Þjóðviljinn - 09.09.1980, Side 16
MOÐVIUINN
Þriöjudagur 9. september 1980
Aöalslr.i Þjóftviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga l tan þcss tiina er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins 1 þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná 1 afgreiöslu blaösins isíma 81663. Blaöaprent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öil kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Afgreiðsla '81663
Þrenn bráðabirgðalög vœntanleg
Samið um félags-
hliðina við BHM
Launin fyrir kjaradóm?
í gærmorgun voru undirritaðir
samningar á milli fjármálaráðu-
neytisins og BHM um hliðstæðar
félagslcgar réttarbætur og
tryggðar voru i BSRB-samningn-
um, en launaliður kjarasamnings
BHM er óútkljáður. Rikið hefúr
boðið háskólamönnum svipaðar
hækkanir og i sambærilegum
launaflokkum miðað við BSRB-
samkomulagið.
Midborgin um helgina:
95 hand-
teknir og 60
vínflöskur
teknar
Lögreglan i Reykjavik greip til
aögerða i miðborginni aðfar-
arnótt sl. laugardags. Likt og
helgina á undan safnaðist mikill
fjöldi unglinga saman, milli 4 og 6
þúsund manns að sögn lögregl-
unnar.
Allt var með kyrrum kjörum
framan af, en brátt dró til tíðinda.
Lögreglumenn komu á 8 bilum,
gengu um svæðið og gerðu áfengi
upptækt og handtóku alla þá sem
sýndu einhvern mótþróa.
Að sögn Héðins Skúlasonar hjá
Reykjavíkurlögreglunni voru
teknar skýrslur af 95 manns
þessa nótt og 60 flöskur af áfengi
voru gerðar upptækar.
Eining sam-
þykkti verk-
fallsheimild
Verkalýðsfélagið Eining
samþykkti á félagsfundi á
Akureyri á sunnudag verkfalls-
heimild til handa stjórn og trún-
aðarmannaráði.
„Þetta samkomulag er hluti af
þvi samkomulagi sem BSRB
gerir við rikið”, sagði Jón
Hannesson formaöur launamála-
ráðs BHM i' gær um nýundirritað
samkomulag milli fjármálaráðu-
neytisins og BHM. ,,Eftir er svo
að semja um kauphliðina. Þar
munum viö fara fram á endur-
skoðun á aðalkjarasamningi okk-
ar i samræmi við samning BSRB.
BSRB fær leiðréttar kauphækk-
anir fyrir neðri flokkana uppá
3,09% og flokkaskrið uppá
0,80—1%. Meðallaunahækkanir
hjá þeim virðast vera um fimm
prósent og þrátt fyrir gólfið, helst
launabilið svipað og það var. Við
göngum á morgun frá kröfugerð
okkar i þessum efnum og ég á
ekki von á að við förum fram á
minna.
Fyrrnefnd endurskoðun á
aðalkjarasamningi hefur þegar
verið rædd nokkuð við samn-
inganefnd rikisins og mér virðist
einsýnt að svo mikið beri á milli
aö hún fari rétta boðleið fyrir
kjaradóm.”
„Þaö sem fyrst og fremst stóð
dálitiðf okkur var i sambandi við
lifeyrissjóöina. Þar gerði rfkið þá
kröfu að við gengjumst inná það
samkomulag sem BSRB gerði ár-
iö 1976 gegn verkfallsréttinum.
Við vissum ekki hvaða áhrif þetta
kynni aö hafa á lánamöguleika
sjóðsins. t samræmi við útláns-
skilyrðin á þeim tima hefði þetta
gengiðaðhonum dauðum á 10—15
árum. Nú eru lánin hinsvegar
verötryggð svo að sjóðurinn
stendur betur, og þessi skerðing
kemur ekki jafn harkalega niður.
Af þeim atriðum sem tiunduð
eru i félagsmálapakkanum
lögöum við mesta áherslu á tvö:
Annarsvegar breytingu á skipan i
stjórn sjóðsins á þá leið að við fá-
um þar nú beina aðild. Hinsvegar
leggur fjármálaráöuneytið til við
stjórn sjóðsins að biðtimi lána
veröi styttur.
Ragnar Arnalds sagði að á
næstu dögum yröu gefin út þrenn
bráöabirgðalög i framhaldi af
samþykkt BSRB samninganna og
nýgerðra samninga við BHM.
Heistu atriðin sem varða BSRB
samningana og bráðabirgðalög
þarf tii staðfestingar á, er breyt-
ing á samningstimanum sem nú
verður óbundinn, en i lögum er
hann ákveðinn tvö ár. Þá er um
að ræða ýmsar breytingar á lif-
eyrissjóðsréttindum og ný lagaá-
kvæði um atvinnuleysistrygging-
ar opinberra starfsmanna. Tvö
siðasttöldu atriðin eru einnig inni
i samkomulagi BHM og rik-
issjóðs.
Flutt að Bessastödu
Forseti tslands, Vigdis Finnbogadóttir, flutti nú um helgina f
forsetabústaðinn að Bessastöðum, þar sem þessi mynd var tekin
i gær. — Ljósm. — gel —
Nýr kjarasamningur BSRB samþykktur meö miklum meirihluta
Ekki neinn vafi á
yilja félagsmanna
^^ 1A AIO AO-tC 1 „X „ AnM
segir Haraldur Steinþórsson
,,Það er enginn vafi á þvi hver
vilji félagsmanna er, svo
ótviræður er mismunurinn á
fjölda þeirra sem samþykktu
samninginn og hinna sem voru á
móti”, sagði Haraldur
Steinþórsson, framkvæm.dastjóri
BSRB i gær. Talið var 1 atkvæða-
greiðslu rikisstarfsmanna um
nýjan kjarasamning nú um helg-
ina og sögðu 76,6% já, en 23.3%
nei.
Félagsmenn með atkvæðisrétt i
þessari atkvæðagreiðslu voru
10.012. 4815 kusu eða 48%. Auöir
og ógildir seðlar voru 112.
Haraldur Steinþórsson sagði að
þátttaka i atkvæðagreiðslunni
hefði mátt vera betri.en á þáttök-
unni væru þó skýringar, margir
væru enn i sumarleyfum, einkum
kennarar úti á landi, þar sem
skólar hefjast ekki fyrr en um
Framhald á bls. 13
Fjármálaráöherra ánœgöur með úrslitin:
Vona að ASÍ fai ekki
niiiini liakknn en BSRB
,,Ég er afskaplega ánægður
með að þetta skuli vera komið á
hreint og hve ótviræð afstaða
féiagsmanna BSRB til samnings-
ins var," sagði Ragnar Arnalds
fjármálaráöherra I gær um
niðurstöður atkvæðagreiðslu
opinberra starfsmanna um nýjan
kjarasamning.
„Allt frá þvi rikisstjórnin tók
við hefur það verið yfirlýst af
hennar hálfu að ekki væri svig-
rúm til almennra kauphækkana
upp eftir öllum launastiganum,
heldur bæri aö einbeita sér að
neðri hluta launastigans og þessu
var fylgt fram i samningunum við
BSRB. Þaö eru þvi ótviræðir
launajöfnunarsamningar.”
— Nú telja ASl menn að launa-
bilið hafi fremur aukist en hitt.
,,Já, að sjálfsögðu hefur það
gerst meðan samið er viö BSRB
en ekki ASÍ,” sagöi Ragnar. „Eg
vona að þeir fái lika leiöréttingar
sinna mála og að láglaunafólkiö i
ASt fái ekki minni hækkun en
BSRB fékk. Ég vil t.d. benda á að
ef ASt fær „gólf” i samningum
sinum geta þeir náð töluveröum
hækkunum fyrir láglaunahóp-
ana.”
— AI
Rokkað gegn vígamennsku
— Þetta er stórviðburður i
sögu islenskrar alþýöumenn-
ingar, — sögðu aðstandendur
hljómleika þeirra sem her-
stöðvaandstæðingar efna til i
Laugardalshöllinni á laugar-
daginn, 13. september, undir
yfirskriftinni ,,Rokk gegn her”.
Þrjár vinsælar hljómsveitir
munu koma fram á tónleikun-
um: Mezzoforte, Utangarðs-
menn og Þursaflokkurinn. Auk
þess mun rokkleikhúsið Tára-
gasRroða upp meö dagskrá sem
unnin er upp úr heimildum um
„gasbardagann’ á Austurvelli
30. mars 1949.
Mikið verður um frumflutt
efniá þessum tónieikum, þ.á.m.
efni sem samið er sérstaklega
fyrir tónleikana. Bubbi Mortens
og Utangarðsmenn verða t.d.
meö mörg lög og texta sem
beint er gegn vigbúnaði og
hernaðarbrölti ýmiskonar.
Þetta verða siðustu tónleikar
þeirra á þessu hausti, og efnið
sem þeir flytja er m.a. af
væntanlegri plötu sem kemur út
i haust.
Mezzoforte muneinnig gefa út
plötu á næstunni og frumflytur
mörg laganna af þeirri plötu á
tónleikunum. ÞursaBokkurinn
verður lika með nýtt efni,
„splunkunýtt og hressilegt
rokkprógramm i anda kvölds-
ins” einsog það var orðað á
blaðamannafundi með aðstand-
endum „Rokk gegn her” i gær.
A fundinum kom fram að hátt
i hundrað manns taka þátt i
undirbúningi tónleikanna. Leik-
arar og áhugafólk standa fyrir
óvæntum uppákomum af ýmsu
tagi, bæði á tónleikunum og á
ýmsum stöðum i bænum dagana
fyrir tónleikana. Myndlistarfólk
hefur einnig komið við sögu og
gert sviðsmyndir og vegg-
skreytingar.
— Rokk gegn her visar ekki
aðeins til ameríska hersins á
Miðnesheiði, — sagði Þorlákur
Kristinsson, einn af undirbún-
ingsmönnúnum, — heldur
hverskyns vigamennsku og
hernaöarbrölts.
Forsala á aðgöngumiðum er
þegar hafin i hljómtækjaversi-
unum Karnabæjar, Bókabúð
Máls og menningar, Bóksölu
stúdenta og i ýmsum skólum, en
auk þess verða miöar seldir við
innganginn. Miöaverðið er kr.
7000- („fyrir neöan sveitaballs-
prisa” sagði Bubbi Mortens).
Tónleikarnir hefjast kl. 21. á
laugardagskvöldið og standa til
miðnættis. — ih
Frá blaöamannafundinum með aðstandendum „Rokk gegn her” I gær. A innfelldu myndinni eru
„verndarar” fundarins. Ljósm. —gel—