Þjóðviljinn - 03.01.1981, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.-4. janúar 1981
NOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóöfrelsis
Ctgefandi: O gáfufélag Þjööviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
óV'fsson.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friörikssoi’.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir,
Bára Sigurðardóttir.
Sbnavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Reykjavfk, sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Trygging kaupmáttar
% Á gamlársdag tókst samkomulag í ríkisstjórninni
um nýjar efnahagsráðstafanir, sem koma til fram-
kvæmda nú um áramótin að verulegu leyti, en sum atriði
þeirra þó ekki fyrr en nokkru síðar.
• Höf uðtilgangur þessara efnahagsráðstafana er þrí-
þættur.
• í fyrsta lagi, að tryggja minnkandi verðbólgu á
næsta ári í stað þeirrar 70% óðaverðbólgu, sem við
blasti, ef ekki hefði verið gripið í taumana.
• í öðru lagi, að tryggja kaupmátt almennra launa
þannig að meðalkaupmáttur ráðstöf unartekna almenn-
ings verði ekki lægri á árinu 1981 en verið hefði án efna-
hagsaðgerða.
• í þriðja lagi að efla atvinnulíf ið og tryggja öllum
landsmönnum næga atvinnu.
• Lítum nokkru nánar á málin, kjaramálin sérstak-
lega. Það atriði sem langmestu máli skiptir varðandi
kjaramálin í hinu nýja samkomulagi um ef nahagsmál er
afnám skerðingarákvæða Ólafslaga við útreikning verð-
bóta á laun.
• Þessi kaupskerðingarákvæði Ólafslaga höfðu verið í
gildi hátt á annað ár f rá því að lögin voru sett. Nú er hins
vegar ákveðið að greiða verðbætur á laun óskertar í
samræmi við hækkun framfærsluvísitölu. Ef þessi regla
sem nú er tekin upp hefði gilt við útreikning verðbóta á
laun allan gildistíma Ólafslaga, þá hefðu almenn laun nú
um áramótin verið 16,6% hærri heldur en þau voru i
reynd. Þetta er staðfest af Þjóðhagsstofnun, og það eru
skerðingarákvæði ólafslaga, sem hafa valdið þvi að
þessi 16,6% hef ur vantað upp á kaupið miðað við greiðslu
verðbóta samkvæmt framfærsluvísitölu.
• Við skulum rekja hér hver þessi skerðingarákvæði
hafa verið og þátt helstu ákvæðanna í kaupskerðingunni.
Vegna tengingar við vísitölu viðskiptakjara vantaði 6,4%
íkaupið, vegna búvöruf rádráttarins vantaði 5,4% (engin
hækkun verðbóta út á búvöruhækkun vegna breytinga á
launalið bóndans), aðrir skerðingarliðir áfengi, tóbak og
olía,gera svo samtals 4,8%.
• Það er þessi áður lögbundna og sjálfvirka
kaupskerðing sem á árinu 1981 hefði haldið áfram að
salla niður kaupmáttinn að óbreyttu, sem nú hef ur orðið
samkomulag um aðafnema. Það er mikill pólitískur sig-
ur fyrir verkalýðssamtökin og fyrir allt launafólk í land-
inu.
• Auðvitað hlaut þessi sigur að kosta eitthvað í samn-
ingum flokkanna, og það sem hann kostaði er að á móti
fullum verðbótum á laun samkvæmt framfærsluvísitölu
á þessu ári 1981, þá verða sjö vísitölustig dregin frá i eitt
skipti, þ.e. við útreikning verðbóta á laun fyrir 1. mars
n.k.
• Þegar á það er litið að í samkomulagi rikisstjórnar-
innar er gert ráð fyrir skattalækkun hjá lágtekjufólki og
fólki með miðlungstekjur, sem svari 1,5% í launum, —
og þegar ennfremur er haft í huga að minnkandi verð-
bólga þýðir minni kjararýrnun frá upphafi til loka sér-
hvers verðbótatímabils, —þá er það ekkert vafamál, að
sé litið á árið 1981 í heild, þá kemur a.m.k. ekki lakari
kaupmáttur ráðstöfunartekna almenns launafólks út úr
efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar, heldur en verið
hefði að öllu óbreyttu.
• Fyrir verkalýðshreyfinguna er hér a.m.k. um slétt
skipti að ræða og jafnvel rúmlega það.
• Rétt er hins vegar að taka f ram, að gert er ráð f yrir
að þeir sem hafa meira en tvöföld lágmarkslaun verka-
fólks í kaup fyrir dagvinnu, það er yfir 725 þús. kr. á
mánuði losni ekki undan skerðingarákvæðum Ólafs-
laganna, og er þetta í samræmi við launajöfnunarstefnu
rikisstjörnarinnar.
• Efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar er við það mið-
uð að koma verðbólgunni a.m.k. niður f yrir 50% á því ári
sem nú er hafið. Án aðgerða hefði verðbólgan orðið
meiri en nokkru sinni fyrr og komist í um 70% að mati
f róðustu manna. Hér er til mikils að vinna. Meðal þeirra
ráðstafana sem ætlaðar eru til að draga úr verðbólgunni
má nefnai
• Gengi krónunnar verður haldið stöðugu næstu mán-
uði, en útflutningsatvinnuvegunum tryggð afkomuskil-
yrði með millifærslu i stað gengissigs.
• Allar verðhækkanir eru bannaðar til 1. maí nema
með sérstöku leyfi ríkisstjórnarinnar. Vextir verða
lækkaðir, en verðtrygging sparifjár tryggð gegn 6
mánaða bindingu. — k.
# úr almanakínu
Jól á tslandi eru ekki kristin
hátlö — þau eru fyrst og fremst
mesta markaöshátiö ársins. Og
i ööru lagi kærkomin hvildar- og
sólrisuhátfö. Kristnin er aöeins
ytra form alls tilstandsins, um-
búöir um jólasteikina, nýja lita-
sjónvarpið og marglit ljós.
Hér má reyndar minna á aö
jól voru haldin hátíöleg löngu
áöur en kristni barst til norr-
aenna þjóöa og oröiö iól á ekkert
skylt viö fæöingu Jesúsar
Jósefssonar.
1 heiöni voru menn aö
fagna hækkandi sól á þessum
árstima. Og ef grannt er skoöaö
er býsna margt i jólasiöum
Þetta
mi 17
eru makindalegir
góðborgarar
okkarættaö úr grárri forneskju.
Má þar nefna jólasveinana
þrettán, einn fyrir hvern dag
jóla, jólaköttinn, Grýlu og
Leppalúöa og ýmislegt i þeim
dúr. Þetta hyski á ekki hiö
minnsta skylt viö kristinn siö.
Ekki er ég hér aö gera litiö úr
þeim sem halda jólin heilög meö
trúartilbeiöslu. Þeir eru bara
svo fáir og fer sennilega fækk-
andi. Margt fólk fer samt i
kirkju um hátiöarnar, þvi finnst
þaö kannski notalegt og þaö er
vant þvi. Eins og fyrr sagði er
kirkjusókn i hugum flestra
form, gömul hefö, ihaldssemi.
Sjálfum finnst mér gott aö
heyra jólaguöspjallið. Það til-
heyrir þessari hátiö, er fagur
texti eins og margt i Bibiiunni.
Hún er með ágætustu bók-
menntaverkum sem þýdd hafa
veriö á islenska tungu, marg-
slungin og f jölbreytt. En Biblian
vekur ekki trú mina — þar sem
höfundum hennar tekst best upp
er hún i mesta lagi til siðferði-
iegrar eftirbreytni.
Þeirsem hæstgala um kristin
jól, kaupmenn og þeirra nótar,
eru i raun og veru i sömu spor-
um og þeir sem Jesús Mariuson
rak út úr Musterinu foröum
daga. Samt er ég ekkert aö am-
ast við verslun, prangi og prett-
um á þessari hátiö. Þaö til-
heyrir ærlegum markaöshátiö-
um. Og þetta er kannski okkar
eina stóra markaöshátiö. Hitt er
hræsni að kenna hana viö fæö-
ingarhátið frelsarans.
Islendingum er nauösyn á þvi
að halda jól hátiöleg helst i
marga daga, 13 daga. Hér á
noröurhjara veraldar er
myrkriö svo svart á þessum
árstima aö við veröum aö fagna
sólu, dýrka hana. Viö veröum að
létta okkur upp, reyna að reka
burtu þungar hugsanir,
skemmta okkur, kveikja mörg
ljós, gjalda gjöf viö gjöf og fara
vin heim að sækja. Ljós, dýrar
veigar og drykkir er okkur
nauðsyn á jólum, lækninga-
meöal.
Hitt skiptir minna máli hvort
viö erum kristinnar trúar,
Búddatrúar, Múhameöstrúar
eöa trúum bara á stokka og
steina eöa ekki neinu. Reyndar
held ég að efasemdarmenn i
trúarefnum séu kannski þegar á
botninn er hvolft sönnustu trú-
mennirnir. Þeir hafa þó lagt á
sig að hugleiða trúna og komast
að niöurstööu. Flestir hinna i
kirkjuræknu hafa aldrei hugleitt
trú, þeir „trúa” bara á Krist af
þvi aö mamma og pabbi gerðu
þaö, þeim finnst þægilegast aö
láta allt danka i sinu fari —
hugsunarlaust. Aðrir eru að
sjálfsögöu meðvitaðir um póli-
tiskt hlutverk kirkjunnar — ópi-
um fólksins. Þeir fara i kirkju
öörum til eftirbreytni.
Ég legg stundum eyru við orð-
um presta i útvarpinu á sunnu-
dagsmorgnum. Flestir hafa
ekkert að segja okkur. Þetta eru
makindalegir góðborgarar —
rétt eins og viö hinir. Ég hef
frétt að 12 prestar hafi verið
beðnir aö flytja mál flótta-
manns úr Frakklandi á útifundi
á Lækjartorgi um daginn. Eng-
inn þeirra haföi tima. Sennilega
heföi fariö eins fyrir þeim ef
þeir hefðu lifaö fyrir tæpum
tveim þúsundum ára.
Sjájfur hef ég gaman af þvi aö
skoöa Bibliuna eins og annan
góöan texta. LjóBalióöin eru t.d.
dýrlegur bersögliskveöskapur,
einstakiega fagur i islensku
þýöingunni.
Aldrei hef ég heyrt fariö með
þennan Bibliutexta i kirkju. Og
reyndar ekki heldur orð
prédikarans sem hlýtur aö hafa
veriö hinn argasti efahyggju-
maöur eins og margir trúmenn.
„Aumasti hégómi, segir
prédikarinn, allt er hégómi!”
1 Bibliunni er nefnilega að
finna jafnt trúleysi sem trú,
einnig grimmd og græögi jafnt
sem kærleika og auðmýkt. Þar
að auki er hún svo tviræð aö
hver getur lagt út af henni á sinn
hátt. Þess vegna eru upp
sprottnir þúsund kristnir trú-
flokkar sem deila hver á annan
fyrir trúvillu.
Til gamans ætla ég aö ljúka
þessu marklitla hjali minu meö
tilvitnun i prédikarann og
mættu þeir sem hafa lifaö i vel-
lystingum praktuglega nú um
þessi jól og kýlt vömbina hug-
leiöa þessi orð hans — ekki þó til
aö eyðileggja fyrir sér gleðina
og gróöann heldur einungis til
skemmtunar:
„Og allt það sem augu min
girntust, þaö lét ég eftir þeim,
ég neitaöi ekki hjarta minu um
nokkra gleöi, þvi að hjarta mitt
hafði ánægju af allri fyrirhöfn
minni, og þetta var hlutdeild
min af allri fyrirhöfn minni. En
er ég leit á öll verk min, þau er
hendur minar höföu unniö, og á
þá fyrirhöfn er ég haföi haft fyr-
ir að gjöra þau, þá sá ég, að allt
var hégómi og eftirsókn eftir
vindi, og aö enginn ávinningur
er til undir sólinni”. (Predikar-
inn 2.10)
„Já, fögur ertu, vina min
já, fögur ertu,
augu þin eru dúfuaugu
út um skýluraufina.
Hár þitt er eins og geitahjörö,
sem rennur niöur Gileaöfjall
Tennur þinar eru eins og hópur af nýklipptum ám,
sem koma af sundi,
sem allar eru tvilembdar
og engin lamblaus meöal þeirra.
Varir þinar eru eins og skarlatsband
og munnur þinn yndislegur”.
Guðjón
Friðriksson
i
skrifar