Þjóðviljinn - 08.11.1980, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 08.11.1980, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.—9. nóvember 1980 Umsjon: Leifur Þorarinsson Stjömuglópur og nævisti tónbálkur Kjarvals- músik Það var létt yfir kammertón- leikum sem nokkrar ungar manneskjur voru meö á Kjar- valsstööum s.l. mánudag. Þetta voru Bernard Wilkinson flauta, Marfa Vericonte fiöla, Stephen King viola og Guörún Siguröar- dóttir sem lék á selló. Þau voru m.a. meö tvo bráöfallega flautukvartetta eftir Mozart, sem leiöinlegt heföi veriö aö missa af. Ég ætla ekki aö halda þvi fram aö þarna hafi veriö neinir stórvirtúósar á ferö. Þetta voru látlausir og elskulegir tónleikar, svolitiö raunar viövaningslegir, og þaö geröi ekkert til. Aheyr- endur, sem voru margir og ung- ir, voru jákvæöir i meira lagi og myndarlegir. Líklega passar hvað sem er á efnisskrá með Saint SaBns; það er eitt- hvað af Beethoven, Mendelsohn, Berlioz og Liszt í honum, og jafnvel Mozart líka. Hann skrif- aði sannarlega skrítna mixtúru af öllu mögu- legu, kallinn sá. Þriöja sinfónian hans i c- moll er engin undantekning frá þessu, en þaö undarlega er, aö hún virkar þrátt fyrir allt, heilsteypt og sterk, og merki- lega saklaus i sér. Var hann ekki stjörnuglópur og nævisti, þrátt fyrir alla tæknina, bless- aöur? Stjörnuglópur og stærö- fræöingur segja lexikonistarnir minir, og einn óskapar fræöing- ur á tónlistarsviöinu, fyrir utan aö vera orgel- og pianó- virtúós. C moll sinfónlan hljómaöi alveg ágætlega hjá þeim Jacquillat og S.Í., þrátt fyrir strengjafæö og allskonar fæö og japanskt rafmagnsorgel i staö- inn fyrir þúsund franskar pipur. Þetta var á siöustu sinfóniu- tónleikum i Háskólabiói, á fimmtudagskvöldiö var. Húsiö var þéttingsfullt og góö stemmning strax í upphafi, þeg- ar leikinn var léttilega tyrkja- forleikur eftir Mozart, þ.e. „Brottnámiö úr kvennabúrinu” Manúela meö sinfóniunni: heillaöi uppúr skónum. meö hlemmum og öllu. Svo kom Manuela Wiesler meö flautukonsertinn I G dúr eftir Mozart, en hún var nýbúin aö brillera meö hann I Kaup- mannahöfn (þar sem hún tók þátt i „biennalnum fyrir unga tónlistarmenn” ásamt Einari klarinettista Jóhannessyni sem lika brilleraöi), svo hanni varö ekki skotaskuld aö heilla viö- stadda hér upp úr skónum, þvi þab sem er gott I Danmörku, hlýtur aö vera algott, segja gömul fræöi. Látum annars danskinn liggja milli hluta, þvi hvaö sem hver segir, út og suöur, voru þær sannarlega i essinu slnu. Manúela og flautan, þetta var bláttáfram töfrandi einleikur, syngjandi og náttúrulegur og fleytifullur af undarlegum blæ- brigöum. Eiginlega dálitiö dul- arfullum tiltektum og persónu- legum. Ef hljómsveitin heföi ekki veriö I jaröbundnara lagi, veit ég eiginlega ekki hvar þetta heföi endaö. Þaö veröur ekki annab um þessa tónleika sagt, en aö þeir lofa sannarlega góöu. Hljóm- sveitin hefur ekki leikiö meö meira lifandi áhuga i langa tiö og þaö veröur fróölegt aö heyra endurfundina þegar Jacquillat kemur aftur eftir jólafriiö sitt, sem raunar mun standa fram i febrúar. Óperusviö Haydns, þegar hann var „barinn af Esterhasiættinni þar sem hann var vinnumaöur I þrjátiu ár”. Gjöf aldarinnar Það er öllum (eða hérumbil öllum) músik- unnendum feikna gleði- ef ni/ að loks virðist von til að eitthvert skrið komist á varanlega óperustarf- semi í landinu. Föstu- daginn 3. október s.l. var nefnilega haldinn stofn- fundur islensku óper- unnar, og voru þar mættir margir af okkar færustu söngkröftum /,svo og örfáir aðrir áhugamenn" eins og segir i fréttabréfi frá samkomunni. Aö visu var þessi félags- skapur til áöur, átti sér aö minnsta kosti nafnnúmer, frá þvi aö áhugamenn um óperu- flutning bundust samtökum um aö flytja Palliacci hér um áriö. Af einhverjum ástæöum lá formleg staöfesting á þeirri stofnun i geymslu i þó nokkurn tima, og voru menn raunar farnir aö vona aö máliö heföi „dagaö uppi i nefnd” einsog nú er i tisku. En svo hvisast um „gjöf aldarinnar”, og hugöu sér þá margir gott til glóöarinnar, sem von er. Þarf ekki aö orö- lengja aö fyrir einstakt snar- ræbi Garbars Cortes og fleiri góöra manná, er íslenska óperan nú oröin næstum milj- aröi rikari (átti raunar minna en ekki neitt áöur) og einsog lög gera ráö fyrir, skal honum variö til aö koma þaki yfir fyrirtækiö. Viö skulum ætla, aö menn viti hvaö „gjöf aldarinnar” er, og þó, þaö er engu aö treysta, og þvi skal áréttaö ab hún er hluti fjármuna þeirra sem heiöurs- hjónin Helga Jónsdóttir og Sigurliöi Kristjánsson kaupmaöur geymdu fyrir þjóöina i nokkra áratugi af mikilli kostgæfni. Ekki er aö vita hvaöa hús veröur fyrir valinu, sumir eru ab vona aö þaö veröi Gamla Bió, þvi þar ku „hljóma” betur en i nokkrum öörum staö I höfuö- borginni. Enginn veit heldur hver veröa fyrstu verkefni stofnunarinnar á sjálfu leiksviö- inu, enda úr minnst 40.000 verk- efnum aö velja, sumir segja 45.000. En þetta á allt eftir aö koma i ljós, og blessast i bak og fyrir. Kammersveitin rennur af stað A sunnudaginn kemur kl. 20.30 hefur Kammersveit Reykjavikur sjöunda starfsár sitt, meö tónleikum i Bústaöa- kirkju. A efnisskránni eru tveir konsertar eftir Vivaldi og fvær kantötur eftir HSndel. I konsert- inum er sólóhlutverk fyrir blokkfiautu, og ber nú vei i veiði, þvi hér er nýsest aö ung og bráösnjöil blokkflautu-leik- kona, Camilla Söderberg, og veröur hún einieikari. Ólöf Kolbrún Haröardóttir óperusöngkona veröur meö sönghlutverkin i Kantötum Handels, en þær eru samdar á Italiu, þegar Handel var rúm- lega tvitugur, og eru fullar meö æskufjör, glens og gaman. Aörir sem fram koma á þess- • um tónleikum eru Helga Ingólfsdóttir semballeikari, Rut Ingólfsdóttir fiölúleikari, Jón Sigurbjörnsson flautuleikari, Pétur Þorvaldsson sellóleikari, Kristján Stephensen óbóleikari, Siguröur Markússon fagottleik- ari og Laufey Siguröardóttir fiöluleikari. Kammersveitin boöar þrenna tónleika aö auki. seinna I vetur og veröa þeir næstu lika I Bú- staöakirkju sunnudaginn 7. desember, þá veröur einnig flutt Æfing á gamanmálum Handels barrokkmúsik, konsertar eftir Paul Zukovsky mun stjórna Lunaire eftir Schönberg i Iönó Bach, Relmann og Corelli. endurflutningi á Pierrot 26. janúar, þar sem Rut Magnússon flytur hinn magn- aöa „talsöng” er vakti mikla athygli og hrifningu á siöustu listahátiö. Þarna veröur einnig fluttur klarinettkvintettinn eftir Brahms. Siöustu tónleikar Kammer- sveitarinnar þessa „seson” veröa svo i lok mars, og þá veröa loks tvö islensk tónverk á efnisskránni, nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson og sex sönglög viö ljóö Stefáns Haröar Grimssonar, eftir Hjálmar Ragnarsson frá Isafiröi. Eins og menn geta séö á þess- ari upptalningu er hér um vand- aöa og býsna spennandi tónleika aö ræöa, og ættu músikunnend- ur aö láta sér annt um aö missa ekki af neinum þeirra, i þaö minnsta ekki fyrr en i fulla hnefana. Þetta er lika tiltölu- lega ódýr skemmtun, þaö kostar ekki nema kr. 3000 fyrir mann- inn I hvert sinn, og svo er lika. hægt aö gerast áskrifandi meö þvi aö borga kr. 6000 fyrir alla seriuna. Og samt er þetta, eftir sem best veröur vitab, óniöur- greitt meö öllu úr opinberum sjóöum. Hér er semsagt um áhugastarf nokkurra okkar bestu hljóöfæraleikara aö ræöa, og erum viö nokkuö ofgóö aö gefa þvi gaum?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.