Þjóðviljinn - 24.12.1980, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 24.12.1980, Qupperneq 3
Miðvikudagur 24. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Kvikmynda- blaðið — nýtt tímarit Kvikmyndablaðið l.tbl. l.árg. er komið'út. Hér er um aö ræða Timarit sem kvikmyndaunn- endur hafa lengi þráð, þvi það er helgað kvikmyndum, innlendum sem erlendum. Meðal efnis i þessu fyrsta tölu- blaði eru greinar eftir Hrafn Gunnlaugsson, Viðar Vikingsson Þráin Bertelsson, Bergþóru Gisladóttur og Orn Þórisson. Fjallað er um jólamyndir kvik- myndahtlsanna, nyútkomna bók um kvikmyndir, birt er þýtt viðtal við breska kvikmyndastjórann John Boorman ofl., Ætlunin er að Kvikmyndablaðið komi út tiu sinnum á ári. Ritstjóri er Friðrik Þór Firiksson og aðstoðarritstjóri Jón Karl Helga- son, en Sveinn Blöndal sá um útlit blaðsins, sem er 52 blaðsiður, prentað i Hagprent. Kvikmynda- blaðið fæst f öllum kvikmynda- húsum Reykjavikur og á flestum blaðsölustöðum og kostar 2000 Gkr. Skrifstofa blaðsins er að Vesturgötu 3, simi 13339, og er hægt að gerast áskrifandi þar. Einmana tjald stóð enn uppi I Laugardalnum i snjókomunni f gær. Liklega nokkuð kaisamt um jólin — Ljósm.: —eik — Sjómannasamningarnir: Næsta skrefið er að afla verkfallsheimilda — neiti útgerdarmann áfram að rœða við okkur blasir verkfall við, segir Guðmundur Hallvarðsson Eftir aö útgeröarmenn stóðu upp á samningafundi á dögunum og neituöu að ræða frekar við sjó- menn um nýja kjarasamninga, hefur iitið i málinu gerst. Framundan er ákvörðun um nýtt fiskvcrðum áramótin, þannig að mörgu á eftir að ganga frá áður en vetrarvertið hefst. — Næsta skrefið i þessu máli er að félögin innan Sjómannasam- bandsins afli sér verkfallsheim- ildar en það hafa þau ekki öll gert enn þá. Þegar þau hafa gert það, munum við i sjómannasamtökun- um ráða ráðum okkar, sagði Guðmundur Hallvarðsson vara- formaður Sjómannasambandsins i viðtali við Þjóðviljann i gær. Aöspuröur um verkfall, sagði Guðmundur að ljóst væri að ef útgerðarmenn héldu fast við fyrri ákvörðunsina um að neita samn- ingaviðræðum, útaf jafn miklu réttlætismáli og samræming i lif- eyrismálum sjómanna væri, sæi Guðmundur Hailvarðsson hann ekki aðra leið færa en beita verkfallsvopninu. Sem dæmi um hve mikið réttlætismál lifeyris- samræmingin væri sagði Guðmundur að það gæti munað meira en helming hvað togara- sjómaður fengi miklu hærri lif- eyrisgreiðslu, en bátasjómaður þegar látið væri af störfum. Tómas Árnason sem nú gegnir stöðu sjávarútvegsráðherra i fjarveru Steingrims Hermanns- sonar kvaddi fulltrúa Llú i gærmorgun til viðræðna um ástæður þeirra til að slita samn- ingaviðræðum. Sagði hann að rikisstjórnin mundi gera allt sem i hennar valdi stendur til að leysa deiluna. — S.dór. Rekstur barnaheimilanna dýr: 1 miljarður í byggingar dagyistarstofnana nyrra i ræöu sinni um f járhagsáætlun Reykjavikurborgar 1981 fjallaði borgarstjóri um dagvistarstofn- anir borgarinnar, rekstur þeirra og fyrirhugaðar framkvæmdir, og sagði m.a.: Þrátt fyrir verulega áformaðar hækkanir á dagvistargjöldum og ótalinn kostnað vegna launa- Kostnaður við rekstur heilsu- gæslustöðva eykst verulega á næsta ári og um það sagði borgarstjóri i framsögu fyrir fjárhagsáætlun 1981: Gert er ráð fyrir þvi að hin nýja heilsugæsiustöð i G-álmu Borgar- spitalans starfi allt árið. Heil- brigðisráð hefur jafnframt gert tillögu um að borgarsjóður kaupi hlut i nýrri heilsugæslustöð á Sel- tjarnarnesi og reki hana i sam- vinnu við Seltirninga en talið er að stööin geti komið i gagnið á ár- inu. Borgarstjórn hefur enn eigi fjallað um þessa tillögu og er fjárveiting til rekstrarþátttöku i hinni nýju stöð þvi ekki i frum- varpi að fjárhagsáætlun. hækkana á næsta ári nemur kostnaður borgarsjóðs við hvert barn á dagheimili um 1 miljón 775 þúsundum króna á ári. Fjölgun dagheimila leiðir þvi augljóslega af sér aukinn rekstrarkostnað borgarsjóðs en á móti kunna að koma auknar tekjur vegna fjölg- unar launþega á vinnumarkaði. Heilbrigðisráð undirbýr nú stórátak i uppbyggingu heilsu- gæslustöðva i borginni. Þarf að vanda þann undirbúning vel og tryggja kostnaðarþátttöku rikis- sjóðs i stofnkostnaði hinna nýju stöðva áður en farið er af stað. Hins vegar mun verulegur rekstrarkostnaður lenda á borgarsjóði, þótt þær spari mikið fé á öðrum liðum i hinu flókna greiðslukerfi heilbrigðiskerfisins. Rekstur heilsugæslustöðvanna, fjögurra, i Hraunbæ, i Domus Medica i Asparfelli og i Borgar- spitala er áætlaður að muni kosta 172 miljónir á næsta ári. Siðar i ræðu sinni, sagði Rekstur barnaheimila Reykja- vikurborgar kostar borgarsjóð 2.7 miljarða króna á næsta ári og hefur þá verið gert ráð fyrir að veruleg hækkun fáist á vistgjöld- um. Verðlagsyfirvöld hafa sem kunnugt ertalið sig hafa umfjöll- unarrétt um fjárhæð dagvist- unargjalda og þá úrskurðað þau borgarstjóri: Framundan er mikið óleyst verkefni, við að byggja upp kerfi heilsugæslu- stöðva hér i borginni. Gert er ráð fyrir fjárveitingu að fjárhæð 150 miljónir i þessari fjárhagsáætlun til bygginga eða innréttinga nýrra heilsugæslustöðva, en ljóst er að sú fjárhæð mun duga skammt. Bygging heilsugæslu- stöðva er kostuð af rikissjóði að 85% og er þvi nauðsynlegt að gengið sé eftir þvi að rikið upp- fylli skyldur sinar i þvi efni, en borgarsjóður sé ekki neyddur til þess að framkvæma og i raun kosta byggingu stöðvanna sökum sinnuleysis fjárveitingavaldsins um þessa starfsemi hér i borg. stöðugt lægri hluta al reKstrar- kostnaði heimilanna. Vafasamt verður að telja að iram- kvæmdavaldið geti þannig i raun fyrirskipað sveitarfélögum skattlagningu á þegna sina i þvi skyni að greiða niður dagvistun barna. Sá ákvörðunarréttur hlýtur aö eiga að vera i hendi sveitarstjórnanna. Á árinu 1980 hafa bæst við dag- vistarstofnarnir við Iðufell, Arnarbakka og Hálsasel og skóla- dagheimili við Blöndubakka og i Austurbæjarskóla. Á næsta ári bætast við dagheimili og leikskóli við Ægissiðu og e.t.v. fleiri stofn- anir. Reiknað er meö þvi að i árs- lok 1981 verði rúm fyrir 905 börn á dagheimilum borgarinnar, 356 börn á dagheimilum og leikskól- um og 1690 börn á leikskólum. Á sviði dagvistarmála eru helstu framkvæmdir bygging dagheimilis og leikskóla við Ægissiðu, þá má nefna dagheimili við Tungusel, Hraunberg og Bústaðaveg svo og skóladag- heimili i Breiðholti III. Fleiri stofnanir eru á framkvæmda- áætlun 1981, en alls er ætlað að framkvæma fyrir 1030 miljónir á þessu sviði. Nýjar heilsugæslustödvar Djass á milli hátíða Mánudaginn 29. desember heldur Jazzvakning sibasta djasskvöld ársins. Það verður á Hótel Borg og hefst kl. 21. Fram koma Kvartett Guðmundar Ingólfssonar og Nýja kompaniið og sérstakir gestir verða Rúnar Georgsson og Viðar Alfreösson. Kvartett Guðmundar Ingólfssonar skipa Björn Thoroddsen gítar, Gunnar Hrafnsson bassa, Guðmundur Steingrfmsson trommur og Guðmundur Ingólfsson píanó. Nýja kompaniiðsamanstendur af Jónanni G. Jóhnnssyni pianó, Jóhönnu Þórhalldsóttir söng- vara, Sigurbirni Einarssyni tenórsaxófón, Sigurði Flosasyni altsax, Sigurði Valgeirssyni trommur, Sveinbirni Baldvins- syni gítar og Tómasi Einarssyni kontrabassa. • • Jón Orn Marínósson aðstoðar- dagskrár- stjóri A föstudag var Jón Orn Maninósson fréttamaður á fréttastofu útvarpsins ráðinn i stöðu aðstoðardagskrár. stjóra hjá sömu stofnun. Tekur hann viö af Baldri Pálmasyni sem hættir nú störfum eftir langt starf hjá útvarpinu. Jón Orn er 34 ára gamall og lögfræöingur að mennt. —GFr Kvenréttindafélag / Islands: Undrun á af- stöðu ASÍ Kvenréttindafélag Islands minnir Alþýðusamband tslends á það, að nú er hálfnaður kvennaáratugur Sameinuðu þjóðanna, sem ætlað er að vinna að réttindamálum og auknum áhrifum kvenna um heim allan. Innan Alþýðusambands tslands eru konur tæplega helmingur félagsmanna. A nýafstöðnu ASt-þingi gerðist það hins vegar, að konum i miðstjórn Alþýðusambands- ins fækkaði um þriðjung. Stjórn Kvenréttinda- félagsins lýsir undrun sinni og vanþóknun á þessu. Það er yfirlýst markmið stjórn- valda á tslandi að vinna að jafnrétti kynjanna i reynd. Alþýðusambandi Islands sem stærstu launþegahreyf- ingu i landinu ber skylda til að virða þessi markmið og framfylgja þeim i hvivetna. (Fréttatilkynning) Verum viðbúin vetrarakstri)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.