Þjóðviljinn - 19.01.1982, Page 1
PJOÐVIUINN
Þriðjudagur 19. janúar 1981—13. tbl. 47. árg.
Sænskt tónskáld fékk
tónlistarverðlaunin
Sænska tónskáldið Ake Hermansson hlaut tónlistarverðlaun Norður-
landa að þessu sinni, en þau verða afhent á þingi Norðurlandaráðs i
mars. Tónlistarverðlaunin nema 75 þúsund dönskum krónum. Ake
Hermansson er atkvæðamikill tónverkahöfundur og hlýtur hann verð-
launin fyrir verkið Utopia. Af Islands hálfu voru framlögð fyrir dóm-
nefnd tónlistarverðlauna Norðurlanda verk eftir Leif Þórarinsson og
Jón Nordal.
Nýtt síðdegisbiað;
Ný viðhorf
°g
miklar
umræður
Mikil fundarhöld eru þessa
dagana vegna fyrirhugaðrar
stofnunar nýs siðdegisblaðs.
Þjóðviljinn náði sambandi við
Guðmund Arna Stefánsson, sem
nefndur hefur verið sem væntan-
legur ritstjóri hins nýja blaðs,
þegarhann var að kom a af fundi i
gærkvöldi og sagði hann að málið
væri nú i biðstöðu. Ný viðhorf
væru nú komin upp i málinu með
tilkomu nýrra aðila semhafa sýnt
blaðaútgáfunni áhuga. Sagði
Guðmundur að menn væru all-
bjartsýnir og yrði fundur i dag
þar sem umræðum yrði haldið
áfram. Bjóst hann við að málið
skýrðist nú i vikunni og endanleg
ákvörðun yrði tekin um útgáfu
blaðsins.
þs
Fiskverð
fyrr
og nú
Samkvæmt lögum á nýtt fisk-
verð að liggja fyrir um hver ára-
mót, en eins og allir vita dregst
það oft fram i janúarmánuð að
samkomulag náistum fiskverðið.
Menn hafa talað um að dregist
hafiúrhömhi aðákveða fiskverð-
ið að þessu sinni, en litum þá á
dagsetningar nýs fiskverðs um
áramöt sl. 10 ár.
1971 — 2. janúar
1972 — 11. janúar
1973— 4. janúar
1974 — 8. janúar
1975 — 20. janúar
1976 — 30. des. 1975
1977 — 31. des. 1976
1978 — 25. janúar
1979 — 2. janúar
1980 — 25. janúar
198117. febrúar
1982 — 16. janúar.
—S.dór
Mótið í Rio de Janeiro
Biðskák
hjá Karli
14. umferð i alþjóðaunglinga-
mótinu i Hió de Janeiro var tefld i
gær. Skák þeirra Karls Þorsteins-
sonar og Saeds fór i bið eftir 40
leiki og stóð þá Karl mun betur að
vigi. Skákin var tefld áfram i
gærkvöldi og haföi Karl þá glatað
niður stöðunni þannig aö Saed var
talinn hafa nokkra jafnteflis-
möguleika. Þeir keppinautar
tefldu skákina til enda i gær-
kvöldi.
Staðan i mótinu er nú sú:
Zunica og Delugi eru efstir með 10
vinninga en Saed og Karl meö 9
1/2 vinning og ólokna biðskák
þegar siðast fréttist. 15. og sið-
asta umferð verður tefld i dag.
.Teflir Karl þá við Dercyl.
— m
1 fMPJiH
7/ / 1 ffijn
jTMji
Ýmsir voru að gera klárt i Reykjavikurhöfn igær. Ljósm.: gel.
S j ómannasamningarnir:
AUstaðar samþykktir
nema í Reykjavík og það sem snýr að stóru togurunum í Hafnarfirði
Fundir voru haidnir i sjó-
mannafélögum landsins um nýju
kjarasamningana sl. sunnudag og
voru þeir allsstaðar samþykktir
nema I Reykjavik, þar- voru þeir
felidir i heild og I Hafnarfirði þar
sem sjómenn á stóru togurunum
felldu það sem að þeim snýr. A
Akranesi og Siglufirði var at-
kvæðagreiðslu um samningana
frestað þar til i gær og voru þeir
þá samþykktir á báðum stöð-
unum.
Á Akranesi voru samningarnir
samþykktir með 41 atkvæði gegn
19 en 2 seðlar voru auðir. A Siglu-
firði sögðu 19 já, en 22 sátu hjá.
1 Reykjavik voru samningarnir
felldir með 26 atkvæðum gegn 14,
þ.e. bátakjarasamningarnir en
togarasamningarnir með 24 sam-
hljóða atkvæðum. Þess má geta
að yfir 200 fiskimenn eru i
Sjómannafélagi Reykjavikur.
Ekki lá ljóst fyrir i gær, hvort
Sjömannafélag Reykjavikur og
viðsemjendur þess myndu visa
deilunni til sáttasemjara eða
hvort þessir aðilar tækju upp
samninga milliliðalaust. Aðilar
ræddu i gær viö rikissáttasemj-
ara Guðlaug Þorvaldsson, og
sagðist hann eiga von á þvi að i
dag yrði ákveðið hvort hann tæki
málið að sér. Ef svo yrði myndu
Hafnfirðingarnir lika koma inni
þær viðræður.
—S.dór
Verkamannabústööum í Reykjavík úthlutað
8 umsækjendur
um hverja íbúd
IEftir þvi sem við komumst
næst munu umsóknirnar vera
alls um 570, sagði Sigurður E.
Guðmundsson hjá HúSnæðis-
stofnún rikisins, er blaðið innti
hann eftir þvi hvað liði uthlutun
I á sölu- og endursöluibúðum
* verka mannabústaða en
I" uinsóknarfrestur rann ht í
desember.
Þær ibúðir, sem nú verður út-
hlutað samkvæmt þessum um-
sóknarfresti, eru ibdðir sem
koma til úthlutunar fyrstu sex
mánuði þessa árs, sagði Sig-
urður ennfremur. Hér er um að
, ræða 14nýjar ibúðir.að Kamba-
seli 52-54, sem Miðafl seldi
Verkama nnabústöðum i
Reykjavik og verða þær til-
búnar i’ febrúar, april og mái.
Reynsla okkar er sú að til
endursölu komi um 10 ibúðir á
mánuði, þannig að ekki er
óraunhæft að áætla að á fyrstu
sex mánuðum ársins fáum við
til úthlutunar 75 ibúöir. Þetta
kann þó að vera of há tala. En
hvort heldur er réttara er ljóst
að þörfin er ákaflega brýn: um
hverja ibúð eru 8 umsækjendur
hið minnsta.
Guðmundur Vigfússon,
deildarstjóri hjá Hdsnæðis-
stofnun veitti blaðinu þær upp-
lýsingar, aðá siðasta ári hafi
verið lokið við 59 ibúðir skv. Iög-
unum um verkamannabdstaði J
frá 1970, og 7 ibúðir skv. lög- I
unum frá 1980. 1 byggingu eru |
nú 272 ibúðir, þar af 76 i Reyk ja- I
vik. Húsnæðisstofnun hefur *
heimilað aðundirbúa 323i'bdðir, |
þ.e. að gera teikningar og I
áætlanir um verkið, og af þeim •
eru 176 i Reykjavik.
Þá eru einnig i athugun á
ýmsum stigum 232 ibúðir um
iandið, en þær hafa ekki komið
til Hdsnæðisstofnúnar ennþá.
Samkvæmt þessum tölum •
munu 827 ibúðir verða reistar I
samkvæmt lögunum um verka- I
mannabústaði frá 1980 viðs |
vegar um landið á næstu árum. •
Fyrri umferðforvals
Alþýðubandalagsins
í Reykjavík
og Hafnarfirði:
Konur sækja á i innan-
flokkskosningum Alþýðu-
bandalagsins. Um helgina
var fyrri umferð, tilnefn-
ingarumferð, i forvali Al-
þýðubandalags Hafnarfjarð-
ar vegna borgar- og bæjar-
stjórnarkosninga.
Konur voru efstar i fyrri um-
ferðinni á báöum stöðunum,
og jafnmargir kariar og
konur voru i efstu 34 sæt-
unum i Reykjavik og efstu 12
i Hafnarfirði. I Hafnarfirði
hefur þegar verið gengið frá
uppstillingu til seinni um-
ferðar.
Sjá baksíðu