Þjóðviljinn - 03.01.1981, Blaðsíða 8
Þjóðleikhiísiö sýnir
BLINDISLEIK
bailett eftir Jón Ásgeirsson
Danshöfundur og
leikstjóri: Jochen Ulrich
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson
Hljómsveitarstjórn: *'
Ragnar Björnsson
Jón Ásgeirsson er ekki að vila
fyrir sér smámunina. Hann varö
fyrstur til að færa okkur raun-
verulega íslenska óperu, og nii
gefur hann okkur fyrsta islenska
ballettinn. Blindisleikur er laus-
lega byggður á þjóðsögunni um
Gilitrutt og dregur upp skarpar
andstæöur góðs og ills. Fulltrúi
hins góöa er bóndinn Búi svo og
sveitungar hans sem lifa fallegu,
nægjusömu lifi i samræmi við
náttúruna. Fulltrúi hins illa er
Kolur, sem ásamt hyski sinu lifir
afskræmdugervilifisokkinn á kaf
i geöveiki neyslunnar og
græðginnar. Konan Freyja lætur
um stund ánetjast Kol og
freistingum hans en með hjálp
bónda sins tekst henni að lokum
að yfirvinna hin illu öfl og öölast
sitt náttúrulega fas að nýju.
Þessa sögu má svo auðvitað túlka
á marga vegu þar sem hún hefur
mjög almenna skirskotun, en
beinast liggur við að sjá i henni
andóf gegn þvl að fórna öllum
gömlum verðmætum fyrir aukna
iðnvæðingu og neyslu, og kannski
ekki sist gegn þvi að við
Sverrir Hólmarsson skrifar
8 SJÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.-4. janúar 1981
Conrad Bukes og Sveinbjörg Alexanders dansa aóalhlutverkin —
Ljósm. — gel —
ar misjafna reynslu og þjálfun.
Hannhefur verið ótrúlega naskur
á að finna hverjum og einum það
sem hann ræöur við og fella allt
saman i heilsteyptan stil. Þetta er
auðvitað ekki hægt aö gera i hefð-
bundnum bállett, en nútimadans
er miklu áveigjanlegri og fjöl-
breyttari að tjáningaraðferðum.
Það fer auðvitaö ekki á milli
mála að grundvöllur þessarar
sýningar er þrotlaust starf
islenska dansflokksins undan-
farin ár, við erfiðar aðstæður og
rýran kost. Stúlkurnar i dans-
flokknum búa yfir talsveröum
dramatiskum hæfileikum sem
nýttust vel i þessari sýningu. Hér
hefur hins vegar rikt tilfinnanleg-
ur skortur á karldönsurum, en
það fjölskrúðuga lið sem hér var
safnað saman stóð sig af prýði.
I aðalhlutverkunum eru inn-
fluttir dansarar, og er vist ekki
annars kostur enn sem komiö er.
Þau þremenningarnir eru öll
fyrsta flokks dansarar á
alþjóölegum mælikvaröa og hrein
unun að sjá til þeirra. Conrad
Bukes var traustur og heiörikur i
hlutverki bóndans. Sveinbjörg
Alexanders býr yfir mikilli tækni
og skaphita og túlkaöi togstreitu
bóndakonunnar af krafti. Michael
Molnar er afarglæsilegur dansari
og túlkaöi Kol af djöfullegum
þrótti. Samleikur hans og Svein-
bjargar i hápunktsatriði verksins
var mjög ahrifamikill, þó að það
atriði liði nokkuö fyrir að vera
teygt einum um of á langinn.
Sinfóniuhljómsveitin lék undir
stjórn Ragnars Björnssonar og
leystisitthlutverk velaf hendi. Sé
einhver enn að velkjast i vafa um
hvort við höfum efni á að halda
þessari hljómsveit gangandi hefði
sá hinn sami gott af að hugleiða
að án hennar hefði þessi sýning
aldrei oröiö aö veruleika. Og á þvi
hefðum við sannarlega ekki efni.
Sverrir Hólmarsson.
þessu öllu saman mjög lifandi,
dramatisk og kröftug leiksýning.
Þarerauðvitaðfyrstogfremst að
þakka fyrir framlag danshöf-
undar og stjórnanda, Jochen Ul-
richs, sem virðist ekki einungis
góður kóreógraf heldur einnig af-
burðasnjall leikhúsmaður meö
mjög næmt auga fyrir sjónrænni
hrynjandi á sviöi. Hann hefur
einnig notið góðrar aðstoðar Sig-
urjóns Jóhannssonar sem sýnir
hugmyndaauögi og dirfsku I
leikmynd og búningum, og þess
Dansarar eru félagar i lslenska dansflokknum og nemendur List-
dansskóla Þjóölcikhússins. — Ljósm. — gel —
ánetjumst stóriðjudraumnum.
Tónlist Jóns er mjög hressileg,
fjörug.skapmikil og lætur afar vel
i eyrum við fyrstu heyrn. Ekki
gat ég betur séð en hún túlkaði
mjög vel þaö sem sagan er að
segja og að hún væri vel nýtileg til
aö dansa eftir. Allavega varð úr
ber einnig að geta að lýsing
Kristins Danielssonar var
óvenjugóö, bæði nákvæm og
falleg.
Jochen Ulrich hefur tekist að
skapa samstæða heild úr afskap-
lega ósamstæðum efniviði,
þ.e.a.s. dansarahóp sem hefur af-
AÐ LIFA
í BLINDU
Frétt
Tímans er
raklaus
þvættingur
segir Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson
bæjarráösmaöur
á Siglufirði
t dagblaðinu Timanum i gær
er skýrt frá því að Ingimundur
Einarsson bæjarstjóri á Siglu-
firöi hafi sagt upp störfum og er
haft eftir „bæjarblaðinu”
Einherja að það sé vegna
stjórnleysis i bæjarmálunum,
þótt bæjarstjórinn segi í samtali
við Timann að hann segi upp
störfum til að breyta til um
starf.
— Þessi frétt Timans er
rakalaus þvættingur, sagði
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson,
sem á sæti i bæjarráði Siglu-
fjarðar. Það er að visu rétt að
bæjarstjórinn hefur sagt upp
störfum af þvi að hann vill
skipta um starf, en hann hefur
staðið sig mjög vel i starfi og
hefur komið bæði fjárhags- og
bókhaldsreikningum bæjarins á
réttan kjöl og ég get fullyrt að
meirihlutasamstarfið hér á
Siglufirði stendur traustum fót-
um, sagði Gunnar.
Gunnar benti einnig á að
Framsóknarmenn væru einir i
minnihluta i bæjarstjórn Siglu-
fjarðar og að Einherji værí
ekki hlutlaust bæjarblað, heldur
málgagn Framsóknarflokksins
og skýrði þetta vel málflutning
blaðsins og siðan Timans af
þessum málum.
— Það er rétt að tveir bæjar-
stjórar hafa hætt hjá okkur á
þessu kjörtimabili en i bæði
skiptin hafa þeir fengið eða
ætlað sér betri stöður og má
minna á að sá sem hætti fyrr h já
okkur er nú bæjarstjóri i Kópa-
vogi, sagði Gunnar.
Að lokum benti hann á að
mikið hefði verið framkvæmt á
Siglufirði undan farin ár, ný raf-
magnsveita og ný hitaveita en
vissulega ætti Siglufjörður eins
og flest önnur bæjarfélög i fjár-
hagserfiðleikum. Ekki sist,þar
sem þau útgerðarfélög sem i
bænum væru ’ stæðu eins og
önnur útgerðarfélög um þessar
mundir höllum fæti. En við leys-
um þessi vandamál eins og öll
önnur og ég endurtek að meiri-
hlutasamstarfið stendur mjög
traustum fótum, sagði Gunnar
Rafn.
— S.dór.
Framleiða
tölvubúnað
fyrir frysti-
hús
Fyri.r nokkru var haldinn aö-
alfundur Framleiðni sf. Voru
þar gefnar skýrslur um starf-
semi fyrirtækisins en það vinn-
ur að alhliða ráðgjöf, bæði
rekstrartæknilegri og hagfræði-
legri fyrir fiskvinnslustöövar
innan Félags Sambandsfisk-
framleiðenda. Einn merkasti
þátturinn i þeirri starfsemi er
framleiðsla á margskonar
tölvubúnaöi fyrir vinnslurásirn-
ar I frystihúsunum, sem nú eru
komnar allvel á veg.
Stjórn Framleiðni sf. skipa
þeir Tryggvi Finnsson, frysti-
hússtjóri á Húsavik formaöur,
Aðalsteinn Gottskálksson,
frystihússtjóri á Dalvik, og
Siguröur Markússon, fram-
kvæmdastjóri i Reykjavik.
Framkvæmdastjóri er Arni
Benediktsson.
—mhg