Þjóðviljinn - 24.12.1980, Síða 12
LEIKHÚS UM JÓLIN
12 StÖA — ÞJÓÐVILJINN Míðviklidagur 24. deseiiibér' 1980
Frumsýning í Þjóðleikhúsinu
á annan dag jóla
Nýr
íslenskur
ballett
Hf ■ 'iMé
Sveinbjörg Alexanders og Michael Molnar á sviðinu i Þjóðleikhúsinu i Blindisleik.
Blindisleikur
eftir Jón Asgeirsson og Jochen Ulrich
Áannan dag jóla verður
frumsýndur nýr íslenskur
ballett, Blindisleikur. Tón-
listin og sagan eru eftir
Jón Ásgeirsson tónskáld,en
Jochen Ulrich hefur samið
dansana og sviðsett verkið
ásamt Sveinbjörgu Alex-
anders dansara.
Blindisleikur er byggður á sög-
unni um Gilitrutt, en fer þó sinar
eigin leiðir. Gilitrutt birtist sem
karlmaður og heitir Kolur. Hann
er i ætt við djöfulinn og býr með
hyski sinu i firrtri, afskræmdri
og vélrænni veröld. Andstæða
þessheimsersveitin þar sem þau
hjónin Búi og Freyja yrkja jörð-
ina. Kolur verður vitni að ham-
ingju þeirra og ákveður að ná sér
niðri á þeim. Hann lokkar Freyju
til sin og lif hans heillar hana um
stund. Hdn verður fangi skraut-
búnings og hreyfingar hennar
verða um leiö afskræmdar. Búa
tekst að frelsa hana og setur um
hana verndarhring. Þau halda
aftur heim, reynslunni rikari og
frjálsari.
Þarna er komin gamla sagan
um baráttu góðs og ills i liki is-
lenskrar þjóðsögu.
A fundi með aöstandendum
sýningarinnar kom fram að ball-
ettinn er sveigður að efninu, hann
á að sýna fólk, á máli nútimans.
Allt er sýnt meö hreyfingum.
Jochim Ulrich sagði að hann
kannaðist sjálfur við svipaðar
þjóðsögur, enda upprunnmn úr
fjallahéruðum Þýskalands þar
sem þeir Faust og djöfsi voru eitt
sinn á ferð, að ekki sé minnst á
aðrar sögupersónur sem við
þekkjum úr ævintýrum þeirra
Grimmsbræðra.
I aðalhlutverkum eru Svein-
björg Alexanders sem dansar
Freyju, Michael Molnar dansar
hlutverk Búa og Conrad Bukes er
Kolur. Islenski dansflokkurinn á
stóran hlut að máli, þær Ingibjörg
Pálsdóttir, Asdis Magnúsdóttir,
Birgitta Heide, Guðrún Páls-
dóttir, Helena Jóhannsdóttir,
Helga Bernhard, Lára Stefáns-
dóttir, Olafia Bjarnleifsdóttir og
örn Guðmflndsson ásamt fjölda
annarra dansara Alls taka um 40
manns þátt i sýningunni auk Sin-
fóniuhljómsveitar Islands sem
leikur undir stjórn Ragnars
Björnssonar. Leikmynd og bún-
inga gerir Sigurjón Jóhannsson
og lýsingu annast Kristinn
Danielsson.
Blindisleikur er ein viðamesta
ballettsýning sem Þjóðleikhusið
hefur sett á svið og i fyrsta skipti
sem flutt er lifandi tónlist
með ballett. Sveinbjörg Alexand-
ers lét þess getið að i dönsunum
væru notuð spor úr islenskum
þjóðdönsum og tónlist Jóns
Asgeirssonar hefur yfir sér blæ
þjóðlaganna eins og honum ein-
um er lagið.
Frumsýningin er sem áður
segir á annan i jólum, önnur sýn-
ing á þriðja i jólum og hin þriðja
þriðjudaginn 30. des.
—ká
Alþýðuleikhúsiö:
Sýning á
Kóngs-
dótturinni
Alþýðuleikhúsið sýnir finnska
barnaleikritið „Kóngsdótturin'a
sem kunni ekki að tala” í Lindar-
bæ sunnudaginn 28. des. kl. 15.00.
Höfundur leikritsins er
Christina Andersson, þýðandi og
leikstjóri Þórunn Sigurðardóttir
og Guðrún Auðunsdóttir gerði
leikmynd og búninga. Leikendur
eru fjórir.
Sýningin á sunnudaginn er 13.
sýning leiksins, en aðsókn hefur
verið með miklum ágætum.
Miöasalan i Lindarbæ verður
opin sunnudaginn 28. des. frá kl.
12.00. Sl'mi er 21971.
í>
Anna Einarsdóttir og Sólveig
Halldórsdóttir I hlutverkum sin-
um i Kóngsdótturinni sem kunni
ekki aö tala.
ífyf' ' 9
vV.*,]
Þeir voru allir með Millilandafrumvarpinu ungu mennirnir árið 1912
þegar Þórbergur var að afla sér visku og yrkja af innblæstri. Mvndin er
úr Ovitanum i Iðnó. Frá vinstri: Haraid G. Haralds, Valgeröur Dan,
Hjalti Rögnvaldsson, Jón Hjartarson (Meistari Þórbergur) og Emil
Gunnar Guðmundsson sem unga skáldið Þórbergur.
Glima Grettis og Gláms i nútímastíl, sjónvarpsdraugurinn og and-
hetjan úr Breiðholtinu mætast. Egill ólafsson og Kjartan Ragnarsson i
GRETTI.
Á fjölunum í Iðnó
lönó verður meö sýningar
á þremur verkum yfir
hátiðarnar.
Grettir
Grettir verður sýndur á mið-
nætursýningu i Austurbæjarbiói á
þriðja i jólum, laugardaginn 27.
des. Grettir fjallar um strák I
Breiðholtinu sem eins og nafni
hans forðum lendír i afbrotum, er
bjargað og verður sjónvarps-'
stjarna, en leggur siðan frægðina
á hilluna til að vera manneskja.
Við sögu koma fjölskylda Grettis,
kennarar, pönkarar, sjónvarps-
liðið og fleira fólk sem auk þess
að leika, bregur fyrir sig söng og
dansi. Höfundar eru þeir ólafur
■Haukur Simonarson, Þórarinn
Eldjárn og Egill Ólafsson.
Það er Kjartan Ragnarsson,
sem fer með titilhlutverkið, Jón
Sigurbjörnsson og Sigurveig
Jónsdóttir leika foreldra hans,
Harald G. Haraldsson Atla bróð-
ur hans, Hanna Maria Karlsdóttir
Gullauga, systur hans, og Ragn-
heiður Steindórsdóttir Siggu
kærustuna hans. Þá fer Egill
ólafsson með hlutverk sjónvarps-
draugsins Gláms en allur hljóð-
færaleikur er i höndum Þursa-
flokksins, sem i eru auk Egils þeir
Asgeir óskarsson, Tómas
Tómasson og Þórður Arnason.
Fjöldi annarra leikara og söngv-
ara kemur fram i sýningunni,
sem i eru 20 söng- og dansatriði.
Höfundur dansa er Þórhildur
Þorleifsdóttiren leikstjóri Grettis
er Stefán Baldursson.
Rommi
Rommi verður sýnt i Iðnó
laugardagskvöldið 27. des.
Höfundurinn D.L. Coburn hlaut
Pulitzgv verðlaunin bandarisku
áriö 1978 fyrir þetta verk sem
valiö var besta nýja leikritiö það
ár.
Það segir frá samskiptum
tveggja roskinna einstaklinga á
elliheimili, samskiptum, sem á
stundum verða mjög stormasöm,
en leikritið fjallar ekki eingöngu
um aidraöa heldur manneskjur
yfirleitt. Það eru þau Gisli Hall-
dðrsson og Sigriður Hagalin, sem
fara á kostum i hlutverkum
Fonsiu og Wellers,en leikstjóri er
Jón Sigurbjörnsson.
Ofvitinn
Ofvitinn verður sýndur að
kvöldi annars dags jóla i Iðnó.
Það þarf vart að kynna Ofvitann,
enda hefur hann verið sýndur á
annað leikár. Það var Kjartan
Ragnarsson sem gerði leik-
Gömlu hjúin á elliheimilinu spila
Rommi og spjalla saman.
Sigriður Hagalin og Gisli llall-
dórsson i ROMMÍ.
gerðina eftir bók Þórbergs
Þórðarsonar. Þar segir frá Þór-
bergi ungum, er hann kemur af
sjónum eftir að hafa verið skit-
kokkur og eiturbrasari. Hann
ætlar að ganga inn i hið helga
musteri vitneskjunnar Kennara-
skólann, en þar reynist viskan
ekki vera til húsa. Fjöldi persóna
kemur við sögu, ungir menn sem
eru að uppgötva lifið, jafnt i
ástum sem trú á hjálpræðis-
herinn.
Jón Hjartarson leikur meist-
arann og hefur hlotið mikið lof
fyrir, en Emil Gunnar
Guðmundsson leikur hann á unga
aldri, þegar sagan gerist. Fjöldi
annarra leikara taka þátt i
sýningunni og Atli Heimir Sveins-
son hefur samið tónlistina við
verkið.
Æfingar standa nú yfir á
ÓTEMJUNNI eftir Shakespeare i
þýðing Helga Hálfdánarsonar.
Með aðalhlutverkin fara Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir og Þor-
steinn Gunnarsson,en leikstjóri er
Þórhildur Þorleifsdóttir. Frum-
sýning fyrirhuguð um miðjan
janúar.