Þjóðviljinn - 13.12.1980, Page 2

Þjóðviljinn - 13.12.1980, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓ.ÐVILJINN Helgin 13. — 14, desember 1980 Af niöurfellingu á vikuskammti — Ertu með eitthvað að skrifa? — Kannske. Ef ég fæ næði. Ég veit ekki... — Geturðu ekki borið allan andskotann saman? — Eins og hvað? — Ja, til dæmis hvað má og hvað ekki. — Nú, ég veit það ekki — kannske. — Taktu tildæmis Gervasoni. — Heyrðu. I guðs almáttugs bænum... — Ja, er það meira afbrot að brjóta lögin, eins og Gervasoni gerði, helduren að brjóta konu, eins og f ransmaðurinn, sem er í f ranska hernum og vinnur í f ranska sendiráðinu hérna gerði. Já,og hann slapp. — Já, en það er nú eitt að brjóta konu og annað að brjóta lögin. — Er þá ekki lögbrot að brjóta konu? Er bara allt í lagi að mölbrjóta konu og veifa svo bara diplómatapassa, bara svona — sko, bara beint framaní alla. Keyra bara á hana, ábyggilega blindfullur; keyra hana í klessu og keyra svo bara í burt, já já; bara eins og ekk- ert sé. Það er auðvitað allt í lagi í þínum aug- um? — Allt í lagi, elskan mín. — Já,er það ekki? — Allt i lagi, allt í lagi! — Ég átti ekki við að það væri allt í lagi. — Nú varstu ekki að segja að það væri allt í lagi? — Jú, jú, elskan mín, en áttu ekki eftir að vaska upp? — Á ég ef tir að vaska upp? Ég á ekkert ef tir að vaska upp frekar en þú. — Nei, nei, elskan mín. Þá á ég eftir að vaska upp. Viltu bara.... — Gerðu svo vel. Uppvaskið er frammi. — Góða hættu þessu pexi. — Pexi? Ég var sko ekkert að pexa. Ég var bara svo f egin að heyra að þú ætlaðir að vaska upp. — Ég ætla sko ekkert að vaska upp. — Nei, þaðer nefnilega það. Það er ekki orð að marka sem þú segir. Þú varst að sleppa orðinu að þú ættir eftir að vaska upp, og nú ætlarðu hreinlega ekkert að vaska upp. — Viltu gera það fyrir mig að.... — Já. Viltu nef na eitthvað, sem ég á ekki að gera fyrir þig. — Þú étt ekki að skrifa fyrir mig. — Skrifaðu um það að maður verður að skipta um trú, ef maður er katólskur og ætlar að fá lykkjuna; já, skrifaðu um það. Og að ef þú ert útlendingur á íslandi, eða í ameríska hernum, þá máttu drekka íslenskan bjór; og svo hef ég nú aldrei skilið þessa búð þarna, þessa Fríhöfn. Þar þarf að kaupa það sem maður ætlar að koma með heim, þegar maður fer úr landinu og svo er maður náttúrlega bú- inn að týna því eða drekka það, þegar maður kemur til baka. Og svo halda unglingarnir að fullorðna fólkið megi gera hvað sem er. — Heyrðu, eigum við ekki að fella talið? — Nú það er bara svona. Bara farinn að tala gullaldarmál. Áttu ekki ósköp einfaldlega við að þú megir ekki vera að því að eyða þínum dýrmæta tíma i að tala við mig? Nennir ekki að eyða orðum á mig? — Ég sagði það aldrei. — Nú, sagðirðu ekki að við skyldum fella tjaldið? — Ég sagði að við ættum að fella talið. — Ég skil þig ekki góði. Fella talið! hah! hah!.... Maður fellir i prjónaskap. Maður fellir af þegar maður er búinn með stykkið og byrjar á öðru. Þá tekur maður einfaldlega eina lykkju gegnum tvær út prjóninn þangað til að ein er eftir, þá dregur maður spottann í gegnum síðustu lykkjuna og gengur frá endanum, með stoppunál. Þetta er að fella. En að fella talið! Ég hef nú ekki heyrt það betra. Viltu ekki fella tárið í leiðinni. Hah! hah! — Heyrðu. Ég ætla að reyna að fara að byrja á greininni. — Já, góði byrjaðu á greininni. Fyrir alla muni láttu mig ekki trufla þig. Annars var ég; að lesa ágæta grein í Morgunblaðinu í gær. Hún var um sambúð. Þar segir að þau hjón sem ekki tala saman minnst sautján mínútur á sólarhring séu óhamingjusöm í hjónabandinu. — Eru þetta ekki að verða sautján mínútur? — Nei! Bara brandari. Atvinnuhúmoristinn bara á fullu gasi. — Ég var ekkert að reyna að vera fyndinn. — Nei, það er auðvitað þess vegna, sem þetta var svona drepfyndið hjá þér. Ég held þú ættir að skrifa um það, hvers vegna ekki má vera í gallabuxum með saumnum utaná þegar maður ætlar að fara út að skemmta sér. Og nú þarf ég að fara í símann. Góðan dag. Er þetta Þjóðviljinn? Ég þarf að koma boðum — já, því miður. Vikuskammti seinkar nú um sinn, — mér sýnist rétt að fella hann bara niður! Flosi. A uglýsingadeild Þjóðviljans hefur það fyrir fasta reglu að taka ekki við verslunar- auglýsingum á erlendum tungu- málum. Slikt veður þó uppi, ekki aðeins i vörumerkjum heldur eru tam. heilu auglýsingarnar i sjónvarpinu á ensku þó að það striði gegn reglum rikisútvarps- ins. Fyrir nokkru var ljóöað á Karnabæjarkaupmanninn, Guð- laug Bergmann, i Klipptu og skornu hór i blaðinu og lauk til- vitnun i sáttahvatningu hans i Morgunblaöinu til forystumanna Sjálfstæðisflokksinsog viðeigandi útleggingum með enskum frasa alkunnum: „If you can’t beat ’em join ’em”. Það er: Ef þú getur ekki unnið þá er einlægast að slást i þeirra hóp. Guðlaugur var ekki seinn að svara fyrir sig og semur auglýsingu i Þjóðviljann um hermannaföt beint frá Banda- rikjunum og slær þar upp sama frasa. Upp var kveðiiin sá Salómonsdómur aö kaupmaöur- minútna þögn i dagskránni á afmælisdaginn en aðeins tveir greiddu henni atkvæði. Misrétti Guðlaugur Bergmann: Staðan er 1:1 inn ætti inni hjá blaðinu aö komast upp með dálitið gri'n á kostnað þess. Leikar standa þá l:len forráðamenn blaðsins li'ta á þetta sem algjöra undantekningu og eftir sem áður mun auglys- ingadeild Þjóðviljans hafna verslunarauglýsingum á erlend- um málum i samræmi við þau spaklegu ummæli Einars Benediktssonar skálds að „orð er á islensku til um allt sem er hugs- aðá jöröu.” Staöa varadagskrárstjóra útvarpsins var auglýst laus til umsóknar i nóvember. Baldur Pálmason varadagskrárstjóri hættir störf- um nú um áramótin. Aðeins tvær umsóknir munu hafa borist um stöðuna er umsóknarfrestur rann Fáir vilja setjast f sæti Baldurs Pálmasonar út 2. desember og þótti hvorugur umsækjenda hæfur. Enginn starfsmanna útvarpsins girntist ' starfið, enda er þeim vel kunnugt um hversu erilsamt og vanþakk- látt þaö er. Umsóknarfrestur var þá framlengdur og rann út i gær, 12. desember. Til frekari áherslu var starfiö einnig auglýst i dag- blöðum, en það mun nánast einsdæmi,þvi að jafnaði eru laus- ar stöður hjá útvarpi og sjónvarpi aðeins auglýstar i útvarpinu. Vonandi hefur árangurinn orðið betri i þetta sinn og fæst þá fljót- lega úr þvi skoriö hver veröur eftirmaður hins gamalkunna út- varpsmanns Baldurs Pálmason- ar. Reyndarhefur ólyginn hvislað þvi i gegnum skráargatið aö Jón örn Marinósson fréttamaður hjá útvarpinu hafi látið undan þrá- beiðni ráðamanna og sótt um. Guðna Kolbeinssyni varð á i messunni Geir R. Andersen nokkur var einn af þeim sem reknir voru frá Flug- leiðum fyrr á þessu ári, en annars er hann einkum þekktur fyrir öfgafull hægriskrif i Dagblaðið. Hann hefur nú verið ráðinn að auglýsingadeild Vikunnar. Starfsmenn útvarpsins hafa að undanförnu verið að bræða með sér að vekja með einhverjum hætti athygli á aðstöðuleysi og fjársvelti út- varpsins á 50 ára afmælinu 20. desember n.k. Ýmsar hugmyndir um aðgerðir hafa komið upp en allar likur eru nú á að engin sam- staða náist. Um daginn var hald- inn félagsfundur og þar var m.a. borin upp tillaga um að hafa 20 kynjanna skýtur stöðugt upp kolli með ýmsum hætti og stundum ómeðvitað. Þjóðviljanum hefur t.d. borist fréttatilkynning frá Taflfélagi Reykjavikur um firmakeppni i skák. Heitið er verðlaunum og eru fimm verðlaun til skákmanna eins og það er kallað i fréttatilkynning- unni og þau hæstu 100 þúsund krónur. Aðeins þrennum verðlaunum er hins vegar heitið til skákkvenna, þeim hæstu 30 þúsund krónur, eða jafnháum og heitið er i unglingaflokki. Þaö eru sem sagt annars vegar „skák- menn” og hins vegar konur og unglingar. Mér varð það á i siðasta þætti að beygja vitlaust eignarfall nafnorðsins lækur sem ég nefndi læks og sér nú litt á að ég er alinn upp i túnfætinum i Lækjarmótum. Ég er þeirrar skoðunar að menn sem taka að sér aö segja öðrum til um notkun islensks máls og dæma óvægilega eins og ég hef stundum gert eigi að beyja algengust islensk orð. Ég hef þvi ákveðið aö láta af störfum strax og nýr umsjónarmaður hefur fengist, sagði Guðni Kolbeinsson, umsjónarmaöur Daglegs máls i RikisUtvarpinu á fimmtudag. Munum Happdrætti Þjódviljans 1980 Dregið var í Happdrætti Þjóðviljans þann l.dess.l., en vinningsnúmer þá innsigluð og verða ekki birt fyrr en að uppgjöri loknu. Skrifstofa Happdrættis Þjóðviljans er að Grettisgötu 3, Reykjavík, símar 17504 og 17500. Enn er hægt að kaupa miða og verður svo þar til uppgjöri lýkur. Skrif stof an verður opin í dag, laugardag, kl. 3—ó. e.h. Þeir sem hafa fengið heimsenda miða eru beðnir að snúa sér til skrifstofunnar Grettisgötu 3 eða til umboðsmanna. Þar sem nú stendur yfir lokaátakið í uppgjöri vegna happdrættisins eru þeir umboðsmenn sem enn hafa ekki gert skil hvattir til að Ijúka þvi sem fyrst svo unnt verði að birta vinningsnúmerin. Meirihluti umboðsmanna hefur þegar gert skil og margir með ágætum árangri, t.d. bárust í gær 100% skil vegnaútsendra miðafrá Bolungarvík.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.