Þjóðviljinn - 10.01.1981, Page 32
PJÚDVIUINNl Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt aö ná I blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins iþessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Helgin 10. — 11. janúar 1981. 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná I af- greiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
nafn*
X
e
§
Eitt aðalumræðuefni
landsmanna i liöinni viku er
úrskurður kjaradóms um
laun þingmanna og það
fjaðrafok sem út af honum
hefur orðið. Oddviti kjara-
dóms er Benedikt Blöndal
hæstaréttarlögmaður og er
hann þvi nafn vikunnar að
þessu sinni. Við slógum á
þráðinn til hans.
— Hefur uppnámið vegna
úrskurðarykkarkomiö þér á
óvart?
— Já.það hefurkomið mér
á óvart. Ég bjóst að visu við
einhverjum látum en ekki
þessum.
— Hvað finnst þér um við-
brögð þingmanna?
— Ég er hissa á viðbrögð-
um þeirra þingmanna sem
eru að býsnast yfir aftur-
virkni laga sem þeir settu
sjálfir.
— Nú veröur aö telja ykkur
alla sem sitjið i kjaradómi til
hátekjumanna. Finnst ykkur
e.t.v. óviðkunnanlegt aö
dæma þingmenn til lægri
launa en þið hafið sjálfir?
— Ég hugsaði ekkert um
min eigin laun i umfjöllun
minni i kjaradómi. Ég álit aö
þjóðin geri þær kröfur til
þingmanna að þeir ræki störf
sin og að þeir hafi hæfileg
laun miðað við þaö verkefni
sem þeim er ætlað að leysa.
Ég geri ráð fyrir að flestir
þeirra vinni sin verk vel en
tek það skýrt fram aö við
vorum ekki að meta einstaka
þingmenn.
— En hvers vegna féll
kjaradómur nú, nokkrum
dögum eftir efnahagsráð-
stafanir rikisstjórnarinnar?
Sumir álita aö það sé
skemmdarverk.
— Viö völdum alls ekki
þessa dagsetningu, þaðgerði
þingið sjálft. Við höfum
heyrt nú eftir á alls konar
sögur um hvað hafi verið um
laun þingmanna rætt á þing-
flokksfundum en i umræðum
á alþingi fengum við engar
ábendingar t.d. alls ekki þær
að viö mættum ekki hækka
laun þingmanna. Við mátum
eftir bestu samvisku hver
væru hæfileg laun þing-
manna likt eins og við mát-
um laun forseta Islands, ráð-
herra og hæstaréttardóm-
ara. 011 þessi störf eru
mikilsverö og má ekki undir-
borga þau.
GFr
Benedikt
Blöndal
Kjöri tþróttamanns ársins 1980 var lýst i gærdag og hlaut sæmdarheitið Skúli óskarsson iyftingamaour.
Hér ryðst kappinn að striðstertu þeirri sem útbúin var I tilefni kjörsins. Skúla á hægri hönd stendur
lngólfur Hannesson, formaður Samtaka Iþróttafréttamanna.
Fyrirfram-
greiðsla
skatta 70%
Fjármálaráðuneytið hefur nú
ákveöið að fyrirframgreiðsla
opinberra gjalda i ár samsvari
70% af álögðum gjöldum siðasta
árs.
Að sögn Höskuldar Jónssonar
ráöuneytisstjóra hefur fyrirfram-
greiðslumarkiö verið nálægt 70 af
hundraði mörg undanfarin ár.
Reyndar hafi verið frávik frá
þessu i fyrra. Sveitarfélögin
fengu þá 70%, Gjaldheimtan i
Reykjavik 68% og rikið 65%.
Miðað er viö að menn hafi greitt
um helming væntanlegra gjalda
sinna á miðju ári. Höskuldur
sagði að ljóst væri að það tak-
mark næðist ekki að þessu sinni.
Til þess væri hundraðstalan of
lág, þyrfti helst að vera 75—76%
ef ná ætti þvi marki.
„Sveitarfélögin hafa borið sig
illa út af þessu og viljað fá töluna
75—76%, en það hefur verið mat
fjármálaráðuneytisins aö greiðsl-
an sé i hlutfalli við laun manna á
hverjum tima,” sagði ráðuneytis-
stjórinn. „Þau fara að likindum
hækkandi eftir þvi sem liður á
árið og þvi er afsakanlegt að taka
dálitið fleiri krónur af þeim á
seinni hluta ársins heldur en á
fyrri hlutanum.”
—eös
Einvígið i
Merano :
Hiibner gafst upp
Vesturþýski stórmeistarinn
Hiibner er hættur íinvigi sinu við
Kortsjnoj um réttinn til að reyna
aö hafa af Karpof heimsmeist-
aratitilinn á næsta ári. Hann er
farinn heim! Astæöan er sú aö
taugarnar biluöu.
begar Hiibner hættir nú einvig-
inu, sem háð var i Merano á
Norður-Italiu, var staðan sú, aö
Kortsnoj hafði 4 1/2 vinning en
Hiibner 3 1/2.
— Nei, ég veit ekkert frekar
um málið, sagöi Friðrik Ólafsson,
forseti FIDE, þegar Þjóðviljinn
hafði samband við hann i gær.
Þetta hefur sjálfsagt verið of
mikið álag fyrir Hflbner, eins og
hann segir. Ég veit ekki til að
neinar ýfingar hafi verið milli
keppinautanna.
Hiibner lék hroðalega af sér I
sjöundu skákinni, og slikt fer illa
með hvern sem er, sagði Friðrik
ennfremur. Svo var önnur af
Taugarnar þoldu
ekki álagiö
þeim tveim biðskákum sem þeir
áttu eftir að tefla tapleg fyrir
hann.
Fjárhagshlið málsins? Ja, ég
geri ráð fyrir að þeir i Merano
þykist hafa misst spón úr sinum
aski, þeir hafa vonast til að þetta
stæði lengur og héldi lifi i ferða-
mannaiðnaðinum. En ef að
ástæður Hifbners eru teknar
gildar, þá fær hann sinn hluta af
verðlaununum. Annars ekki.
Þetta eru mjög sterkir menn.
En þótt Kortsjnoj færi illa af stað,
þá er hann gamall i hettunni og
hefur þykkan skráp.
Strax i næstu viku verður að
senda tilkynningu út um þessi
mál til allra aðildarsambanda
FIDE og auglýsa eftir tilboðum i
Hiíbner: Ég veit ekki til þess aö
neinar ýfingar hafi veriö meö
þeim Kortsjnoj, sagöi Friörik
Ólafsson.
mótstað fyrir heimsmeistaraein-
vigið. Tilboðum á að skila innan
fimm vikna eftir að undanúrslita-
einvígi lýkur, m.ö.o. um miðjan
febrúar. Svo getur heims-
meistaraeinvigið farið fram eftir
sex mánuði.
Nei, ég veit ekki mikið um
væntanleg tilboð, þótt maður hafi
heyrt ávæning af sliku héðan og
þaðan úr heiminum, sagði Friðrik
að lokum.
Hilbner hefur áður hætt einvigi
áður en þvi yrði lokið. Það var
árið 1971 þegar hann átti i höggi
við Petrosjan.
Kortsjnoj sagði i gær, aö honum
þætti þetta mjög leitt, en hann
vonaðist til að koma aftur til
Merano næsta sumar og tefla viö
Karpof. Sem þýðir, að hann hefur
kunnað vel viö aðstæður þar.
—áb
Alþýöubandalagiö meö opna, almenna fundi um land allt.
Efnahagsáætlunin og
stj ór nar sains tarfíó
Akveðið hefur verið að Al-
þýöubandalagið efni nú i þing-
hléinu fram að 26. þessa
mánaöar til opinna,almennra
funda i öllum kjördæmum, þar
sem sérstaklega verður fjallað
um efnahagsáætlun rikis-
stjórarinnar, stjórnarsam-
starfiö og verkefni Alþýöu-
bandalagsins á komandi mán-
uöum.
Baldur óskarsson starfs-
maður Alþýðubandalagsins
tjáði blaðinu i gær að á þessa
fundi myndu mæta ráöherrar
flokksins og formaður þing-
flokksins, þingmenn og forystu-
■ menn úr verkalýðssam-
tökunum. Fundir þessir verða
Vinnustaöafundir
eftir því sem viö
veröur komiö
nánar auglýstir i Þjóðviljanum
á þriðjudaginn kemur, en sá
fyrsti vérður á Akureyri
fimmtudaginn 15. janúar næst-
komandi.
Baldur sagði að ráð væri fyrir
þvi gert að forystumenn flokks-
ins heimsæktu vinnustaði og
ræddu við starfsmenn þar eftir
þvi sem við yrði komið.
„Alþýðubandalagiö leggur á
það mikla áherslu að kynna
stefnumál sin og útskýra þá
efnahagsáætlun sem nú hefur
verið samþykkt i rikisstjórninni
fyrir stuðningsmönnum sinum
um land allt, og öðrum þeim
sem áhuga hafa á að hlýða á
málflutning okkar Alþýðu-
bandalagsmanna. Viö leggjum
ennfemur áherslu á að gefa
kjósendum kost á aö spyrja
forráðamenn flokksins útúr um
gang helstu dagskrármála og þá
sérstaklega þau verkefni sem
ráðherrar flokksins fara með i
rikisstjórninni”, sagði Baldur
Óskarsson að endingu.
—ekh
Baldur óskarsson: Opnir fundir
og vinnustaöaheimsóknir i
öilum kjördæmum.