Þjóðviljinn - 03.10.1980, Blaðsíða 5
Föstudagur 3. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Sigrar vinstrisinna í Verkamannaflokknum breska:
Samþykkja einhlida
kjarnorkuafvopnun
og úrsögn úr EBE
Söguleg tlöindi eru að gerast á
ársfundi Verkamannaflokksins
breska sem fer fram þessa dag-
ana i Blackpool. Vinstri armur
fiokksins, undir forystu Tony
Benn , fyrrum iðnaöar-
ráðherra, hefur bersýnilega sótt
mjög á og hefur fengiö því
framgengt, að einhliða kjarn-
orkuafvopnun Breta veröi á
kosningastefnuskrá flokksins
fyrir kosningarnar 1984. Þetta
gerðist i gær, en i fyrradag
fengu vinstrisinnar þvi fram-
gengt að úrsögn Bretlands úr
Efnahagsbandalaginu yrði að
verða eitt af forgangsmálum
fiokksins ef hann vinnur
kosningarnar 1984.
Þetta eru merkileg tiöindi og
gætu verið undanfari þess, að
Verkamannafiokkurinn klofn-
aði. en hann er, vegna hins
breska kosningafyrirkomulags,
sem mismunar mjög öllum
flokkum öðrum en þeirri tveim
stærstu, einskonar „regnhlif”
yfir ólika hópa, allt frá hægri-
krötum til róttækra sósialista.
Enn er óráðið
um aðferðir
við kjör
flokksleiðtoga
Forystukreppa
Samþykktir ársfunda flokks-
ins,ein s og þ ær sem a ð ofa n v oru
nefndar, eru aö sönnu ekki bind-
andi fyrir rikisstjórn flokksins.
En þá má þvi ekki gleyma, að i
hörðum átökum milli vinstri og
hægrimanna i flokknum er eitt
helsta átakaefnið einmitt það,
hve mikið eftirlit flokksforystan
munhafa með pólitik þeirri sem
flokkurinn rekur á hverjum
tima — og hvernig þessi forysta
verður valin.
t fyrrinótt var það samþykkt
með naumum meirihluta at-
kvæða, aö kjörgengi til leiðtoga
flokksins, sem hingað til hefur
verið bundið við þingmenn,
muni einnig ná til virkra flokks-
félaga og verklýðsforingja.
Þetta er túlkað sem meiriháttar
sigurfyrir vinstrisinna i baráttu
þeirra fyrir þvi, að forystan,
sem jafnan hefur verið hægra
megin i flokknum, verði i aukn-
um mæli að bera ábyrgð gagn-
vart óbreyttum flokksmönnum.
Siðan tóku við langar vöku-
stundir með baktjaldamakki og
hornaráöstefnum. Og eftir það
þóf höfnuöu fulltrúar á flokks-
fundinum þrem mismunandi til-
lögum um það, hvernig kosning-
um til forystu skyldi hagað. t
fjórðu atrennu féllust þeir á þaö
að fresta málinu til næsta árs.
Ótti hægrikrata
Þetta mál verður jafn stórt og
heitt og raun ber vitni vegna
þess, að gert hafði verið ráð
fyrir þvi að James Callaghan
segði af sér sem leiðtogi flokks-
ins nú i haust, en hann er nú 68
ára gamall. Hægrisinnar óttast
þaö mjög, að nýjar kosningaað-
ferðir muni setja i leittoga-
sæti fyrrgreindan Tony Benn,
sem þeir telja alltof róttækan til
að flokkurinn gæti unniö
kosningar undir hans forystu.
Tony Benn var m.a. þekktur
fyrir það i sinni ráðherratið að
styðja við bakið á verkamönn-
um sem höfðu tekiö aö sér að
reka fyrirtæki á eigin ábyrgð
sem eigendurnir höfðu lokaö.
Samþykkt Verkamanna-
flokksins um úrsögn úr Efna-
hagsbandalaginu hefur þegar
vakið upp ugg með sósialdemó-
krötum á meginlandinu — m.a.
hafa flokkarnir i Þýskalandi og
Belgfu þegar sent frá sér sér-
stakar samþykktir um málið.
Stórtiðindi
Þvi hefur verið spáð undan-
farin misseri að mjög væri nú
reynt á þanþol breska Verka-
mannaflokksins og mjög væri
tvisýnt um það hvort tækist að
koma i veg fyrir klofning i hon-
Tony Benn; hægrisinnar segja
að flokkurinn gæti aldrei sigrað
i kosningum undir forystu svo
róttæks manns.
Callaghan; er að hætta, og um
leiöer sterkur þrýstingur á auk-
in áhrif óbreyttra á forystuna.
um. Atvik gætu farið svo, að
vinstrisinnar næðu meirihluta
og hægrimenn yfirgæfu flokk-
inn, eins og Shú-ley Williams,
fyrrum menntamálaráðherra,
hefur reyndar hótaö nú þegar.
Þá væri komin upp ný staða i
breskum stjórnmálum sem af-
drifarík gæti orðið i Evrópu:
þeim sósialiskum hreyfingum
sem eru til vinstri við hefð-
bundna sósíaldemókratiska
stefnu hefði bæst mikill og
merkur liðsauki.
—áb.
Er hœtta á olíuverðhœkkunum?:
IEA telur sig
frið fram yfir
hafa tryggt
áramót
Meðan áþreifingar fara fram
um það, hvort takast megi að
koma á vopnahléi á landamærum
iraks og írans og með hvaöa skil-
málum, hafa fulltrúar hclstu oliu-
neyslurikja vesturlanda þingað
um ástandið nieð það fyrir augum
að koma i veg fyrir brask með
oliu og þar með stórhækkun verðs
á þeirri oliu sem seld er utan við
langtimasamninga — og þar með
á Rotterdamverði þvi sem við
islendingar könnumst vel við.
Fundur um þessi mál var hald-
inn i Paris. Þar komu saman full-
trúar 21 rikis i svonefndu IEA,
International Energy Agency.til
að ræða áhrif striðsins fyrir botni
Persaflóa á oliuverðið. Fundar-
menn lögðu áherslu á það i
skýrslu sem birt var á þriðjudag,
að miklu auðveldara væri nú að
glima við oliuskort en i ársbyrjun
1979 þegar fall transkeisara íeiddi
til þess að verðlag á „skyndi-
mörkuðum” þaut upp vegna hins
Blað-
bera-
bíó
Hawai-stúlkan,
bráðskemmtileg lit-
mynd með islenskum
texta. Sýnd í Hafnar-
bíói á morgun kl. 1 eins
og venjulega!
almenna ótta sem þá fór um mörg
Vesturlönd.
IEA metur svo stööuna nú, að
striðið kosti 3.9 miljónir tunna af
oliu á dag, og er obbinn af þvi
magni frá trak. Þetta er.u um átta
prósent af daglegri oliuneyslu
allra þeirra rikja sem ekki lúta
stjórn kommúnistaflokka. Þessu
tapi telja fulltrúar hjá IEA aö
megi mæta með þvi, að fram yfir
áramót eru nægar birgðir til i
helstu oliuneyslurikjum til að
koma á jafnvægi milli framboðs
og eftirspurnar. Auk þess vonast
þeir til, að sum önnur OPEC-riki
auki framleiðslu sina nokkuð
meðan á núverar.di kreppu
stendur með það fyrir augum að
lengja þann frest sem oliuneyslu-
lönd hafa,áður en komið er að
„áhættuástandi” eins og það
heitir.
Sá ótti hafði verið látinn i ljós.
að þeir oliukaupendur, sem hafa
fengið drjúgan hluta af innflutn-
ingi sinum eimitt frá stvrjaldar-
rikjunum tveim,mundu nú snúa
sér i auknum mæli til Rotterdam-
markaðarins eða hliðstæðra
markaða. En IEA hefur bersýni-
lega reynt að ganga svo frá
hnútum i kyrrþey að allir heistu
neytendur gætu verið óhræddir
um sig um allangan tima enn.
Hitt er svo annað mal, aö við
Hormuzsund fjölgar nú óðum
þeim oliuskipum, sem ekkitáræða
inn á Persaflóa eftir oliu, þrátt
fyrir fyrirheit írana um að sigl-
ingar um flóann séu hættulausar.
1 gær voru þau yfir þrjátiu tals-
ins, og ef ótti skipafélaga við
óhöpp,— oghá vátryggingargjöld,
dregur með þessum hætti jafnt og
þétt úr oliuflutningum, þá er hætt
við aö áform IEA standist ekki
lengi.
—áb
CTÁD
kJ JL \JJK
Við rýmum fyrir væntanlegum
M ATV ÖRUMARK AÐI
og seljum þessa viku öil
HÚSGÖGN OG GÓLFTEPPI
á sérstöku afsláttarverði og
auk þess með einstæðum
greiðslukjörum
Útborgun allt niður í 25% og eftir-
stöðvar lánum við í alltað 10 mánuði
Opið föstudaga til kL 22
Opið laugardaga kl. 9—12
Innlend húsgögn:
Staðgr.afsl. 15%
Innflutt húsgögn:
Staðgr.afsl. 15%
Teppi:
Staðgnafsl. 10 %
/
a
Afsláttur
kaupsamningum: 5%
Hringbraut 121 Sími 10600