Þjóðviljinn - 10.01.1981, Qupperneq 29
um helgina
Rikharöur Valtingojer, forstööumaöur Djúpsins, hengir upp eina af
myndum Webers.
Weber í Djúpinu
1 dag, laugardag, veröur
opnuð i Galleri Djúpinu viö
Hafnarstræti sýning á verkum
eins þekktasta grafiklista-
manns Þýskalands, A. Paul
Weber.
Weber lést i nóvember s.l. og
er þetta fyrsta sýning á verkum
hans siðan. A áttræðisafmæli
hans var honum til heiðurs
opnað safn sem ber nafn hans
og er i Ratzeburg i Þýskalandi.
Weber kom tvisvar til Islands. I
fyrra skiptið vegna sýningar
sinnará Kjarvalsstöðum og árið
eftir hélt hann námskeið i litó-
grafiu i Myndlista- og handiða-
skólanum, ásamt syni sinum
Christian.
Á sýningunni i Djúpinu eru 26
litógrafiur frá ýmsum timum.
Galleri Djúpið sendir ekki boðs-
kort á opnun sýningarinnar, en
allir eru velkomnir kl. 3 i dag.
Sýningin stendur til mánaða-
móta og verður opin daglega kl.
11-23.
ih
Kristinn G. í Ásmundarsal
Ungur myndlistarmaður,
Kristinn Guðbrandur Harðar-
son, opnar i kvöld sýningu i As-
mundarsal við Freyjugötu.
Sýningin verður opin til 19.
janúar, kl. 16 til 22 daglega.
Aumingja
Hanna í
Kópavogi
Leikfélag Vestmannaeyja er
nú i leikför meö „Aumingja
Hönnu” eftir Kenneth Horne og
verður seinni sýningin i Kópa-
vogsleikhúsinu i kvöld, laugar-
dag kl. 21.00.
Leikstjóri er Unnur Guðjóns-
dóttir, og leikmynd er eftir Arn-
ar Ingólfsson. Unnur fer einnig
með eitt hlutverkanna i
leiknum, en alls eru leikendur
átta.
—ih
Elva ósk ólafsdóttir og Óskar
Arason i hlutverkum slnum I
„Aumingja Hönnu”.
Botndýra
rannsóknir
við Surtsey
Þriöjudaginn 13. janúar n.k.
heldur Aöalsteinn Sigurösson
fiskifræöingur erindi á vegum
Liffræöifélags tslands, sem
hann nefnir „Botndýrarann-
sóknir viö Surtsey”.
Þegar gos byrjaði þar sem
Surtsey er nú óttuðust margir
að það myndi eyðileggja vertiö-
arsvæðið á Selvogsbanka. Voru
þvf eins fljótt og auöiö var,
hafnar rannsóknir á sjávarlif-
inu kringum gosstöövarnar. Ótti
manna reyndist þó ekki á rökum
reistur. Sffiar var fariö aö rann-
saka lifið i neðansjávarhliðum
Surtseyjar og þá meö það i huga
aö fylgjast með „landnámi” lif-
vera þar, hvernig þær komust
þangað og i hvaða röð þær sett-
ust þar að og af hvaöa ástæöum.
Árið 1967 hófst nýr þáttur i
rannsóknunum þegar hafin var
gagnasöfnun meö aðstoð frosk-
manna. Tóku þeir sýni frá fjöru
og niður á 40 m dýpi. Einnig
tóku þeir ljósmyndir af dýrum
og plöntum. Þessi gagnasöfnun
fór fram árlega 1967-1971, en
siðan þriðja hvert ár. 1 erindinu
verður reynt að gera grein fyrir
þeim niðurstööum sem fyrir
liggja hvað dýralif snertir.
Erindið verður haldið i stofu
158 í húsi verkfræði- og raunvis-
indadeildar, Hjarðarhaga 2-4,
og hefst kl. 20.30. Fyrirlesturinn
er öllum opinn.
Skákþing Reykja-
víkur á morgun
Skákþing Reykjavikur 1981
hefst á morgun, sunnudag, og
verður teflt I húsakynnum Tafl-
félags Reykjavikur aö Grensás-
vegi 46. Lokaskráning keppenda
fer fram i dag, laugardag kl.
14—18.
1 aðalkeppninni verður þátt-
takendum skipt i flokka eftir
Eló-skákstigum, sem Skáksam-
bandið er nú að láta reikna.
Tefldar verða 11 umferðir i öll-
um flokkum. í efri flokkunum
verða 12 keppendur, sem tefla
einfaldar umferöir allir við alla,
en i neðsta flokki verður teflt
eftir Monrad-kerfi.
Umferðir verða 2-3svar i viku,
á sunnudögum kl. 14 og á mið-
vikudögum og föstudögum kl.
19.30. Fyrstu vikuna verða þrjár
umferðir, en siðan tvær á viku.
Biðskákadagar verða inn á
milli.
Keppni i flokki 14 ára og yngri
.á skákþingi Reykjavikur hefst
laugardag, 17. janúar. Tefldar
niu umferðir eftir Monrad-kerfi,
umhugsunartimi 40 minútur
fyrir hvorn keppanda. Keppnin
tekur þrjá laugardaga, þrjár
umferðir i senn. Bókaverðlaun
verða fyrir a.m.k. fimm efstu
sæti.
Taflfélag Reykjavikur hefur
haldið skákþing Reykjavikur
árlega siðan 1931. Ingi R.
Jóhannsson hefur oftast orðiö
skákmeistari Reykjavikur, alls
sex sinnum. Næstir koma As-
mundur Asgeirsson, Baldur
Möller, Eggert Gilfer, Benóný
Benediktsson, Björn Þorsteins-
son og Jón Kristinsson, en þeir
hafa unnið meistaratitilinn fjór-
um sinnum hver. Núverandi
skákmeistari Reykjavikur er
Margeir Pétursson, alþjóðlegur
skákmeistari.
Aö sjá til þín maður!
Allra síðasta aukasýning
í kvöld, laugardagskvöld, er
allra siðasta tækifærið til aö sjá
sýningu Leikfélags Reykjavikur
á leikriti Þjóðverjans Franz
Xaver Kroetz „Aö sjá til þín
maöur!”
Langt er siðan auglýst var
siðasta sýning á þessu frábæra
leikriti, en vegna mikillar að-
sóknar hafa verið haldnar
nokkrar aukasýningar. Óger-
legt er þó að hafa þær fleiri
vegna næsta verkefnis, „ótemj-
unnar” eftir Shakespeare, og er
þvi öllum sem ekki hafa séð
Margréti Helgu Jóhannsdóttur
og Sigurð Karlsson fara á
kostum i „Að sjá til þin
maður!” eindregið ráðlagt að
drifa sig i Iðnó i kvöld.
Að sjá til þin maður! fjallar
um samskipti hjóna og sonar
þeirra á táningaaldri (Emil
Gunnar Guðmundsson). For-
éldrarnir hafa aðrar hugmyndir
um framtið sonarins en hann
sjálfur og einnig er samkomu-
lag þeirra hjóna brösótt. Þetta
er nærgöngult leikhúsverk og
óvenju áhrifamikið, og leik-
stjórn Hallmars Sigurðssonar
hefur vakið verðskuldaða at-
hygli. Sýningin hlaut mjög góða
dóma gagnrýnenda. —ih
Siguröur Karlsson I hlutverki
Ottós i „Aö sjá til þln maður!”
Helgin 10. — 11. janúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — StDA 29
ALÞÝÐU BANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið i Reykjavik — Félagsfundur
Efnaha gsráðstafanir rikisstjórn arinnar
Alþýöubandalagiö I Reykjavik boöar til félagsfundar á Hótel Esju
þriöjudaginn 13. janúar kl. 20:30 um efnahagsráöstafanir rikisstjórnar-
innar. Frummælandi: Svavar Gestsson. Félagar fjölmennum og
mætum stundvislega. — Stjórn ABR
Alþýðubandalag Selfoss og
nágrennis
Garöar Sigurðsson verður með viðtalstima að
Kirkjuvegi 7 Selfossi laugardaginn lO.jan. kl. 2.
e.h.
Alþýðubandalagið i Reykjavík
Innheimta félagsgjalda
Stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik beinir þeim eindregnu til-
mælum til þeirra félaga sem enn skulda félagsgjöld að þeir greiði þau
sem fyrst. Hægt er að greiða útsenda giróseðla i næsta banka eða koma
við á skrifstofu félagsins á Grettisgötu 3 og gera upp þar.
Verum ávallt minnug þess að félagið fjármagnar starfsemi sina i
Reykjavik eingöngu með framlögum félagsmanna. StjórnABR
Garöar
Til félaga i Alþýðubandalaginu i Reykjavik
Félagar, munið að tilkynna skrifstofu félagsins breytt heimilisföng.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið á Akureyri
Bæjarmálaráðs fundur verður haldinn mánudaginn 12. jan. kl. 20.30 i
Lárusarhúsi.
Fundarefni: Fjárhagsáætlun og meirihlutasamstarfið.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
VIÐTALSTÍMAR ÞINGMANNA OG BORGAR-
FULLTRÚA
Viötalstimar þingmanna og borgarfulltrúa hefjast að nýju laugardag-
inn 24. janúar. Stjórn ABR
Alþyðubandalag Grundarfjarðar
Aðalfundur
Alþýðubandalags Grundar-
fjarðar verður haldinn sunnudag-
inn 11. janúar kl. 2 e.h. i húsi
verkalýðsfélagsins við Borgar-
braut.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Sveitarstjórnarmál, Ragnar
Elbergsson.
3. Stjórnmálaviðhorfið, Skúli
Alexandersson
Ragnar Skúli
4. önnur mál.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Reykjavík
OPIÐ HÚS á Grettisgötu 3
Næsta opna hús Alþýðubandalagsins i Reykjavik veröur fimmtudaginn
22. janúar.
Nánar auglýst siðar. StjórnABR
Miðstj órnarfundur
Fundur veröur haldinn I miðstjórn Alþýðubandalagsins 16. og 17.
janúar næstkomandi, og hefst hann kl. 20.30 fyrri daginn i fundarsal
Sóknar, Freyjugötu 27. Fundarefni veröur kynnt siðar.
Fundarboð
Aðalfundur hlutafélagsins Vegamót
verður haldinn að Laugavegi 18 miðviku-
daginn 14. janúar 1981 kl. 8.30 siðdegis.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Greiðsla arðs til hluthafa.
Stjórnin
Styrkir til háskólanáms i Noregi
Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóöi fram í löndum
sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til háskóla-
náms i Noregi 1981—82. — Ekki er vitað fyrirfram hvort
einhver þessara styrkja muni koma i hlut tslendinga. —
Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms við
háskóla og eru veittir til niu mánaða námsdvalar. Styrk-
fjárhæðin er 2.400 n.kr. á mánuði, auk allt aö 1.500 n.kr. til
nauðsynlegs ferðakostnaðar innan Noregs. — Umsækj-
endur skulu hafa góða þekkingu á norsku eða ensku og
hafa lokið háskólaprófi áöur en styrktimabil hefst. Æski-
legt er að umsækjendur séu eigi eldri en 40 ára.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til:
Utenriksdepartementet, Kontoret for kulturelt samkvem
med utlandet, Stipendieseksjonen, N-Oslo-Dep., Norge,
fyrir 1. april 1980, og lætur sú stofnun i té frekari
upplýsingar.
Menntamálaráöuneytiö
7. janúar 1981.