Þjóðviljinn - 19.01.1982, Page 3
Atvinnuráðstefna
á Húsavík
Þriðjudagur 19. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Ráðstefna
og þorra-
blót um
sömu
helgi
Rætt við Sigurð
Rúnar Ragnarsson
form. kjördæmisráðs
Nú gefst fólki í kjör-
dæminu kostur á aö kynna
sér atvinnumál á breiðum
grundvelli/ bæði aðafla sér
f róðleiks og miðla af eigin#
sagði Sigurður Rúnar
Ragnarsson formaður
kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins i Norður-
landskjördæmi eystra,
þegar Þjv. sló á þráðinn til
hans í tilefni af atvinnu-
málaráðstefnu sem þeir
Allaballar á Norðurlandi
standa fyrir á Húsavík um
næstu helgi.
— Ráðstefnan veröur haldin á
Húsavik 23. og 24. janúar, en
þannig stendur á að Alþýðu-
bandalagsfélagið á Húsavik
stendur fyrir miklu þorrablóti á
laugardagskvöldið 23. janúar.
ViðVonumst til aöráðstefnugestir
taki sér málhvild og gleöjist meö
félögum sinum um kvöldið en
hefji siðan upp raustina strax á
morgni sunnudags.
—■ Ráðstefnan hefst með fram-
söguerindum fróðra manna:
Kjartans Ólafssonar, Þrastar
Ólafssonar, Péturs Eysteins-
sonar og Helga Guömundssonar.
Siðan verður ráðstefnunni skipt
upp i starfshópa. Ætlunin er að
stjórn kjördæmisráösins gefi út
bækling meðþvi sem fram kemur
á ráðstefnunni, en það er nú undir
fjárhag komið.
— Ráðstefnan er ætluð fyrst og
fremst til upplýsinga enda þarf að
taka stórar ákvarðanir um stór-
iðju og önnur atvinnumál innan
skamms. Það er þvi mikilvægt að
fólk afli sér itarlegrar vitneskju
áður en til ákvarðana kemur. Við
vonumst til aö sem flestir komi og
vonumst til að veðurguðirnir
verði okkur hliöhollir, sagði
Siguröur Rúnar að lokum.
—ög.
:':ií
Athyglisverð ráðstefna hófst i Reykjavik i gær og gæti hún orðið upphaf
að nánari fiskveiðisamstarfi þjóðanna sem land eiga að Norð-
ur-Atlantshafi. A ráðstefnunni eru fulltrúar frá Bandarikjunum,
Efnahagsbandalagi Evrópu, Danmörku fyrir hönd Færeyja, tslandi,
Kanada, Noregi og Sviþjóð.
Ráðstefna í Reykjavík
Millirík j asamningur
um verndun laxins?
1 gærmorgun hófst i Reykjavik
alþjóðaráðstefna um verndun
laxastofna á Norður-Atlantshafi
og er stefnt að þvi að ganga frá
millirikjasamningi um þessi efni.
Ráðstefnan er haldin að frum-
kvæði islands og til hennar boðið
fulltrúum frá Bandarikjunum,
Efnahagsbandalaginu, Dan-
mörku fyrir hönd Færeyja,
íslandi, Kanada, Noregi og Svi-
þjóö.
Ólafur Jóhannesson utanrikis-
ráöherra setti ráðstefnuna og var
Guðmundur Eiriksson kjörinn
forseti ráðstefnunnar. Varafor-
setar voru kjörnir Janus Paludan
sendiherra Danmerkur i Reykja-
vik og Larry Snead formaöur
bandarisku sendinefndarinnar. 1
islensku nefndinni eru
Guömundur Eiriksson þjóö-
réttarfræöingur, Þór Guöjónsson
veiðimálastjóri, Haukur Ólafsson
fulltrúi i viðskiptaráðuneytinu og
Þorsteinn Þorsteinsson bóndi á
Skálpastööum.
—ekh
17,9%
rúmlega 23%. Aðrar tegundir
hækka um 15.8%.
1 yfirefndinni eiga sæti: ólafur
Daviösson, forstjóri Þjóöhags-
stofnunar, sem er oddamaður
nefndarinnar, Ingólfur Ingólfsson
og Kristján Ragnarsson, fulltrúar
seljenda og Eyjólfur tsfeld
Eyjólfsson og Friörik Pálsson,
fulltrúar kaupenda.
Yfirnefndin mun siöar ákveða
fiskverð frá 1. mars til 31. mai.
Nýtt fiskverð
Meðaltalshækkun
A fundi yfirnefndar
Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins sl. laugardag varð
samkomulag allra aðila í
nefndinni um nýtt fiskverð
sem gildir frá 1. janúar til
28. febrúar.
Verðákvörðunin felur i sér að
meðaltali 17.9% hækkun á fisk-
verði. Gert er ráð fyrir að oliu-
gjald á árinu 1982 verði 7%.
I þessari meðalhækkun er meö-
talin sérstök hækkun á fiskveröi.
Gert er ráð fyrir að oliugjald á ár-
inu 1982 verði 7%.
I þessari meðalhækkun er með-
talin sérstök hækkun á óslægðum
þorski og ýsu. Þannig er hækkun
á slægðum þorski 16.4% en ó-
slægðum 23.3%. Slægð ýsa
hækkar um 9.3% en óslægð um
Bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri:
Forval hjá Alþýðubandalaginu
mgh ræðir við Pál Hlöðvesson, formann uppstillingarnefndar
Páll Hlöðvesson, formaður upp-
stillingarnefndar AB á Akureyri.
Alþýöubandalagið á Akureyri
ákvað á aðalfundi sinum i fyrra
vor, aö viöhafa forval til skipunar
á framboðslista félagsins við
bæjarstjórnarkosningar þær, sem
fram eiga að fara 23. mai i vor.
Sérstakri nefnd var falið að
annast framkvæmd forvalsins og
ganga að þvi búnu frá framboðs-
listanum. Formaöur þessarar
uppstiilingarnefndar er Páll
Hlöövesson og til þess að fræða
lesendur um forval þeirra
Akureyringa snéri Þjóðviljinn sér
til hans.
— Forvalið hefur verið ákveðið
i tveimur umferöum, eins og regl-
ur mæla fyrir um, sagði Páll.
Fyrri umferðin veröur dagana 30.
og 31. janúar, báða dagana kl. 2-6.
Verður kosið i Lárusarhúsi, Eiðs-
vallagötu 18. Auk þess er heimilt
aö kjósa bréflega og verður þá aö
hafa samband við einhvern upp-
stillingarnefndarmanna. A kjör-
stað liggja frammi forvalsregl-
urnar ásamt félagatali Alþýðu-
bandalagsins. En auk félaga er i
fyrri umferðinni heimilt að til-
nefna hvern þann, sem kjörgeng-
ur er til bæjarstjórnar, þótt hann
sé ekki skráður félagi i flokknum.
— Hverjir mega svo taka þátt i
forvalinu?
— Allir félagsmenn Alþýðu-
bandalagsins, sem hafa greitt ár-
gjáld sitt, mega kjósa. Auk þess
þeir, sem ganga i flokkinn i
siöasta lagi á forvalsdag og
greiða þá a.m.k. hálft árgjald,
þar sem starfsárið er þá um það
bil hálfnað.
Það er sjálfsagt, að allir
stuöningsmenn fiokksins, sem af
einhverjum ástæðum hafa ekki
látiö verða af þvi að ganga i hann,
geri það nú og nýti sér þar með
tækifærið til að hafa áhrif á upp-
stillingu til bæjarstjórnarkosn-
inganna i vor.
— Hvenær verður svo siöari
umferðin?
— Hún er ákveðin hálfum mán-
uði siðar, það er 13. og 14. febrú-
ar. Uppstillingarnefnd þarf
nokkurn tima til þess aö vinna úr
gögnum fyrri umferðarinnar, fá
samþykki viðkomandi manna til
áframhaldandi þátttöku og kynna
félagsmönnum niöurstöðurnar i
bréfi, svo þessvegna getur ekki
liðiö styttra á milli.
Það er að sjálfsögðu ekki of
seint til að taka þátt i siöari um-
ferðinni, að ganga i félagið þá. En
stjórn félagsins verður viðlátin i
Lárusarhúsi alla kjördagana til
aö samþykkja þar inntökubeiön-
ir, samkvæmt félagslögum. Auk
þess er svo hægt að hafa samband
við einstaka stjórnarmenn vilji
menn ganga i félagiö, eða að
æskja inngöngu bréflega.
Ég vil svo að lokum, sagði Páll
Hlöðvesson, hvetja alla flokks-
menn til þátttöku i forvalinu og
itreka hvatningu mina til óflokks-
bundinna stuðningsmanna að
ganga i félagið.
Hér i lokin skal þess og getið að
i uppstillingarnefnd sitja: Páll
Hlöövesson, Brynjar Ingi
Skaptason, Gisli Ólafsson, Hilmir
Helgason og Katfin Jónsdóttir.
Til einhverra þeirra ber þeim að
snúa sér, sem óska eftir að fá að
kjósa bréflega, eftir akstri á for-
valsdag eða vilja fá frekari upp-
lýsingar.
Simar á forvalsdag eru 8-18-75
og 2-58-75.
mhg.