Þjóðviljinn - 22.10.1980, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 22.10.1980, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 22. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 iþróttir (2 íþróttirg) íþróttir Körfubolti hjá fötluöum Fyrir nokkru gekk hinn kunni körfuboltafrömuður Sigurður Már Helgason á fund forystumanna tþróttasam- bands Fatlaðra og bauð fram aðstoð sina við að koma á æf- ingum i körfuknattleik fyrir fatlað iþróttáfólk i hjóla- stolum. Boð þetta var þegið með þökkum og nýverið hófust þessar æfingar. Körfuknattleikur er mjög vinsæll meðal fatlaðra i hjóla- stólum og fékk landinn smjör- þefinn af keppni i greininni á olympiuleikum fatlaðra sem fram fóru i Hollandi fyrr i sumar. — IngH tslenska iandsliðið sem keppir á Norðurlandamótinu í handbolta, ásamt þjálfaranum, Hilmari Björns- syni. A myndinna vantar reyndar Þorberg Aðalsteinsson og ViggóSigurðsson. Mynd :-eik- Þau voru glæsileg tilþrifin hjá Þóri Magnússyni, Valsmanni I leiknum I gærkvöldi, en þau dugðu Valsamt ekki tilsigurs. — Mynd: — eik. ÍR sigraði Val eftir framlengingu „Við eígum sömu mögulelka og aðrir á sigri” — segir þjálfari handboltaliðsins, Hilmar Björnsson IR sigraði Val i gærkvöldi i úr- valsdeildinni i körfubolta eftir ailsögulegan leik. Framlcngja þurftiog skoruðu IR-ingarnir sig- urkörfuna á siðustu sek. leiksins, 87-84. Valur hafði undirtökin i byrjun, 3-0 en siðan seig IR framúr og hafði 4 stig yfir i hálfleik, 40-36. Valsmönnum tókst að jafna um miöbik seinni hálfleiks, og komast yfir, 64-50. Með harðfylgi höfðu ÍR-ingarnir það af aö jafna fyrir leikslok, 78-78. Reyndar skoraði Torfi með glæsilegu skoti frá miðju, en dómarar sögðu að leiktiminn hefði verið búinn þegar skot Torfa reiö af. Valur komst i 84-80 i framleng- ingunni, IR jafnaöi 84-84 og 30 sek. til leiksloka. Þegar 1—2 sek. voru eftir tókst Guðmundi IR-ingi Guðmundssyni að hnoða boltan- um I körfuna og fá vitaskot að auki, 87-84. Nú vorumargir Vals- menn á þvi að leiktiminn hafi ver- ið liðinn þegar Guðmundur skaut. Rikharður skoraði 20 stig fyrir Val, og Jon 18, en hann var lang- besti leikmaður liðsins i gærkvöldi. Andy skoraði mest i liöi IR eða 36 stig og átti hann mjög góðan leik, rólegur og öruggur leikmaður. — IngH NM unglinga hér á landi Norðurlandamót unglinga i körfuknattleik (Polar Cup) verður haldið hér á landi 9. til 11. janúar nk. Strákarnir i islenska liðinu hafa æft markvisst fyrir þetta mót I ár og ætla þeir sér stóran hlut þar. — IngH Það er talsverður spenningur i kringum landsliðið okkar í hand- bolta þessa dagana. Liðið hélt i morgun áleiðis til Hamar i Noregi, hvar Norðurlandamótið fer fram næstu daga Nýr þjálfari, Hilmar Björnsson, fær þarna sina eidskirn með liðið að þessu sinni og innanborðs hefur hann gæfulegri blöndu ungra og efnilegra stráka og gamalla jaxia en verið he-'ur I landsliðinu um árabil. Hilmar þjálfaði landslið fyrir nokkrum árum með góðum árangri. Þjv. bað hann um að bera saman liðið sem hann fer nú með á NM-mótið og liðið sem hann þjálíaði fyrrum. „Munurinn er ennþá einkum fólginn i að þá hafði ég heilsteypt lið.enidager ég með hóp af mjög góðum ein- staklingum, sem e.t.v. mynda gott lið siðar meir. Hilmar sagði ennfremur að nú væri tvimælalaust stefnt að góðum árangri. „Við förum i hvern leik með það að markmiði að sigra, en þvi ræður nú fleira en ásetningur okkar.” tslenska liðið ætti sama möguleika á sigri á mótinu og hin liðin, á þvi væri enginn vafi. „I byrjun mótsins má segja aö staðan sé 0-0,” bætti Hilmar landsliðsþjálfari við. Tveir nýliðar verða með liðinu á mótinu,Pétur Hjálmarsson, KR og Páll Ölafsson, Þrótti. Reyndar Líflegt hjá KKÍ Starfsemi Körfuknattleikssam- bandsins það starfsár scm nú er að hefjast verður væntanlega hin fjölbreyttasta i tuttugu ára sögu KKÍ. Það er skoðun stjórnar sam- bandsins að nú séu i fyrsta sinn af þess hálfu sýndir tilburðir til að sinna öllum þeim málefnum sem nauðsynlegt eru i iþróttasam- bandi sem vill standa undir nafni. I ár mun KKI leggja nokkra áherslu á skólaiþróttir og al- menningsiþróttir. Grunnskóla- mót, Framhaldsskólamót og „Firmakeppni” verða haldin i vetur auk þess að minniboltamót eru opin fyrir skólalið. Sex félög sem ekki tóku þátt i Islandsmóti i fyrra senda flokka til keppni i vetur. Þetta endur- speglar á vissan hátt aukna út- breiðslu körfuknattleiks. má kalla Alfreð Gislason, Sigurð Sveinsson og Gunnar Lúðviksson einnig nýliða, þeir hafa einungis leikið örfáa landsleiki hver. Annað kvöld leikur landinn gegn Svium og má þar búast við llanska körfuboltaliðið Stevns- gade lék fyrir skömmu gegn austurrisku meisturunum UBSC Vin f Evrópukeppni meistaraliða. Austurrikismennirnir sigruðu með 57 stiga mun, 59-116. Það er svolitið gaman að skoða þessi úrslit með tilliti til leikja Valsmanna gegn júgóslavneska liðinu Cibona Zagreb i siðustu viku. Valur tapaöi fyrri leiknum með 31 stigs mun, 79-110 (ekki 72 hörkuviðureign. A föstudaginn er leikið gegn Færeyingum. Við, handboltaáhugamenn á Klakan- um sendum strákunum baráttu- kveðjur. eins og stóð i Þjv.) og seinni leiknum með 34 stiga mun-, 90-124. Núhafa islenskir körfuboltamenn hingað til álitið sig á svipuðu getustigi og Danir etv. örlitið framar. Hins vegar er júgóslavn- eskur körfubolti mun betri en austurriskur, á þvi er enginn vafi. Sé þetta tekið með i reikninginn má segja sem svo, að frammi- staða Vals hafi verið ágætlega viðunandi ekki satt? — IngH — IngH. I Spennandi verkefni I islenska landsliðinu scm keppir á Norðurlandamótinu eru nokkrir nýliðar, sem aldrei áður hafa tekið þátt i stóru móti eða „turneringu”, eins og NM myndi kallast á máli handboltamanna. I þeirn hópi er markvörðurinn Pétur Hjálmarsson. Eins eru I hópnum nú kappar, sem hafa staðið i fremstu viglinu fyrir Island um ftrabil. Þeirra á mcðal er markvörðurinn Ólafur Benediktsson, sem hefur leikið rétt innanvið 100 landsleiki. „Gaman að fá þetta tækifæri „Bjartsýnn á góðan árangur” Gaman.... Bjartsýnn.... L „Það er virkilega gaman að fá tækifæri til þess að æfa og e.t.v. keppa meö landsliðinu, þetta er allt mun erfiðara en hjá minu félagsliði. Til dæmis höfum við markmennirnir fengið margar og góðar séræf- ingar,” sagði Pétur Hjálmarsson. „Maður hefur náttúrulega enga reynslu á stórmóti eins og Norðurlandamótinu og það verður bara að ráðast hvernig til tekst og hvort mér tekst að halda stöðunni i landsliðinu. Vissulega er þetta alltsaman nýtt og spennandi.” „Mér list mjög vel á lands- liðshópinn núna. Þetta eru allt friskir og skemmtilegir strákar og andinn i hópnum er sérstaklega góður,” sagði Ólafur Benediktsson. „Eg er bjartsýnn á góðan árangur hjá okkur i vetur, það er engin ástæða til annars. Markaskorunin er ekkert vandamál, það sem skiptir höfuðmáli er hvernig varnar- leikurinn tekst. Hann er númer eitt og i kjölfarið á góðum varnarleik kemur góð markvarsla. Nú, Hilli hefur góð tök á mannskapnum og er manna liklegastur til þess áð ná frambærilegum árangri.” J Danskuriim steinlá

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.