Þjóðviljinn - 23.12.1980, Side 16
MOÐVIUINN
ÞriAjudagur 23. desember 1980
AAalstmi ÞjóAviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt aA ná i blaAamenn og aöra starfsmenn
blaösins i þéssum simum: Rltstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aA ná i af-
greiAslu blaAsins I sima 81663. BlaAaprent hefur sima 81348 og
eru blaAamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími
81333 81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Hátíðarsamkoma útvarpsins:
Grænt ljós
á byggingu
útvarpshúss
T .
Á hátíöarfundi ríkisút-
varpsins í Þjóðleikhúsinu á
laugardag færði Ingvar
Gíslason menntamálaráð-
herra því langþráð
lausnarorð er hann með
bréfi gaf grænt ijós á að
stofnunin mætti nýta eigin
sjóð til að hef ja byggingu
útvarpshúss en teikningar
af því hafa nú verið sam-
þykktar. Töluvert fé er
þegar komið í sjóð þennan
en samstarfsnefnd um
opinberar byggingar hefur
hingað til komið í veg fyrir
að hafin væri bygging
hússins.
Þá bar það til tiAinda á fundin-
um aö Leikarafélagið tilkynnti
stofnun sjóðs sem ber nafn bor-
steins ö. Stephensens en nefnt
var á samkomunni að hann væri
kannski eini útvarpsleikarinn
sem Islendingar hafa átt. Stofnfé
sjóðsins er 1 miljón króna og
einnig er honum séð fyrir tekjum.
A samkomunni var upplestur,
söngur og hljóðfæraleikur og
meðal gesta voru forseti Islands,
Vigdis Finnbogadóttir, og danski
útvarpsstjórinn, Lauritz Binslöv. .
—GFi
Andrés Björnsson útvarpsstjóri meðtekur lausnaroröiö langþráöa úr
hendi Ingvars Gislasonar menntamálaráöherra
Hrauneyj arf oss-
virkjun:
Tílboð í und
irstöður fyrir
háspennulínur
A föstudag voru opnuö tilboö i
byggingu undirstaöa fyrir áfanga
4 og 5 i 220 kV háspennulínu
Landsvirkjunar frá Hrauneyjar-
fossi aö spennistööinni á Brenni-
mel i Hvalfiröi.
Lægsta tilboð i áfanga 4 kom
frá Hlaðbæ h.f. og Viði Guð-
mundssyni og hljóðaði upp á 337
milj. kr. (kostnaðaráætlun
Landsvirkjunar 362 milj. kr.) og i
áfanga 5 frá Vörðufelli h.f. en það
hljóöaði upp á 417 milj. kr.
(kostnaöaráætlun Landsvirkj-
unar 446 milj. kr.)
önnur tilboð i áfanga 4 (undir-
stöður fyrir 96 stálmöstur) voru
þessi: Istak 356 milj. kr., Rækt-
unarsamband Flóa og Skeiða h.f.
og Vörðufell h.f. 363 milj. kr.,
Aöalbraut h.f. 372 milj. kr. og
Dalverk h.f. o.fl. 485 milj. kr.
önnur tilboð i áfanga 5 (undir-
stöður fyrir 81 stálmastur) voru
þessi: Hlaðbær h.f. og Viðir Guð-
mundsson 424 milj. kr., Istak h.f.
439 milj. kr. og Aðalbraut h.f. 445
milj. kr. —Gfr
Innanlandsflugið:
Fjöldi fólks
bíður fars til
Vestfjarða
Hægt var að fljúga
til annarra landshluta
í gær
Eftir hretið sem skall yfir sl.
sunnudag og setti allt innanlands-
flug og raunar flug til útlanda
lika úr skoröum greiddist nokkuö
úr i gær.
Hægt var að fljúga til allra
landshluta nema Vestfjarða i
gærdag og sagði Pétur Maack hjá
innanlandsafgreiðslu F1 i gær-
kvöldi aö á þriðja hundrað far-
þega biöu i Reykjavik eftir að
komast til Isafjarðar og um eitt-
hundrað manns til Patreks-
fjarðar.
1 gær var hægt að flytja alla
farþega sem biðu fars til annarra
staða, en vörur var ekki hægt að
flytja.
Ef veöur batnar á Vestfjörðum
og flugfært verður, mun flug
þangað hafa allan forgang i dag,
að sögn Péturs.
—S.dór
Happdrætti
Þjóðviljans:
Viimings-
númer birt
á morgun
Vinningsnúmer i Happdrætti
Þjóöviljans veröa birt i blaöinu á
morgun, aöfangadag jóla. Birt-
ingu hefur veriö frestaö um einn
dag vegna þess aö enn vantar
uppgjör frá nokkrum innheimtu-
mönnum.
GJALDMIÐILSBREYTINGIN HUNDRAÐFALDAR VERÐMÆTI SMÁMYNTARINNAR.
Með henni fær sparibaukurinn sitt fulla uppeldisgildi á ný.
ÚTVEGSBANKIÍSLANDS
: • lík :
l-
TRÖLLI OG TRÍNA eru án efa
einhverjir vinsælustu sparibaukarnir
á íslandi pg „Jóakim frændi" er
trúlega þekktasti peningahirðir í
heiminum.
Þessa frægu sparibauka er einungis
aö fá í Útvegsbankanum.
Þú færð ókeypis sparibauk, TRÖLLA,
TRÍNU eða „JÓAKIM FRÆNDA" í
hvaða afgreiðslu Útvegsbankans
sem er, um leið og þú stofnar þar
sparisjóðsreikning í nafni barnsins
og greióif kr. 10.000 (nýkr. 100.—)
inn á reikninginn.
Sparibaukur er því sérlega tilvalin jólagjöf nú, nokkrum dögum fyrir breytinguna.
Nll FÆR HANN TROLLINYJA KRONU
NÚ ERU AD KONIA JÓL