Þjóðviljinn - 13.12.1980, Síða 18

Þjóðviljinn - 13.12.1980, Síða 18
18 SIOA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 13. — 14. desember 1980 Guðbjörg Þórisdóttir skrifar um barnabækur bókmenntrir Húsbændur og hjú Grösin i glugghúsinu cftir Hreiöar Stefánsson. tJtgefandi: Iöunn. 1980. 90 bls. Káputeikning: Pétur Halldórsson. Þegar mér barst bókin um hann Garðar, var ég vægast sagt ekki bjartsýn á lesturinn. Kápumynd bókarinnar er af dreng i torf- bæjarumhverfi og á bakhlið er sagt að sagan gerist fyrir hálfri öld. Ekki var þetta til aö draga mig að bókinni. Ég þóttist viss um að þarna væri komin enn ein sagan um sveitarómantík og að hún gæti ekki átt erindi til nútima borgarbarna. Fordómar minir áttu ekki við rök að styðjast þvi hér er á ferðinni þroskasaga af bestu gerð. Þó að sagan gerist fyrir háifri öld höfðar hún til barna i dag. t sögunni er verið að glima við eilifðarvandamál, samskipti fólks. Hér eru það samskipti drengs við fullorðið fólk. Garðar er tiu ára. Það er fátækt á heimili hans og hann er sendur i sveit til að hjálpa til við að vinna fyrir heimilinu. Þessi vinna er erfið og það sem gerir þetta allt ennþá erfiðara er vanþakklæti Guðlaugs húsbónda hans. Guðlaugur er sýndur frá mörg- um hliðum. Fyrst þegar lesand- inn hittir Guðlaug er honum lýst þannig: „En húsbóndinn er önnum kaf- inn og tekur ekki eftir þér. Þú horfir og allt i einu rennur upp fyrir þér hvað hann er að gera. Hann seilist i hár sér og skegg, gómar það sem hann er að leita að, setur á nögl sér á þumalfingri, skellir nögl hins þumalfingursins að og þú heyrir smell. Þú veist hvað hann er að gera. Þú hefur séð svona litil kvikindi i skólanum en þú hefur aldrei átt þau sjálfur. Viðbjóðurinn hrislast um þig, hann fer um hverja taug þina og hann sameinast i maga þinum”. (bls. 10). Garðar er hræddur við Guðlaug og þó Garðar sé samviskusemin uppmáluð, veit hann aldrei hvar hann stendur gagnvart Guðlaugi, þvi litið er um þakkir. Guðlaugur er mikil höfðingjasleikja og er þvi skemmtilega lýst i sögunni. Hann gefur rikasta bónda sveitarinnar feitasta sauðinn sinn á hverju hausti, eins og ekkert sé sjálf- sagðara, til að koma sér i mjúk- inn hjá honum. Hann er hins vegar ekki eins örlátur og elsku- legur við drenginn þegar hann missir kassa með 30 eggjum. „Það er grimmd i augunum á honum. Hann öskrar i eyru þér: — Hvers vegna braustu eggin — hvers vegna? Þú hljóðar upp: — Ég gerði það óviljandi, ég gerði það óviljandi. En Guðlaugur heyrir það ekki, hann heldur áfram að hrista þig og sefast ekki fyrr en Vera kemur út á hlaðið. Hún hjálpar þér ekki, heldur setur hún hendurnar upp að munninum, hoppar upp i sifellu og veinar eins og sært dýr. Þá verður Guðlaugur hræddur og hættir að hrista þig en sleppir þér ekki. Opnar kofakrili sem er i hlaðvarpanum og alls konar áhöld eru geymd i, hann hrindir þér inn i kofann og lokar honum að utan. Þú heyrir að hann bindur snæri sem fest er i hurðina á nagla sem er i dyrastafnum að utan og vefur þvi upp á naglann svo þú komist ekki út. Þú sest þarna milli áhaldanna og kippist allur til af ótta. Þér hefur aldrei á ævinni verið refsað áður. Heima töluðu mamma og pabbi alltaf við ykkur systkinin ef ykkur varð eitthvaðá”. (bls. 35.) Vera er andstæða Guðlaugs. Hún er ráðskonan á bænum. Til hennar getur Garðar alltaf leitað. Þau eiga langt samtal nóttina eftir eggjaslysið. Atburðir dags- ins hafa hrært upp i Veru og Garðar finnur hana grátandi frammi i eidhúsi þegar hann er á leiðinni út til að strjúka. Þau tala saman og skilja hvort annað, vegna þess að þau eru bæði hjú Guðlaugs. Mikill fengur er að sögunni um Garðar. Höfundi tekst vel að spila á tilfinningar lesandans, og góð persónusköpun er höfuð- kosttir bókarinnar. Mig langar til að vekja athygli kennara á þess- ari sögu. Hún býður upp á mörg skemmtileg verkefni t.d. athugun á þroskasögu Garðars og persón- um sögunnar og samskiptum þeirra, gamla timanum eins og hann birtist i sögunni og saman- burð við nútimann, heimili Garð- ars og fjölskyldutengsl i föður- húsum o.s.frv. Ég vona að kennarar sjái sér fært aö nota þetta ágæta hjálpar- tæki til aðstoöar viö að þjálfa börnin i að tjá sig og taka afstöðu. Guðbjörg Þórisdóttir ,ÉLENSK BOKAMENNING ERVERÐMÆTI BÆKUR MENNINGARSJÓÐS W>» OutW' RÓMAVELDII—II eftir Will Durant, höfund GRIKKLANDS HINS FORNA sem kom út á sl. ári. Hf|t ÞÝDD LJÓÐ FRÁ NORÐUR- LÖNDUM 127 ljóð eftir 75 skáld í þýðingu Þórodds Guðmunds- sonar frá Sandi. LEIKRIT JÖKULS JAKOBS- SONAR (Studia , Islandica 38) eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. í bókinni er fjallað um leikrit Jökuls frá bókmenntafræði- legu sjónarmiði. LJÓÐ MATTHÍ ASAR JOCHUMSSONAR Úrval ljóða sr. Matthíasar Jochumssonar kemur nú út á sextugustu ártíð hans. LJÓÐ sr. Matthíasar er sjötta bindið í flokknum íslensk rit. ANDVARI1980 Aðalgreinin er ævisaga Árna Friðrikssonar fiskifræðings eftir Jón Jónsson forstöðumann Hafrannsóknarstofnunar. ALMANAK ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS 1981 Almanak um næsta ár með Árbók íslands 1979 eftir ólaf Hansson fyrrverandi prófessor. FOLD OG VÖTN Úrval greina um jarðfræðileg efni eftir hinn kunna jarðfræðing Guðmund Kjartansson. 'O'Wór, ÍSLAND Á BRESKU VALD- SVÆÐI1914-1918 eftir Sólrúnu B. Jensdóttur sagnfræðing. Bókin f jallar um samskipti Breta og íslendinga á árum fyrri heimsstyrjaldar. •1918 ALFRÆÐI MENNINGARSJÓÐS Tónmenntir II eftir dr. Hallgrím Helgason tónskáld. ítarlegt og fræðandi uppsláttarrit um sérfræðiheiti og hug- tök tónmennta. Nú eru komin út 12 bindi af Alfræðinni. BRÉF TIL JÓNS SIGURÐS- SONAR Bókin flytur safn af bréfum þjóðkunnra manna til Jóns forseta. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 — Reykjavík wrnm

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.