Þjóðviljinn - 09.09.1980, Qupperneq 13
Þriftjudagur 9. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Tímamæling
Framhald af bls. 7
hefjist á sama tima um landið
allt, en ekki fyrst á höfuðborgar-
svæðinu eins og ákveðið hafði
verið. Samkvæmt upplýsingum
Póst- og simamálastjóra er nauð-
synlegt að taka upp timamæl-
ingar svæðisnúmera m.a. til þess
að hindra misnotkun stórfyrir-
tækja á simalinum vegna send-
inga tölvutækra upplýsinga um
þær og þar meb bæta aðgang al-
mennings að stofnunum, sem
slikar tölvur hafa og simaþjón-
ustu almennt.
Borgarstjórn Reykjavikur
beinir þeirri áskorun til sam-
gönguráðherra að jafnan verði
þess gætt við ákvöröun lengdar
skrefa og skrefagjalds að fullt
tillit verði tekið til þeirra einstak-
linga sem brýnasta þörf hafa
fyrir sima af félagslegum ástæð-
um, t.d. með þvi að taka eingöngu
upp timamælingar á daginn en
ekki eftir ákveðinn tima á kvöldin
og um helgar”. Sagðist Guðrún
vona að borgarfulltrúar allir gætu
fallist á þessa tillögu.
Davíö og „dellu-
tillagan”
En þvi var engan veginn að
heilsa.Davíð Ods.sson sem næstur
talaði, sagðist vera yfir sig hissa
á þessum viðbrögðum meiri-
hlutans og með timamælingunum
væri alls ekki verið að sporna
gegn misnotkun á simakerfinu
heldur væri tilgangurinn sá að
jafna kostnaö milli langlínusam-
talaogsimtala iReykjavik. Hann
kallaöi tillöguna „dellutillögu”,
sem sýndi að borgarfulltrúar
meirihlutans teldu sig ekki þurfa
að gæta hagsmuna Reyki ikinga
heldur teldu þeir það sitt hlutverk
að passa að tölvuvæöingin væri
ekki að snuöa Póst og sima. Þetta
vildu þeir gera og láta Reyk-
vikinga svo borga brúsann. Til-
laga meirihlutans gengi þvert á
hagsmuni Reykvikinga og orða-
lag hennar um engar tima-
mælingar á kvöldin og um helgar
væri loðið og sýndi engan áhuga á
hagsmunum aldraðra og ein-
hleypinga i þessu máli. Reyk-
vikingar myndu missa alla trú á
borgarstjórn Reykjavikur.
Guðrún sagðist sjálf myndu
axla þá ábyrgð ef Reykvikingar
teldu að hún væri að berjast gegn
hagsmunum þeirra. Staðreyndin
væri sú að hjá timamælingum
yrði ekki komist og sæi hún enga
ástæðu til að efa fullyrðingar
Póst- og simamálastjórnarinnar,
og ráöuneytisins um það.
Varðandi timamælingarnar
væri það aðalatriðið að Reyk-
vikingar sætu við sama borð og
aðrir landsmenn i þessum efnum
og að réttur þeirra sem þyrftu
mest á si'ma að halda af félags-
legum ástæðum yrði tryggður.
Tillaga meirihlutans gengi út á
þessi tvö atriði, en þar væri þess
krafist að timamælingar yrðu
teknar upp samtimis á landinu
öllu og gerð tillaga um að ein-
göngu yrði mælt á daginn en ekki
á kvöldin og um helgar. Tillaga
meirihlutans var samþykkt gegn
atkvæðum Sjálfstæðisflokksins.
-AI
Kreppa
Framhald af bls. 5
keppnisfært. Blaöið hefur eftir
einum af embættismönnum Efna-
hagsbandalagsins að „Islending-
ar eru að veiða þann þorsk sem
við vorum vanir að fiska sjálfir”.
Innbyröis ófriður
Þaö gerir illt verra að EBE-
löndin hafa ekki getað komiö sér
saman um sameiginlega stefnu i
fiskveiöimálum. Niðurstaöan er
m.a. sú, að hver gengur á hlut
annars, franskir sjómenn veiða i
breskum sjó og Bretar svara i
sömu mynt. Alloft hefur komið til
árekstra á miöum. Og fyrir
skemmstu sáu islenskir sjón-
varpsáhorfendur breska ádeilu-
mynd, sem ásakaði Frakka um
verstu rányrkju i sameiginlegri
fiskveiöilögsögu EBE: Frakkar
selja á markaði smátitti sem við
mundum aldrei þora að hirða
vegna miklu samviskusamlegra
eftirlits, sagði talsmaöur Grims-
bæinga i þeirri mynd.
Ýmsir Evrópuskriffinnar sjá
ekki aðra leið til að ástandið
skáni en aö sú staðreynd.að mik-
ill útgerðarkostnaður bindur mik-
inn fjölda togara i höfn.verði til
þess, að miðin fái að hvila sig.og
þeir fiskstofnar sem gengið er i
hafi eflst eftir tvö-þrjú ár.
áb byggði á Newsweek.
Réttarhöld
Framhald af bls. 5
unum væru að þvi leyti erfið i
framkvæmd, aö þeir myndu
reyna aö bera Maó formann
fyrir sig sem mest þeir mættu
og gæti núverandi ráðamönn-
um þá orðið erfitt um svör. En
nú hefur Maó þegar verið ýtt
þaö rækilega til hliðar i Kina
og svo mikið af hans verkum
sætt gagnrýni og hörðum
dómum, að fjórmenningum
verður varla mikið lið i honum
lengur. Allra sist ef aðeins fá-
einir útvaldir fá að vera viö-
staddir réttarhöldin.
Valur
Framhald af bls. 10.
en hann hefur átt við þrálát
meiðsli að striða undanfarin ár.
Gisli virtist algjörlega æfinga-
laus, en stóð sig samt þokkalega.
Veiki hlekkur IBK-keðjunnar var
sem fyrr miðjan. Þar réðu Vals-
menn lögum og lofum lengst af. I
markinu var Þorsteinn traustur
og eins átti Oskar góöan leik i
vörninni þó að hann leiki ekki af
sama styrkleika nú og i fyrra-
sumar. I framlinunni bar mest á
Ragnari, þeim leikna og kvika
leikmanni og Ólafi Júliussyni.
Eins og áður var nefnt var sterkt
miðjuspií undirstaöa sigurs Vals i
þessum leik, sérstaklega var
iandsliðsmaöurinn Guðmundur
Þorbjörnsson sleipur. Þá var
vörn Valsmanna traust allan leik-
inn og þar léku Dýri og Sigurður,
markvörður aðalhlutverkin.
— SG/IngH
Ekki neinn
Framhald af bls. 16.
miðjan mánuöinn eða siöar.
Nú tekur við gerð sérkjara-
samninga hjá hinum einstöku
rikisstarfsmannafélögum, en þau
hafa samningsrétt um, röðun i
launaflokka. Þá hafa ekki öll
bæjarstarfsmannafélög lokið
j samningsgerð ennþá, en þau
: stærstu i Reykjavik og á Akureyri
J hafa samþykkt nýjan kjarasamn-
ing við bæjarfélögin.
I framhaldi af samþykki
I rikisstarfsmanna á nýjum
kjarasamningi mun rikisstjórnin
gefa út bráðabirgðalög næstu
daga. — AI
Unglingur (10-12 ára)
óskast til léttra sendiferða eftir hádegi
DIOOVIUINN
sími 81333
ALÞÝÐUBAN DALAGIÐ
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Undirbúningur fyrir landsfund.
Fundarröð um utanrikis- og þjóðfrelsismál.
1. fundur um utanrikis- og þjóðfrelsimál veröur haldinn i kvöld 9.9 kl.
20.30 að Grettisgötu 3.
Dagskrá: Þórður Ingvi Guðmundsson flytur stutt inngangserindi:
Breytt staða i alþjóðastjórnmálum og hernaðarpólitik viö N-Atlants-
haf.
2. Drög að starfsáætlun kynnt.
Félagar takiö þátt i undirbúniingi ABR fyrir landsfund. Mætiö vel og
stundvislega. StjórnABR.
Alþýðubandalagið á Selfossi og nágrenni
Almennur félagsfundur.
alþýöubandalagið á Selfossi og nágrenni heldur almenna félagsfund
fimmtudaginn ll.septemberkl.20.30aðKirkjuvegi7 Selfossi.
Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kynnt tillaga að reglum um forval.
3. Nýja húsnæðislöggjöfin. Framsögumaður Olafur Jónsson.
4. Garðar Sigurösson og Baldur Oskarsson ræöa stjórnmálaviðhorfiö.
Stjórnin.
■ ■■ Fdagsmalastofnun Reykjavikurborgar
y Mp IHI.VISTI N BAKS.V KORSHAGA 8 SIMI 27277
Staða
forstöðumanns
við nýtt dagvistarheimili
við Fálkabakka er laus til umsóknar.
Fóstrumenntun áskilin. Laun skv.
kjarasamningi borgarstarfsmanna.
Einnig er óskað að ráða talkennara til
starfa við dagvistarheimili Reykjavikur-
borgar.
Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er
til 22. sept. Umsóknir sendist til skrifstofu
dagvistunar Fornhaga 8, en þar eru
veittar nánari upplýsingar.
Kennara
vantar að barnaskóla Ólafsfjarðar. Þarf
að geta kennt handavinnu og leikfimi
stúlkna.
Umsóknarfrestur er til 15. sept. n.k.
Upplýsingar gefur skólastjóri i sima
96-62245 og heima i sima 96-62358.
Laus staða
Staða deildarstjóra við freðfiskdeild
FramJeiðslueftirlits sjávarafurða er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, skulu sendar
sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 1. október
1980.
Sjávarútvegsráðuneytið,
3. september 1980.
FOLDA
TOMMI OG BOMMI