Þjóðviljinn - 03.01.1981, Page 17
Helgin 3.-4. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Ættatölubækur
Jóns Espólíns
Kins og fram hefur áöur
komið i Þjóðviljanum er fyrir-
tækið Samskipti s.f. i Ármúla 27
að ljósrita fjölmargar gamlar
ættatölubækur. Nú er hafin út-
gáfa á miklu verki þ.e. ættatölu-
bókum Jóns Espólins og verða
það samtals 8 bindi og auk þess
nafnaskrá i einu bindi. Fyrsta
bindið er nú komið út og kostar
það 34.600 gkr. en 346 nýkr.
Annað bindi á að koma út i april
á þessu ári, þriðja i ágúst,
fjórða i desember á fimmta i
april 1982, sjötta i ágúst 1982,
sjöunda i desember 1982,
áttunda i april 1983. Nafna-
skráin, sem Rósinkranz Ivars-
son gerði á sinum tima, kemur
hins vegar út núna I janúar.
Þess skal getiö að þetta er
fyrsta útgáfa þessara ættatölu-
bóka en handrit þeirra eru
geymd i handritadeild Lands-
bókasafnsins. Formála fyrir 1.
bindi skrifar Ólafur Þ.
Kristjánsson fyrrv. skólastjóri i
Hafnarfirði og tökum við okkur
Bessaleyfi til að birta hér hluta
úr honum:
„Jón Espólin sýslumaður
höfundur ættbóka þeirra sem
hér er hafin útgáfa á, var
fæddur á Espihóli i Eyjafirði 22.
október 1769 og af þeim bæ dró
hann nafn sitt, en hann lést I
Skagafirði 1. ágúst 1836. Hann
var mikill fræðimaður og sist
minni ritsnillingur. Arbækur
hanssem Bókmenntafélagiö gaf
út á árunum 1821-1855, veittu
landsmönnum á siðustu öld ekki
einungis ómældan fróðleik um
sögu þjóðarinnar, heldur sóttu
menn sér einnig þangað kjark
og móð i sjálfstæðisbaráttunni
og öðru endurreisnarstarfi. l)m
ævi Espólins og Arbækur hans
er bestan fróðleik að sækja i rit-
gerð Arna prófessors Pálssonar
framan við hina ljósprentuðu
útgáfu Arbókanna. Þar er þó
næsta litið sagt frá ættfræði-
störfum hans.
Snemma mun hugur Espólins
hafa hneigst að ættfræði og var
það i nánum tengslum við áhuga
hans á sögu liðinna tima. Tók
hann að safna að sér handritum
um þau efni, ættfræöibókum og
einstökum ættartölum og afla
sér fróðleiks á annan hátt. Kom
svo að hann varð einn hinna
þriggja ættfræðijöfra sem báru
höfuð og herðar yfir alla aðra
ættfræöinga á fyrri hluta nit-
jándu aldar. — Hinir voru
Ólafur Snókdalin (1761-1843) og
Steingrimur biskup Jónsson
(1769-1845).
Ættbók Snókdalins var
stofninn að ættatölum Espólins.
Aldrei hefur þó veriö rannsakað
fræðilega hversu mikið Espólin
hefur fengið þaðan og ekki
heldur hverja uppskrift Snókda-
lins hann hefur notað, en, Snók-
dalin skrifaði ættbók sina upp
hvað eftir annað og jók hana
jafnan eftir getu. Hitt er vitað
að um hinar eldri ættir fékk
Snókdalin mestan fróðleik úr
ættbók þeirri sem kennd er við
séra Jón Ólafsson á Lambavatni
og skrifuö 1681, en fræðimenn
hafa sýnt að kjarninn i henni er
ættbók sér Þórðar Jónssonar i
Hitardal (um 1609-1670). Má af
þessu sjá að kjarninn i ættar-
tölum Espólins er gamall og
miklu áreiðanlegri en ætla
skyldi i fljótu bragði. Hins vegar
er jafnan nokkur hætta á mis-
lestri og misritun þegar bók er
afrituð og siðan afrituð og
þannig koll af kolli. Munnlegar
heimildir eru og ekki allar jafn
traustar. Hins vegar hefur gerð
og uppruni ættartöluhandrit-
anna gömlu sem til eru aldrei
verið visindalega rannsökuö en
Einar prófessor Bjarnason
hefur bent á að það þurfi þó að
gera svo að ættfræöiþekking
okkar geti hvilt á visindalegum
grunni, en slik rannsókn krefst
bæði tima og elju.
Ljóst er að Espólin hefur viða
leitað fanga til þess að auka ætt-
bækur sinar sem mest. Hann
stóð i bréfaskriftum við fróða
menn um þau efni, auk þess sem
hann viðaði að sér rituöum
ættartölum eftir mætti. Einnig
hefur hann leitað eftir munn-
legum upplýsingum hjá
mönnum sem hann hitti og að
sjálfsögðu notfært sér sjálfs sin
þekkingu. Ná ættbækur Espó-
lins viða til aldamótanna 1800,
en sums staðar fram yfir 1830.
Væru ættbækur hans vandlega
bornar saman við manntalið frá
1703, eftir þvi sem viö á, myndi
áreiðanleiki ættbókanna
reynast ótrúlega mikill og átti
þó hvorki Espólin né aðrir
ættartöluritarar kost á að not-
færa sér manntalið.”
Mikill
áhugi
Ættfræðiþættir Sunnudags -
blaös Þjóöviljans hafa fallið i
góöanjarðveghjá lesendum og
veit undirritaður til þess aö
margir hafa safnað þáttunum.
Til þess að auðvelda siðbúnum
söfnurum leikinn veröur hér
upptalningá þvi efni sem þegar
er komið en ætlunin er að halda
áfram ættfræðinni enda af nógu
að taka. Eftirleiðis verða þætt-
irnir einnig númeraðir. En
eftirtaliðefni hefur þegar birst:
1. Ættir og völd (10. dgúst)
2. Briem f kvenlegg (17. ágúst)
3. VeldiThorsaranna (24. ágúst)
4. Thorsteinssonættin (31.
ágúst)
5. Ættin Eggerz (7. september)
6. Ilá nefss taðaættin (14.
september)
7. Þverárætt (21. september)
8. Enn Hánefsstaðaætt (5. októ-
bcr)
9. Ætt Sveins Nielssonar (12,
október)
10. Hallvarðssonaætt (19. októ-
ber)
11. Ælt Ólafs prests ólafssonar
(26. október)
12. Laufásætt (2. nóvember)
ættfrædi
Ett Jakobs Hálfdanars Miðdalsættií
*
ættf rædi
Ætt Sveins
Níe/ssonar
ættfraedi
1 Ættír og togaraútge,
19
13. Ættir og togaraútgerö
O.nóvember)
14. Veöramótsætt (16. nóvem-
ber)
15. Engeyjarætt (23. nóvember)
16. Ætt Sigurhjartar á Urðum
(30. nóvember)
17. Ætt Jakobs Hálfdanarsonar
(7. desember)
18. Miðdalsætt (21. desember)
® ÚTBOÐf
Tilboð óskast i hreinlætis- og ræstingavörur
fyrir hinar ýmsu stofnanir Reykjavíkurborg-
ar.
útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku
daginn 28. jan. 1981 kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
F ramkvæmdastof nun
ríkisins
óskar að ráða vélritara, vanan almennum
skrifstoíustöríum, nú þegar.
Skriflegar umsóknir sendist lánadeild
Framkvæmdastofnunar, Rauðarúrstig 31.
Trésmíðafélag Reykjavikur
Lífeyrissjóður byggingamanna,
Samband byggingamanna
og Verðskrá húsasmiða
ATHUGIÐ
Frá og með siðustu áramótum eru af-
greiðslur ofangreindra aðila að Suður-
landsbraut 30 opnar mánudaga til og með
föstudögum kl. 10—12 og kl. 13—17.
fF élagsmálastof nun
Akureyrar
vill kynnast góðu fólki, sem óskar að ger-
ast fósturforeldrar.
Um er áð ræða bæði skammtimafósturftil
nokkurra mánaða og langtimafóstur yngri
og eldri barna.
Umsóknum með sem nákvæmustum
upplýsingum um aðstæður og væntanleg-
ar óskir umsækjenda sé skilað sem fyrst
til Félagsmálastofnunar Akureyrar, póst-
hólf 367, 600 Akureyri.
Litið verður á allar upplýsingar sem fram
koma i umsóknum sem algjört trúnaðar-
mál.
-------------%-------------------------
Okkur vantar blaðbera
strax í þessi hverfi:
Hörpugata — Þjórsárgata
Flyðrugrandi — Kaplaskjólsvegur
Hverfisgata — Lindargata
Kópavogur:
Kópavogsbraut — Skjólbraut
UOWIUINN
Siðumúla 6 S. 81333. i
p Bróðir minn
Ottó Tryggvason Hverfisgötu 55
varö bráðkvaddur 23. desember. Jarðaförin fer fram þriðjudaginn 6. janúar kl. 15 frá Fossvogskirkju.
Ellert Tryggvason