Þjóðviljinn - 21.10.1980, Qupperneq 5
ÞriOjudagur 21. október 1980. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5
Stjórnarkreppunni lokið á ítaliu:
Sósíalistaforinginn vill
smíða sér „þriðja affið”
Stjórnarkreppan
siðasta á italíu stóð ekki
lengi eða röskan hálfan
mánuð. Formanni Kristi-
legra demókrata,
Arnaldo Forlani, hefur
tekist að berja saman
nýja stjórn með sósíalist-
um, sósíaldemókrötum
og Lýðveldisf lokknum.
Hún stendur á ögn breið-
ari grundvelli en stjórn
Cossiga, þar voru sósíal-
demókratar ekki með.
Stjórn Cossiga féll viö at-
kvæOagreiöslu um efnahagstil-
lögur — 32 stjórnarliöar hlupu
undan merkjum. Nokkur
rimma hófst þá um þaö, hvaöan
liöhlaupararnir væru komnir.
Kristilegir demókratar sögöu,
aö þeir væru mestan part úr
vinstri armi sósialistaflokksins,
sem hefur oftast veriö andvigur
þvi aö sósialistar færu i stjórn
án kommúnista. Ráöherrar
sósialista voru hinsvegar ann-
arrar skoöunar: Manca viö-
skiptaráöherra hefur staöhæft,
aö liöhlauparnir væru úr vinstra
armi Kristilegra demókrata
sjálfra. En sá armur, sem lýtur
forystu Zaccagnini fyrrum
flokksritara og Andreottis, fyrr-
um forsætisráöherra, hefur full-
an hug á aö draga kommúnista
til einhverskonar stjórnar-
ábyrgöar. Hvort sem rétt væri
er þaö ljóst, aö þaö er afstaöan
til kommúnista sem felldi stjórn
Cossigas, en þeir höföu þá sýnt
styrk sinn m.a. meö stuöningi
viö mótmælaaögeröir hjá FIAT-
verksmiöjunum gegn uppsögn-
um 15 þúsunda verkamanna.
Uppsögnunum var frestaö.
Craxi formaöur sósialista og Berlinguer formaður Kommúnlsta-
flokksins hittust siöast i júli til aö ræöa sameiginlega afstööu til
Kristilegra demókrata. Nú sýnist Craxi hafa veöjaö á langvarandi
samstarf viö Kristilega...
Craxi hefur sitt fram
Stjórnarmyndun Forlanis
veröur einna helst túlkuö sem
sigur fyrir Bettino Craxi, leiö-
toga sósialista, og stefnu hans.
Hann hefur I stjórnarkreppunni
beitt fyrir sig ótta viö nýjar
kosningar stefnu sinni til
stuönings. Ef aö sósialistar og
sósialdemókratar neita aö
veröa meö i stjórn, sagöi Craxi
fyrir rúmri viku, þá þýöir þaö
nýjar kosningar. Núna hafa
vinstriflokkarnir ekki meiri-
hluta á þingi, þaö er enginn
möguleiki á stjórnarsamstarfi
milli Kristilegra demókrata og
kommúnista og þaö er ekki hægt
aö finna meirihluta fyrir stjórn
hægri- og miðjuafla. Það eru þvl
sósialistar og sóslaldemókratar
einir sem geta svaraö spurning-
unni um stjórnarmyndun.
I vetur leið héldu sósialistar
flokksþing og var stefna Craxis
þá samþykkt gegn vilja allstórs
minnihluta, sem vill sem nánast
samstarf viö kommúnista meö
s t j ó r n a r m y n d u n meö
kommúnistum fyrir augum. En
Craxi-armurinn hefur slðan
ráöið flestu I flokknum. Sóslal-
istar hafa lengi stjórnaö meö
kommúnistum I borga- og
héraöastjórnum I svonefndu
Rauöa belti I Italiu norðan-
veröri. En eftir héraösþinga-
kosningarnar I júnl hafa sósíal-
istar tekiö upp samstarf viö
Kristilega demókrata i ýmsum
héraösstjórnum á Suöur-ítalíu.
Kommúnistar hafa gagnrýnt
harðlega þessa stefnu, sem þeir
óttast aö muni, þegar lengra
sækir, stefna samstarfi vinstri
flokkanna I Rauöa beltinu I
hættu.
Kratabanda lag
Craxi steig nýtt skref til auk-
inna áhrifa meðan á stjórnar-
kreppunni stóö. Þeir Pietro
Longo, foringi Sósialdemókrata
(sem taldir eru jafnvel til hægri
viö miöju I Itölskum stjórnmál-
um) birtu sameiginlega skil-
mála fyrir þátttöku flokkanna
tveggja I rikisstjórn. En þar aö
auki lögöu flokksforingjarnir
fram langtlma áætlun um aö
flokkarnir tveir ætluðu aö vinna
að því aö koma upp „þriöja
valdinu” I Italskri pólitik. Þar
eiga aö koma saman flokkar
þeir, sem ekki eru kaþólskir og
teljast aö einhverju leyti
sósialiskrar ættar. Bæöi Lýö-
veldisflokkurinn og Róttæki
flokkurinn (sem hefur einbeitt
sér aö þjóöaratkvæöagreiðslum
um hjónaskilnaöi, fóstureyöing-
ar, jafnrétti og ýmisleg mann-
réttindamál önnur) eru hvattir
til aö slást I þessa fylkingu.
Milli tveggja risa
Þaö má ljóst þykja að hverju
Craxi stefnir. Hann vill færa sér
sem best I nyt þá útbreiddu
skoöun, að hvorki gangi né reki i
itölskum stjórnmálum vegna
þess aö tveir risar, kristilegir og
Frétta-
skýring
kommúnistar, sem samanlagt
hafa um 70% atkvæöa, geti ekki
unniö saman. Ef aö Craxi tekst
aö fylgja fram áformum sinum
gæti hann kannski smiðaö blökk
sem styddist viö um 20% at-
kvæöa (þótt menn kunni aö eiga
erfitt meö aö sjá t.d. utangarös-
fólkiö I Róttæka flokknum, sem
einatt gagnrýnir kommúnista
frá vinstri, samfylkja með hin-
um ihaldssömu sósialdemókröt-
um landsins). Blökk af þessu
tagi gæti siöan oröiö áfangi á
leiö Craxis i forsætisráöherra-
stól.
Viðbrögð hinna stóru
Hvorki kommúnistar né
kristilegir eru hrifnir af þeim
möguleika aö Craxi komist i
einskonar fastaaöstööu til aö
ráöa þvi hvernig stjórn er á Ita-
liu. Málgögn kommúnista hafa
óspart gagnrýnt foringja sósial-
ista fyrir aö kljúfa vinstrisam-
stööuna og styöja þar meö viö
bakið á afturhaldinu. Kommún-
istar halda þvi og fram, aö
Craxi ofmeti möguleika sina á
þvi aö ná pólitiskum árangri
með samstarfi viö hinn mak-
ráöa og um margt spillta valda-
flokk Italiu.
En sá flokkur, Kristiiegir
demókratar, er einnig áhyggju-
fullur. Kristilegir óttast aö
Craxi verði of sterkur ef aö
sósialistar og sósialdemókratar
koma inn i stjórnina meö sam-
eiginlegan málefnagrundvöll.
Kristilegir hafa a.m.k. ekki efni
á mjög áberandi sundurþykkju i
eigin rööum viö slikar aöstæöur.
En ágreiningsefni hafa flokks-
menn yfriö nóg: á flokksþingi i
vetur sigruðu hægrimenn þá
sem hafa mestan áhuga á eins-
konar stjórnarsamstarfi við
kommúnista, Zaccagnini,
Andreotti og þeirra liösmenn.
Sá armur gengur nú mjög treg-
ur til stjórnarsamstarfs og
krefst þess aö minnsta kosti, að
fariö sé aö öllu meö varúö i um-
gengni viö kommúnista. Aö visu
ekki af umhyggju fyrir flokki
Berlinguers — heldur meö þaö
fyrir augum, aö harösnúin af-
staöa til þess sem kommúnistar
hafa fram aö færa geri þeim
ekki of auövelt aö safna vin-
sældum á stjórnarandstööu
sinni.
áb.
Háttsettur norskur herforingi:
Bandaríkin hafa full-
nýtt yfirsjónakvótann
Per Hansen ofursti,
næstæðsti yfirmaður
norska hersins í Norður-
Noregi, hefur valdið miklu
fjaðrafoki í yfirstjórn
hersins með því að bera
fram opinberlega
gagnrýni á áform stjórn-
arinnar norsku um að
koma upp í Noregi banda-
riskum vopnabúrum á
friðartímum. Hann segir
einnig, að Bandaríkja-
menn haf i gert svo margar
alvarlegar skyssur að
undanförnu, að þeir hafi
fullnýtt sér sinn yfirsjóna-
kvóta eins og ofurstinn
orðar það.
Per Hansen er næstæöstur yfir-
manna norska hersins á sovésku
landamærunum, m.ö.o. á þýð-
ingarmesta varnarsvæöi Noregs
og þykja orö hans þvi vera nokk-
uö þung á metaskálum. Ofurstinn
viörar skoöanir sinar I hermála-
timaritinu Forsvarets forum.
Ritstjóri þess lofar Per Hansen
fyrir áræöni og leggur áherslu á
aö i lýöræðisrlki veröi skoðanir aö
fá aö koma fram.
Á þaö má hinsvegar benda, að
norskir liösforingjar sem hafa
látiö sér eitthvaö óþægilegt um
munn fara, hafa verið lækkaðir I
tign eöa fjarlægöir úr hernum i
kyrrþey. Til dæmis Hellebust
major, sem i magistersritgerð
sinni kom upp um það, aö Noreg-
ur heföi án vitundar Stórþingsins
veriö tengdur kjarnorkukafbáta-
flota Bandarikjanna meö sigl-
ingakerfinu Loran C,semteygöi
sig bæöi til Vestur-Noregs og Jan
Mayen. Hellebust haföi starfaö i
njósnadeild norska hersins. Hann
er nú kennari viö blaðamanna-
skólann norska.
Meiri spenna
I viðtali viö fyrrgreint timarit,
Forsvarets forum, segir Per Han-
sen, aö „uppsöfnun bandariskra
hergagna geti aukiö á spennu i
okkar hluta heims”. Hann kveöst
skilja áhyggjur sem menn hafi af
þessu og aö mörgum finnist aö
vopnabúr þessi á friðartlmum sé
liöur I stigmögnun vigbúnaöar.
Sverre Hamre hershöföingi
hefur látið i ljósi undrun yfir
þessum viöhorfum og kveöst
þeim aö öllu ósammála.
Per Hansen segir i viötalinu, að
þaö hafi alitaf þótt viö hæfi hjá
norskum liösforingjum aö þeir
skyldu vera jákvæöir I garö
Bandarikjanna og láta I ljós
óánægju meö framlög til varnar-
mála, sem frá þeirra sjónarhóli
voru alltaf of lág.
Hann telur upp ýmsar yfirsjón-
ir Bandarikjamanna á seinni ár-
um, misheppnaöa innrás á Kúbu
1961, Víetnamstriðiö, misheppn-
aða tilraun til aö bjarga gislunum
I Iran osfrv. „Bandarikin hafa
eytt sinum yfirsjónakvóta,” segir
hann, ,,og verða aö sýna betri
hæfni I hermálum”.
Hann býst ekki viö þvi aö
Noregur veröi fyrir einhliöa árás,
en ef til þess kæmi væri þaö liöur i
stórveldaátökum. Per Hansen
segir að timi sé til þess kominn aö
Norömenn fari sér meö ögn meiri
gát en hingaö til i vigbúnaöar-
málum. (Information)
LAUS STAÐA
Staða fulltrúa við embætti skattstjóra
Vesturlandsumdæmis, Akranesi, er laus
til umsóknar frá og með 1. desember n.k.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist skattstjóra Vestur-
landsumdæmis, Akurbraut 13, Akranesi,
fyrir 20. nóvember n.k.
Fjármálaráðuneytið, 17. október 1980.
Auglýsingar
í simaskrá 1981
Athygli skal vakin á þvi að simnotendur,
sem auglýstu i simaskrá 1980, hafa for-
gang aðeins til 1. nóvember 1980 að sam-
bærilegri staðfestingu fyrir auglýsingar
sinar i simaskrá 1981.
Nánari upplýsingar i sima 29140
Simaskrá — Auglýsingar
Pósthólf 311- 121 Reykjavik