-
vaxandi halla á viðskiptum, en
ekki siður nauðsyn þess að hressa
upp á framleiðsluna, að „fram-
leiða sig út úr kreppunni” — án
þess þó að hann kæmi mjög inn á
það, hvað nauðsynlegt væri til
aö slikt tækist, að sögn Infor-
mation.
Uppgjöf
Thomas Nielsen, formaður LO,
forðaðist að sönnu stóryrði i
gagnrýni sinni á stjórn flokks-
bræöra sinna en var engu að
siður allþungt niðri fyrir. Hann
taldi, að sú stefna sem þeir hefðu
tekið með svokölluðu páskasam-
komulagi i vor væri fráhvarf frá
fyrri umbótastefnu til venjulegra
borgaralegra sparnaðarráð-
stafana.
Foringjar Sósialdemókrata
hafa, sagði Nielsen, gefið til
kynna, að við séum neydd til að
hverfa aftur til ársins 1975 i raun-
tekjum og kjörum. Nielsen taldi
hinsvegar, að sú kjaraskerðing
væri þegar- staðreynd á dönskum
heimilum, og nú væri danskur al-
menningur á leið inn i enn lakara
ástand. Thomas Nielsen telur, að
kjör hafi rýrnað um 3 o/o á
undanförnum misserum, muni
rýrna um 6 o/o i ár og von sé á
11-12% rýrnun á næstu árum. Allt
um 20% kjararýrnun.
Meira atvinnuleysi
Alþýðusambandsformaðurinn
kvaðst viðurkenna að menn
þyrftu að taka á sig ýmsar byrðar
og heföi verkalýðshreyfingin sýnt
skilning á þeirri nauðsyn. Það
þýddi hinsvegar ekki að hún gæti
sætt sig við þá stefnu sem tekin
hefði verið. Sjlafur lýsti hann
stefnunni á þessa leið: Sparnaður
á opinberum útgjöldum verður
með þeim hætti, að útgjöldin eru
fryst á föstu verölagi — sem þýöir
svo að félagsleg þjónusta minnk-
ar i reynd. I öðru lagi spáir hann
11—12 % rýrnun kaupmáttar
sem fyrr segir. Og i þriðja lagi
verulegri aukningu atvinnu-
leysisi, up i það að 170-200
þúsundir manna verði atvinnu-
lausir á hver jum tima.
Thomas Nielsen taldi, að hin
sósialdemókratiska verkalýðs-
hreyfing gæti ekki fallist á þessa
leið, bæði vegna grundvallar-
sjónarmiða og svo vegna þess, að
sú uppskrift sem boðið væri upp á
myndi ekki virka.
Láglaunafólk
Hann kom einnig inn á væntan-
legar viðræður LO við atvinnu-
rekendur og játaði að þær yrðu
mjög erfiðar. Mundi alþýðusam-
bandið danska leggja mesta á-
herslu á atriöi sem ekki breyttu
miklu um heildarlaunaupphæð.
Yrðu þar efst á blaði ýmsar leið-
réttingar á töxtum, einnig sú
krafa að tryggja öllum skynsam-
leg eftirlaun. Þá myndi verka-
lýðshreyfingin leggja á það mikla
áherslu að tryggja samstöðuna
með þeim sem lægst laun hafa —
einnig með láglaunafólki meðal
opinberra starfsmanna.
Það sem nú siðast var nefnt
skiptir verulegu máli vegna þess
að i fysta áfanga munu saminga-
viðræðurnar fara fram við ein-
stök sambönd, en ekki LO i heild,
og hefur verið látinn upp ótti um
að sérsambönd sem betur standa
að vigi (t.tí. Málmiðnaðarmenn)
skilj i þá Iáglaunuðu eftir með þvi
að leysa sin mál fljótt án tilllits til
þeirra. (byggt á Information)
Thomas Nielsen I ræðustóli á þingi sóslaldemókrata: á stólnum
stendur: Samstaða —einmitt núna. t fyrra voru 109 þúsundir manna I
flokknum, en 123 þúsundir árið 1976.