Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 24
. ?.£ f OÍ<? -- MMU.JJVríC'W vh«í* -ísdóWo «t—.8; i i,i!* H 24 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Helgin 18 —19. ökíóber Í980 Jónatan Hallvarösson hæsta- réttardómari Jón Hallvarbsson sýslumaöur Bjarni Bragi Jónsson hag- fræöingur Jóhann Einvarösson alþingis- maöur. Hallvaröur Einvarösson rannsóknarlögreglustjóri rikis- ins. Þóröur Þ. Þorbjarnarson borg arverkfræðingur. Halldór Jónatansson aöstoöar- framkvæmdastjóri Landsvirkj- unar -Jón Sigurösson forstjóri Járn- blendiverksmiöjunnar. Hallvaröur bjó í Skutulsey. HaUvarðssonaætt Hallvaröur Einarsson hét bóndi vestur i Skutulsey f Mýrasýslu. Hann var fæddur áriö 1871 en dó aðeins rúmlega fertugur áriö 1912. Kona hans var Sigriöur Gunnhildur Jónsdóttir (1877—1944) og bjó hún á Fáskrúðarbakka mörg ár eftir lát manns sins. Sex af börnum þeirra komust til fulloröinsára og hétu þau Jón, Einvaröur, Jónatan, Sigurjón, Ásdis og Guöbjörg. Sigriöur húsfreyja átti siöar tvö börn meö Guömundi Jónssyni bónda á Mel I Stafholtstungum, þau Kristján Guömundsson öku- kennara i Reykjavik og Huldu sem giftist Steingrimi Jónatans- syni bókara i Reykjavik. Hér veröur greint frá afkomendum bóndah jónanna i Skutulsey, þeirra Hallvarös og Sigríöar, en margir þeirra eru og hafa veriö þekktir menn í þjóöfélaginu: 1. Jón Hallvarösson (1899-1968) sýslumaður i Snæfellsnes- og Hnappadalssýslum. Kona hans var ólöf Bjarnadóttir læknis Jenssonar rektors, bróöur Jóns Sigurðssonar forseta. Þeirra böm: a. Baldur Jónsson f. 1926, b. Bjarni Bragi Jónsson.f. 1928, hagfræðingur, forstöðumaður áætlanadeildar Framkvæmda- stofnunar rikisins. Kvæntur Rósu Guðmundsdóttur. c. Sigriður Jónsdóttir f. 1931, starfsmaöur Seölabankans. d. Svava 1932—1952. 2. Einvarður Hallvarösson (f. 1901). Hann var skrifstofustjóri gjaldeyrisdeildar Landsbanka Is- lands 1932—37, formaöur nefndarinnar 1937—42, deildar- stjóri Landsbankans 1943—1956 en siðast starfsmannastjóri Landsbankans og Seðlabankans. Kona hans: Vigdis Jóhannsdóttir Kr. trésmiðameistara i Reykja- vik Hafliðasonar. Þeirra bik-n: a. Hallvaröur Einvarösson f. 1931, rannsóknarlögreglustjóri rikisins. Hans kona Guðrún Sesselja Karlsdóttir G. Magnús- sonar læknis. b. Jóhann Einvarösson f. 1938, þingmaður Reykjaneskjördæmis fyrir Framsóknarflokkinn frá 1979, bæjarstjóri i Keflavik, áður bæjarstjóri á tsafiröi. Kona: Guöný Gunnarsdóttir skrifstofu- manns f Rvik Ármannssonar. c. Sigriður Einvarðsdóttir f. 1947, hjúkrunarfræöingur i Reykjavik. 3. Jónatan ‘ Hallvarösson (1903—1970) lögreglustjóri I Reykjavik 1936—40, sakadómari 1940—1945 og hæstaréttardómari 1945—1969. Kona Sigurrós Gisla- dóttir sjómanns i Reykjavik Kristjánssonar. Börn þeirra: a. Halldór Jónatansson f. 1932, lögfræðingur, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Landsvirkjunar, áður deildarstjóri I viðskipta- ráðuneytinu. Kona Guðrún Dag- bjartsdóttir kaupmanns Lyös- sonar. b. Bergljót Jónatansdóttir f. 1935, gift Jóni Sigurössyni for- stjóra Kisilgúrverksmiðjunnar á Grundartanga, en hann var áður ráöuneytisstjóri fjármálaráðu- neytisins. c. Sigriður Jónatansdóttir f. 1937, gift Þóröi Þ. Þorbjarnarsyni borgarverkfræðingi i Reykjavik. 4. Sigurjón Hallvarðsson f. 1905, skrifstofustjóri lögreglustjóra- embættisins i Reykjavik. Kona Gerd, dóttir L.H. MUllers kaup- manns i Reykjavlk. Börn: a. Birgir Sigurjónsson simvirki 1 Hafnarfiröi f. 1938. b. Hallvaröur Sigurjónsson i Reykjavik f. 1944. c. Helga M. Sigurjónsdóttir i Reykjavik f. 1951. 5. Asdís Hallvarðsdóttir (1908—1965), ógift og bamlaus. 6. Guðbjörg Hallvarðsdóttir (f. 1912). Hennar sonur: Arngeir Lúöviksson I Reykjavik f. 194A P.s. Allar ábendingar vel þegnar. Skrifið Sunnudagsblaöi Þjóðviljans, Siöumúla 6. P.s. Okkur varð heldur betur á I messunni i' sambandi við siðustu ættrakningu. IrisDungal varsögð kona Kristins Olsens en hún er stjúpdóttir hans. Hún er hins vegar gift Guðmundi Pálssyni deildarstjóra hjá Flugleiöum. Þá var Kristinnkallaöur stjómarfor- maöur Flugleiða en er stjómar- maöur. Einnig var Einar Arnason lög- fræðingur Vinnuveitendasam- bandsins sagður vera varamaður I stjórn Flugleiöa. Það er hins /vegar annar maöur sem þar situr, nefnilega Einar Arnason, kallaður flugriki. Þá er Sigriöur Steinunn fyrrverandi kona téðs Einars lögfræðings. P.s. Ranghermt var i grein- inni s.l. sunnudag að Niels Eyjólfsson á Grimsstöðum væri fööurbróðir Kristins E. Andrés- sonar magisters.þvi að hann var sonur Andrésar Runólfssonar. Talið var hins vegar vist að þeir bræðurnir Andrés og Björgúlfur Runólfssynir sem aldir voru upp á Helgustöðum i Reyðarfirði væru rangfeðraðir og synir Andrésar Eyjólfssonar bónda þar en móðir þeirra var vinnu- kona á bænum. Eí þetta er rétt er Niels Eyjólfsson afabróðir Kristins E. Andréssonar. P.s. Að lokum veröur hér birt bréf frá Höskuldi Egilssyni varð- andi Þverárætt sem birtist i blað- inu 21. september s.l. Það hljóðar svo: ,,Leyfist mér að láta þess getið að elsti sonur séra Asmundar prófasts á Hálsi heitir ólafur, fyrrum bóndi á Hálsi og til margra ára verkamaður hjá Reykjavikurborg. Ekki veit ég hvers Ólafur á að gjalda að hann fellur út af þessari annars skil- merkilegu ættarskrá. Varla getur orsökin verið sú að hann var aðeins bóndi og verkamaður, en hinir bræðumir gengu mennta- veginn og eru þekktir menn af verkum sinum. Ég vil þvi taka upp hanskann fyrir þennan ágæta sveitunga minn og kunningja og vænti þess að hann fái náfn sitt á blað, þar sem ég tel að hann hafi skilaö sinu dagsverki með sóma ekki siður en bræður hans, þótt á öðru sviði væri”. —GFr Afmæliskveðja: Jórunn Jónsdóttir 95 ára Hratt fijúga dagarnir og árin, svo aðfyrr en varir er hún Jórunn orðin hálf tiræð. Elli kerling hefur marga bugað fyrr, en það er rétt eins og aö hún hafi aöeins haft vinsamleg afskipti af henni Jóu frænku. Það fer vel á þessu, þvi að æskan hefur ævinlega átt þar vin sem Jórunn var. Jórunn Jónsdóttir fæddist á Hliöarenda i Olfusi 19. október 1885, og var fimmta barn hjón- anna Þórunnar Jónsdóttur og Jóns Jónssonar og annað barnið sem hét nafni ömmu sinnar, Jór- unnar Sigurðardóttur i Þorláks- höfn. Þær mæðgur urðu báðar aldraöar,og það varö gamli Jón á Hliöarenda einnig. Um tvitugsaldur giftist Jórunn Gisla Gislasyni frá Kauðabergi i Fljótskverfi, og bjuggu þau um skeið á Hjalla i Olfusi, en siðar i Reykjavik. Þauskildu samvistum og eftir þaö var Jórunn fyrirvinna þeirra mæðgna, sin og fóstur- dætranna tveggja. Margar ljúfar minningar og fróöleik hefur Jórunn rifjað upp, um heimsóknir til nöfnu sinnar og afans i Þorlákshöfn. Þar var margt i heimili og fjöldi af ungu fólki. Þar stóðu börn húsbænd- anna, þau sem heima voru, fyrir leikum og skemmtan, eða aö skólapiltar sem voru við versl- unina stjórnuöu gleöskapnum.Þá voru húsbændurnir nærstaddir, enda var húsbóndinn skemmtinn og húsfreyjan stjórnsöm, svo aö öllum leikum lauk með gleði. En þó að Jórunn segi gjarnan frá glöðum stundum, sem hún átti á æskustöðvum,og hún byggi þar viö góö kjör i foreldrahúsum, þá hafði hún þegar á unga aldri glökkt auga fyrir kjörum annarra og lífsstriði. Hún hefur brugðið upp fyrir okkur, frændfólki sinu, myndum af lifi fátækrar alþýðu, eins og þaö var um siöustu alda- mót. Þegar Jórunn var ung stúlka var það siður, að heimafólkið á Hliðarenda fór út i Þorlákshöfn til þess að þurrka þann fisk,sem Jón faðir hennar hafði aflað á vetrar- og vorvertið. Þegarskip komu i Þorlákshöfn, áður en nokkur hafnarmannvirki voru reist, þá kom daglaunafólk frá Eyrarbakka, handan Olfusár, til þess að vinna viö uppskipun- ina. Þetta voru bæði konur og karlar og var á þeim tima nefnt „erfiðisfólkið”. Langt er nú um liðið siöan hún Jórunn sá kon- urnar ganga bognar og móðar undir kornsekkjum og kola- pokum, frá lendingunni og upp i vöruskemmu i Höfninni, en þó er frásögn hennar svo glögg, aö þegar ég sá fyrst endurprentun af mynd Muggs af verkakonum viö Reykjavikurhöfn, þá fannst mér að ég hefði séð hana áður hjá Jórunni. Þegar manni er lýst getur leikið vafi á þvi, hvað helst er einkenn- andi fyrir skaphöfn hans og at- ferli. I þessu tilviki er enginn vafi, þvi rikasti þátturinn i skapferli Jórunnar er samúð sem einkum beinist að börnum og unglingum; húnerbarnavinur. Allur sá fjöldi fólks, sem á Jórunni að föður- eöa móðursystur, kallar hana Jóu frænku — og ég hygg að við segj- um flest ,,Jóa frænka min”. Við hana höfum við skrafað margt,og mörg eru þau barnalegu tilsvör og skritnu spurningar, sem hún hefur heyrt og riíjar upp á góöum stundum löngu siðar. Sögur hennar af atferli og viöbrögðum barna gætu oft verið leiðbeiningadæmi i upp- eldisfræðum svo nærfærnar eru þær. Þá koma i hugann minningar um heimsóknir til frænku i Geysi á Skólavörðu- stignum, þar sem Vestmanna- eyingur sá fyrst tækniundur vatnsveitunnar. Það var undur- samlegt að skoða vatnsbununa sem fossaði fram með afli, eða smáu dropana sem loddu viö kranastútinn,og svo var hægt að halda fingri fyrir stútinn og dreifa Framhald á bls. 27

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.