Þjóðviljinn - 05.12.1980, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 05.12.1980, Qupperneq 15
Föstudagur 5. desember 1980 ÞJÓDVILJINN — StÐA 15 frá Hringið í sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum, lesendum Úr sýningu Leikfélags Hornafjarðar á „Landkröbbuni”. Góðir gestir að austan Heimsókn Leikfélags Hornafjarðar til Kópavogs, föstudag 28. nóvember 1980 Það var góð hressing að bregða sér á miðnætursýningu suður i Kópavogsbió og sjá leik- flokk austan frá Hornafirði, rúmlega 20 manna lið (jafnt af hvoru kyni) flytja söngleikinn „Landkrabba” eftir Hilmar J. Hauksson'liffræðing, undir leik- stjórn Ingunnar Jensdóttur ballettdansara, leikara og leik- stjóra og er þetta þriðja leik- stjórnarverkefni hennar þar á staðnum. Leikritið fjallar um viðleitni starfsstúlkna i frystihúsi til að halda rétti sinum og um baráttu þeirra fyrir bættum aðbúnaði og aðbúð á vinnustað. Skemmtilegt var að sjá hvað leikendur og búnaður þeirra féll vel að þeim persónum og um- hverfi sem hér var verið að túlka, og greinilegt að flestir, ef ekki allir, sem þarna komu fram, eru vel að sér um aðal- undirstöðuatvinnuveg þjóðar- innar og hafa unnið störfin eigin höndum. Sviðsmynd og búningaval Ingunnar gaf alveg réttu mynd- ina að minum dómi. Sýningin bar það öll með sér að hér hefði verið vel og kunnáttusamlega að verki staðið, gott dæmi um það hverju góður þjálfari fær áorkað, þótt leikendur hafi ekki mikla þjálfun fyrir, hvergi hlaupið frá hálfunnu verki. Eftfr tektarvert var að heyra hvað málhreimurinn var góður og talið skýrt, án þess að vera of-- skýrt; eðlilegurtalmálshreimur, laus við lestrarsón — sem sagt, lifandi replik. Mikið hefur þetta lið skærar og hreinar raddir, hvort sem er i tali eða söng. Og svo samtaka! Textinn skildist, þótt sungið væri i kór. Harmonikan undir söngvum og sem tenging milli atriða stóð sig vel. Bestu þakkir fyrir að leggja á ykkur ferðina. Ég hefði ekki viljað missa af að sjá ykkur og heyra. Haldið áfram, og látið sjá ykkur aftur! Karl Guðmundsson. Skammimar ekki svara verðar Sveinn Sigurðsson skrifar: — Mikið hefur verið ritað og rætt um gúanórokktexta i Þjóð- viljanum og viðar að undan- förnu. Komið hefur m.a. fram i þeirri umræðu að ihaldið o.fl. hafi skammast út i „Rokk gegn her”. Segir Þorlákur Kristins- son að vinstri pressan hafi ekki reynt að bera i bætifláka vegna þeirra skamma og harmar hann það. Þorláki og öðrum sem kunna að vera á sömu skoðun vil ég benda á að skammirnar út i „Rokk gegn her” voru allar þess eðlis að þær voru ekki svaraverðar. Það hefði hreint út sagt verið herstöðvaandstæö- ingum til minnkunar að svara þvi skitkasti sem kanadindlar stunduðu i vonsku yfir vel heppnaðri „Rokk gegn her” hátið. Hins vegar gerði Þjóðvilj- inn og önnur málgögn her- stöðvaandstæðinga, til að mynda Verkalýðsblaðið, „Rokk gegn her” góð og itarleg skil. Sömuleiðis frjálslyndari hluti ihaldspressunnar, til að mynda Visir og Dagblaðið. Hvenær megum við búast við annarri „Rokk gegn her” hátið? Hvar er mannkær- leikurinn? Hvar er mannkærleikurinn nú? Getum við verið þekkt fyrir að senda mann burt úr landi og beint i fangelsi, sem kemur hingað og leitar skjóls frá morðum og byssukjöftum? Litum okkur nær. Viljum við senda syni okkar á vigvöllinn? Leyfum Gervasoni dvöl hér, og látum það vera jólagjöfina i ár. Ellen Önnur hafmær frá Laufeyju Hér kemur önnur haf- mær úr bunkanum sem hún Laufey, 6 ára, sendi okkur. Einsog þið munið var mynd eftir hana í Barnahorninu í gær. Nýir um- siónarmenn óskast! Nú er uppurið efnið sem þær Ingunn og Kristín komu með og nú vantar Barnahornið nýja umsjónarmenn. Notið nú tímann um helgina, krakkar, takið ykkur saman tvö eða fleiri og finnið sögur, skrítlur, gátur osfrv. sem þið haldið að aðrir krakkar hafi lika gaman af. Hringið eða komið í Síðumúla 6. Síminn er 81333. Utanáskrif tin: Þjóðviljinn (Barna- hornið) Síöumúla 6 Reykjavík. Barnahomið Sidney Poitier i hlutverki sinu i myndinni „Bróöir Jóhannes". Bróðir Jóhannes Bróðir Jóhanncs (Brother John) er föstudagsmynd sjón- varpsins að þessu sinni. Hún er bandarisk, gerð árið 1971. Sidney Poitier, einn vin- sælasti svarti leikarinn i Bandarikjunum, leikur aðal- hlutverkið. Hann hefur leikið i mörgum góðum myndum, og sumir segja að vinsældir hans hafi átt sinn þátt i að draga úr fórdómum margra hvitra Bandarikjamanna gegn svert- ingjum. Hann leikur oft „góða Sjónvarp kl. 23,05 gæjann” sem lendir saklaus i klandri. I myndinni i kvöld segir frá Jóhannesi Kane, sem er hald- inn þeirri áráttu að heimsækja alltaf æskustöðvar sinar rétt áður en einhver ættingi hans gefur upp öndina. —ih Innan stokks og utan • Útvarp kl. 15,00 Sigurveig Jónsdóttir blaða- maður annast þáttinn „Innan stokks og utan” i útvarpinu i dag. — Aðalmálið að þessu sinni er skrefamælingin sem fyrir- hugað er að taka upp á næsta ári hjá Landssimanum, — sagði Sigurveig. — Jón Skúla- son póst- og simamálastjóri mun útskýra þessa breytingu og svara spurningum þar að lútandi. oe Gisli Jónsson prófessor, sem er i stjórn Neytendasamtakanna, mun útskýra málið frá sjónarhorni neytenda. Sæmundur Guðvinsson blaðamaður verður með pistil i léttum dúr, sem íjallar um tslendinginn sem neytanda. Jón Skúlason póst- og sfma- málastjóri útskýrir skrefa- mælingarnar. Þá verður viðtal við þrjá húsmæðrakennara. Tvær þeirra vinna i tilraunaeldhúsi Mjólkursamsölunnar og ein vinnur hjá Osta- og smjörsöl- unni. Þær munu segja frá ýmsum nýjungum i mjólkur- afurðum. Og loks verður svo viðtal við Ásthildi Pétursdóttur hús- móður um jólaundirbúninginn á heimili hennar. Asthildur undirbýr jólin með nokkuð öðrum hætti en venjulega er gert, hún býr t.d. til allar jóla- gjafirnar sjálf, — sagði Sigur- veig að lokum. —ih ■ ' m* j. Lmsvif kanans á Vellinum verða m.a. til umræðu i Fréttaspegli I kvöld. Helguvíkurmálið í fréttaspegli Fréttaspegill er á dagskrá sjónvarps I kvöld, og að venju verður fjallað um mál af inn- lendum og erlendum vettvangi. öryggismálin hafa veriö til umræðu i Evrópu að undan- förnu, enda þykir ýmsum sem ófriðlega horfi i heiminum um þessar mundir. Þessar umræð- ur verða reifaðar i þættinum. Einnig verður fjallað um ástandið i E1 Salvador, þar sem borgarastrið er nú i algleym- ingi. Af innlendum vettvangi verða tvö mál: hugsanlegt verkfall bankamanna og þau áhrif sem ý-C )s. Sjónvarp O kl. 21.55 það kann að hafa á þjóölifið, og Helguvikurmálið svonefnda. Þar verður rætt um mengunar- hættu frá oliumannvirkjum bandariska hersins á Miðnes- heiði og deilur um dvöl þessa hers hér á landi. Umsjónarmenn Fréttaspegils að þessu sinni eru fréttamenn- irnir Helgi E. Helgason og ög- mundur Jónasson. —íh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.