Þjóðviljinn - 29.01.1981, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Finiuntudagur 29. janúar 1981
Þegar heilsugæslustööin við
Borgarspitalann hóf starfsemi
sina á dögunum, varð nokkur
meiningarmunur milli lækna
annars vegar og bæjaryfirvalda
hins vegar um það, með hvaða
hætti skyldi skrá samlagsmenn
að stöðinni. Þar lögðu læknar
þeir, sem tjáðu sig um málið,
áherslu á, að fólk ætti rétt á að
hafa frjálst val um heimilis-
lækna. Þetta hefur oft heyrst
áður, og allir eru sammála um,
að það sé æskilegt. Þetta frjálsa
val hlýtur þó alltaf að eiga sin
takmörk, af ýmsum ástæðum.
T.d. munu fæstir utan höfuð-
borgarsvæðisins eiga um marga
kosti að velja i þessum efnum, og
heldur mun valið hafa veriö
fáskrúðugt i Reykjavik og ná-
grenni undanfarin ár, þegar tugir
þúsunda ibúanna hafa verið
heimilislæknislausir.
1 þessum umræðu, sem reyndar
voru ekki ýkja miklar að vöxtum,
gleymdist að geta þess, að hér
var ekki bara um að ræða val
milli lækna, heldur kannske
miklu fremur val milli þjónustu-
kerfa. Stofnsetning heilsugæslu-
stöðvanna þýðir afnám gamla
heimilislæknakerfisins, hins svo-
nefnda númerakerfis, sem er
komið i ógöngur og er ein megin-
orsök þess, að heimilislækningar
á höfðuborgarsvæöinu eru
komnar i niðurníðslu. Þetta kerfi
hefur gert nýliðum i heimilis-
lækningum óframkvæmanlega.
1 stað þessa gamla kerfis skal
samkvæmt lögum koma kerfi
heilsugæslustöðva, þar sem
læknar og aðrar heilbrigðisstéttir
annast i sameiningu heilsugæslu
ibúanna,þ.e. alla heilbrigðisþjón-
ustu utan sjúkrahúsa.
Það, sem fólk er þvi fyrst og
fremst að velja um, er þjónustu-
form.þ.e. hvort það vill áfram
gamla númerakerfið eða hvort
það vill taka upp hið nýja form
heilsugæslustöðvanna.
En til þess að geta valið milli
tveggja valkosta þarf viðkomandi
að kunna nokkur skil á báðum
valkostunum. Það mun hins
vegar skorta mikið á, að almenn-
ingi hafi verið kynnt nægilega,
um hvað er að velja. Það er vissu-
lega hægt að álasa læknum fyrir
það, að hafa ekki unnið meira að
þvi að kynna þessi mál. Breyting
sú sem hér á sér stað var lögfest
fyrir sjö árum, svo að hér hefur
verið nógur timi. En læknar eiga
hér ekki einir sök. Heilbrigðis-
þjónustan er ekki sérmál lækna
eða annarra heilbrigðisstétta.
Heilbrigðismálin eru fyrst og
fremst mál fólksins, hins al-
menna borgara. Þarna er um að
ræða þjónustu, sem þjóðfélagið
kemur sér upp i þeirri von, að
meö þvi sé verið að stuðla að heil-
brigði og velferð þegnanna. Það
ætti þvi að teljast skylda þeirra
heilbrigðisyfirvalda, sem
gangast fyrir breytingum af
þessu tagi, að kynna þær almenn-
ingi, svo að ljóst sé, i hverju
breytingin er fólgin og á hvern
hátt hún horfir til bóta. Ég hef
grun um, að þessi skortur á kynn-
Guðmundur
H. Þórðarson
skrifar um
heilsugœslu-
stöðvar:
Val
milli
nýs
A þeim heilsugæslustöðvum sem stofnaðar hafa verið hefur þaö verið nokkuð föst regla að hver læknir
annist einungis 1500 manns. Myndin er úr Heilsugæslustöðinni I Borgarspitalanum.
og gamals kerfis
ingu sé að einhverju leyti að
kenna hinni alkunnu feimni við
læknastettina, sem mætti gjarnan
hverfa. Umræður um heilbrigðis-
mál eiga aö vera opinskáar.
Undirritaður leyfir sér hér með
sem einn úr hópi heilbrigöis-
starfsmanna að benda þeim, sem
standa frammi fyrir vali milli
hins nýja og gamla kerfis, á
nokkur atriði, sem vert er að
ihuga. Það skal þó tekið fram, að
það, sem hér er sagt, er min per-
sónulega skoðun, en ekki talað
fyrir munn neinna samtaka eða
félaga.
Það mun vera ætlunin með til-
komu heilsugæslustöðva i
Reykjavik og nokkrum öðrum
fjölmennum þéttbýlisstöðvum að
skipta byggðinni i hverfi, sem
hvert um sig hafi sina heilsu-
gæslustöð. Þetta er gert til að
fjarlægðin milli heimilislæknisins
og þeirra, sem hann á að þjóna sé
Lífeyrissjóður
Fél. garðyrkjumanna
Akveðið hefur verið að veita lán úr sjóðn-
um til sjóðsfélaga. Umsóknir berist fyrir
15. febr. 1981. Umsóknar eyðublöð eru af-
henthjá Guðm. V. Ingvarssyni, Heiðmörk
1, Hveragerði, simi 99-4277, og á skrifstofu
Fél. garðyrkjumanna, óðinsgötu 7, á
fimmtudögum kl. 15—17.
Stjórn Lifeyrissjóðs
Fél. garðyrkjumanna.
UTBOÐ
Tilboð óskast í loftstreng fyrir Rafmagns-
veitu Reykjavíkur.
Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn
2. mars n.k. kl. 14.00
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVIKURBORGAR
Fnkifkjuvegi 3 — Sími 25800
sem minnst eða m.a.ö. að færa
þjónustuna nær fólkinu i bókstaf- j
legum skilningi. Maður heyrir þá
röksemd, að fjarlægðir skipti ekki
miklu máli á þessu svæði, þar séu
allar götur svo greiðar. Þetta er
rangt. Það skiptir vissulega máli,
hvort fólk þarf að taka leigubií
eða fara langar leiðir i strætis-
vagni, jafnvel fleiri en einum,
þegar það þarf að fara til læknis.
Ég tala nú ekki um, ef það þarf að
fara gegn um 3—4 hreppa, eins og
sums staðar viðgengst á höfuð-
borgarsvæðinu. Nálægð heimilis-
læknis auðveldar fólki að leita til
hans. Númerakerfið hefur hingaö
til gert ráð fyrir að sami læknir
geti annast fólk hvar sem er á
svæðinu. Það er m.a. þessi
dreifða búseta skjólstæðinga
hvers læknis, sem hefur leitt til
þess, að vitjunum i heimahús
hefur fækkað. Vegna fjarlægð-
anna hafa þær reynst of tima-
frekar.
A þeim heilsugæslustöðvum,
sem stofnaðar hafa verið til þessa
á höfuðborgarsvæöinu, hefur það
verið nokkuð föst regla, að hver
læknir annaðist einungis 1500
manns. Samkvæmt gamla kerf-
inu hefur það hins vegar verið ai-
gengt, að hver læknir annist
amk. helmingi fleiri og jafnvel á
fjórða þúsund manns. Það segir
sig sjálft, að þvi fleira fólk, sem
heimilislæknirinn tekur að sér,
þvi minni verður þjónustan við
hvern og einn að öðru jöfnu, og
þetta er viðurkennt I raun I hinu
nýja kerfi með þvi að takmarka
fjöldann við það, sem talið er við-
ráðanlegt fyrr einn mann.
Margir þekkja, hve það getur
verið erfitt, erilsamt og kostn-
aðarsamt aö eltast við hinar
ýmsu stofnanir og sérgreinar
heilbrigðiskerfisins. Þar þarf að
panta tima, sem ekki eru til fyrr
en eftir margar vikur eða
mánuði, sitja á biðstofum, fara
hingað og þangað. Fyrir utan
kostnaðinn, sem i þetta fer, er
þetta stffasta erfiði og ekki nema
fyrir hraustasta fólk. Það liggur
hins vegar i eðli málsins, að þeir,
sem ganga þessi svipugöng, eru
ekki þeir hraustustu. Til að bæta
úr þessu er stefnt að þvi, að sem
mest af heilbrigðisþjónustu utan
sjúkrahúsa verði afgreitt inni á
heilsugæslustöðvunum ýmist af
heilsugæslulæknunum sjálfum
eða hugsanlega sérfræðingum,
sem ráðnir væru til stöðvanna, og
ynnu þar i nánum tengslum við
heilsugæslulækna. Þannig ætti að
vera hægt að fá á einum stað þá
þjónustu, sem sjúklingurinn yrði
annars að eltast við á mörgum
stöðum með ærinni aukafyrirhöfn
og kostnaði. Ég hygg, að þetta sé
það atriði, sem fólk muni finna
hvað gleggst fyrir, þegar heilsu-
gæslustöðvarnar verða komnar i
það horf, sem þeim er ætlað. 1 þvi
sambandi er rétt að gera sér
grein fyrir þvi, að almennir
læknar geta annast mun fleiri
atriði læknisþjónustunnar en
þeir gera nú, ef þeir hafa til þess
tima og aðstöðu.
Þar sem heilsugæslustöðvar
hafa verið stofnaöar i Reykjavik
og nágrenni, hefur fólk getað náð
simasambandi við stööina allan
daginn eða til kl. 5 siðdegis. Ef
um alvarleg bráöatilfelli er að
ræða, hefur reynst unnt að ná tali
af viðkomandi lækni eða öðrum
lækni, sem gegnir fyrir hann, á
meðan simi er opinn. Þá er það
markmið heilsugæslulækna að
hafa vakt á kvöldin fyrir skjól-
stæðinga stöðvarinnar, svo að
þeir þurfi ekki að leita til bæjar-
vaktarinnar, sem hefur satt að
segja verið illa i stakk búin til að
gegna hlutverki sínu.
Þegar þessi tiltölulega sam-
fellda viðvera er borin saman við
hina stuttu og oft stopulu viðtals-
tima, sem hingað til hafa tiðkast i
heimilislækningum, er augljóst
að þar er um að ræða jákvæða
breytingu.
Loks má benda á, að með til-
komu heilsugæslustöðva skapast
möguleikar á, að samhæfa vinnu
heimilislækna og annarra heil-
brigðisstétta s.s. hjúkrunarstétt-
anna bæði á stöðinni og i heima-
hjúkrun, félagsráðgjöf og fleiru,
en slikt samstarf er óhugsandi á
meðan númerakerfið er við lýði.
Slikt samstarf er höfuðnauðsyn
og vantar mjög tilfinnanlega við
núverandi aðstæður.
Hér hefur verið stiklað á stóru
og fátt eitt nefnt af þvi, sem vert
er aö hugleiða i sambandi við
breytingu þá á heimilislækning-
um, sem hér hefur verið gerð að
umræðuefni. Þessi mál þurfa
mikla umræðu og umfjöllun á al-
mennum vettvangi. Þessum
punktum er hér varpað til að
reyna að vekja umræðu, fyrst og
fremst meðal neytendanna. Neyt-
andi heilbrigðisþjónustunnar
hefur verið allt of þögull, allt of
nægjusamur og ógagnrýninn á
kerfið.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Félagsstarf eldrí
borgara Reykjavik
Þátttakendur i félagsstarfinu að Norður-
brún 1, Furðugerði 1 og Lönguhlið 3 at-
hugið:
Félagsstarfið hefir aukist og þess vegna
eru breytingar á dagskrám.
Vinsamlegast kynnið ykkur nýjar dag -
skrár sem fást á fyrrnefndum stöðum og
hjá Félagsmálastofnuninni að Vonar-
stræti 4.
Félagsmálastofnun
Reykjavikurborgar.