Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 4
4 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 18,—19. október 1980 Baráttuhópur farandverkafólks hvetur ASÍ: Snúumst af hörku gegn óheillaþróun Forystan verður að gera upp við sig hvort hún gefur ríkisstjórnarsamstarfinu framhaldslíf Baráttuhópur farand- verkafólks afhenti nú i vikunni 43ja manna samninganefnd ASi bréf þar sem verkalýðsfor- ystan er hvött til að gera upp við sig, hvort hún gefur rikisstjórnarsam- starfinu framhaldslíf í td. ár, og gerist á þeim tíma opinber stuönings- maður þess, en láti sér ekki nægja stuðning að tjaldabaki. Bréf farandverkafólks er svo- hljó&andi: „Eftir margra mánaöa samn- ingaþóf verkalýösstéttarinnar viö atvinnurekendur og rikis- vald er nú svo komiö, aö einn stendur einkaatvinnureksturinn i landinu og þverneitar aö ganga til samninga. Náöst hafa samn- ingar milli rikisvaldsins og BSRB. Forysta bankastarfs- manna hefur fallist á atkvæöa- greiöslu um samninga viö bankakerfiö. Vinnuveitenda- samband fslands bundiö og keflaö af þvi leiftursóknarihaldi sem náö hefur aö draga þar myrkvunartjöld fyrir alla glugga, þverneitar aö ræöa samninga og krefst i sifellu auk- innar kjaraskeröingar hjá lág. launafólki. I þessa nauöhyggju righeldur VSÍ., þrátt fyrir aö fyrir liggur umræöugrundvöllur frá rikisvaldinu sem miöar aö þvi aö meölimir Alþýöusam- bandsins fái að njóta þeirra ávinninga sem náðst hafa fram af öörum launþegasamböndum. Með þessu sýnir Vinnuveit- endasambandiö að þeir eru til- búnir aö beita öllum lág- kúrulegustu aðferöum til að draga samninga á langinn, vitandi þaö,aö hver dagur þýöir aukiö kjararán á láglaunafólki. Blindaðir ofstæki sinu vilja þeir neyöa rikisvaldiö til aö gripa inn i gang samninganna meö lögboöi, firra sig þannig af þeim allri ábyrgö til aö geta siöan i framhaldi af þvi óhindraö orgaö I sífellu á frekari kjaraskerö- ingar allt næsta samningatima- bil, sprengt siðan það pólitiska bandalag sem núverandi rikis- stjórn er fulltrúi fyrir, þegar þeim þykir best henta. Um leið Þjódfrelsis- og ALÞYÐUBANDALAGIÐ Guömundur Böövar Ólafur Ragnar Kjartan Alþýdubandalagid boðar til rádstefnu um utanríkismál Laugardaginn 25/10 og sunnu- daginn 26/10 i Þinghól, Hamra- borg 4, Kópavogi. Ráðstefnan er opin félögum í Alþýðubandalag- inu. Gögn liggja frammi á skrif- stofu Alþýðubanda lagsins, Grettisgötu 3. Dagskrá: Laugardagur: Kl. 13.30 Gils Guömundsson,fyrrv. alþingismaöur, setur ráöstefnuna. Guömundur Georgsson, formaöur SHA, gestur ráöstefnunnar, flytur ávarp. Framsngumenn: Böövar Guö- mundsson, Ólafur Ragnar Grimsson, Kjartan ólafsson. Kl. 15.00 Kaffihlé Kl. 15.30 Almennar umræöur Kl. 16.30 Starfshópur um valkosti i herstöövamálinu Kl. 18.00 Fundarhlé Sunnudagur: Kl. 13.30 Starfshópur framh. Kl. 15.00 Kaffihlé KI. 15.30 Alitstarfshópa og almennar umræöur Ráöstefnuslit. Ráöstefnustjórar: Arthúr Morthens, As- mundur Ásmundsson, Bragi Guðbrands- son, Elsa Kristjánsdóttir og Þórður Ingvi Guðmundsson ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Bragi Asmundur Elsa Arthúr sjá þeir sér þann leik á boröi, að takist þeim aö fá verkalýðs- forustuna til aö knékrjúpa rikis- valdinu i bón um kaup og kjör, veröi þeim eftirleikurinn leikur einn. Gerist þaö,veröa minni likurá þviaö sú martröö þeirra, sem hófst þegar verkalýös- stéttin reis gegn kjaraskerö- ingarlögum Geirs Hallgrims- sonar 1978,endurtaki sig i náinni framtiö. Hámark sigurgöngu þeirra yrði, tækist VSÍ að koma inn hjá verkafólki þeirri hlægi- legu mótsögn að þaö biöji um pólitiskt samfélagsástand sem leiftursóknarihaldiö getur eitt þrifist I, og þarfnast nauösyn- lega i árásum sinum á rikis- valdiö og verkalý&shreyfinguna meö frelsisgrimuna á lofti. Verkalýðshreyfingin og þau pólitisku öfl sem aö núverandi rikisstjórnarsamstarfi standa, verða að snúast af hörku gegn þessari óheillaþróun. Forysta verkalýðshreyfingarinnar verður aö gera þaö upp viö sig hvort hún ætlar aö gefa rikis- stjórnarsamstarfinu fram- haldslif I t.d. eitt ár, og gerast á þeim tima opinber stuönings- maöur þess, en láta sér ekki nægja aö styöja það af öllu afli að tjaldabaki. Til þess aö svo megi veröa, veröur verkalýðs- forustan að hvetja félögin til aö hefja af djörfung merki sin á loft og gripa þegar I stað til aö- geröa meö afli og á þann hátt. aö þær vekji umtalsveröa at- hygli meöal verkafólks og hvetji þaö meö bjartsýni og sigurvissu til aðgerða og sigurs. Meöfylgjandi bréfi þessu eru tillögur um fyrstu aögerðir frá Baráttuhóp farandverkafólks. Jafnframt vill hópurinn meö bréfi þessu mótmæla þvi harö- lega,aö gengið veröi til samn- inga um fæöismál farandverka- fólks á þann hátt sem umræðu- grundvöllur sáttasemjara gerir ráð fyrir. Meö þvi aö gera verö á fæ&i aö samningsatri&i á einstökum félagssvæöum, fæst ekki minnsta trygging fyrir þvi að fæðisokrinu verði aflétt á neinum einasta stað. Með þvi að binda niðurgreiðslur á fæöi viö mö tuneyti atvinnurekenda, stuðlar tillagan að þvi að fyrir tæki leggi mcítuneyti sin niður, farandverkafólk þurfi aö kaupa fæöi sitt af sérstökum fyrir- tækjum og einkaaöilum á sina ábyrgö. Baráttuhópur farand- verkafólks gengst aldrei undir slika samninga, og mun standa i stöðugu striði viö atvinnurek- endur allt næsta samningstima- bil,verði þetta samþykkt’.’ Verslunarráö rædir reynslu af skattalögunum Verslunarráð lslands efnir á mánudag til félagsfundar um reynsluna af nýjum lögum um tekju- og eignaskatt og tillögur ráðsins til breytinga á lögunum. Fundurinn verður á Hótel Sögu og hefst kl. 16.15. w Á norrænu málaári Kynning á ! danskri I tungu A Norrænu málaári hefur I Norræna félagiö, i samráði I viö málaársnefnd sína,leitað , til ýmissa aðila til þess að ■ kynna þær tungur, sem I talaðar eru og ritaðar á | Norðurlöndunum. 1 Norræna húsinu hafa ■ veriö haldnar fjórar sam- j komur i samráði við aðra | aðila i þessu skyni. , Grænlenska var kynnt i | byrjun ársins i samvinnu við I Grænlandsvinafélagið, finnska var kynnt á | Runebergsdaginn i febrúar ■ af finnska lektornum og I Suomi félaginu, I mars fór I fram afhending verðlauna | fyrir merki málaársins, upp ■ úr verkum sinum las verð- I launahafinn SaraLidmann. 1 1 april var kynnt færeyskt mál j i samvinnu við Færeyinga- ■ félagið. Allar þessar sam- I komur voru mjög vel sóttar. I Nú i haust er ætlunin að I kynna þau Norðurlandamál • sem eftir standa: dönsku, j norsku,sænsku og Samamál. I Leitað var til dönsku lek- I toranna viö háskólann • varðandi kynningu á danskri I tungu, og fer hún fram i | Norræna húsinu á laugar- I daginn kemur kl. 15:00. Að fundinum standa, auk | Norræna félagsins.j Dansk-islenska félagið, • Dansk kvindeklub, Danne- ' brog, Det danske selskab, | Skandinavisk Boldklub og | Dönskukennaraféiagiö. Dagskrá lektoranna er á J þessa leið: Peter Söby j Kristensen flytur spjall sem I hann nefnir: Horft á Dani ■ með dönskum augum. Auk J þess les hann upp. Bent j Christian Jacobsen talar um I danskt nútimatungutak og j Claus Lund fjallar um J danskar bókmenntir og I danskt þjóðlif i dag. Leikin I verður dönsk tónlist milli J atriða. Umræður um ofbeldi í morgunkaffí Gestur í morgunkaffi Rauösokka veröur aö þessu sinni Ásdis Rafnar lögfræöingur. Hún skrifaöi á sínum tima prófritgerö um meöferö nauögunarmála, og er ætlunin aö ræöa um nauðganir ogofbeldi gegn konum og hvernig tekiö er á þeim málum. Asdis var ein þeirra sem tóku þátt i hringborðsumræðum Þjóð- viljans i sumar, en þær vöktu mikla athygli. Morgunkaffiö hefst kl. 12 á hádegi i Sokkholti, Skóla- vörðustig 12. Allir velkomnir. —ká Ásdis Rafnar Hverskonar þjóðfélag? Haldinn verður fræðslu - og um- ræðufundur um efnið „Hvers konar þjóðfélag viljum við?” á vegum Kommúnistasamtakanna að Hótel Heklu (salur i kjallara) mánudaginn 20. október kl. 20:30. Frummælendur eru Ingólfur Jóhannesson sagnfræöingur, ómar Harðarson prentari og Guðrún Helgadóttir alþingis- maður.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.