Þjóðviljinn - 19.01.1982, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 19. janúar 1982
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
„Mamma, þaö er flækja í nælunni þinni".
vidtalið
Rætt við Ac.
Sudiiptananda Act.,
kennara hjá Þjóð-
málahreyfingunni:
„Jafnvægi
á milli
einstak-
lings-
hyggju og
samhyggju
er svarið”
Einhverjir kannast liklega viö þessar glaöbeittu konur en þær eru
lulltrúar kvenþjóöarinnar I blaöaljósmyndarastéttinni. Þaö er
Emilia á Morgunblaöinu sem situr vinstra megin og Ella á Tlman-
um til hægri. Koliegi þeirra á Þjóöviljanum, Einar Karlsson tók
þessa mynd, og svo er bara aö vona aö þeim stöllum finnist myndin
góö af sér.
„Ég á heima i Evrópu. Ég
feröast um og hef engan fastan
samastaö. Ég er hins vegar
fæddur i Bretlandi”, sagði Ac.
Sudiiptananda Avt., kennari og
fyrirlesari frá PROUT hreyf-
ingunni, sem er þjóöfélagsleg
hreyfing og byggir á andlegri og
þjóöfélagslegri heimspeki Pr.
Sarkar. Sarkar þessi var stofn-
andi Ananda Marga, en munur-
inn á þessum tveimur hreyfing-
um er að PROUT-hreyfingin er
þjóöfélagslegri og byggir á jafn-
vægi á milli einstaklingshyggju
og samhyggju, efnishyggju og
andlegheitum.
,,Viö fengum hann hingaö til
lands til aö halda hér námskeið
og fyrirlestra, en við höfum
reynt aö fá til okkar kennara
allt frá þvi aö við stofnuðum
Þjóömálahreyfinguna hér á ís-
landi 1978”, sagði Guttormur
Sigurðsson, sem kom með Sudi-
iptananda í heimsókn hingað á
ritstjórnina til okkar.
Við spurðum kennarann hvort
hann héldi að hann gæti kennt
tslendingum eitthvað og þá
helst hvað.
„Ég vona aö ég geti haft ein-
hver áhrif á fólkið. Það verður
svo aö leysa sin mál sjálft, en ég
sái etv. frækorni. t þessari
hreyfingu okkar reynum við að
benda fólki á að þaö er nauðsyn-
legt að persónulegur þroski ein-
staklinganna fylgi þjóöfélags-
framþróuninni. Kenningar okk-
ar eru bæði stjórnmálalegar og
efnahagslegar og viö viljum
dreifa efnahagslegu valdi þann-
ig aö þaö sé hvorki á fárra hönd-
um, né á valdi rikisins. Viö vilj-
um samvinnuform sem hentar
vinnandi fólki.”
„Nú segist þú feröast mikiö
um Evrópu. Hvaö með efna-
hagserfiöleikana þar? — Hefur
þú nokkra lausn á þeim?”
„Það eru miklir efnahagsörð-
ugleikar i Evrópu og viðar i
heiminum. Þaö þarf þjóðfélags-
legar breytingar til að ráða bót
á þeim. Það er ekki þar með
sagt að kommúnismi sé rétta
svarið, þótt kapitalisminn riði
til falls. Þaö þarf nýja hreyf-
ingu, — ný svör.”
„Nú var innhverf ihugun
mjög i tisku fyrir nokkrum ár-
um. Hefur áhuginn dalaö hjá al-
menningi?”
„Það held ég ekki. En hreyf-
ing okkar er ekki innhverf i
þeim skilningi, heldur mun
þjóðfélagslegri en t.d. Ananda
Marga. Við vinnum um allan
heim og höfuðstöðvar samtaka
okkar eru i Kaupmannahöfn.
Við reynum aö fjalla um þau
mál sem efst eru á baugi og t.d.
mun ég fjalla hér um ástandið i
Póllandi, friðarhreyfinguna og
vigbúnaðarkapphlaupið. Við
reynum að skoða þjóöfélags-
ástandið á hverjum tima og
skilgreina þaö.”
„Ert þú á launum fyrir þessa
vinnu?”
„Nei, þetta er sjálfboðavinna,
en okkur er séð fyrir viður-
væri.”
„Að lokum. Þú segist vera
breskur aö uppruna. Hvers-
vegna klæöist þú þcssum föt-
um?”— spyrjum viö að lokum
og bendum á vefjarhött og skó-
siðan kyrtil Sudiiptananda.
„Allir kennarar hreyfingar-
innar eru svona klæddir”, svar-
ar hann, og viö kveðjum þá fé-
laga með þessum orðum. Þeir
sem áhuga hafa á að hitta þá er
bent á miðstöð Þjóðmálahreyf-
ingarinnar i Miðstræti 16, simi
23588. í kvöld mun Sudiiptan-
anda halda fyrirlestur I Félags-
stofnun stúdenta og hefst hann
kl. 8.30. — Þs
Að falla
í kramið
Fclagsskapur sem nefnir sig
HillCivic Association eöa Borg-
arafclagiö i Upphæöum og er
samkunda þckktra og rikra íbúa
Philadelphiu i Bandaríkjunum
hcfur bcöiö alríkisdómara aö
stööva áætlun um byggingu
smáibúöarhúsa á vissum staö i
SJÁUMST
MEÐ ENDURSKINI
yUMFERÐAR
RÁÐ
ALLT í GAMNI ----------------
fyrir börn
og fullorðna: |
borginni á þeim forsendum, aö
hinir fátæku geti ekki búiö á
mcöal hinna riku.
„Það veröur sifellt erfiðara
fyrir þá sem hafa úr litlu að
spila aö búa innan um þá sem
meira mega sin”, sagöi lög-
fræðingur samtakanna, Olan B.
Lowery, lagaprófessor við
Temple University.
,,Þeir geta ekki eytt sumar-
leyfum sinum á sömu stööum.
Þeirgeta ekki ekiö I sams konar
bifreiðum og gengið I sams kon-
ar fötum. Þeir eiga ekki völ á
samskonar húsgögnum.
Munurinn i jólagjöfum og öðr-
um gjöfum verður ávallt tilfinn-
anlegur við öll hátiðleg tæki-
færi”, sagði prófessor Lowery.
„1 reynderþað þannig, að þar
sem náttúrulegtvalhefur fengið
að ráða i öllum f rjálsum þjóðfé-
lögum, þar hafa hinir velstæðu
ávallt búið aðskildir frá hinum
snauðari”,sagði prófessor Low-
ery að lokum.
Ur fréttabréfi
Alþjóöasam bands
neytendafélaga ídesem bers.l.
Nýr spila-
pakkiá
markaðinn
Viltu læra aö búa til vind-
myllurellu, svifskutlu eöa spila
á „krotspil”? Ef svo er ættir þú
aö fá þér spilapakkanndrjúga.
„Allt i gamni”. t honum er ým-
isiegt til dundurs, getraun, spil,
brandarar auk þess sem aö
framan er getið. Þennan pakka
bjuggu þeir til feögarnir Tómas
Jónsson og Jón Tómasson.
Píramidaprik
Það er Jón, sem átti hug-
myndina aö spilinu sjálfu
„Krotspilinu”. Hann bjó til
mjög snjallt spil fyrir 2 árum,
en það var mikið bákn og i staö-
inn var þessi pakki búinn til.
„Gálgagetraun” er lika I pakk-
anum en þessu spili kynntist
Tómas þegar hann var við nám i
Bretlandi. Þeir feðgar hafa
hugsað sér að halda áfram að
gefa út spil og þrautir, enda
trúlega góður markaður fyrir
slikt, ekki sist á sumrin þegar
menn eiga gjarnan auða stund
til aö spila.
Spilapakkinn fæst i bóka-
verslunum.