Þjóðviljinn - 23.12.1980, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. desember 1980
MOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóöfrelsis
Otgefandi: Otgdfufélag ÞjóBviljans.
Fra mkvemdastjóri: EiBur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ö'ifsson.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friörikssoit.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Amason.
------------------------------
Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir,
Bára Siguröardóttir.
Sfmavarsla: ölöf Halidórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halia Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla, afgreiösla og augiýsingar: Siöumúla 6,
Reykjavik, simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Nánasarskapur
hinn mesti
• Á síðasta ári voru (slendingar með sjöundu hæstu
þjóðartekjur á mann í öllum heiminum. Við erum því rík
þjóð í samfélagi þjóðanna. Ekki baga okkur útgjöld til
hermála sem eru þungur baggi á mörgum rikum þjóð-
um. Samt sem áður erum við ekki taiin aflögufær af
Alþingi íslendinga.
• Á nýsamþykktum f járlögum fyrir árið 1981 má segja
að rúmlega 900 mil jónum króna sé ráðstafað til þróunar-
aðstoðar/ ef allt er tínt til. Þar af er Aðstoð íslands við
þróunarlöndin ætlað að standa að sínum verkefnum í
f imm Afríkuríkjum fyrir475 miljónir króna. Sú f járveit-
ing nægir tæpast til að standa við umsamin verkefni,
hvað þá að ráðast í ný.
• Frá því að lögin um Aðstoð íslands við þróunarlöndin
voru samþykkt hef ur lítt eða ekki miðað að því takmarki
laganna að veita 1% þjóðartekna til aðstoðar snauðum
þjóðum. íslensk stjórnvöld halda sig við prómillin í þessu
efni og síðustu árin hef ur hlutfallið af þjóðartekjum ver-
ið 0.05 til 0.06%.
• Nú er þróunaraðstoð, skipulag hennar og árangur,
ekki einhlítt né einfalt mál. Verulegur hluti hennar á
alþjóðavísu er í formi hergagnaviðskipta og að einhverj-
um hluta fer hún til þeirra sem síst skyldi og stuðlar ekki
að bættum lífskjörum almennings. Sú skoðun heyrist að
víða í þróunarríkjum sé stjórnarf ar svo rotið og spillt, að
ekkert nema stjórnarfarslega og efnahagslegar umbylt-
ingar geti komið viðkomandi þjóðum á framfarabraut.
• Samt sem áður er viðurkennt að Norðurlanda-
þjóðirnar reka árangursríkustu þróunaraðstoð sem
þekkist í heiminum, og kref jast ekki í sama mæli ábata
af henni eins og f lest önnur ríki gera. Aðstoð Islands við
þróunarlöndin vinnur að þremur norrænum verkef num í
Kenya, Tansaníu, og Mosambique og getum við verið
fullsæmdir af því Islendingar að vera með í þessum
verkum.
• Þó eru hin verkefnin tvö, þ.e.a.s. fiskveiðiaðstoð í
Kenya og á Grænhöfðaeyjum, á margan hátt enn
áhugaverðari. Þar er um að ræða sjálfstæð verkefni þar
sem leitað hefur verið eftir því að íslendingar miðluðu
af sérþekkingu sinni, tæknikunnáttu og reynslu í fisk-
veiðum. Verkefni af þessu tagi kalla á miklu meiri um-
svif en Aðstoð íslands við þróunarlöndin veldur að
óbreyttum aðstæðum. Margitrekuðum kröfum um
endurskoðun laga um „Aðstoðina" og meira fé hefur
verið sýnt algjört sinnuleysi um langt skeið. Því er sýnt
að stofnunin verður að halda áfram að synja f jölmörg-
um beiðnum um aðstoðá sviði fiskveiða frá þjóðlöndum
sem við mikinn matvælaskort búa.
• I heimi þar sem 10 miljónir manna líða hungurdauða
árlega og 200 miljónir barna svelta er það yfirgengilegur
nánasarskapur af feitum og söddum íslendingum að
neita fátækum þjóðum um það að kenna þeim að veiða
fisk. Hafið er það matvælaforðabúr sem eitt getur svar-
að þörfum síf jölgandi mannkyns. Islendingar hafa það á
sinu valdi, að veiða og ofveiða fisk, meðan aðrar þjóðir
kunna varla að dorga. Vel mætti reikna það út að það
borgaði sig að senda nokkrar skuttogaraáhafnir til
Afrikulanda að kenna mönnum þar að veiða i stað þess
að skrapa hér þriðjung úr ári.
• islendingar bregðast gjarnan vel við þegar ef nt er til
fjársafnana til hjálpar nauðstöddum. I Afríkuhjálp
Rauða krossins söfnuðust til að mynda 200 miljónir
króna. Skilningur virðist því vera f yrir hendi á því að við
í ríkidæmi berum einhverja samábyrgð, eða amk.
hrærumst til samúðar þegar borin eru saman okkar kjör
og annarra. Ráðamenn hafa hinsvegar lítinn eða engan
áhuga á að koma fastri skipan á þróunaraðstoð hins
opinbera eða efla hana að gagni.
• Lögin um Aðstoð Islands við þróunarlöndin voru sett
1971 eftir að rækileg athygli hafði verið vakin á 1%
markmiði Sameinuðu þjóðanna af ýmsum félagasam-
tökum, og þá sérílagi æskufólki. Þingmenn voru þá beitt-
ir þrýstingi og litu upp frá hreppapólitíkinni. Ljóst er að
einhverja slíka vakningu þarf í þjóðfélaginu ef takast á
að láta Alþingi sjá sóma sinn i því að veita þá aðstoð sem
hungraður heimur kallar á og okkur er innan handar að
láta i té.
—ekh
klrippt
! Ánœgjan og
I útvarpið
* Þaö er búiö að skrifa reiöinn-
I ar býsn um útvarpið fimmtugt
I undanfarna daga og þaö hafa
I komiö heillaóskir og brýningar
■ I þá veru aö þörf sé á meira
I örlæti samfélagsins viö svo
I mikilvægt menningarfyrirtæki
I og ráöherra hefur lofað að nú
* skuli byrjaö á nýju útvarpshúsi.
Þær raddir heyrast oft, að I
I gamla daga hafi allt verið svo-
I miklu betra en núna — oft er þá
‘ um roskið fólk aö ræöa, sem
I finnst, eins og eölilegt er, að til-
I veran hafi öll veriö miklu
* skemmtilegri á þess eigin
J forvitnisárum. A dögunum var
I svo ungur maöur, Ólafur
I Hauksson, á þessum sömu bux-
I um þegar hann skrifaöi sina út-
* varpshugvekju i Visi, hann seg-
ir t.a.m.:
„Framan af ævi Rikisút-
I varpsins gátu hlustendur veriö
! sæmilega ánægöir. útvarps-
I menn endurspegluðu tiöarand-
ann og útvarpiö var sá menn-
* ingar-og afþreyingarmiöill sem
J fullnægöi kröfum flestra”.
Þaö er sjálfsagt nokkuö til i
þvi, aö allra fyrst var útvarp
' slikt undur og stórmerki að
J aðdáun hlustenda var mjög
I sterk. En sá Adam mun ekki
hafa veriö lengi i Paradis. Svo
lengi sem flestir muna hefur
það duniö yfir, aö efniö sé ekki
I nógu létt, ekki nógu sniöugt, og
aö það sé alltof mikiö af and-
skotans sinfóniugargi eöa arium
J iútvarpinu. Með öörum orðum:
I það er nokkuð jafngamalt fyrir-
I bæri útvarpinu aö togstreita sé
uppi milli þeirra sem telja sig
J einskonar hándhafa tiöarand-
ans og þeirra sem vinna við út-
varp og vilja hafa þaö á bak við
eyraö, að þaö sé menningar-
tæki. Og gat raunar varla ööru-
visi farið.
Pistill Olafs Haukssonar var
reyndar skrifaöur til aö minna á
þaö baráttumál hans aö hér séu
margar útvarpsstöðvar og sjón-
varpsstöövar, þvi þá veröi
' mannskapurinn svo sæll og
1' glaður. Ekki skal numiö staöar
við þá umræöu aö sinni: en
manni gæti sýnst að hún verði
, úrelt af sjálfu sér fyrr en varöi:
fyrir dyrum stendur ný koll-
steypa i fjölmiölamálum og er
tengd þvi, hve ódýrar mynd-
p segulbandsgræjur eru að veröa.
Sú bylgja mun vafalaust gjör-
breyta stööu allra hljóövarps-
og sjónvarpsstööva, hvort sem
, þær eru reknar af opinberum
■ aöilum eða auglýsendum tann-
krems, kóks og barnapúðurs.
j Þeir jjölþjóðlegu
Sjálfstœðismenn
Höfundur Reykjavikurbréfs
I Morgunblaösins á sunnudaginn
• var hefur komist að niðurstööu
Ium þaö fyrir sina parta hvers
vegna iðnaöarráðherra hafi
áhuga á aö kanna verö á súráli
■ til ISAL, en súrál þetta hefur þá
Ináttúru, eins og segir i Morgun-
blaöinu, aö fyrir þaö er ekki
greitt i peningum — frekar en
■ t.d. fyrir Drottins náö. Bréfrit-
Iari segir aö ástæöan sé sú að
„áróöursmiöstöö heims-
kommúnismans i Moskvu” hef-
■ ur lagt þaö til viö „fylgjendur
Isina i vestrænum löndum” aö
tvö mál veröi höfð á oddi, og er
annaö „baráttan gegn fjölþjóð-
■ legum fyrirtækjum”, m.ö.o.
I alþjóölegum auöhringum.
■
l_
1
paö er fróölegt, aö ekki skuli
neinn lengur mega blaka auga
viö helgum kúm alþjóölegra
stórfyrirtækja án þess aö vera
oröinn erindreki heims-
kommúnismans (sem er reynd-
ar ekki til sfðan leiöir skildu
meö þeim Maó og Krúsjof).
Allir vita aö sönnu, aö hér er
ekki um annað aö ræða en
billegt áróöursbragð heldur
hugmyndalauss aktaskrifara —
en þaö er samt ástæöa til aö
vekja athygli á þvi, hve hjart-
fólgið mál oröstir auöhringanna
er Sjálfstæöismönnum af sauöa-
húsi bréfritara, og kenna þeir þó
flokk sinn viö hugsjón þjóðrlkis-
ins. En hvaö sem menn annars
vilja um alþjóöleg auöfyrirtæki
segja, þá er það þó vist, eins og
einn fjárheimtustjóri Banda-
Eg skamma
munkinn
Hér i Klippi var á dögunum
vikið aö sérstæöri grein eftir
Ingimar Erlend Sigurösson,
sem heitir „Hægri menn snobba
fyrir vinstri mönnum”. Efni
hennar var i stuttu máli þaö, aö
vinstrimenn réöu hverju sem
þeir vildu i uppeldis- mennta- og
félagsmálum öörum, einnig
fjölmiðlum, meðal annars
vegna þess, aö hægri menn
væru bölvaðir aumingjar, sem
ekki þyröu aö tala viö vinstri-
gaurana meö tveim hrútshorn-
um.
Höfundur fyrrnefnds Reykja-
vikurbréfs er afar hrifinn af
þessar spaugilegu grein: hann
segir aö hún „hitti i mark” að
höfundur hennar „hitti naglann
á höfuðiö” og „komi aö kjarna
málsins”, menn hafa fundiö sér
rikjanna hefur aö orði kveöiö,
að ekki hefur annaö eins'tilræði
viö þjóörikiö veriö upp fundin
ogfjölþjóðafyrirtæki aliar götur
frá þvi aö páfakirkjan var og
hét sem veraldlegt vald.
Einn fréttaskýrandi danskur
var einmitt að ræða um þaö á
dögunum i blaöi sinu, aö þegar
nýir stjórnherrar i Washington
væru nú að velta þvi fyrir sér
hvernig þeir mættu endurreisa
veldi Bandarikjanna, þá þyrftu
þeir ekki aöeins að huga að
Sovétrikjunum, oliurikjunum,
bandamönnum i Vestur-Evrópu
og svo þriöja heiminum. Hann
segir „Einnig hin stóru banda-
risku fjölþjóðafyrirtæki hafa
haft verulegu hlutverki aö
gegna i þvi aö veikja
stööu Bandarikjanna á alþjóö-
legum vettvangi. Eftir þvi sem
stórfyrirtækin hafa oröið
alþjóölegri hafa hinar ýmsu
rikisstjórnir Bandarikjanna
glutrað niöur þvi eftirliti meö
þeim, sem bandarisk löggjöf
annars gaf færi á — um leiö og
hringarnir sjálfir hata getaö
grætt bæöi á hækkandi orku-
veröi, hækkandi veröi á ýmsum
hráefnum sem og þróun nýrrar
og framsækinnar tækni”.
-•a
sálufélaga sem þeir eru i ein-
lægni hrifnir af
En þar með eru ekki öll kurl
komin til grafar. Menn gleymi
þvi ekki, aö grein Ingimars
Erlendar er ekki sist beint gegn
þeim „hægri mönnum” sem
„snobbi fyrir vinstri mönnum”.
Þetta er ekki frumleg málsmeð-
ferð — hún er mjög algeng hjá
Indriða G. Þorsteinssyni og öör-
um Svarthausum. Hitt vita
kannski færri, að þegar þessar
skoðanir eru viöraðar, eru
Svarthausarnir aö láta i ljós
óánægju sina meö Matthias
Johannessen ritstjóra Johann
Hjálmarsson rithöfund og gagn-
rýnanda og ýmsa „hægrimenn”
aðra, sem þeim finnst aö hafi
svikiö sig bæöi i rithöfunda-
pólitik og á öörum vettvangi.
Þaö er þessi óánægja sem höf-
undur Reykjavikurbréfs vill
taka undir, og liggur svo mikið
á, aö hann verður jafnvel að
hefja undarlega sóðalega rit-
smiö Ingimars Erlendar
Sigurössonar til skýjanna rétt
eins og annaö eins mannvit hafi
ekki lengi sést.
Eg skamma munkinn en
meina sölótta manninn, segja
Kinverjar.
—áb.
skorrið