Þjóðviljinn - 08.11.1980, Blaðsíða 23
HBlgin' 8,—9'. nóvember 1980' Wó'ÐViLÍÍNN £- SiÐA' '■
Einhverntimann I desember
byrja þeir Viktor Kortsnoj og
Robert Hiibner lokahrinuna í
Askorendaeinvigunum, en sem
kunnugt er þá ákveöur einvigi
þeirra hvor hljóti réttinn til aö
skora á heimsmeistarann Ana-
toly Karpov. Langflestir spá
öruggum sigri Kortsnojs i þessu
einvigi en sá sem þessar linur
skrifar er ekki jafn viss. Þaö þarf
auövitaö engum blööum um þaö
ab fletta að skákstill Kortsnojs er
munstærri I sniöum, spannar yfir
meira en þrjátiuár og afrek hans
mörg hver stórglæsileg. Hann
hefur ávallt sýnt mikiö baráttu-
þrek i einvigum þessum og virö-
istþvifær i'flestan sjó. Þegarlitiö
er yfir skákferil Hflbners veröur
Kortsnoj
Hiíbner
Kortsnoj eða Hiibner?
ekki hjá þvi komist aö staönæm-
ast viö eitt athyglisvert atriöi,
þaö hversu litiö hann hefur_teflt,
þ.e. fáarskákir en góöar! Hubner
vaktifyrst verulega athygliþegar
hann rétt riímlega tvitugur vann
sér sæti i Askorendakeppninni á
millisvæöamótinu á Mallorca
1970. Fischer sigraöi i þessu móti
meö gifurlegum yfirburöum en
Hiibner var nær allan timann i 2.
sæti en varö aö lokum aö deila þvi
meö Larsen og Geller. Æ siöan
hefur Hflbner sést svona af og til
viö skákboröiö en langtum
sjaldnar en kollegar hans I hópi
fremstu skákmanna heims. Meö-
fram skákinni hefur hann lagt
stund á nám i Papyrusfræöum og
hefur öölast doktorsnafnbót i
þeirri grein. Þá kann hann ara-
grúa af tungumálum og viröist
hafa lag á aö grafa upp mál sem
aö sem minnstu gagni mega
koma og ég þvi miöur kann ekki
öllaö nefna meö óyggjandi vissu.
Þaö sem einkum hefur staöiö
HUbner fyrir þrifum er slæleg
byrjanaþekking og oftsinnis hefur
hann veriö rækilega tekinn I gegn
á þvi sviöi. Ýmsir góöir menn
hafa rétt honum hjálparhönd á
þvi sviöi uppá siökastið. Guö-
mundur Sigurjónsson hefur veriö
aöstoöarmaöur hans allt frá
millisvæöamótinu i Rio De
Janeiro og hefur greinilega ekki
haft svo afleit áhrif á kappann.
Þá er Hort dyggur stuöningsmab-
ur, og teóri'ulexikon á borö viö
Timman og Kavalek hafa einnig
veitt honum ymsar mikilsveröar
upplýsingar. 1 einvi'ginu viö
Portisch tefldi HObner byrjanirn-
ar yfirhöfuö vel og I erfiðum stöö-
um tefldi hann betur en gengur og
gerist. Þá virtist hann laginn á aö
hrella Portisch I timahraki og sá
eiginleiki gæti reynst Kortsnoj
skeinuhættur sem, eins og allir
vita, er svo gott sem króniskur
timahrakssjúklíngur. Einvigi
þeirra hefur öll tök á aö veröa æöi
spennandi og eftir fréttum aö
dæma viröist sem Kortsnoj hafi
þegar byrjaö sinn þekkta sál-
fræöilega smáskæruhernað og
má búast viö aö HUbner sé þegar
kominn I hóp óvina hans,en hann
er oröinn bæöi stór og mikill aö
vöxtum.
En hvaö koma þessir menn til
meö aö gera ef til einvigis viö
Karpov kemur? Kortsnoj er svo
sannarlega til alls vis, og benda
má á aö Karpov hefur upp á síð-
kastiöekkisýntnándarnærri eins
mikib öryggi og menn hafa átt aö
venjast, hvaö sem veldur. Hvaö
möguleika Htlbners áhrærir þá
viröast þeir i fljötu bragöi ekki
miklir, þvi Karpov hefur löngum
haft á honum mikið steinbitstak
sem getur hæglega reynst sál-
fræðilega yfirþyrmandiþegar út
I einvigi er komiö. En fyrri viður-
eignir geta hæglega gleymst þeg-
ar komiöer út I einvigi um heims-
meistaratitilinn;þar er skemmst
aö minnast einvigis Fischers og
Spasskis sumariö 1972. Fyrir þá
viöureign stóöu leikar 4:1
Spasskí i hag og þegar fariö er
enn lengra aftur i timann má
minnasteinvigis Aljékin og Capa-
blanca sem mörgum fannst. fyrir-
fram einungis formsatriöi aö
ljúka, svo öruggur þótti sigur
Kúbumannsins. Aljékin vann
örugglega og hélt titlinum svo til
sleitulaust allt til dauöadags (Þó
skjóta megi þvi inni aö hann gaf
Capa aldrei kost á ööru einvigi og
hefur þaö löngum þótt minningu
hans til litils sóma). Einvigin i
dag eru meö allt ööru sniöi en þá
gerðist. Ariö 1927 þegar Aljékin
og Capa tefldu, undirbjó Capa-
blanca sig nánast ekkert undir
einvi'giö, tók einungis meö sér
tennisspaöa til Argentinu, þar
sem einvigiö fór fram, og treysti
á hæfileikana, sem I fyrsta sinn
brugðust honum. Nú eru menn
mánuöum saman i æfingabúöum
meö fjöldann allan af hjálpar-
kokkum allt frá kokki niðuri dul-
sálfræöing með grimmúðlegt
augnaráö.
Til aö klykkja út kemur hér ein
skák frá Interpolismótinu i
Hollandi á dögunum. Þar eigast
viö Karpov heimsmeistari og
hugsanlega andstæðingur hans i
komandi einvigi um titilinn,
Robert Hflbner:
Vináttufélag
s
Islands og Kúbu
Aðalfundur
verður haldinn laugardaginn 8. nóvember
kl. 14 i Sóknarsalnum, Freyjugötu 27.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Brynjar Brjánsson segir frá ferðalagi
um Mið-Ameriku i sumar og sýnir
myndir þaðan.
3. Sagtfrá væntanlegri vinnuferð til Kúbu.
4. önnur mál.
Stjórn VíK
Hvitt: Karpov
Svart: Híibner
GrUnfeld-vörn
1. d4-Rf6
2. c4-g6
3. Rc3-d5
4. cxd5-Rxd5
5. e4-Rxc3
6. bxc3-Bg7
7. Rf3-c5
8. Be3
(TiSKuafbrigöiö I dag gegn Grfln-
feldvörn. Þaö er athyglisvert aö
skákin fetar nú i fótspor einnar af
skákum Hubners og Adorjan i
einvigi þeirra fyrr I ár. Hubner
hafði hvitt og gaf Adorjan ekki
aftur kos1. á aö beita Grtinfelds-
vörn)
8 pa5 11. cxd4-Dxd2 +
9. Dd2-0-0 12- Rxd2
10. Hcl-cxd4
(Einnig er leikið 12. Kxd2. Gegn
þeim leik er hægt að skapa þrýst-
ing á miöboröi hvits meö leikjum
eins og, — Hd8,-e6 og -f5.)
12. ,. e6 17. Bb5-Rd7
13. Rb3-Hd8 18. 0-0-Rf6
14. Bg5-f6 19. Bg5-Bd7
15. Be3-f5 20. Bc4-b6
16. exf5-gxf5 21. Rd2-He8
(Eins og oft i skákum Karpovs er
þróun atburðarásarinnar ákaf-
lega hæg og rétt eins og hann biöi
eftir mistökum andstæöingsins.
Þaö er ekki auðvelt aö standa I
þvi aö skýra næstu leiki; menn
ættu fyrst og fremst aö veita at-
hygli liösuppstillingu hvits.)
22. Rf3-Bc6 26. Bf4-Bf8
23. Re5-Bd5 27. f3-Rf6
24. Bb5-Hec8 28. Bg5-Kg7
25. a4-Re4 29. Ba6!
(Tryggir yfirráðin yfir c-linunni.)
29. .. Hxcl
30. Hxcl-Bd6
31. Rc4-Bb4
32. Re3-He8
33. Bb5-Hf8
34. Bf4-Kg6
35. Kf2
(Það er einkar athyglisvert
hvernig Karpov smátt og smátt
stækkar „landhelgi sina”. Allir
leikir hans miöa aö þvi aö bæta
virkni mannanna og setja svört-
um eins þröng skilyrði og mögu-
legt er. Fyrsta reitarööin skiptir
nú ekki máli; brátt skiptir önnur
reitaröðin heldur ekki máli, og
þannig þrengist smátt og smátt
um svartan.)
35. .. Bb7 43. Ba2-Bxc4
36. Hc7-Hf7 44. Bxc4-h5
37. Hc2-Hf8
38. Bc4-He8
39. Bb3-He7
40. h4-h6
41. g3-Ba3
42. Rc4-Bd5
45. Bb 3-Kf7
46. Hc 6-Bb2
47. Ke3-Rd5+
48. Bxd5-exd5
49. Be5-He6
50. Hc7+!
(Þaö skiptir meginmáli aö svarti
hrókurinn sé á e7.)
50. .. He7
51. Hc2!-Ba3
52. Kf4
(Með hrókinn á e6 gæti svartur
leikiö 52. — Kg6. Nú fellur peð og
þá er eftirleikurinn auöveldur.)
52. .. a6 56. g4-Kd7
53. Kxf5-b5 57. gxh5-Hf7 +
54. Hc6-b4 58. Kg4
55. Hb6!-Ke8
— Svartur gafst upp.
Orvalið af stökum teppum og mottum er hvergi
meira.
^Viðeigum jafnan fyrirliggjandi, úrvals vörur á
hagstæðu veröi
m.a. frá: Indlandi, Kina, Belgiu, Spáni og
Tékkóslóvakiu.
1 Jafnframt kókosmottur i ýmsum stærðum.
Opið
föstudaga frá kl. 9—19
laugardaga frá kl. 9 — 12
Jón Loftsson hf.
ú J L 'i'-1 Lll J ' ]Ll
_z .juuuaj ,
-...UP4
Hringbraut 121 Sími 10600
c^g^mottur
og
teppi
Lofta-
plötur
og lím
Nýkomin
sending
' í '•. • v ■■;.>
l > .•/
\ :I
i 'v/
■f
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 16 sími 38640