Þjóðviljinn - 29.01.1981, Page 5
Fimmtudagur 29. janúar 1981ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Vinstrimenn í Verkamannaflokknum breska:
Sósíaldemókratar Evrópu
sviku sósíalismann
eins og sunnudagsprédikun sem
ekki gildir á virkum dögum.
Öðruvisi flokkur
segir Tony Benn, fyrrum
iðnaðarráðherra
og tækniráðherra
Hægri sveiflan er
tengd þvi að evrópskir
sósialdemókratáflokkar
sviku sósiálismann.segir
Tony Benn, fyrrum ráð-
herra i stjórn breska
Verkamannaflokksins
og einn af foringjum
vinstrisinna i flokknum,
sem nú hafa þjarmað
svo að helstu hægri-
sinnum þess flokks að
þeir gera sig liklega til
að yfirgefa hann.
í viðtali þvi sem danska blaðið
Information átti við Benn fyrir
skemmstu segir hann m.a.t
Stóðum okkur illa
Við svikum sósialismann fyrir
nokkrum árum. Þá var full at-
vinna og nokkur velmegun og við
fórum að tala um það, að sósial-
isminn væri úreltur. En nú
verðum við að viðurkenna að
vegna þess hve illa við stóðum
okkur i þvi að verja þá sigra sem
unnist höfðu þá þá hafa óvinirnir
unnið af okkur land: monetar-
istar (nýfrjálshyggjumenn),
hernaðarsinnar og fjölþjóðafyrir-
tæki. Við vörðum ekki málstað
okkar eins og okkur bar skylda
til.
Ekki bölsýnn
Nú sjáum við endurnýjunar-
hreyfingu i Verkamanna-
flokknum. Hún setur traust sitt á
rótækari skilgreiningu á sam-
félaginu og meira lýðræði innan
flokksins.
Ég var vitanlega feginn þvi,
sagði Antony Benn ennfremur, að
Michael Foot var kosinn for-
maður flokksins i fyrrahaust. En
einstaklingar fá ekki miklu ráðið.
Eina leiðin til að breyta sam-
félaginu er að hafa meirihluta
fólksinsá bak við sig. Aður en það
gerist skiptir það ekki höfuðmáli
hver fer með stjórnartauma —
þótt að vissulega megi ýmislegar
umbætur framkvæma i stjórnar-
stólum.
— En getur róttækari Verka-
mannaflokkur sett einskonar
sósialisma á dagskrá nú?
— Ég tel að blanda af atvinnu-
leysi sem skelfir fólk og skapar
forsendur fyrir hægrisveiflu sem
og tækniþjóðfélagið, sem eykur á
miðstýringu, hljóti að valda
okkur áhyggjum af þróun i átt til
fasisma. Hitler kom til valda á
miklum atvinnuleysistimum.
En ég er á hinn bóginn ekki böl-
sýnismaður. Þróuniner ekki öll á
einn veg. Aukin menntun hefur
haft djúptæk áhrif á heila kynslóð
manna, sem bera skyn á það hvað
um er að tefla i raun og veru.
Þetta er nýtt. Verkalýðsfélögin
eru sterkari en áður. Við skulum
muna að hægrisveiflan opinbera
fer saman við sidýpkandi sósi-
aliska úttekt á samfélaginu sem á
sér stað i verkalýðsfélögum og
Verkamannaflokknum.
1 þessu sambandi nefndi Benn
Tony Benn: fólk hafði atvinnu, bjó við nokkra veimegun og þá sögðu
menn: nú höfum við ekkert lengur við sósialisma að gera....
það sér til hugarléttis að hann
hefði i langan tima ekki séð aðra
eins mótmælafundi gegn atvinnu-
leysi og nú: 150 þúsundir mættu i
Liverpool og 100 þúsundir i Lond-
on.
Lýðræðið
Tony Benn sagði ennfremur að
hann hefði verið ráðherra i stjórn
Wilsons og væri þvi meðsekur i
undanhaldi sósialdemókrata. En
þar lærði ég, sagði hann, að
ekkert getur komið i staðinn fyrir
lýðræðislega skilgreiningu sam-
félagsins. Þvi, sagði hann, ef að
menn hafa orðið sér úti um raun-
verulegt lýðræði, þá mun fólkið
kjósa að skapa meiri jöfnuð. Þess
vegna er orustan núna lýðræðis-
barátta. Þeir sem ráðið hafa ferð-
inni geta með ýmsum hætti haft
sambýli við málfar sósialismans
— meðan það er ekki tengt lýð-
ræðislegum grundvallarvið-
horfum. En lýðræðið ógnar vald-
höfunum vegna þess að það er
hættulegt vaídi þeirra — meðan
sósialiskar ræður geta verið þeim
Hér er Tony Benn bersýnilega
að tala um átökin i Verkamanna-
flokknum sjálfum þvi hann
heldur áfram á þessa leið:
Þess vegna er baráttan fyrir
lýðræðislegum sósialisma orðin
mikið alvörumál i Verkamanna-
flokknum. Við viljum annars-
konar flokk, sem meðlimirnir
geta betur treyst. Og það hræðir
þá innan flokksins sem lita á sig
sem úrvalssveit einhverskonar.
Tony Benn sagði ennfremur i
viðtali þessu, að þróunin i Verka-
mannaflokknum fjarlægði hann
öðrum sósialdemókrataflokkum.
Hann taldi að i sinum flokki væru
t.d. allmiklu róttækari hug-
myndir um atvinnulýðræði en i
Vestur-Þýskalandi. Þó hefði
Verkamannaflokkurinn brugðist
á stjórnartið sinni þeim sem
reyndu i alvöru að fitja upp á
nýjum framleiðsluháttum, þar
sem verkamennirnir sjálfir hefðu
frumkvæði um skipulag starfsins.
Tækni og pólitik
Antony Benn var iðnaðar- og
tæknimálaráðherra i stjórnum
flokks sins og var spurður að
þeirri örtölvubyltingu sem getur
bæði aukið atvinnuleysi og dreift
ákvörðunarvaldi i samfélaginu.
Um pólitiskar hliðar þeirra mála
sagði Tony Benn:
örtölvubyltingin er spurning
um pólitik. Ef að þeir menn, sem
nú þegar hafa völdin i iðnaðinum,
munu stjórna henni þá verður hún
notuð til að hrekja verkamenn úr
störfum sinum og gera gróðann
sem mestan. örtölvan gerir þvi
sósialiskan kost enn brýnni en
áður i lýðræðislegu vali. Hún ber
upp málstað sósialismans með
nýjum hætti. Tæknileg vandamál
eru oft mjög flókin en ef að við
skoðum þau sem pólitisk mál þá
eru þau næsta einföld. Hver á að
ráða ákvörðunum? 1 hvers hag á
að.framleiða?
—áb endursagði.
Fjórmenningarnir sem vöktu
mikla athygli á sér á aukaþingi
Verkamannaflokksins breska
um helgina fyrir að lýsa yfir
stofnun Sósialdemókrataráðs
hafa eilefu þingmanna liðveislu
og er ekki búist viö aö fleiri
menn úr þingliöinu sláist i hóp
þeirra i bráð.
Þeir munu ekki fara úr
flokknum i bráð, en þvi er
likt viðkraftaverk ef þeir fást til
að vera i flokknum til lengdar,
og getur upphlaup þeirra haft
mjög viðtækar afleiðingar.
össur Skarphéðinsson, frétta-
ritari blaðsins i Bretlandi
hringdi þessar fregnir til okkar.
Hann bætti þvi við að verkalýðs-
foringjar ýmsir, sem óttast nýja
flokkstofnun ætli að reyna að
sefa f jórmenningana, þau
Michael Foot og Margaret Thatcher: þau endurspegla þreytu meö þaö miöjudekur sem hefur viöhaldiö
tveggja flokka kerfi.
Er tveggja flokka kerfið
að hrynja í Bretlandi?
Nýr miðjuflokkur
sýnist
eiga mikla
möguleika
| Shirley Williams, William
■ Rodgers, Roy Jenkins og David
■ Owen, með þvi að fá þvi fram-
\ gengt á enn einu aukaþingi
Iflokksins i haust að hætt verði
við þá nýju aðferð við að velja
? flokksformann sem samþykkt
| var nú um helgina. En með
■ henni voru veruleg völd tekin úr
I höndum þingflokksins, sem
J jafnan hefur verið helsta at-
■ hvarf hægrisinna i flokknum.
Thomas Ellis heitir þing-
■ maður úr þeim hópi sem kall-
Iaður hefur verið „skitna tylft-
in”. Hann hefur nýlega skýrt frá
g þvi i blaðagrein, að úthlaups-
menn úr Verkamannaflokknum
gætu vel hugsab sér að stilla upp
i 30—40 kjördæmum og væri þar
með byrjað á þvi að brjóta niður
tveggja flokka kerfið.
Málamiðlunar-heföin.
Það er einmitt þetta sem nú
siðast var á minnst sem hefur
verið mjög til umræða I Bret-
landi að undanförnu: framtið
tveggja flokka kerfisins. Um
það fjallar m.a. Peter Jenkins i
grein sem birtist I Guardian 7.
desember.
Hann segir á þá leið, að eitt af
þvi sem viðhélt tveggja flokka
kerfi i Bretlandi var ákveðin
frjálslyndisleg málamiðlunar-
hefð, sem setti svip sinn á báða
stóru flokkana. Frjálslyndi
flokkurinn þokaðist smám
saman út af sviðinu, en ákveðin
frjálslyndishefð kom sér þægi-
lega fyrir bæði i Ihaldsflokknum
og i endurskoðunarstefnu
Verkamannaflokksins undir
stjórn Harolds Wilsons, sem
veitti þeim flokki m.a. aðgang
að verulegum hluta mennta-
manna.
Þessi málamiölunarhefö
(sem þokar báðum flokkum inn
að miðju og gerir þá hvorn öðr-
um likan um margt) hefur verið
á undanhaldi, segir Peter Jenk-
ins. Greinileg breyting varð um
1970 þegar Heath tók umtals-
vert skref til hægri með flokk
sinn, og ýtti þá um leið undir
vissa vinstriþróun i Verka-
mannaflokknum. Þessi þróun til
tveggja póla heldur svo áfram I
vali Margaret Thatcher sem
leiðtoga Ihaldsflokksins. Það
val telur Jenkins m.a. endur-
spegla vinstriþróun i Verka-
mannaflokknum og svo sé val
Verkamannaflokksins á
Michael Foot sem foringja i
fyrrahaust með nokkrum hætti
endurspeglun á hægriþróun
ihaldsins.
Þreyta.
Þessi þróun, segir Peter
Jenkins, sýnir að flokkarnir
sjálfir eru of sundraðir inn-
byrðis til að geta viðhaldið
málamiðlunarhefðinni — eða þá
að þeir hafa misst þolinmæðina
vegna itrekaðra vonbrigða með
frammistöðu flokkanna i efna-
hagsmálum.
Frú Thatcher og Michael
Foot, segir Jenkins, eru full-
trúar kjósenda sem hafal
ákveðnari___hugmyndir um —
flokka sina en miðjumenn — og
um leið þrengja þessir kjóS"
endur flokkana „niður i
Thatcherisma og sósialisma”.
Jenkins minnir á, að i báðum
flokkum séu sterk öfl sem vilji
tosa þeim inn á miðju aftur, en
það sé alls ekki vist að það ger- ■
ist.
Nýjustu fregnir sýnast ein- 5
mitt benda til þess, að ókyrrðin |
á hægra armi Verkamanna- ■
flokksins leiði til, að til verði |
nýr miðjuflokkur, sem m
sósialdemókratar og Frjáls- ■
lyndi flokkurinn mættust i fóst- ■
bræðralagi. Skoðanakannanir “
sem birtar voru i gær benda til
þess að slik blökk gæti náð undir
sig rösklega þriðjungi atkvæða
á Bretlandi ef kosið væri nú.
— áb.
j
i
i
■
i