Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ►, ,JINN Hetgki 18.-1». ektéker ÍSM Paul Weber hefur verift iistamanna grimmastur við lækna. Hinn skinhelgi heitir þessi mynd hans. Flóttinn úr sjúkrahúsinu: Vanmáttur sjúklinganna og nýjar hættur Trúin á læknavísindin er á hröðu undanhaldi Á fimmta áratug og hinum sjötta var mikil bjartsýni rikjandi i læknaheiminum. Spá- dómar djarfir voru uppi hafðir: árið 1980 áttu flestir smitandi sjúk- dómar að vera úr sög- unni, viðgerðaþjónusta með liffæraskiptum átti að vera daglegt brauð, börn áttu ekki lengur að geta fæðst afskræmd, ellin yrði ekki lengur þjáning, lyf yrðu fundin upp sem dyggðu gegn krabba, gerviblóð (hvitt á lit!) var á dagskrá — blindir áttu að fá sýn. Meðalaldur átti að fara upp i hundrað ár. Og þeir sem svo mæltu voru alvörumenn — þeir sem leyföu sér að vera „óvísindalegir” voru enn djarfari og bjartsýnni i sinni áætlanagerð um vald læknanna og mátt. Vitanlega var þessi trú ekki reist á sandi. Næstu áratugi á undan höföu unnist margir merk- ir sigrar, ekki sist hafði tekist aö útrýma ýmsum smitandi sjúk- dómum, lækka barnadauöa stór- lega, skurölæknar gátu furðu margt sem áöur haföi veriö taliö óhugsandi og svo mætti lengi telja. En nú, tuttugu — þrjátiu árum siöar, er eins og sú alda vonbrigöa meö hugsanlegar og raunverulegar framfarir, sem nú um hríð hefur yfir okkur gengiö, hafi einnig skolast yfir lendur læknavisindanna. Og þá heyra menn bæöi innanhússmenn heil- brigöisstofnananna og svo • utanaðkomandi menn brýna breddur gagnrýninriar og beita þeim af hörku. Hver var árangurinn? Fyrir þessu eru ýmsar ástæöur: meöalannars sú, aö þótt margar vonir hafi vaknaö og til- raunastarfsemi veriö mjög öflug, þá hefur um aldarfjórðungsskeiö ekki tekist aö skeröa neitt aö ráöi þaö mikla vald sem krabbamein og svo hjarta- og æöasjúkdómar hafa á lifi og dauöa. En hér er um stærra mál aö ræöa en þessi helstu banamein. Menn hafa i vaxandi mæli fariö aö vekja athygli á þvi, aö lif manna hefur i raun og veru ekki lengst svo heitiö geti undanfama áratugi — og aö sá árangur sem náöst hefur i baráttu gegn smit- andi sjúkdómum þurfi ekki endi- lega aö rekjast til læknavisind- anna. Skoöum aöeins hvaö hér er átt viö. Þaö má lesa af skýrslum, aö i iönaöarlöndum hafi ævi manna lengst um helming eöa þar um bil siöan um aldamót. Þetta er rétt. Um 1900 gat hver Bandarikjamaður sem i heiminn kom búist viö þvi aö ná 47 ára aldri. Börn sem i sama landi fæöast 1980 geta búist viö þvi aö ná 73 ára aldri — hér er um 26ára vinning aö ræöa. Svipaöa mynd má sjá i öörum iönrikjum. • Fyrir skömmu trúðu menn á hraðar og skjótar framfarir i læknavísind- um. • Nú sameinast fulltrúar lækna og leikmanna um harða gagnrýni og endur- skoðun á árangri þeim sem læknavísindin hafa náð. i raun og veru hefur meðalævi þeirra sem ná fullorðninsaldri sáralitið lengst siðan um aldamót. • Almenn lífskjör hafa meiri áhrif á heilbrigði en afrek læknavísinda. • Er það satt að bætt heilsugæsla fjölgi sjúklingum og heilbrigður verði þá sá einn sem enn er ekki búið að rannsaka nógu vel? En þegar betur er aö gáö þá kemur i ljós, aö þegar um alda- mót gat sá Bandarikjamaður sem komst á fulloröinsár búist við þvi aö veröa 69 ára gamall. Meö öörum oröum: þrátt fyrir mikii tiðindi i læknavisindum haföi ekki tekist aö bæta nema fjórum árum viö meöalævi fulioröinna á átta áratugum. Af hverju bætt heilsufar? Þetta stafar af þvi, aö veru- legur árangur hefur náöst i baráttunni viö barnasjúkdóma, sem áöur tóku mikinn skatt af fólki. En aö ööru leyti, segir m.a. breski heilsufræöingurinn Thom- as McKeown, eru nútimalækna- visindi hreint ekki jafn áhrifarik og mönnum gæti virst. Og hann vill einnig telja, aö batnandi lifs- kjör, betra fæöi, húsnæöi, lokuö skolpræsi, betra mataræói hafi ekki haft minni þýðingu en ýmis- leg afrek lækna. McKeown hefur skoöaö dánar- skýrslur frá Englandi og Wales frá miöri siöustu öld. Hann kemst aö þeirri merku niöurstööu aö þá þegarhafidauösföllum af völdum kóleru, taugaveiki, berkla, skar- latssóttar og kighósta farið mjög fækkandi — löngu áöur en sótt- kveikjur þessara sjúkdóma fund- ust og lyf viö þeim. Taka má dæmi af berklum. Um 1840 dóu enn um 4000 manns á ári úr berkl- um i Englandi og Wales. Áriö 1882 þegar Robert Koch fann bérkla- sýkilinn haföi fórnarlömbum hvita dauðans fækkaö i 2000. Og þegar hiö áhrifamikla berkla- varnarlyí streptomycin loks kom á markað árið 1947 dóu i Stóra- Bretlandi af völdum berkla að- eins 400 manns á ári. Svipuö veröur útkoman þegar ýmsir aörir sjúkdðmar eru skoö- aöir — lyf gegn þeim hafa gert gagn, aö sjáifsögöu, en þau hafa yfirleitt ráöiö miklu minnu um þaö,en menn töldu,aö sjúkdómar væru kveönir niöur (undantekn- ingar eru hér á, t.d. eru þaö bólu- setningarherferöir gegn lömimar- veiki sem skipta sköpum i viður- eigninni viö þann sjúkdóm). Þaö eru batnandi lifskjör, og ekki sist bætt mataræði, einnig meira hreinlæti i borgum, sem, eins og fyrr segir, hefur ráöið mestu um bær framfarir sem oröiö hafa á heilsufari. Og einnig skal ekki gleymt framlagi ýmissa manna sem ekki voru læknar — eins og t.d. Frakkans Louis Pasteurs, sem var efna- og bakterfu- fræðingur, sem meö sinni „pasteuriseringu” lagði fram mjög mikinn skerf til þess aö stöðva smitun meö matvælum. Gliman við helstu banamein Og sem fyrr segir — nú beinist athygli manna i vaxandi mæli bæöi aö þvi hve hægt gengur glimunni viö nokkur helstu bana- mein mannkyns og sVo aö þvl, hve stórar sveiflur veröa á staö- hæfingum um t.d. krabbamein og hjartas júkdóma . Einn daginn beinast athygli,tilraunir og kenn- ingar um krabbamein einkum að veikleikum i ónæmiskerfi manns- ins. 1 annan tima er gifurleg áhersla lögö á leit aö grunsam- legum veirum. Enn síöar er lagöur fram listi yfir margvisleg efni i neysluvarningi og umhverfi sem eru talin krabbameins- valdar. Enn siðar eru rann- sóknaraöferöir á slikum efnum dregnar i efa: eins og þegar rottum er gefiö svo mikiö af koff- eini aö þaö mundi kannski svara til þess að manneskja drykki marga tugi bolla af bleksvörtu kaffi á dag. Um skeið er fituefni i blóöi, kholesterin, höfuöskaö- valdur og margarin (i staö smjörs) besta ráöiö gegn slíkri blóðfitu. Nokkru siðarer sú kenn- ing tætt i sundur af nýjum rann- sóknum og meira aö segja rakin saman grunsamleg hagsmuna- tengsli milli ýmissa lækna og margarinkónga. Menn telja sig i vaxandi mæli veröa vara viö firnalega ofnotkun lyfja: aö læknar gripi alltof oft til lyfseðils- ins bæöi vegna eigin ráöleysis og vegna þess aö sjúklingar sætta sig ekki viö minna en þá viður- kenningu á vanda þeirra sem felst i lyfjagjöf. Um leið og báöir aöilar hafa í raun nokkra vantrú á öllu þessu pillustússi; taliö er aö þriöjungur lyfja sem gefiö er resept fyrir sé aldrei brúkaður heldur hafni á ruslabingjum. Fyrirbyggjandi aðgerðir Allt i einu eru allir hlutir orönir vafasamir: hinar dýru rann- sóknir, rannsóknaaðferöirnar, lyfjameöferöin — rööin sýnist einnig komin aö bæöi fyrirbyggj- andi aðgerðum svonefndum og sjúkrahúsvistinni sjálfri. Fyrirbyggjandi aögerðir og skoöanir sem eiga aö koma auga á meinsemdir i tima hafa notiö mikils álits. En einnig á því sviöi eru menn farnir aö fjölga spurn- ingarmerkjum. Þegar mjög full- komin tæki hafa verið tekin i notkun sem kanna vefi likamans af mestu nákvæmni er sem munur á heilbrigðum og sjúkum hverfi: þaö er eitthvaö aö hjá öllum. Þaö kemur upp sú vafa- sama staöa, aö vitund fólks er stillt inn á sjúkdóm: sjúkdómar eru ekki undantekning heldur McKeown: Hoil fæða er iæknum betri. regla, heilbrigöur er sá einn sem hefur ekki veriö rannsakaöur nógu vel. í annan staö er spurt: til hvers aö uppgötva ýmsar teg- undir krabbameins, svo dæmi sé nefnt, þegar biötiminn eftir dauö- anum hefur ekki styst svo neinu nemi si'öastliðin 20—40 ár? Óþarfir uppskurðir Fyrirbyggjandi aðgeröir fela og I sér gifurlegan fjölda af upp- skuröum sem taldir eru hæpnir eöa óþarfir. Þvl er haldiö fram, aö á bandariskum sjúkrahúsum hafi á árinu 1977 einu saman veriö geröar tvær miljónir skurðað- gerðasem voru óþarfar eöa skaö- legar. Kostnaðurinn nam fjórum miljöröum dollara og þúsundir sjúklinga létu lifiö. Hér er um aö ræða bæöi óþarfa kirtlaskuröi, brottnám móöurlifs úr konum, sem i raun vildu aöeins ófrjó- semisaögerö, og ýmislegt fleira. Sjúkrahússýking Upp kemur sú þversögn, aö þvl betri sem heilsugæslan er,þeim mun fleiri veröa sjúklingarnir-, ,,þá mun aldrei skorta”. Og leiöir æ fleiri liggja á sjúkrahúsin — og þau eru aö ýmsu leyti háskasam- leg. Ekki aöeins vegna óþarfra skuröaögeröa sem fyrr var á minnst,heldur — og einkum — vegna þess, aö þar þrifst bakteriugróöur sem staöiö hefur af sér öll fúkkalyf, þar er hægt aö veröa sér út um sýkingu sem hvergi annarsstaöar er hægt aö fá. Vestur-þýska læknablaöið Selectatelur sig geta reiknað það út, að 250 þúsund sýkingar eigi sér stað á spitölum á ári á landinu og kosti 25.000 manns lifið. Sumt af þessari gagnrýni er tengt þvi, aö menn vilja koma meira eftirliti á útgjöld til lækna- visinda. En allmikiö aö henni beinist aö nokkrum grund- vallaratriöum, ekki sist þvi, aö læknirinn liti á manninn eins og einskonar vél sem hægt er aö skoöa I pörtum og gera viö hvern part. Hafi ekki nóga yfirsýn yfir heildina og yfir þá samfélagslega þætti sem hafa áhrif á hiö marg- brotna samspil ótal þátta sem brýtur niöur heilsu manna. (Byggtá Spiegel.—AB)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.