Þjóðviljinn - 19.01.1982, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 19. janúar 1982
Rætt um
ný viðhorf
í rekstri
Þj óðvilj ans
Kaöstofna útgáfufélags Þjóö-
viljans um rekstur blaösias og
ritsjórnarstefnu sl. laugardag var
aö mörgu leyti vel heppnuö og þar
komu fram ýmis viöhorf í vegar-
nesti fyrir forráöamenn blaösins.
Kins og vænta mátti vildi þó
veröa nokkuö margátta á ráð-
stefnunni þcgar rætt var hvaö
bæri aö gcra og hvertstcfna ætti.
Þjóðviljinn hefur verið traust
tapfyrirtæki í 45 ár og það eru
flokksmenn Alþyðubandalagsins
og forvera þess er hafa haldiö og
halda enn útgáfunni á floti með
fjárframlögum. A ráðstefnunni
var rætt um ýmis ný við-
horf i rekstri blaðsins og hlut-
verki þess. Fram kom m.a. aö á
si. þremur árum hefur Þjóðvilj-
inn tapað áskrifendum eftir að
hafa verið í sokn fram á seinni
hluta siðasta áratugs. Hinsvegar
hefur rekstur blaðsins sl. tvö ár
gengið bærilega og horfur á að
nýliðið ár verði með þeim allra
bestu frá upphafi útgáfu Þjóð-
viljans árið 1936.
Ástæðurnar til þess að sókn
blaðsins stöðvaðist voru helst
raktar til harðnandi samkeppni
og breyttra fjölmiðlunartíma sem
Þjóðviljinn hefði ekki náö að
aðlaga sig. Þá var talsvert lagt
upp úr þvi að hin viðtæka þátt-
taka Alþýðubandalagsmanna i
risisstjórn og sveitarstjórnum
hefði sin áhrif á blaðiö, og það
mætti ekki breytast um of i takt
viö breytingar á verkefnum Al-
þýðubandalagsins, heldur þyrfti
það að halda i sjálfstæði sitt.
Skiptar skoðanir voru um
rekstrarform Þjóðviljans og voru
bæöi uppi þau sjónarmið að efla
bæri Útgáfu félag Þjóðviljans,
safna i það félögum og auka um-
svif þess, og aðstefna bæri aö þvi
að Alþýðubandalagið yrði Ut-
gáfuaöili blaðsins og landsfundur
kysi þvi rekstrarstjórn.
A ráðstefnunni var greint frá
áformum um kaup á setningar-
og umbrotstækjum til þess að
mæta ákvörðunum Visis og
Timans um að hætta eða tak-
marka samstarfið i Blaðaprenti.
Fram kom að þessa dagna er
verið að ganga frá tækja-
pöntunum og standa vonir til þess
aö hægt verði að hefja setningu
Þjóðviljans á neðri hæð Þjóð-
viljahússins i vor, en væntanlega
mun þaðhafa i för með sér ýmsar
breytingar á skipulagi og útliti
blaðsins. Þá var og fjallað um
þær hugleiðingar sem uppi eru
meðal rekstraraðila Blaðaprents
um samstarf varðandi filmugerð
og prentun.
Talsvert var rætt um ýmsa
efnisþætti i Þjóðviljanum og um
æskilegar áherslur. 1 þvi sam-
bandi var það skoðað hvort Þjóð-
viljinn ætti fremur að einbeita
kröftum si'num að ákveðnum
sviðum, eða vera almennt
þjónustu- og fréttablaö.
Vmislegt fleira bar á góma og
verður vaíalaust eitthvað af þvi
tiundaö i blaðinu siðar. Framsögu
á fundinum höíöu þeir Einar Karl'
Haraldsson og Þorbjörn
Guðmundsson, en Eiður Berg-
mann og Kagnar Árnason skýrðu
frá stöðu blaðsins og Blaða-
prentsmála.
Tveir umræðuhópar störfuðu á
ráðstefnunni undir stjórn Alf-
heiðar Ingadóttur og Ragnars
Árnasonar, og fjallaði annar um
rekstur er^ hinn um ritstjórnar-
stefnu. Raðstefnustjóri var Vil-
borg Harðardóttir, en ráðstefnu-
ritarar Sveinn Kristinsson og
Jóhannes Harðarson.
ÁLÞÝOUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið i Garðabæ
Ariðandi fundur fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.30 i Flataskóla.
Dagskrá:
1. Ræddur undirbúningur sveitarstjórnarkosninga.
2. Kosning lulltrúa á lista til bæjarstjórnar.
3. Önnur mál.
Ráðstefna um Atvinnumál
i Norðurlandi eystra
Norðurlandskjördæmi eystra — Atvinnumálaráð-
stefna á vegum stjórnar kjördæmisráðsins verður
haldin á Húsavik dagana 23. til 24. janúar. Eft-
irtaldir málaflokkar verða á dagskrá:
1) Stefna Alþýöubandalagsins i atvinnumálum.
2) Atvinnuástand og horfur I kjördæminu.
3) Möguleikar Iétts nýiönaðar.
4) Stóriönaöur.
5) Iönþróun og verkalýðshreyfingin
Frummælendur verða Kjartan Ölafsson, Þröstur
Ölafsson, Pétur Eysteinsson og Helgi Guömunds-
son.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast Sigurði
Rúnari Ragnarssyni i sima: 44136 (Reykjahlið)
Stjórn kjördæmisráðs.
Þorrablót— Húsavík
Þorrablót Alþýðubandalagsins á Húsavik verður haldiö laugardaginn
23. janúarog hefst.með borðhaldikl. 19.30.Húsiö opnað kl. 19.00.
DAGSKRA: 1) Samkoman sett — Freyr Bjarnason.
2) Alþingismennirnir Guðrún Helgadóttir og Helgi Seljan skemmta
með söng og spjalli.
3) Visnasöngur Helga Bjarna og Villa Baldurs.
4) Sigurður Hallmarsson stjórnar fjöldasöng.Veislustjóri er Freyr
Bjarnason. Bragi,Siddi og Kalli sjá um fjörið. Félagar úr kjördæminu
eru hvattir til aö fjölmenna og taka með sér gesti. Miðapantanir i sima:
41139 — 41761 og 41743 e.kl. 17.00. —Alþýöubandalagsfélagiö Húsávík
Þorrablót Akranesi
Alþýðubandalgið á Akranesi heldur Þorrablót i Rein laugardaginn
23. janúar n.k. Skemmtunin hefst með borðhaldi kl. 19.45. Húsið opnað
kl. 19.30. Veislustjóri verður Sveinn Kristinsson.
Fjölbreytt skemmtiatriði: Fjöldasöngur undir öruggri stjórn
Jónasar Árnasonar. Diskótekið Disa leikur fyrir dansi.
Félagará Akranesiog úr nágrannabyggðum eru hvattir til að koma
ogblóta meðokkur Þorra. Miðasala i Rein miðvikudag og fimmtudag
frá ki. 20.30—21.30. (Simi 1630) Pantanir einníg i sima 2251 (Gugga).
Skemmtinefndin
Ólafur Kagnar Grimsson skýrir mál sitt meö tilvitnun I Þjóöviljann I umræöuhóp um ritstjórnarstefnu
Liósm. — eik.
Úlfar Þormóösson og Ragnar Arnason skýra rekstur Þjóöviljans I umræöuhópi, og af svip þátttakenda
verður ekkiráöið að vandamálin séu þrúgandi. — ljósm. — eik.
Myndatexti
leiðréttur
Undir mynd frá forvali Alþýðu
bandalagsins i Reykjavik, sem
birtist i helgarblaðinu var rangt
farið með. Það var ekki Margrét
Jónsdóttir sem á myndinni var,
heldur Esther Jónsdóttir, vara-
formaður og starfsmaöur Sóknar
en hún á sæti i kjörnefnd vegna
forvalsins. Er beðist velviröingar
á þessum mistökum.
Afgreióum
einangrunar
DJast a Stór
Reykjavikur,
svœdió frá
mánudegi
föstudags.
Afhendum
voruna á
byggingarst
viöskipta ■
monnum aó
kostnaóar
fausu.
Hagkvœmt______
og greiósJuskil
málar vió ffestra
hœfi.
einangrunai
■Hplastið
framletdsluvorur
p«por«nangrun
vkrufbirtar
Bor^arneu 1 iimi»j 7370
' kvökl og hctsartimi 91 7355
Sveinafélag
pípulagningamanna
Ákveðið heíur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og
trúnaðarmannaráðs. Framboðslistum
skal skilað á skrifstofu félagsins, Skipholti
70, fyrir kl. 18.00.
Styrkveiting
Stjórn Minningarsjóðs Hermanns Har-
aldssonar frá Heiöaseli, S.-Þing., hefur
ákveðið að veita styrk úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja lömuð og
fötluð börn til lækninga og endurhæfingar.
Umsóknir ber að senda fyrir 15. febr. n.k.
til Sigurðar Magnússonar, framkv.stjóra
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Háa-
leitisbraut 11-13.
Stjórn
Minningarsjóðs Hermanns Haraldssonar
Útför konunnar minnar,
Guðrúnar Steingrimsdóttur
Vallargötu 8, Þingeyri
sem lést i Landsspitalanum laugardaginn 16. janúar s.l.
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. janúar
n.k. kl. 10.30 árdegis.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfé-
lag Islands.
F.h. vandamanna
Ólafur Þ. Jónsson.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Fundir i starfshópum um stefnuákrá vegna bæjarstjórnárkosninga.
Miðvikudagskvöld 20. janúarkl. 20.30 verða fundir ihóp um félags-hús-
næðis-og jafnréttismál. Formaður Soffia Guðmundsdóttir, og i starfs-
hóp um skóla- og menningarmál, æskulýðs og iþróttamál, formaður
Sigriður Stefánsdóttir.
Fimmtudagskvöld 21. jan. kl. 20.30 halda fund: Starfshópur um at-
vinnu- og orkumál, formaður Helgi Guðmundsson, og hópur um skipu-
lags- umhverfis- og samgöngumál, formaður Erlingur Sigurðsson.
Allir hóparnir eru opnir þeim sem vilja starfa og er skorað á þá til
virkrar þátttöku.
SPENNUM
BELTIN
... alltaf
|JUMFERÐAR