Þjóðviljinn - 13.12.1980, Qupperneq 21
Helgin 13. —’l4. desember' 1980 ÞlÓtíVÍLj ÍNK'— SÍÐA 21
um helgina
Grafik í Listmunahúsinu
Þær Jóhanna Bogadóttir, Ingunn Eydal og Elinborg Lutzen hin sið-
ast talda frá Færeyjum, sýna og selja grafikmyndir i Listmunahúsinu
við Lækjargötu fram að jólum. Einnig eru þar klippimyndir eftir
Tryggva Ólafsson. ElinborgLutzen er einn þekktasti grafiker Færeyja
og myndir hennar sverja sig mjög i ætt við heimkynnin, hún sýnir
húsaþyrpingar og umhverfi sem er sérstakt fyrir Færeyjar. Jóhanna
og Ingunn hafa oftsinnis sýnt myndir sinar á einka- og samsýningum.
Þær tvær verða i sýningarsalnum i dag laugardag og þann næsta ef fólk
hefur áhuga á að kynna sér gerð grafikmynda eða vill forvitnast um
eitthvað þeim viðkomandi. Alls eru á sýningunni um 40 myndir. —ká
Bager og Jenkins
halda tónleika í
Njarðvík og
Reykjavík
.4 morgun, 14. desember, haida
Jonathan Bager fiautuleikari og
philip Jenkins pianóleikari tón-
leika i Njarðvikurkirkju kl. 15.
Kinnigkoma þeir fram i Norræna
húsinu n.k. þriðjudag kl. 20.30.
Á efnisskránni eru sónötur eftir
Leclair, Poulenc og Prokofiev,
einnig Ballaða eftir Frank Mar-
tin.
Jonathan Bager lauk ein-
leikaraprófi á flautu frá Royal
College of Music i London á
siðastliðnu ári, hann starfar nú
sem kennari i flautuleik við Tón-
listarskólann á Akureyri. Þessir
tónleikar verða fyrstu sjálfstæðu
Jonathan Bager flautuleikari
tónleikar Jonathans i Reykjavik,
en þeir Philip fluttu ofangreinda
efnisskrá á Akureyri siðastliðið
vor.
Philip Jenkins hefur leikið á
fjölmörgum tónleikum bæði hér á
landi og erlendis, leikið með S.t.
og inn á hljómplötur. Hann er nú
prófessor i pianóleik við Royal
Academy of Music i London.
Gítar, ljóð
og hreyfingar
Þau Tom Methling gitarleikari,
Kaschava Duscheme sem sýnir
hreyfingalist (Eurytlimy) og Elin
Guðjónsdóttir, sem flytur bundið
mál, koma fram i Norræna hús-
inu i dag, laugardag, kl. 16.00 og i
Bióhöllinni á Akranesi á morgun
kl. 17.30.
Flutt verður tónlist eftir F.
Tarrega, Villalobos J. S. Bach,
Tom Methling auk annarra. Elin
flyturljóð eftir Garcia Lorca, Jó-
hannes úr Kötlum, Nordahl Grieg
og fleiri.
Elin Guðjónsdóttir, Tom Met-
hling og Kaschava Duscheme
koma fram i Norræna húsinu i
dag.
Aðgangur kostar kr; 2000 og er
seldur við innganginn.
Aströlsk mánudagsmynd
Næsta mánudagstnynd Há-
skólabiós er „News-
front” — áströlsk tnynd sem gert
hefur viðreist og hvarvetna hlotið
Irábæra dóma.
Myndin var gerð fyrir tveimur
árum. Hún fjallar um timabilið
1948-1956. Aðalpersónan ér kvik-
myndagerðarmaður, sem gerir
fréttamyndir fyrir kvikmynda-
hús. A þessu timabiii kemur sjón-
varpið til sögunnar og menn
hætta að gera slikar frétta-
Lúsíuhátíð í
Norræna húsinu
islensk-sænska félagið heldur
Lúsiuhátið i Norræna húsinu i
kvöld, laugardag kl. 20.30.
Páll Bergþórsson flytur erindi
og Hjálmar Ólafsson les upp,
Lúsfa kemur i heimsókn og
sungnir verða Lúsiusöngvar. Auk
þess verður boðiðupp á jólaglögg.
Sviar, búsettir á Islandi, og Is-
lendingar sem kynnst hafa Svi-
þjóð og Svium eru hvattir til að
mæta og gera sér dagamun.— ih
myndir. Newsfront er sögð vera
allt i senn: lýsing á áströlsku
þjóðfélagi þessa timabils, siðustu
árum fréttamy ndagerðar og
einkalifi fólksins sem við sögu
kemur.
Við gerö myndarinnar voru
gamlar t'réttamyndir notaðar og
leiknu efni fléttað saman við af
mikilli kúnst. Myndin skiptist i
kafla, sem eru ýmist i litum eða
svart-hvitir.
Leikstjóri er Phil Noyce, og er
þetta hans fyrsta mynd af fullri
lengd, en áður hafði hann gert
margar styttri myndir sem at-
hygli höfðu vakið. Þegar News-
front var frumsýnd kom mönnum
saman um að Phil Noyce hefði
skipaösér i röð bestu kvikmynda-
stjóra Astraliu, en þar hafa kvik-
myndir verið i miklum uppgangi
siðustu árin og margir mjög góðir
kvikmyndastjórar komið fram.
Newsfront hlaut meðatsókn i
Astraliuog mjög góðar viðtökur á
kvikmyndahátiðunum i London,
New York og Cannes. Hún þykir
vel gerö, spennandi og frábær-
lega leikin. — ih
Kammer-
tónleikar
4 mánudagskvöldið efnir Tón-
skóli Sigursveins D. Kristins-
sonar til kammertónleika i Nor-
ræna húsinu.Er þetta fimmta árið
i röð sem skólinn efnir til tónleika
á jólaföstu.
Efnisskráin er. mjög fjölbreytt
og verður eingöngu flutt af nem-
endum á hærri námsstigum.
Meðal höfunda má nefna Mozart,
Grieg, Telemann, Brahms og
Rautavara. Tónleikarnir hefjast
kl. 20.30 og eru foreldrar, nem-
endur, styrktarfélagar og aðrir
velunnarar skólans velkomnir.
Tónleikar
á torginu
Skólalúðrasveit Árbæjar og
Breiðholts heldur tónleika við úti-
markaðinn á Lækjartorgi i dag,
laugardag, kl. 14.
Á sama stað verður foreldra-
félag hljómsveitarinnar einnig
með kökusölu til styrktar starf-
semi sveitarinnar. —ih
Blásið í
Bústaðakirkju
Trómet-blásarasveitin, öðru
nafni Blásarasveit Fjölbrauta-
skólans i Breiðholti, heldur
tónleika i Bústaðakirkju á morg-
un, sunnudagtkl. 21.
Olrik Ólason leikur á orgel. Á
efnisskránni er einkum barokk og
jólatónlist. Þetta eru fyrstu opin-
beru tónleikar sveitarinnar.
Kvikmyndir
frá ÓL í Moskvu
I dag og á morgun veröa sýndar
kvikmyndir um ólympiuleikana i
Moskvu i MIR-salnum, Lindar-
götu 48. I dag kl. 15. veröur sýnd
mynd um opnunarhátið leikanna
á Lenin-leikvanginum og á morg-
un verður sýnd mynd um loka-
hátiðina, einnig kl. 15. Með
þessum myndum verða sýndar
nokkrrar styttri iþróttamyndir.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Barðir til róbóta
Hljómsveitirnar Fræbbblarnir,
Þeyr og Utangarösmenn halda
tónleika i Gamlabió n.k. miðviku-
dag kl. 21.00, og neínast
tónleikarnir „Barðir til róbóta”.
Forsala aðgöngumiða hefst i
dag i Fálkanum, Laugavegi 24.
Firmakeppni TR
Firmakeppni Taflfélags
Reykjavikur i tilefni 80 ára af-
mælis félagsins hefst á sunnudag,
14. des. kl. 14 og heldur áfram
hvcrt kvöld kl. 20 þar til yfir lýk-
ur. önnur starfsemi fellur niður á
meðan.
Tefldar verða sjö umferðir eftir
Monrad kerfi, 2x10 minútur. Þrjú
efstu fyrirtæki hvern keppnisdag
fara i úrslit, sem tefld verða
fyrsta sunnudag eftir að öll fyrir-
tæki hafa tekið þátt i undanúrslit-
um.
Sama keppanda er leyfilegt að
taka þátt i öllum undanúrslitum,
en fyrir nýtt fyrirtæki i hvert
sinn. Keppandi dregur út nafn
fyrirtækis sem hann keppir fyrir.
Keppendum veröa veitt peninga-
verðlaun og fyrirtækjum verö-
launaskjöl.
Skemmtikvöld
í Klúbbnum
N.k. miðvikudagskvöld verður
skemmtikvöld i vcitingahúsinu
Klúbbnum á vegum SATT,
Jassvakningar og Visnavina.
Fram koma visnavinir, jass-
kvartett Guðmundar
Ingólfssonar, hljómsveitirnar
Steini blundur, Mezzoforte og
hljómsveit Bobby Harris. Jóhann
G. Jóhannsson kemur fram
ásamt Bobby Harris og gitar-
leikaranum Gus Isadore. Gestur
kvöldsins verður Jakob
Magnússon.
Vélamaður óskast
Óskum að ráða vanan vélamann til vinnu
á ýmsum vélum m.a. á stórum hjóla-
skóflum.
Nánari upplýsingar gefnar i sima 21000.
Vegagerð rikisins
Borgartúni 7,
Reykjavik.
U
fjORUM
linum
Wog^iú
Auðunn ^Bragi Sveinsson
,,í FJÓRUM LÍNUM1' er fyrsta bindið í vísna og
ljóðasafni, sem Auðunn Bragi Sveinsson skóla-
stjóri safnar og velur. Heiti bókarinnar gefur til
kynna innihald hennar. Hér eru vísur sem eiga það
sameiginlegt að vera f jórar ljóðlínur. Stakan, bæði
venjulega og dýrt kveðin, er að vonum fyrirferða-
mest í þessu safni. Hér er flestum mannlegum til-
finningum einhver skil gerð og oftast gerð grein
fyrir aðdraganda að tilurð vísnanna, en höfundar
eru um 150 hvarvetna aö af landinu og erindin losa
átta hundruð
„BARNIÐ, VÖXTUR ÞESS OG ÞROSKI" fjallar á
skýran hátt um vöxt og þroska bama allt frá fæð-
ingu og fram á unglingsárin. Hún segir frá atriðum
og viðfangsefnum, sem flestir eða allir ungir for-
eldrar velta fyrir sér, tekur til umfjöllunar ýmis
uppeldisleg, félagsleg og sálfræðileg vandamál,
sem foreldrar glíma við að meira eða minna leyti í
uppvexti og uppeldi barna sinna. Efnið er framsett
á auðskiljanlegan hátt og myndir og teikningar
styðja við textann. Þórir S. Guðbergsson félags-
ráðgjafi annast útgáfu bókarinnar_____________
SETBERG
FrejnugDtn 14
<